Morgunblaðið - 21.12.1982, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 21.12.1982, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1982 Vestmannaeyjar: Arni, Guðmund- ur og Kristján A X X fara 1 profkjorið Netaverkstæði BÚH skemmdist í eldi Kldur kom upp i netaverkstæði Bæjarútgerðar Hafnar- fjarðar, sem er á hafnarsvæðinu, laust fyrir hádegi í gær, samkvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk hjá rannsóknar- lögreglunni í gær. Tilkynning um eldinn barst um klukkan 11.20. Tals- verðar skemmdir urðu á veiðarfærum og einnig nokkrar á húsinu sjálfu. Til hefur staðið að rífa húsið, en af því hafði ekki orðið. Eldsupptök eru ókunn, en málið í rannsókn. Meðfylgjandi mynd var tekin af skökkvistarfinu um hádegisbil í gær. Ljósm. Mbl. KÖE Ný lög: Laugardagar telj- ast ekki orlofsdagar Fyrsti mánudagur í ágúst verður almennur frídagur MEÐAL laga sem samþykkt vóru á síðasta starfsdegi Al- þingis fyrir jóiahlé var breyting á orlofslögum, þess efnis, að laugardagar teljast ekki orlofsdagar fremur en sunnu- dagar og aðrir helgidagar. Orlof skal vera 2 dagar fyrir hvern unninn mánuð á siðasta orlofs- ári „og reiknast hálfur mánuð- ur eða rneira heill mánuður, en skemmri tími telst ekki með“, eins og segir í frumvarpsgrein- inni. I 2. gr. segir m.a. „Orlof skv. lögum þessum skal veitt í einu lagi á tímabilinu frá 2. maí til 15. semtember". Heimilt skal þó að semja um skemmra orlof á þessu tímabili (í kjarasamningum), þó að lágmarki 14 dagar á sumaror- lofstimabilinu. „Nú nýtur orlofs- þegi eigi lengri orlofsréttar en lög þessi kveða á um, og skal þá sá hluti orlofsins, sem tekinn er utan orlofstímabils, lengjast um 1/4, er orlof er tekið utan orlofstímabils- ins að ósk vinnuveitanda. Um orlof í greiðslum segir: „At- vinnurekandi skal greiða í orlofsfé 10,17% af launum". Þá var samþykkt hliðarfrum- varp sem kveður svo á um að „frá og með árinu 1983 skal fyrsti mánudagur í ágúst vera fridagur og skal greiða laun fyrir þann dag skv. sömu reglum og gilda í kjara- samningum um aðra almenna frí- daga“. í KOSNINGU fulltrúaráðs sjálf- stæðisfélaganna í Vestmannaeyj- um á sunnudaginn hlaut Guð- mundur Karlsson, 39 atkvæði til framboðs í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins í Suðurlandskjördæmi, Kristján Torfason hlaut 27 at- kvæði og Arni Johnsen, Asmundur Friðriksson, og Gísli Geir Guð- laugsson 21 atkvæði hver, þannig að kjósa varð á milli þeirra. Þá fékk Árni 19 atkvæði, Ásmundur 13 og Gísli Geir 11. í upphafi fundar fulltrúaráðsins í Vestmannaeyjum kom fram til- laga frá Sigurgeiri ólafssyni um það, að frambjóðendur af hálfu Vestmanneyinga mættu vera 5 eins og prófkjörsreglur heimila. Fundarstjóri kvaðst ætla að leita afbrigða um það hvort tillögumað- ur mætti bera upp tillöguna og var það fellt með 17 atkvæðum gegn 13, en 13 sátu hjá. í prófkjörinu er Suðurlands- kjördæminu skipt í 4 svæði og í atkvæðagreiðslu á að velja einn af hverju svæði og númera þá frá 1—4. í Vestur-Skaftafellssýslu buðu sig fram þrír menn, Björn Þorláksson bóndi Eyjarhólum, Einar Kjartansson bóndi Þóris- holti pg Siggeir Björnsson bóndi Síðu. í Árnessýslu buðu sig fram þrír, þeir Brynleifur H. Stein- grímsson læknir, Selfossi, óli Þ. Guðbjartsson skólastjóri, Selfossi og Þorsteinn Pálsson fram: kvæmdastjóri, Reykjavík. í Rangárvallasýslu hafa 5 menn boðið sig fram, Eggert Haukdal alþingismaður Bergþórshvoli, séra Framboðsfrestur vegna prófkjörs sjálfstæðismanna í Norðurlands- kjördæmi eystra rann út um helgina. Sjö menn gefa kost á sér, en reiknað er með að prófkjörið verði haldið 22. og 23. janúar næstkomandi. Þeir sem gefa kost á sér eru: Látinn er Helgi S. Jónsson í Keflavík, fyrrum verzlunarmaður og slökkviliðsstjóri í Keflavík. Hann var um árabil fréttaritari Morgunblaðsins. Hann var 72 ára. Helgi fæddist 21. ágúst 1910 í Hattardal í Álftafirði, Norður- ísafjarðarsýslu. Foreldrar hans voru Jón Helgi Ásgeirsson bóndi og trésmiður þar og kona hans Sigríður Sigurgeirsdóttir. Helgi fluttist með foreldrum sínum til Reykjavíkur 1925 og til Keflavíkur 1934. Hann rak verzlun í Keflavík 1941-52 og var síðan við skrifstofustörf o.fl. til 1958. Varð síðan slökkvi- liðsstjóri og heilbrigðisfulltrúi og gegndi ýmsum trúnaðar- störfum fyrir Keflavíkurbæ. Þá tók Helgi virkan þátt í fé- lagsmálum og var í stjórnum margra félaga. Þá samdi Helgi mörg leikrit, aðallega stutt, til sýningar á skemmtunum í Reykjavík og Keflavík, og auk þess skrifaði hann smásögur og Halldór Gunnarsson Holti, Jón Þorgilsson sveitarstjóri, Hellu, Óli Már Aronsson framkvæmdastjóri, Hellu og Sigurður Óskarsson framkvæmdastjóri, Hellu, en full- trúaráð sjálfstæðisfélaganna í Rangárvallasýslu hefur ekki ákveðið hvaða þrír menn taki þátt í prófkjörinu. Svavar B. Magnússon: Varð við beiðni félaganna „UNDANFARNAR kosningar hef ég skipað sjötta sæti listans og fjölmennur fundur í Sjálf- stæðisflokksfélögunum hér á Ólafsfirði óskaði eindregið eftir því að ég gæfi kost á mér í fram- boð og ég varð við þeirri beiðni,“ sagði Svavar B. Magnússon framkvæmdastjóri í Ólafsfirði sem tilkynnt hefur þátttöku í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðurlandi eystra sem fram fer i janúarmánuði. Svavar sagði einnig: Þetta er nú aðalástæðan en ég hef starfað mikið innan Sjálfstæð- isflokksins og í félögunum hér á staðnum og hafa mér þótt þau mjög áhugaverð og vart hægt að segja að stjórnmála- störf séu mér neitt nýmæli lengur. Björn Dagbjartsson Reykjavík, Halldór Blöndal Akureyri, Júlíus Sólnes Seltjarnarnesi, Lárus Jónsson Akureyri, Svavar B. Magnússon Ólafsfirði, Sverrir Leósson Akureyri og Vigfús Jóns- son Laxamýri. greinar í blöð og tímarit. Eftirlifandi eiginkona Helga er Þórunn Ólafsdóttur J.A. kaupmanns Ólafssonar í Kefla- vík. Reykjavík: Fjörutíu árekstrar á föstudaginn FJÖRIJTÍU árekstrar urðu í Reykjavík sl. Tdstudag, frá klukk- an 12.30 til 20.00, samkvæmt upp- lýsingum sem Mbl. fékk hjá lög- reglunni í Reykjavík í gær. Talsvert tjón varð í óhöppum þessum, en enginn slasaðist. Þetta var ekki „metdagur", samkvæmt upplýsingum lög- reglunnar, en þó var höggvið þar nærri. Fékk happdrættismiða með sömu númerum FYRIR hefur kotnið að undanförnu að menn hafa fengið „tvöfaidan skammt" af happdrættismiðum þeim sem sendir eru með giróseðl- um, og fólk greiðir í bönkum og víðar. Mbl. hefur haft spurnir af þvi að nokkrir aðilar hafa fengið tvo happdrættisgíróseðla, en báða með sama númerinu. Kom maður á rit- stjórn Mbl. með tvo gíróseðla með sama happadrættisnúmeri og er meðfylgjandi mynd af þeim. Samkvæmt heimildum Mbl. og upplýsingum forsvarsmanns eins happdrættanna, er um mistök að ræða hjá Skýrsluvélum ríkisins og Reykjavíkurborgar, sem felast í því að vélum þeim og tölvum sem notast er við, hættir til að tvítaka þá gíróseðla sem út úr vél- unum koma. Því sé fátt annað að gera fyrir þá, sem fá seðla með sama númeri, en að fleygja öðr- um. Forstjóri Cargolux hef- ur sagt upp starfi sínu Unnið að endurfjármögnun fyrirtækisins, segir Sigurður Helgason EINAR Ólafsson, sem gegnt hefur starfi ('argolux-flugfélagsins allt frá árinu 1970, hefur nú sagt starfi sínu lausu, og hefur Svíinn Steen Grod- enfeldt, sem setið hefur í stjórn ('argolux, tekið við starfi forstjóra. Að sögn Sigurðar Helgasonar, forstjóra Flugleiða, sem sæti á í stjórn Cargolux, en Flugleiðir eiga 25% hlutafjár, er nú unnið að endurfjármögnun fyrirtækisins, sem hefur átt við gríðarlega rekstr- arerfiðleika að stríða. Sigurður sagði að þau mál myndu væntan- lega skýrast á næstu dögum og vik- um. Á sl. hausti var 150—200 starfs- mönnum fyrirtækisins sagt upp störfum vegna samdráttar í starf- seminni, en aukin samkeppni og al- mennur samdráttur á markaðnum eiga þar stærstan hlut. Stjórn fyrirtækisins hefur nú til athugunar ýmsa möguleika varð- andi framtíðarskipulag á rekstri fyrirtækisins, en samkvæmt upp- lýsingum Mbl., er helzt rætt um að leggja eða koma í önnur verkefni annarri Boeing 747, Júmbóþotu fé- lagsins, sem engin verkefni eru fyrir í dag. Síðan hefur verið rætt um að reka áfram eina Boeing 747, Júmbóþotu, og tvær DC-8 þotur. Ef til þessa samdráttar kemur er fyrirsjáanlegt að segja verður upp stórum hópi starfsmanna og hefur í því sambandi verið rætt um 100—150 starfsmenn. Ekkert hefur þó verið ákveðið í þeim málum. Helgi S. Jónsson látinn Sjálfstæðismenn á Norðurlandi eystra: Sjö gefa kost á sér í prófkjörið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.