Morgunblaðið - 21.12.1982, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 21.12.1982, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1982 Italía: Hvatti Samstöðu til að stofna vopnaðar sveitir — til að gefa pólska hernum ástæðu til valdatöku Mvnd þessi sýnir hvar nýveriA, en hann lenti í inni, eAa sextán manns Mannbjörg skipverja er bjargað frá borði fiskibáts frá Taiwan hrakningum við strendur Nýja Sjálands. Allri áhöfn- var bjargað. OPEC samþykkja óbreytt olíuverð Vín, 20. dt*semb«*r. Al*. SAMÞYKKT var á ráðherrafundi Opec-ríkjanna í dag að halda oliuverð- inu óbreyttu á næsta ári og ennfremur að auka olíuframleiðsluna um eina milljón tunna á dag. Samkomulag tókst hins vegar ekki um markaðs- skiptinguna og er það talið geta orðið mjög afdrifaríkt fyrir samtökin. Ákveðið var, að olíuverðið yrði 34 dalir fyrir tunnuna á næsta ári eins og verið hefur að undanförnu og að hámarksframleiðsla yrði 18,5 millj- ónir tunna á dag. Ekki náðist þó samstaöa um það meginmál, sem er hlutdeild ríkjanna á markaðnum, mál, sem sérfræðingar segja að geti skipt sköpum fyrir framtíð Opec. ír- anir krefjast meiri markaðar sér til handa á kostnað Saudi-Araba og höfðu boðað til blaðamannafundar um það mál seinna í dag. Sem stendur framleiða Opec-ríkin 19,5 milljónir tunna á dag en fullvíst er talið, að framleiðslan muni drag- ast saman vegna enn minnkandi eft- irspurnar á næsta ári. Kóm, 20. desember. Al\ LUIGI Scricciolo, háttsettur starfsmaöur ítalska verka- lýössambandsins UIL, sem játað hefur á sig njósnir fyrir Búlgara, hvatti margsinnis leiötoga Samstööu til að koma á fót vopnuðum sveit- um verkamanna í pólskum verksmiðjum að því er segir í fréttum frá Róm. Það gerði hann til aö gefa pólska kommúnistaflokknum og hernum tyliiástæðu til að lýsa yfir herlögum í landinu. Scricciolo hafði náið samband við ýmsa leiðtoga Samstöðu enda báru Pólverjarnir mikið traust til ítölsku verkalýðshreyfingarinnar. Scricciolo var hins vegar ekki að- eins á snærum Búlgara heldur pólskra kommúnista einnig og það var ekki síst fyrir hans sök, að herinn var fljótur að hafa uppi á forystumönnum Samstöðu eftir að herlögum hafði verið komið á. Scricciolo hóf störf hjá verka- lýðssambandinu UIL árið 1979 en þegar árið 1976 var hann kominn á launaskrá hjá búlgörsku leyni- þjónustunni. ítalska lögreglan tel- ur, að Búlgarar hafi staðið fyrir fjórum meiriháttar tilraunum til að grafa undan ítölsku samfélagi og er nú t.d. verið að rannsaka Niðurstaða alþjóðadómstóls í Frakklandi: Brenndir lifandi af sovézku herliði l'arís, 20. dcscmber. Al\ ALÞJOOLKGIJR mannréuinda- dómstóll, sem skipaður er kunnum lögfræðingum, sagnfræðingum og vísindamönnum, hélt því fram í dag, að 115 íbúar þorps eins í Afganistan hefðu verið brenndir lifandi af sov- ézku herliði í september sl. For- dæmdi dómstóllinn Sovétríkin fyrir „brot á þeim lagareglum, sem viður- kenndar væru i styrjöldum". Dómstóll þessi, sem skipaður er mönnum frá Frakklandi, Júgóslav- íu, Bandarikjunum, Japan, Italíu og fleiri löndum, komst einnig að þeirri niðurstöðu, að „fullkomin sönnun“ væri fengin fyrir því að Sovétríkin hefðu beitt pyndingum og eiturefnavopnum í herferð þeirra gegn uppreisnarmönnum í Afganistan. Að loknum vitna- leiðslum, sem stóðu í eina viku, skoraði dómstóllinn á þjóðir heims að sameinast um afdráttarlausar aðgerðir til þess að sannleikurinn um efnahernað Sovétríkjanna kæmi fram. I skýrslu dómstólsins er m.a. skírskotað til frásagnar læknastúdents eins, Farida Ahma- di, frá Afganistan af vist hennar sem fanga í Kabúl, höfuðborg Afg- anistans frá apríl til septem- bermánaðar sl. Sagði hún svo frá, að hún hefði verið pynduð með raf- straumi, komið var í veg fyrir, að hún gæti sofið langtímum saman og m.a. var hún neydd til þess að standa kyrr í sömu sporum í 15 daga. Þá kvaðst hún einnig hafa orðið vitni að pyndingum margra annarra fanga. Dómstóllinn ásakar Sovétríkin ennfremur um að taka fanga af lífi án dóms og laga það er án nokk- urra réttarhalda yfir þeim. Og í hópi þeirra, sem þannig hafi verið teknir af lífi, séu jafnt særðir menn sem konur og börn. Dómstóll þessi hefur áður haldið réttarhöld vegna Afganistans í maímánuði 1981 og fóru þau fram í Stokkhólmi í Svíþjóð. Dómstóllinn, sem einnig hefur rannsakað mannréttindabrot í löndum eins og E1 Salvador, kveðst koma í stað al- þjóðadómstóls þess, sem kenndur er við brezka heimspekinginn Bertrand Russel og komið var á fót á árunum eftir 1950. ýmis atvik í sambandi við ránið og morðið á Aldo Moro, fyrrum for- sætisráðherra, árið 1978. Leikur grunur á, að Scricciolo og Búlgar- ar hafi einnig þar haft nokkra hönd í bagga. Á Ítalíu gerast þær raddir nú háværari með degi hverjum, sem krefjast þess, að stjórnmálasam- band verði rofið við Búlgaríu. Bar það mál á góma á dögunum þegar Shultz, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, var í Róm til viðræðna við ítalska ráðamenn. Er Shultz sagður hafa hvatt til varkárni og að ekki yrði gripið til slíkra að- gerða fyrr en órækar sannanir lægju fyrir. Flóttamannastofnun SÞ: Poul Hartling endurkjörinn Sameinuðu þjóðunum, 20. desembcr. AP. POUL S. Hartling hefur ver- id endurkjörinn yfirmaður flóttamannastofnunar Sam- einuðu þjóðanna fyrir næsta kjörtímabil, eða næstu þrjú ár. Hartling hafði áður lýst því yfir að hann væri reiðubúinn að sitja annað kjörtímabil, sem venjulega er fimm ár, en var nú stytt niður í þrjú ár. Talið er að mikinn þátt eigi í þessari ákvörðun aðalritar- ans, að Hartling er orðinn 68 ára gamall, en einnig mun vera vax- andi óeining meðal fulltrúa Evr- ópu og Afríku. Flóttamannastofnuninni var sem kunnugt er úthlutað friðar- verðlaunum Nóbels fyrir árið 1981, og umsvif hennar hafa auk- ist gífurlega undanfarna tvo ára- tugi. Til marks um það má nefna, að starfsmönnum stofnunarinnar hefur fjölgað úr 150 í 1500 undan- farin tuttugu ár. Hartling hefur hlotið mikið lof stjórnarerindreka fyrir leikni sína Danskur sendi- herra í Páfagarði — sá fyrsti í meira en 400 ár Poul S. Hartling, yfirmaður flótta- mannastofnunar SÞ. og hæfileika í starfi og hafa sér- staklega verið nefnd í þvt sam- bandi vandamál kambódískra flóttamanna við landamæri Thai- lands. Vatíkaninu, 20. de.sember. AP. JÓHANNES Páll páfi II tók á laug- ardag við trúnaðarbréfi frá fyrsta danska sendiherranum í Páfagarði í meira en fjögur hundruð ár. „Þetta er söguleg stund," sagði páfi við sendiherrann, Erik Thrane, við afhendinguna, en Danmörk, Svíþjóð og Noregur komu að nýju á stjórnmálalegum tengslum við Páfagarð í ágúst síð- astliðnum. Allar þessar þjóðir riftu tengsl sín við Páfagarð með- Á níAnntíntlim otAA Félagí ( M ) aSSnumæ MATTHIASAR JOHANNESSEN í þessari bók, Félagi orð, eru greinar, samlöl og Ijóð frá ýmsum tímum sem höfundur hefur nú safnað saman í eina bók. Suml af þessu efni hefur áður birst á prenti, en annað ekki. í bókinni eru greinar um bókmenntir og stjórnmál, og m.a. áður óbirlar frisagnir af sovésku andófsmönnunum Brodský, Búkovský og Rostropovits, sem allir hafa komið hingað til lands, en eru heimsþekktir hver á sínu sviði. Fjölmargir íslenskir og erlendir menningar- og stjórnmálamcnn koma við sögu í bókinni. Kaflaheitin gefa nokkra hugmynd um verkið: Af mönnum og málefnum, Undir „smisjá hugans" (af Buckminster Fuller), Rispur, Bréf til Gils ((iuðmundssonar fyrrum alþingismanns sem vöktu mikla athygli á sínum tíma), Andóf og öryggi og Vetur á næstu grösum, en þar eru áður óbirt Ijóð Matthías- ar sem tengjast efni b('»karinnar með sérstökum hætti. ÞJÓÐSAGA ÞINGHOLTSSTR/ETI 27 — SÍMI 13510

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.