Morgunblaðið - 21.09.1982, Síða 33

Morgunblaðið - 21.09.1982, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1982 41 fclk í fréttum Karl Gústaf og Silvía ásamt dótturinni nýfæddu, Magóalenu. Prinsessan dafnar vel + Síðasta konungborna barnið á Norðurlöndum er Magðalena Theresa Amelía Jósefína, dóttir Karls Gústafs Svíakonungs og eiginkonu hans, Silvíu prinsessu, en sú stutta fæddist fyrr í sumar. Viktoría systir hennar, sem er fimm ára að aldri, mun verða erfingi krúnunnar í Sví- þjóð eftir að lögum þar í landi var breytt þannig að stúlku- börn voru einnig gjaldgeng í embætti konungs/drottn- ingar. Silvía fæddi í konungshöll- inni nú sem áður og var Karl Gústaf viðstaddur þessa fæðingu eins og fæðingu sonarins, Karls Filips, sem er þriggja ára aö aldri, en kon- ungurinn var fjarverandi sök- um embættisskyldna þegar fyrsta barn þeirra hjóna fæddist, dóttirin Viktoría. Victor Borge og Henrik + Victor Borge og Birgit Nilsson hafa verið undanfariö i Banda- ríkjunum vegna opnunar á Scandinavia Today, sem framlag Dana við opnunarhátíðlna. Mynd þessi sýnir hvar kump- ánarnir Victor Borge og Henrik prins, sem var án Margrétar í Bandaríkjunum, spjalla saman á góðri stundu eftir tónleika Vict- ors og Birgit í síöustu viku. Victor Borge og Henrik prins ræða saman ( bróðerni að tón- leikum hins fyrrnefnda loknum. Gjöf Reagan til William prins + Sunnudaginn 5. september barst hinum nýfædda breska prinsi sérstæö gjöf frá Ronald Reagan, Bandaríkjaforseta og eiginkonu hans, Nancy. Gjöfin er handsmíöuð eftirlík- ing af svonefndum Chippen- dale-barnastól úr eik. Starfs- stúlka í Hvíta húsinu, Ellen Han- cock, saumaöi í setuna blóm og skjaldarmerki þar sem stendur: „H.R.H. William af Wales, 21. júní 1982“, en H.R.H. stendur fyrir His Royal Higness sem gæti út- lagst á íslensku sem „yöar kon- unglega hátign ...“. Prinsinn hjá Reagan Systkinin Viktoría og Karl Filip hlúa að litlu systurinni, Magðalenu. COSPER — Ég veit að kaupmáttur krónunnar hefur minnkaö, en ég læt ekki deigan síga fyrir það. + Hinrik prins var viöstaddur opnun Scandinavia Today fyrir hönd Dana, en Margrét drottning sá sér ekki fccrt aö fara sökum anna í heimalandi sínu. Mynd þessi sýnir hvar Hinrik og Nancy Reagan eru hin ánægöustu á svip í hádegisveröarboöi því er Reagan hélt Vigdísi til heiöurs I siöustu viku. DANSSKÓLI Siguröar Hákonarsonar BÖRN-UNGLINGAR-FULLORÐNIR Kenndiralliralmennirdansarog margt fleira. KENNSLUSTAÐIR ERU Félagsheimili Kópavogs, Fannborg 2 _ Þróttheimar v/Sæviðarsund Félagsheimili Víkings, Hæðargarði Sérstakir tímar verða fyrir hópa, klúbba eða félög, ef óskað er. Barnatímar m.a. á laugardögum eins og verið hefur. Stígið gæfuspor, því dans er skemmtileg tilbreyt ing fyrir alla, skemmtilegri en þú heldur. Lærið hjá þeim sem reynslu og þekkingu hefur. Hressilegt og óþvingað andrúmsloft. Innritun og upplýsingar daglega kl. 10.00 - 19.00 í síma 46776 og 41557. Sigurður Hákonarsson 15 ára kennslureynsla 50.493 mín. löng dagskrá eöa — ef þú heldur vilt — 10 ára birgöir af iaugardagsmyndum. Yfir500 titlar. Fyrir VHS, BETA og 2000. Opiö frá kl. 12.00- 21.00 virka daga. 12.00 —18.00 laugardaga. Lokaö á sunnudögum. ÍZJ VIDEOMIÐSTÖÐIN Laugavegi 27 — Sími 14415.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.