Morgunblaðið - 27.11.1982, Side 36

Morgunblaðið - 27.11.1982, Side 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1982 Minning Bjarnveig Jóhannes- dóttir frá Hólmavík í dag kveðjum við Bjarnveigu Jóhannsdóttur frá Hólmavík hinstu kveðju. Veiga, eins og hún var kölluð, var fædd að Gíslabala í Árnes- hreppi á Ströndum 18. febr. 1942 og ólst þar upp til 13 ára aldurs. Flutti hún þá með foreldrum sín- um að Bassastöðum í Steingríms- firði. Foreldrar hennar voru þau Jóhann Andrésson, er lést 1973 og Guðmunda Kristveig Guðjóns- dóttir, nú búsett hjá dóttur sinni í Garði. Veiga var sjöunda barnið af tíu systkinum. Ólafur, elsti bróðirinn lést 1951, tvítugur að aldri. Það sem einkenndi Veigu mest var hennar létta og ljúfa lund. Alltaf gat hún hlegið og var gott að vera í návist hennar, einnig átti hún mjög létt með að blanda geði við hvern sem var. Ég man fyrst eftir Veigu, er hún kom í hús foreldra minna til að ala sitt fyrsta barn þar í bæ. Seinna dvaldi ég hjá henni eitt sumar við barnapössun, voru börnin þá orðin tvö og hið þriðja væntanlegt þá um sumarið. Veiga giftist frænda mínum Arthúri Friðriki Guðmundssyni 31. des. 1961, og eru börn þeirra sjö: Guðmundur 22 ára búsettur í Grundarfirði ásamt Helgu unn- ustu sinni, Ólafur Jóhannes 20 ára, Sigurður Kristinn 18 ára, Röfn 16 ára búsett á Hólmavík ásamt Sigurði unnusta sínum, Fjóla Stefanía 14 ára, Vala 13 ára og yngst er Rut aðeins 4 ára göm- ul. Mörgu hefur þurft að huga að og í mörg horn að líta með þennan stóra hóp. Börnin voru þeim hjón- um allt og báru þau mikla um- hyggju fyrir þeim. Samt létu þau sig ekki muna um að opna heimili sitt fyrir mér og vinkonu minni, er við komum norður árið 1973 til að vinna þar um veturinn. Á ég þeim hjónum báðum margt að þakka frá þeim tíma. Vorum við strax teknar eins og við værum fjöl- skyldumeðlimir. Minnist ég margra góðra stunda, sem við átt- um saman í eldhúskróknum hjá þeim langt fram á nótt. Það var eins og Veiga hefði alltaf nægan tíma fyrir alla. Veiga vann alltaf öðru hvoru úti og mikið til sam- fellt eftir að börnin fóru að kom- ast á legg. Fyrir um það bil einu ári kenndi Veiga þess sjúkdóms, sem nú hef- ur þorið sigur af hólmi. Hvern hefði órað fyrir því að Veiga yrði kölluð svo fljótt, og svo langt um aldur fram. Nú hefur sorgin barið að dyrum hjá þér, Arthúr minn, en í öllu myrkrinu er þér sendur sólar- geisli, litli afadrengurinn, sem án efa á eftir að veita ykkur öllum mikla gleði. Nú þegar ég kveð Veigu í hinsta sinn, þakka ég allar samveru- stundirnar og bið algóðan guð að styrkja Arthúr frænda, börnin og aðra ástvini. Megi minningin um góða eigin- konu og móður verða ykkur styrk- ur um ókomin ár. Blessuð sé minning Bjarnveigar Jóhannsdóttur._ Kolbrún Ósk Þórarinsdóttir t SIGMAR BJÖRNSSON prentari, Hátúni 10B, Reykjavík, , veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju, mánudaginn 29. nóvember kl. 13.30. Blóm eru afþökkuö, en þeir sem kynnu aö vilja minnast hans eru vinsamlegast beðnir að láta Öryrkjabandalag Islands njóta þess. Vandamenn. t Þökkum innilega öllum þeim, sem auösýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og útför eiginkonu minnar, móöur okkar og ömmu, HÓLMLAUGAR HALLDÓRSDÓTTUR, Goðheimum 21, Reykjavík. Árni Stefánsson, Stefán Árnason, Guöný Árnadóttir, Árni Sæmundsson og önnur barnabörn. Bridge Arnór Ragnarsson Bridgedeild Rangæinga- félagsins Sjö sveitir taka þátt í hrað- sveitakeppninni og er staða efstu sveita þessi: Sigurleifur Guðjónsson 1744 Pétur Einarsson 1688 Eiríkur Helgason 1682 Gunnar Helgason 1618 Bridgefélag kvenna Eftir 6 umferðir í barómeter- keppninni er staða efstu para þessi: Halla Bergþórsdóttir — Kristjana Steingrímsd. 589 Sigríður Pálsdóttir — Ingibjörg Halldórsdóttir 459 Nanna Ágústsdóttir — Ragnheiður Einarsdóttir 362 Sigrún Pétursdóttir — Árnína Guðlaugsdóttir 276 Guðrún Einarsdóttir — Guðrún Halldórsdóttir 248 Ásgerður Einarsdóttir — Rósa Þorsteinsdóttir 219 Bridgefélag Sauðárkróks Úrslit í tvímenningi 10. nóv- ember: A-riðill: 1. Garðar Guðjónsson — Páll Hjálmarsson 126 2. Ólafur Ásgrímsson — Sverrir Einarsson 120 3. Ingibjörg Ágústsdóttir — Stefán Skarphéðinss. 119 4. Einar Svansson — Skúli Jónsson 118 B-riðill: 1. Bjarki Tryggvason — Gunnar Þórðarson 125 2. -3. Hjördís Þorgeirsd. — Steinunn Oddsdóttir 120 2.-3. Haukur Haraldsson — Erla Guðjónsdóttir 120 4. Broddi Þorsteinsson — Agnar Kristinsson 111 Laugardaginn 13. nóv. var haldið Kristjánsmót félagsins. Spilaður var Barometer- tvímenningur með þátttakend- um frá Sauðárkróki, Siglufirði, Fljótum og Hvammstanga, þrátt fyrir óhagstætt veður. Alls spil- uðu 20 pör, og keppnisstjóri var Kristján Blöndal, sem mótið er kennt við. Úrslit: 1. Valtýr Jónasson — Viðar Jónsson, Sigluf. 104 2. Reynir Pálsson — Stefán Benediktss. Fljótum 96 3. Páll Hjálmarsson — Garðar Guðjónss. Sauð.kr. 93 4. Gunnar Guðjónss. — Gestur Þorsteinss. Sauð.kr. 80 5. Hinrik Aðalsteinss. — Haraldur Árnas., Sigluf. 66 6. Bjarki Tryggvason — Gunnar Þórðars., Sauðárkr.43 7. Árni Rögnvaldsson — Jón Jónasson, Sauðárkr. 34 8. Jón Kort Ólafsson — Guðlaug Márusd., Fljótum 33 Bridgefélag Selfoss og nágrennis Úrslit í Höskuldarmótinu, sem lauk fimmtudaginn 18. nóvem- ber 1982. Meðalskor 780 stig. Sigfús Þórðarson — Kristmann Guðmundsson 912 Sigurður Sighvatsson — Vilhjálmur Þ. Pálsson 909 Leif Österby — Brynjólfur Gestsson 863 Kristján M. Gunnarsson — Gunnar Þórðarson 853 Halldór Magnússon — Haraldur Gestsson 848 Magnús Pálsson — Hermann Erlingsson 833 Sigurður Hjaltason — Þorvarður Hjaltason 832 Gylfi Gíslason — Ólafur Björnsson 807 Einar Axelsson — Gísli Þórarinsson 800 Bjarni Sigurgeirsson — Oddur Einarsson 798 Eygló Gránz — Valey Guðmundsdóttir 798 Páll Árnason — Leifur Eyjólfsson 797 Valgarð Blöndal — Auðunn Hermannsson 793 Bjarni Guðmundsson — Guðmundur Lýðsson o.fl. 793 Fh. Bridgefélags Selfoss og nágrennis Bridgefélag Kópavogs Spilaáætlun til vors 1983: Keppnir 02.12-16.12 ’82 Jólabutler. Tvímenningir, 3 kvöld. 06.01 ’83 Tvímenningur, 1 kvöld. 13.01—17/24.02 ’83 Aðalsveitakeppni BK., 6-7 kvöld. 03.03-31.03 ’83 Barometer. Tvímenningskeppni, 5 kvöld. 07.04-21.04 ’83 Board on a matc. Sveitakeppni, 3 kvöld. 28.04-12.05’83 Óráðstafað, 3 kvöld. Spilað er á fimmtudögum í Þinghóli v/Hamraborg, Kópa- vogi, og hefjast keppnir kl. 20.00. Keppnisstjóri Vigfús Pálsson. Minning: Þórunn Lilja Kristjánsdóttir Fædd 1. apríl 1972 Dáin 20. nóvember 1982 í önn hversdagsins er það hlut- verk blaðamannsins að segja fréttir af voveiflegum atburðum sem og öðru. Kalt og rólega verður að meta hlutina án tilfinninga — slíkt er starfið. Svo allt í einu er nærri manni höggvið. Á laugardagskvöldi um mið- nætti hringir síminn skyndilega. Hörmuleg tíðindi. Hún Þórunn Lilja er dáin. Aðeins 10 ára er hún í burtu kölluð á sviplegan hátt. Það hjálpar lítið að segja við sjálf- an sig, að þeir sem guðirnir elski deyi ungir. Maður fær ekki skilið þessi örlög. Svo ung. Svo efnileg. Hvers vegna? Þórunn Lilja var dugmikið barn. Hún var samvizkusöm í skóla og stóð sig vel í námi. Hún var ákveðin og lét ekki sinn hlut ef því var að skipta. Hún kom suður til Reykjavíkur í haust ásamt for- eldrum sínum og systkinum og dvaldi hjá ömmu og afa í nokkra daga. Brosið hennar þá daga er kannski það, sem lengst geymist. Lítill frændi Þórunnar í Reykja- vík ieit upp til hennar frænku sinnar með aðdáun er hann fékk að fara með henni í Þjóðleikhúsið. Nú fær hann ekki skilið, að Þór- unn frænka á Akureyri sé farin til Guðs á himnum. Við, sem eldri er- um, eigum líka erfitt með að skilja það. Það er erfitt að hugsa sér heim- sókn til fjölskyldunnar á Stapa- síðu á Akureyri án þess að hitta Þórunni. Þar ríkir sorgin þessa dagana. Elsku Vallý, Kristján, Jón Ivar og Sigrún; bænin og traustið á honum, sem öllu ræður, er það eina sem læknar. „I»að er einn sem heyrir <>X aldrei neitar og hjálparvana mitt hjarta leitar til han.s sem er Ijósið og hjálpin manns. kg heygi mig niður og bið tjj hans.“ (Stefán frá llvítadal.) Við systkinin og okkar fólk sendum innilegustu samúðar- kveðjur. Ágúst Ingi Ólöf Þorleifs- dóttir - Kveðja Fædd 5. febrúar 1903 Dáin 3. nóvember 1982 „Hve sæl, ó hve sa*l er hver leikandi lund, en lofaðu engan dag fyrir sólarlagsstund.** Hún Ólöf frá Hömrum er dáin. Það var snögglega klippt á þráð- inn, þar sem hún sat heima í stof- unni sinni ásamt systur sinni Guðveigu, sem var í heimsókn, Ólöf var nýbúin að vera í Reykja- vík hjá vinum og vandamönnum. Hún var á 50 ára afmæli kvenfé- lagsins tveim dögum eftir heim- komuna þar sem hún var gerð að heiðursfélaga og þann heiður átti hún, því hún var búin að starfa með félaginu frá stofnun þess. Ólöf Þorleifsdóttir var fædd í Stykkishólmi, hún var dóttir hjón- anna Önnu Guðmundsdóttur og Þorleifs Jóhannssonar, Ólöf var elst af fjórum systkinum. Hún giftist Páli Þorleifssyni skipstjóra og bónda frá Hömrum í Eyrar- sveit, eignuðust þau fimm börn. Ég sem þessar línur rita þekkti Ólöfu frá þeim tíma að ég flutti vestur árið 1928. Er hún mér minnisstæð fyrir margt. Hún var sérstakur persónuleiki, ákaflega jákvæð manneskja, glöð, jafnlynd og sá alltaf björtu hliðarnar á líf- inu. Sérstaklega var ánægjulegt að vinna með henni öll félagsstörf, hún lagði gott til allra manna og málefna. Eg á yndislegar minn- Leiðrétting í minningargrein um Karl Guðmundsson frá Valshamri misritaðist dán- ardægur hans. Karl lést hinn 15. nóvember síðast- liðinn, ekki hinn 8. Þetta leiðréttist hér með. ingar frá síðustu hérvistardögum hennar. Hvað hún var hamingju- söm og þakklát fyrir lífið og til- veruna. Henni þótti vænt um Grundarfjörð og var hlýtt til þeirra sem þar áttu heima. Ég veit að hennar verður saknað þar. Það er alltaf mikil eftirsjá að þeim sem allsstaðar koma fram til góðs. Börnin hennar, tengdabörn og litlu langömmubörnin og barna- börn kveðja hana með þakklæti og virðingu. Ég bið Guð að blessa þau öll og flyt þeim mínar innilegustu samúðarkveðj ur. Sérstakrar samúðar og blessun- ar Guðs bið ég til handa systur- inni Guðveigu og hennar fjöl- skyldu. Ég veit það er mikil hugg- un fyrir hana að hafa verið síð- ustu stundirnar með sinni kæru systur. Guð blessi ykkur öllum minn- inguna um góða móður, ömmu og systur. Klísabet Helgadóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.