Morgunblaðið - 21.09.1982, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 21.09.1982, Qupperneq 38
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1982 Forseti íslands á íslendingafagnaði í Seattle: Heilsaði 500 gest- um með handabandi Seattle, 20. .september — írí Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins. „VIÐ HÖFIIM heyrt, að Vigdís forseti muni aðeins stoppa stutt við á móttöku íslendingafélagsins í kvöld,“ sagði einn Vestur-íslendingur kvíðafullur, skömmu eftir komu forseta fslands, Vigdísar Finnbogadótt- ur, vestur til Seattle á laugardag, en hvorki hann né aðrir hefðu þurft að kviða þvi. Vigdís forseti var 90 mínútum lengur í móttökunni, en ætlazt var til i upphafi. Hún tók í hönd hvers einasta gests, sem vildi heilsa henni, eða yfir 500 gesta, skiptist á orðum við þá og áritaði miða, myndir og hvað sem tiltækt var. Undir lok samkvæmisins virtust allir i fylgdarliði forsetans að þrotum komnir, en forsetinn sjálfur sýndi engin þreytu- merki, þótt dagurinn hefði verið langur. Vigdís forseti heilsar Aleph Johannsson fyrir messu í Seattle. Aleph verður 100 ára i nóvember og sagði Vigdís að hún bæri aldurinn með glæsibrag. Forseti Islands flaug frá New York til Seattle í Washington- ríki á Kyrrahafsströnd snemma á laugardagsmorgun. Sverrir Haukur Gunnlaugsson og Guðný Aðalsteinsdóttir kona hans fyigdu henni fyrir hönd sendi- ráðs íslands í Bandaríkjunum, en Hans G. Andersen sendiherra fylgdi kistu Kristjáns Eldjárns fyrrverandi forseta heim á föstudag. Ólafur Egilsson sendi- herra og Halldór Reynisson for- setaritari eru í fylgdarliði for- setans frá íslandi. Ríkisstjóri Washington og borgarstjórar Seattle og Tacoma tóku á móti forsetanum á flugvellinum auk Phyllis Lamphere, formanns undirbúningsnefndar Scandina- via Today í Seattle, en Henry Jackson öldungadeildarþing- maður ríkisins hefur þann titil með henni. Á hótelinu beið önn- ur móttökunefnd forsetans og þar á meðal Jón M. Jónsson, ræðismaður Islands í Seattle. Karlakórinn Vesturfarar söng þjóðsöng Islands og Bandarríkj- anna og Charles Royer, borgar- stjóri Seattle afhenti Vigdísi forseta styttu af hval, sem einn fremsti listamaður indíána hef- ur gert. Heimsókn Vigdísar forseta hefur vakið nokkra athygli í Seattle, en hún er fyrst í röð fyrirfólks frá Norðurlöndum til að heimsækja Seattle í sam- bandi við Scandinavia Today. Hún hélt blaðamannafund á laugardag og svaraði spurning- um um menningu, eigin störf og kvennabaráttu á íslandi. Þegar kom að þeirri spurningu lifnaði mjög yfir forsetanum og hún sagði frá kvennaverkfallsdegin- um 25. október 1975. Hún var spurð, hvort hún hefði skipt um skoðun varðandi herstöðina í Keflavík. Forsetinn benti spyrj- anda á, að hún hefði aldrei til- heyrt stjórnmálaflokki og ekki rætt stjórnmál í kosningabarátt- unni. íbúar Seattle eru um hálf milljón, en á þéttbýlissvæðinu öllu býr yfir ein milljón íbúa. Um 5 þúsund manns eru af is- lenzkum ættum. Fólk ferðaðist langar leiðir til þess að vera viðstatt móttöku íslendingafé- lagsins í Seattle. Meðal gesta þar var Geir Jón Helgason, fyrrver- andi lögregluþjónn í Reykjavík, og Helgi Geirsson, sonur hans. Helgi stóð í röð í 45 mínútur til að taka í hönd Vigdísar forseta. Hann var 14 ára þegar foreldrar hans fluttust til Kanada. Hann sagðist verða að fara heim af og til til að endurnæra sálina og sagði að það væri hreinn lífgjafi að fá forseta íslands til Seattle. Hann myndi ekki standa í þess- ari röð annars. Karlakórinn Vesturfarar söng íslenzk lög í móttökunni. Ekki er hægt að neita að það vottar fyrir hreim í ísienzka þjóðsöngnum hjá þeim, en þeir eru allir Vestur-íslend- ingar og merkilegur áhugi þeirra á íslenzkum söng. Wilson formaður íslendinga- félagsins bauð Vigdísi forseta velkomna í móttökuna og kvað félagið staðráðið í að halda við íslenzkri tungu og menningu í vesturbyggðum. Vigdísi forseta var gefin saga félagsins og sagð- ist hún hlakka til að lesa hana. Vigdís forseti sat messu í kirkju Vestur-íslendinga á sunnudagsmorgun. Þar hitti hún þrjá mjög fullorðna Vestur- Islendinga og gaf sér góða stund til þess að tala við Alegh Jó- hannsson, sem verður 100 ára 9. nóvember og hjónin Guðrúnu og Jón Magnússon. Þau töluðu öll íslenzku og sagði Jón að hann hefði gætt þess að hann gleymdi ekki málinu. Harald Sigmar pre- dikaði við messuna. Vigdís for- seti heimsótti áður norrænt safn, sem opnað var 1979. Hún skoðaði Grænlandssýningu, sem sendiherra Dana í Bandaríkjun- um opnaði og afhenti safninu ís- lenzkan ask að gjöf. Rósa Sig- urðardóttir las „Norðurljós", kvæði Einars Benediktssonar, á íslenzku og ensku. Hún er fjall- kona Islendingafélagsins í ár og var klædd í skautbúning. Borgarstjóri Seattle bauð Vig- dísi forseta í hádegisverð á sunnudag. Hún sótti síðan tón- listarhátíð, sem var tileinkuð Grieg í Washington-háskóla. Seint um eftirmiðdaginn fékk hún tækifæri til þess að sigla um Pudet-sundið í einkar fallegu veðri. Seattle er stundum kölluð smábátahöfuðborg heimsins. Þar eru fleiri bátar á mann en nokkurs staðar annars staðar. Pudet-sundið og vötnin i kring- um borgina eru kjörin til skemmtisiglinga og fegurð er mikil. Seattle var í upphafi byggð á 7 hæðum eins og Róm, en nú hafa tvær hæðir verið jafnaðar og skýjakljúfar tekið þeirra stað. Geimnálin, sem var byggð fyrir heimssýninguna 1962 setur svip sinn á borgina. Islenzkir fulltrúar Hildu hf. rák- ust þar uppi á bandaríska stúlku, sem reyndist vera vest- ur-íslenzk, alíslenzk í fjóra ætt- liði aftur til þess tíma, er forfeð- ur hennar fóru að heiman. Eins og fram kom í Mbl. á sunnudag varð árekstur tveggja bíla og útafakstur þess þriðja á laugardagsmorgun í fyrstu hálku haustsins á Hellisheiði. Þessa mynd tók Fmilía B. Björnsdóttir Ijósmyndari Mbl. skömmu síðar af bílunum tveim sem lentu í árekstrinum. Deildakeppni í skák: Sveitir TR efetar SVEIT Taflfélags Reykjavíkur, norð/vesturbær, hefur forustu eftir fjórar umferðir í deildakeppni Skák- sambands íslands, sem hófst um helgina, með 23 vinninga. Sveit Tafl- félagsins, suður/austurbær, fylgir fast á eftir með 22 vinninga. lag Akureyrar með 12‘/i og lestina rekur Skáksamband Suðurlands með 7 vinninga. í 2. deild hefur Taflfélag Akra- ness forustu með 14 vinninga en Skákfélag Keflavíkur fylgir fast á eftir með 13% og í þriðja sæti er Taflfélag Húsavíkur með 11 % vinning. Taflfélag Vestmannaeyja hefur forustu í 3. deild með 15'Á vinning. Taflfélag Seltjarnarness B er með 13 % og A-sveit TR hefur 11% vinning. í þriðja sæti er sveit Taflfélags Seltjarnarness með 19 vinninga. Taflfélag Kópavogs er í 4. sæti með 17 vinninga, Skáksamband Vestfjarða með 14%, Skákfélag Hafnarfjarðar með 13%, Skákfé- Lítið meira Sér permanentherbergi Tímapantanir í síma 12725 mest Rakarastofan Klapparstíg Alliance francaise: Sýnir kvikmyndina KVIKMYNDAKLÚBBUR Alliance Francaise sýnir í Regnboganum, E-sal,á morgun klukkan 20.30, svo og á fimmtudag á sama tima kvik- myndina Lily, elskaðu mig, „Lily, aime-moi“ og er myndin sýnd í minningu kvikmyndaleikarans Patr- ick Ilewaere, sem svipti sig lífi í síð- asta mánuði. Kvikmyndin er gerð árið 1974. Um hana segir í plöggum, sem Morgunblaðið fékk send frá kvik- myndaklúbbnum: Myndin er skáldleg gamanmynd þar sem vikið er að málum svo almennum sem ástinni, samlífi hjóna, vináttunni og stórborgarlífi nú á dögum. Mynd þessi sem er fyrsta langa myndin sem Maurice Dugowson gerir, hlaut mjög góðar viðtökur jafnt hjá hinum almenna áhorf- anda sem gagnrýnendum sem undirstrikar vel helsta kost henn- ar: að halda vel jafnvæginu milli hins gamansama og hins alvar- lega, milli hláturs og tára. Lily, elskaðu mig

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.