Morgunblaðið - 27.11.1982, Síða 44

Morgunblaðið - 27.11.1982, Síða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1982 uftvcik tr bankarinn m'\nr\ cá> Qenz K^r inni ?w Með morgnnkafijnu Mér er sagt að þið hafið ekkert samband við nágranna ykkar hér í dalnum. Ég get selt ykkur reyk- laust brenni. I lifandi sambandi við fólkið í borginni Ai.f__ ______ Steindór Ólafsson skrifar: „I öllu því flóði auglýsinga og hringinga, sem nú berast þeim sem taka þátt í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins, vil ég biðja menn að staldra við og íhuga örlítið störf eins frambjóðandans að mál- efnum Reykvíkinga undanfarinn áratug. Þar á ég við Elínu Pálma- dóttur blaðamann og borgarfull- trúa um árabil. Ég tek undir orð Edgars Guð- mundssonar verkfræðings hér í blaðinu að starf Elínar að menntamálum, útivistar- og um- hverfismálum (Bláfjöllum) og fleiru, hefur haft mikla þýðingu fyrir vöxt og viðgang Reykjavíkur á nær tveimur áratugum. Hún er kona með mikla stjórnmálalega reynslu, þar með reynslu af mál- Elín Pálmadóttir efnum Reykjavíkur. Hún er í Iif- andi sambandi við fólkið í borg- inni og hefur sýnt að hún tekur mannlega á málum. Ef að er gáð, fer ekki fram hjá neinum að öll störf hefur Elín leyst af hendi af vandvirkni og fylgt málum fast eftir sem hún hefur talið rétt. Ekki látið sér nægja að tala fal- lega og flytja um þau tillögur. Ef menn vilja líta á verkin, er ég ekki í vafa um að þeim finnist hún eiga erindi á Alþingi. Réttilega er mikið talað um að framboðslisti sjálfstæðismanna verði að vera vel mannaður konum í þetta sinn og eru það orð að sönnu. I framboði eru margar hæfar konur, en ég kýs að vekja sérstaklega athygli á Elínu." Verðugur fulltrúi nýrrar kynslóðar Það hefur líklega ekki farið fram- hjá neinum að um næstu helgi fer fram prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Það er án efa nokkuð breytilegt með hvaða hugarfari fólk tekur þátt í prófkjöri. En okkur ber að gera flokk okkar gagn með því að velja hæft fólk hverju sinni í efstu sætin. Það er mikið í húfi að velja traust og gott fólk núna þar sem vandamál í stjórnun þjóðarbúsins eru stór. Það verður að takast á við þjóðmálaverkefni næstu ára af festu og áræðni. Þess vegna þurfum við fulltrúa sem eru einarðir í skoð- unum og hafa kjark til þess að taka ákvarðanir. Ein þeirra kvenna sem nú gefur kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins er Bessí Jóhannsdóttir, formaður Hvatar. Bessí er kona með kjark og ákveðnar skoðanir. Hún er kona sem við getum samein- ast um. Hún er verðugur fulltrúi nýrrar kynslóðar í flokknum. Bessí er fædd árið 1948 í Reykja- vík. Hún er cand. mag. í sögu og félagsfræði, hefur setið í stjórn SUS og Hvatar og er nú formaður síðarnefnda félagsins. Bessí hefur setið í framkvæmdastjórn flokksins og verið varaborgarfulltrúi um átta ára skeið. Hún hefur setið í æsku- lýðsráði, félagsmálaráði, stjórn Borgarbókasafns og situr nú í fræðsluráði. Baráttumál Bessíar eru athyglis- verð. Hún leggur áherslu á húsnæð- ismál, málefni aldraðra og stjórn- arskrármálið. Hún vill einföldun húsnæðismálakerfisins, og að dreg- ið verði úr skriffinnskubákninu, jafnframt því sem lán verði af- greidd hraðar. Hún leggur áherslu á það að ein- staklingar fái að halda persónulegu og efnahagslegu sjálfstæði sínu þrátt fyrir að aldurinn færist yfir þá. Og það mikilvægasta: Hún legg- ur áherslu á, einn maður eitt at- kvæði, eins og nú er í forsetakosn- ingum, í stað þess hrikalega ósam- ræmis sem nú er á atkvæðavægi. Það skiptir miklu máli að sýna það í prófkjörinu að konur þurfa að eiga sæti á lista Sjálfstæðisflokks- ins. Það eykur mjög á sigurlíkur hans í næstu alþingiskosningum. Ég vil hvetja alla þá er taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins til að setja kross við nafn Bessíar." HÖGNI HREKKVÍSI | (íBf i ^ „é<3 K(ZEFST f>ESS AE> 3£7ÁL*0A BÍ*tA FAR.I AF WAPPi-ie>SBe-KK3L)KiOM.' ■' Kosningavinna sem er tii fyrirmyndar Jón Bjarnason skrifar: „Ég er einn þeirra sjálfstæð- ismanna, sem er flokksbundinn í Reykjavík, þekki marga og er við síma allan daginn í minni vinnu. Á mér hafa dunið í síbylju símhring- ingar frá kosningaagentum fram- bjóðenda í prófkjöri. Ég fæ ekki orða bundist yfir vinnubrögðunum. Hringt er, stund- um oft frá sama aðila, svo ekki er allstaðar góð verkstjórn, og þetta er fólk sem talar vélrænt og óper- sónulega um einhvern einn fram- bjóðanda, sem það segist mæla með, en er alls ófært um að veita svör ef frekar er spurt. Aðeins frá einum stað virtist vera eitthvert „perspektiv" í hlut- unum. Ég felli mig svo vel við slíka víðsýni og djörfung í kosninga- vinnu, að ég hefi orð á því hér. Björg Einarsdóttir og Esther Guð- mundsdóttir höfðu persónulegt samband við mig, minntu á sig, lögðu til að kosnar væru minnst fjórar konur af tíu, það væri Björg Einarsdóttir Esther Guðmundsdóttir flokksleg nauðsyn að fjölga konum á þingi og sömuleiðis að kjósa þá flokksforystu, sem landsfundar- fulltrúar völdu í fyrra. Ég segi bara, heyr fyrir þeim Esther og Björgu að hafa djörfung til að standa við sína kenningu í eigin kosningabaráttu. Þær skulu fá mitt atkvæði út á það og trúað gæti ég að svo yrði um fleiri. Allt sem er svona jákvætt mælist vel fyrir." j

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.