Morgunblaðið - 27.11.1982, Page 15

Morgunblaðið - 27.11.1982, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1982 15 Grípum tækifærið — Björg Einarsdóttir skrifar ViðrcisnartímabiliA 1959—1971, þegar stefna Sjálfstæðisflokksins gilti, var skeið mikilla framfara og festu í þjóðmálum. Fólk saknar þess stöðugleika, er þá ríkti og spyr: Hvers vegna er allt í svona mikilli óreiðu hér nú? Að sjá í kviku. Nýlega var ég stödd á vinnustað, þar sem hópur kvenna var að störfum. Umræðan var lífleg og margt bar á góma. Verður nóg í launaumslaginu mínu fyrir helg- armatnum, sagði ein kvennanna og hafði áhyggjur af frádráttar- liðunum, sem óneitanlega eru margvíslegir. Önnur kveið því að ná ekki að sækja barn sitt á leikskólann í tæka tíð. Glettni og gáski var vissulgea þarna, en hjá flestum skein þó í áhyggjur dag- lega lífsins. Það er sama hver er kosinn, ekkert breytist hjá mér, virtist viðkvæðið og — þetta er ekkert jafnrétti, við púlum tvöfalt en uppskerum einfalt. Það var eins og að sjá í kviku að vera þarna og taka þátt í umræð- unum. Þessi hópur sker sig þó tæplega úr, hann er fremur dæmi- gerður fyrir þá spennu og örygg- isleysi, sem einkennir líf margra um þessar mundir. Börnin borga síðar Við erum sokkin í skuldir sem okkur endist ekki aldur til að greiða, var hermt upp á einn stjórnmálamanninn. Ég get ekki horft framan í börn mín síðan ég heyrði þetta, varð einni konunni að orði, mér skilst að þau eigi að „Við erum sokkin í skuldir sem okkur end- ist ekki aldur til að greiða, var hermt upp á einn stjórnmálamann- inn. Ég get ekki horft framan í börn mín síðan ég heyrði þetta, varð einni konunni að orði, mér skilst að þau eigi að borga síðar. Hvers vegna er allt í svona mikilli óreiðu. borga síðar. Hvers vegna er allt í svona mikilli óreiðu? Þrá eftir stöðugleika er augljós og spurning mín til hópsins var, hvort við ættum ekki að taka okkur til og breyta hlutunum og bæta þá, efla einn flokk, Sjálf- stæðisflokkinn, til ábyrgðar og koma reiðu á. Gera ísland að líf- vænlegum stað, þar sem fólk væri ekki þrúgað af áhyggjum og kvíða og óöruggt um framtíð barna sinna. Fólk á verkfærum aldri heldur uppi framleiðslunni á sama tíma og það sér börnum sínum farborða og ber ábyrgð á uppeldi þeirra. Þetta tvennt verður að hafa fram- gang, þar í felst öll önnur fram- vinda. Mörgum reynist þetta ofviða vegna óhagstæðra skilyrða. Skipulag og samræming Úrbætur er meðal annars að finna í bættu skipulagi á vinnu- markaðinum og samræmingu á vinnutíma og skólatíma (og opnunartíma dagvistarheimila og leikskóla), samfelldum skóladegi og fljótandi eða sveigjanlegum vinnutíma. Átak í þessum efnum mundi létta daglegan róður fjölda fólks, karla og kvenna, auðvelda rekstur heimilanna og skapa skil- yrði fyrir meira fjölskyldulífi. Margur saknar þess hversu lítinn tíma fjölskyldurnar hafa til sam- veru. Bætt skipulag og meiri sam- ræming á nauðsynlegum þáttum daglegs lífs myndi auka líkurnar á jöfnum möguleikum karla og kvenna til að njóta lífsins á þann hátt, sem hver og einn kýs sér. Það er ein leið til aukins jafnréttis. Konur skilja þetta Þessa þætti skilja konur án efa betur en karlar, vegna þess að þeir eru meira samofnir daglegum skyidustörfum þeirra. Það er ein ástæðan fyrir því að fjölga verður konum bæði í sveitarstjórnum og á Alþingi. í prófkjörinu hjá Sjálfstæðis- flokknum í Reykjavík nú eru kon- ur í framboði, sem hafa sýnt það og sannað að þær láta sér annt um þau mál, sem hér hafa verið reif- uð. Grípum tækifærið og kjósum kon- ur til áhrifa. Prófkjör Sjálfstæðismanna í Reykjavík 28. og 29. nóvember 1982 Stuðningsmenn " mínir veita upplýsingar og akstursþjónustu prófkjörsdagana sunnudag og mánudag. Sími 84069 — 16121 Esther Guömundsdóttir Skrifstofa stuðningsmanna Geirs H. Haarde er að Túngötu 6. Símar 27227 og 19999. Skrifstofan er opin frá 14—22. Stuðningsmenn velkomnir. Stuömngsmenn VELKOMINN aftur í baráttuna Fyrir síðustu alþingis- kosningarvék Ellert B. Schram úröruggu sæti. Það gerði hann til að sameina sjálfstæðismenn og koma í veg fyrir sundraðan flokk í Reykjavík. Með þessu móti sýndi Ellert drengskap og þor sem fátítt er meðal stjórnmálamanna. STUÐNINGSMENN Ellert hefur nú aftur boðið fram liðveislu sína og sækist eftir þingsæti. Við stuðn- ingsmenn hans hvetjum alla sjálfstæðismenn til að greiða honum atkvæði í prófkjörinu og bjóða hann þannig velkominn aftur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.