Morgunblaðið - 21.12.1982, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 21.12.1982, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1982 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1982 27 Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 150 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 12 kr. eintakiö. Krafa um þögn Fyrir áhugamenn um stjórnmál er sérstakt rannsóknarefni að kanna þróunina í málflutningi stjórnarsinna innan Sjálf- stæðisflokksins frá því að rík- isstjórn Gunnars Thoroddsens var mynduð í andstöðu við meirihluta þingflokks, mið- stjórnar og flokksráðs sjálf- stæðismanna. Á flokksfundum veturinn 1980 reyndu stjórn- arsinnar að fá ályktunum Sjálfstæðisflokksins breytt sér í hag, en lentu jafnan í minnihluta. Á landsfundi haustið 1981 var samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta „að stefna og störf núverandi ríkisstjórnar séu í ósamræmi við sjónarmið Sjálfstæðis- flokksins og efli áhrif þeirra, sem andvígastir eru þeim sjónarmiðum". Jafnframt sagði í ályktun landsfundar- ins: „Fundurinn lýsir yfir ein- dreginni andstöðu við ríkis- stjórnina. Stefna stjórnarinn- ar og framkvæmd hennar er bersýnilega ekki í samræmi við grundvallarhugsjónir ráð- herra úr röðum sjálf- stæðismanna. Fundurinn skorar á þessa ráðherra að ganga úr ríkisstjórninni og þá þingmenn flokksins, sem stutt hafa hana, að láta af þeim stuðningi. Sjálfstæðisflokkur- inn getur þá einhuga og sam- einaður staðið að nýrri stjórn- armyndun á grundvelli stefnu sinnar." Þetta var það umboð sem landsfundur veitti mið- stjórn og öðrum forystu- mönnum Sjálfstæðisflokksins. Þessu umboði var á engan hátt breytt á flokksráðs- og formannaráðstefnu sjálfstæð- ismanna, sem haldin var í byrjun þessa mánaðar. Þvert á móti segir í ályktun þess fund- ar, sem samþykkt var sam- hljóða: „Ríkisstjórnin hefur misst öll tök á efnahagsmálum þjóðarinnar og skortir starf- hæfan meirihluta á Alþingi. Hún er með öllu ófær um að leysa þann vanda, sem steðjar að þjóðinni." Ástæðan fyrir því að þessar skýru og eindregnu ályktanir sjálfstæðismanna um and- stöðu við ríkisstjórnina eru rifjaðar upp er sú, að fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokks- ins, Jón G. Sólnes, sem að vísu bauð sig fram á eigin lista og utan flokka í desember 1979, krefst þess í nýlega í forystu- grein í íslendingi ,að „forysta Sjálfstæðisflokksins" láti af því sem hann kallar „ófyrir- leitna" baráttu gegn ríkis- stjórninni, sem Jóni virðist fyrst og fremst „byggjast á persónulegri andúð á einstök- um ráðherrum og þá alveg sér- staklega á dr. Gunnari Thor- oddsen". Og enn segir Jón G. Sólnes: „... en með þessu skammsýna og neikvæða at- hæfi sínu er forysta Sjálfstæð- isflokksins að viðhalda og auka sundrunguna innan flokksins, sem getur haft hin- ar alvarlegustu afleiðingar." Kjarninn í grein Jóns er í rauninni krafa um að Sjálf- stæðisflokkurinn þegi um ávirðingar núverandi ríkis- stjórnar, að öðrum kosti skap- ist ekki það „andrúmsloft inn- an flokksins, sem góðu heilli komst á fyrir sveitarstjórn- arkosningarnar". Við þessari kröfu Jóns G. Sólness um þögn getur forysta Sjálfstæðisflokksins alls ekki orðið. Hún starfar í umboði landsfundar flokksins, sem er alveg skýrt og ótvírætt. Það er hrein óbilgirni ef stjórnar- sinnar innan Sjálfstæðis- flokksins neita að viðurkenna stefnumótun flokksins að þessu leyti eftir allt sem á undan er gengið og það er að- för að heilbrigðri skynsemi stuðningsmanna Sjálfstæðis- flokksins ef menn halda að unnt sé að rökstyðja kröfu um þögn um ríkisstjórnina með því að höggva sí og æ í þann knérunn, að sjálfstæðismenn hafni ríkisstjórninni ekki vegna dugleysis hennar heldur „persónulegrar andúðar" á einstökum ráðherrum. Á flokksþingum sjálfstæð- ismanna hafa stjórnarsinnar stig af stigi dregið sig í hlé og hætt að halda uppi vörnum fyrir axarsköft ríkisstjórnar- innar. í sumar rituðu þeir Al- bert Guðmundsson og Eggert Haukdal forsætisráðherra bréf og tilkynntu honum, að þeir væru ekki lengur til þess búnir að veita stjórninni lið á Alþingi. Þar með fóru þeir að vilja landsfundar Sjálfstæðis- flokksins, því miður er ekki enn unnt að segja sömu sögu um ráðherrana þrjá. Sé það nú ætlun stjórnar- sinna að taka til við að ýfa þau sár, sem mynduðust innan Sjálfstæðisflokksins við tilurð þessarar dæmalausu stjórnar, einmitt þegar hún er að syngja sitt síðasta og kosningar eru á næsta leiti er augljóst að þess- um mönnum er alls ekki kappsmál að ná þeim sáttum innan Sjálfstæðisflokksins, sem þeir þykjast þó alltaf hafa í huga. Til að lýðræðið verði ekki skrípaleikur verður minnihlutinn af og til að minnsta kosti að líta í eigin barm og leiða að því hugann, hvort það geti ekki verið að meirihlutinn hafi rétt fyrir sér. Eitt er víst, það verður ekki þagað um ríkisstjórnina í næstu kosningabaráttu þótt stuðningsmenn hennar kjósi )að helst af eðlilegum ástæð- um. Óveðrið um helgina: Talsverdar skemmdir í Vík í Mýrdal og undir Eyjafiöllum ÓVEÐRIÐ sem geisað hefur á landinu undanfarna daga gekk heldur niður í gær víðast hvar. Veðurstofan spáði því í gær, skömmu áður en Mbl. fór í prentun, að það færi þó ekki að draga verulega úr veðri fyrr en seinnipartinn í dag. Þá var spáð áframhaldandi norðanátt næsta sólarhringinn a.m.k. FÆRÐIN í GÆR OG FYRIRHUGAÐUR MOKSTUR Mbl. hafði samband við vegagerð- ina í gær og fékk upplýsingar um færð og væntanlegan mokstur. I gær var ófært um Hellisheiði en hægt var að komast um Þrengslin. Undir Eyja- fjöllum var mikið hvassviðri í gærdag og ófært af þeim sökum. Þó brutust mjólkurbílar þar um en voru 4 tíma á leiðinni. Þá var ófært á Suðurlandi í grennd við Höfn í Hornafirði. Það var ófært um allt Austurland nema nokkrir vegir út frá Egilsstöðum. I gær var fært um Mosfellsheiði á jeppum pg einnig í Hvalfirði og Borg- arfirði. Á norðanverðum Vestfjörðum var hins vegar stórhríð og allir vegir ófærir. Sama gilti um Norðurland. Þar var blindhríð og ófært og lítið hægt að kanna vegi. Fyrirhugað var að hefja mokstur í Trilla sökk 1 Neskaupstað Ne.skaupstað, 20. desember. AFTAKAVEÐUR vir hér í nótt og fram- undir hádegi, austan og suðau.stan veó- urofsi. Skemmdir urðu ekki verulega miklar utan það að fjögurra tonna triHa sökk i höfninni og ein gömul boga- skemma Síldarvinnslunnar eyðilagðist. Þá fuku þakplötur víða í sveitinni. Má því segja að við höfum sloppið vel miðað við veðurofsann. Snjókoma var hér ekki mikil um helgina, en ís hlóðst á línur og urðu miklar rafmagnstruflanir í bænum í dag. Varastöðvar eru keyrðar á fullu, en allt kemur fyrir ekki. Kolófært er yfir Oddsskarðið og slæm færð var á götum í morgun, en búið er að ryðja götur núna. Ásgeir dag víða um land. Það er alltaf mokað daglega til Víkur, en austan Víkur og til Egilsstaða verður mokað samfleytt fram til jóla. Síðan verða ruddir fjallvegir á Austfjörðum við fyrsta tækifæri. Þá var ráðgert að byrja að moka í dag á Snæfellsnesi og sunnan Búðardals og halda því verki áfram í þrjá daga. Þá stendur til að ryðja vegi vestur í Reykhólasveit og víðar á Suð- vesturlandi. Einnig var ætlunin að hefja mokstur á mörgum stöðum á Norðurlandi, ryðja til Húsavíkur, Siglufjarðar og Ólafsfjarðar, m.a. Þessi mokstur mun standa samfleytt í þrjá daga. TJÓN AF VÖLDUM ÓVEÐURSINS Sem betur fer er ekki vitað um nein slys á mönnum af völdum veðurofs- ans undanfarið. Hins vegar urðu tals- verðar skemmdir á mannvirkjum, sérstaklega í Vík í Mýrdal og undir Eyjafjöllum. Þá urðu einnig nokkrar skemmdir í Mosfellssveit. Undir Eyjafjöllum brotnuðu 36 rafmagnsstaurar. Þessar skemmdir hafa valdið rafmagnsleysi víða, en Mbl. fékk í gær þær upplýsingar hjá Rafmagnsveitum ríkisins að ef veðrið skánaði eitthvað ætti að vera komið rafmagn í sveitirnar þarna í kring um hádegið í dag. Miklar skemmdir af völdum óveð- ursins urðu í Vík í Mýrdal. Rúður brotnuðu í a.m.k. 15 íbúðarhúsum og í Víkurskála fóru allar rúðurnar sem sneru í norður. Þá fuku járnplötur af tveimur íbúðarhúsum, tveimur iðnað- arhúsum og plötur fuku af gripa- og útihúsum víða. Hluti af hlöðu hesta- mannafélagsins á staðnum fauk til, svo og tveir skúrar, þar af annar á rafmagnsstaur og braut hann. Þrír bílar fuku um koll, tveir þeirra í eigu félaga í björgunarsveitinni Víkverja, en félagar í Víkverja hafa unnið sleitulaust að hjálparstarfi frá því kl. sjö á sunnudagskvöld. Símasamband komst á í gærdag í Vík, en þá var heldur farið að draga niður í veðurofsanum og vindur hafði breyst úr fárviðri í hvassviðri. Færð var ekki afgerandi slæm í Vík, ein- faldlega vegna þess að snjó festi ekki á vegum fyrir roki. Einar Óddsson, sýslumaður, sagði að skemmdir væru þó alls ekki að fullu kannaðar í Vík og ekkert væri farið að meta tjónið. Einar sagði að meðlimir björgunarsveitarinnar Vík- verja hefðu fengið 30 útköll á tíma- bilinu frá kl. átta á sunnudagskvöld til kl. fjögur um nóttina. „Það var mikið af járnplötum og öðru lausa- drasli sem fauk um svæðið," sagði Einar, „og því augljóst að björgun- armenn lögðu sig í talsverða hættu við störf sín.“ Þá sagði Einar að almannavarna- nefndin í Vík hefði komið saman á fund í gær og komist að þeirri niður- stöðu að rétt væri að óska eftir 1.000 kílówatta stöð til að hafa á svæðinu. Taldi Einar að reynsla undanfarinna ára hefði sýnt að mikil þörf væri fyrir stóra vararafstöð í Vík. Mbl. hafði samband við Þóri Kjart- ansson, félaga í Víkverja, en hann var farþegi í einum þeirra bíla sem fuku á sunnudaginn. „Við vorum stórum Bens, Unimog, sem er frá þýska hernum, bill á þriðja tonn. Við vorum á leiðinni upp að Víkurskála þegar við fengum á okkur þennan rosalega vind og bíllinn hent- ist á hliðina út af veginum og fór eina og hálfa veltu. Við vorum þrír í bíln- um og máttum teljast heppnir að sleppa með skrámur, en bíllinn er stórskemmdur," sagði Þórir. Hinir bílarnir tveir sem ultu voru jeppar. I Mosfellssveit urðu nokkrar smá- skemmdir, rúðubrot og minniháttar fok á þakplötum. Mesta tjónið varð þegar timburhús, langt komið i bygg- ingu, fauk. HRAKNINGAR Það urðu engin slys á mönnum, eins og áður sagði. Hins vegar lentu nokkrir í alvarlegum hrakningum, sérstaklega þó maður frá Djúpavogi sem þurfti að yfirgefa bifreið sína skammt frá Svínafelli og skríða með þjóðveginum þriggja km leið þar til hann rakst á kyrrstæðan langferða- bíl, sem hafði orðið að stoppa vegna blindbyls. Guðmundur Albertsson, bílstjórinn á áætlunarbíl Austurleiðar segir svo frá: „Við lögðum af stað á laugardags- morguninn kl. hálf níu úr Reykjavík og var ferðinni heitið til Hafnar. Þetta gekk allt ágætlega austur í Vík, en það skóf talsvert frá Vík til Klausturs. Við héldum síðan frá Klaustri til Svínafells og það gekk vonum framar. En síðan þegar við er- um komnir 2 km austur fyrir Svína- fell skellur á blindbylur, svo rosa- legur að maður sá ekki nokkurn skap- aðan hlut, ekki fet út úr bílnum. Það var ekki annað að gera en að bíða og það gerðum við til kl. sex, hálfsjö um Káskrúðttfírði, 20. desember. I ÓVEÐRINU er gekk hér yfir að- faranótt sunnudags urðu skemmdir á raflinum, þannig að nú er sveitin utan við Brimnes í Fáskrúðsfirði og einnig á Reyðarfjarðarströnd raf- magnslaus. Tveir staurar brotnuðu í línunni utan til í Fáskrúðsfirði auk þess sem línan slitnaði víða. Á Kolfreyjustað, þar er prest- setrið, urðu skemmdir á fjárhúsi sem fauk að einhverjum hluta, en þar hefur Eiríkur Guðmundsson, bóndi á Brimnesi II, haft fé und- anfarin ár. Drápust sex ær en það sem eftir var af fénu hefur verið morguninn, en þá snerum við aftur að Svínafelli. Við höfðum lagt af stað frá Svínafelli kl. hálfníu á laugardags- kvöldið og því setið í bílnum í 10—11 tíma. Það var nægur hiti, en ég neita því ekki að mér og 27 farþegum var hætt að standa á sama þegar ekkert var hægt að gera svo lengi. Það gerðist á meðan við biðum að maður kom skríðandi að bílnum, talsvert illa haldinn. Hann hafði. komist á Skoda-bifreið 3 km austar en við, en þá höfðu rúðurnar hrein- lega fokið úr bíl hans og því var ekki annað að gera fyrir hann en að reyna að komast fótgangandi til Svínafells. Það má segja að það hafi verið lán í óláni að rútan sat föst þarna og hann losnaði við að þreifa sig áfram 3 km í viðbót." Á Mosfellsheiði misstu þrjár rjúpnaskyttur bíl sinn útaf aðfara- nótt sunnudagsins. Guðjón Haralds- son, formaður björgunarsveitarinnar Kyndils, sagði að mennirnir hefðu dvalið í bílnum 6—8 tíma áður en þeim barst hjálp. Mennirnir hlutu þó engan skaða af. flutt inn að Brimnesi. Plötur fuku á íbúðarhúsið og brotnuðu m.a. rúður í einum glugga. Truflanir hafa verið á rafmagni hér í allan dag, en orsakir þess eru að línan frá Reyðarfirði yfir Hryggstekk í Skriðdal virðist vera algerlega úr sambandi, en við fáum rafmagn núna frá línu sem liggur yfir Eskifjarðarheiði og línu sem Iiggur frá Stöðvarfirði, suðurlínu, auk þess sem dísilstöð- in er keyrð á fullu. Mikil ófærð er hér um allt og hefur kyngt niður miklum snjó. Albert. Raflínur skemmast í Fáskrúðsfirði Morgunhlaðið/KAX. Heimsfrumsýning var sl. laugardagskvöld í Bíóhöllinni, en þá sýndi bíóið fyrst allra kvikmyndina „Konungur grínsins" með Robert de Niro og Jerry Lewis í aðalhlutverkum. Fjölmörgum gestum var sérstaklega boðið til þessarar viðhafnarsýningar og má sjá hluta gestahópsins á meðfylgjandi mynd. Linnulaus stórhríð á Sauðárkróki SEGJA má að linnulaus norðan stórhríð hafi geisað hér síðan að- faranótt sunnudags, svo varla hef- ur sézt milli húsa. Veðurhæð er mikil. Snjó festi lítið í fyrstu, en nú hefur dregið í skafla og ófærð er víða á götum bæjarins. Lögregl- an hefur aðstoðað fólk sem hefur itt í erfíðleikum við að komast leiðar sinnar. Að sögn Vegagerðarinnar er ekki vitað um færð á vegum í héraðinu, þar sem ekki hefur gefizt ráðrúm til að kanna ástandið, en ugglaust er ófærð mikil. Bílstjórar sem aka pósti frá Sauðárkróki á sveitabæi í héraðinu héldu kyrru fyrir í morgun, og láta þeir þó veður og ófærð ekki hamla för sinni að jafnaði. Áætlunarbíll Norðurleiða frá Reykjavík komst til Blönduóss seint í gærkveldi og fór ekki lengra vegna veðurs. Áætlun- arvél frá Flugleiðum sem kom hingað á laugardag er hér enn. Símabilanir hafa ekki verið telj- andi, en rafmagnslaust var hér í bænum af og til í gærkvöldi, og Siglufírði, 20. desember. KALT er í ve! flestum húsum í Siglu- firði í dag vegna bilunar í borholu hitaveitunnar á Skútudal. Útlit er fyrir áframhaldandi kulda í húsum, þar sem taka verður dælu í borhol- unni upp á yfirborðið vegna bilunar i dælunni, en það er tafsamt verk og ekki bætir ófærðin úr. Viðgerðar- mönnum hefur gengið erfiðlega að komast inn á Skútudal, en þangað eru um átta kílómetrar. Dælan er á 180—190 metra dýpi. Fengin hefur verið dæla að láni olli það truflunum, meðal ann- ars á sjónvarpi. Ekki er vitað til að slys hafi orðið á fólki í þessu norðan áhlaupi og um tjón á mannvirkjum hefur ekki frétzt. Kári. frá Akureyri meðan gert verður við þá sem fyrir er. Þær borholur sem eftir eru anna engan veginn hitaþörfinni, og því er útlit fyrir að hús verði köld í nótt og á morg- un a.m.k. Snjór er ekki mikill í bænum sjálfum, en engar samgöngur hafa verið hingað frá því á laugardag, þar sem allar leiðir eru lokaðar. Hafþór landaði í dag 120 tonnum af góðum fiski. Er mikil bót að fá þetta skip hingað. Matti. Kalt í húsum í Siglufirði Hið íslenska bókmenntafélag: Hafin útgáfa íslensks bókaflokks um heimspeki HIÐ ÍSLENSKA BÓKMENNTAFÉLAG stendur að útgáfu þriggja bóka nú fyrir jólin. Þær eru: UM ELLINA eftir Cíceró, sem er sautjánda ritið í flokknum Lærdómsrit Bókmenntafélagsins, SIÐFERÐI OG MANNLEGT EDLI eftir Pál S. Árdal og BRESKIR TOGARAR OG ÍSLANDSMIÐ 1889—1916 eftir Jón Þ. Þór. Fyrr á árinu kom út bókin Rætur íslandsklukkunar eftir Eirík Jónsson. Þá hefur Skírnir, tímarit Hins íslenska bókmenntafélags komið út á árinu. UM ELLINA eftir Marcús Túllíus Cíceró er heimspekileg rökræða um ellina. Hún er lögð í munn Cató hin- um eldra, sem ræðir við tvo unga menn um æsku og elli og hvernig lifa beri lífinu svo menn megi njóta ellinar sem annarra æviskeiða. Þar með fjallar bókin um mörg önnur áleitnustu umhugsunarefni manna, svo sem dauðann og hvort hann sé mönnum böl eða blessun. Um höfundinn segir svo í frétta- bréfi hins íslenska bókmenntafé- lags: „Marcus Tullius Cicero var einn af forustumönnum rómverska lýðveldisins á síðustu árum þess og á sinni tíð í mestum metum fyrir mælsku sína og aðra snilli í mál- flutningi á þingi og fyrir dómi. Á síðari öldum er Ciceros þó fremur minnst fyrir rit sín, en í þeim gerði hann öllum öðrum höfundum frem- ur móðurmál sitt, latínu, að því menntamáli sem hún, og hennar vegna önnur Evrópumál, hafa verið síðan. Þetta gerði hann með því að fjalla á latínu um heimspekileg efni sem fram á daga hans hafði einung- is verið skrifað um á grísku. Fyrir vikið má Cicero heita einn skapari þess tungutaks sem hefur mótað evrópskar menntir allt til þesa dags.“ UM ELLINA er í þýðingu Kjart- ans Ragnars, en inngang og skýr- ingar að ritinu skrifar Eyjólfur Kolbeins. SIÐFERÐI OG MANNLEGT EÐLI eftir Pál S. Árdal fjallar um siðfræði og sálarfræði skotans Dav- id Hume, en hann er einn mesti heimspekingur Vesturlanda á síðari tímum. Á bókarkápu segir meðal annars að Hume hafi verið fyrstur manna til að fjalla um mannlegt siðferði án nokkura tilvísana til kristinnar trúar eða annarra trú- arbragða og yfirnáttúrulegra hluta. Fyrir vikið hafi rit hans markað einhver mestu tímamót í sögu vest- rænnar hugsunar og raunar í sögu mannlegrar hugsunar yfirleitt. Þá segir einnig á bókarkápu að höfundur sinni ekki einungis kenn- ingum Humes í þessu riti sínu, held- ur hafi hann einnig verið afkasta- mikill höfundur um siðfræði og þessa þáttar í ævistarfi hans njóti verkið ekki síður en lærdóms hans um Hume. Bók hans sé ekki einung- is tilraun til að lýsa kenningum Humes, heldur líka til að vega þær og meta. Og í leiðinni taki höfundur afstöðu til ýmissa helstu ágrein- ingsefna í siðfræði nútimans. Páll S. Árdal er prófessor í heim- speki við Queens University í Kingston Ontario Kanada. Hann hefur einkum fengist við kenningar Humes og árið 1966 kom út bók hans PASSION AND vALUE IN HUMES TREATISE - ÁSTRÍÐUR OG VERÐMÆTI í RITGERÐ HUMES, sem er að sögn löngu við- urkennd sem eitt merkasta framlag okkar tíma til aukins og dýpri skiln- ings á kenningum Humes. Þá hafa komið út eftir Pál fjöldi ritgerða um Aðstandendur þeirra rita sem út koma á vegum Hins íslenska bókmenntafélags nú fyrir jólin. Taldir frá vinstri: Eyjólfur Kolbeins, sem ritar inngang og skýringar að riti Ciceros Um ellina og Kjartan Ragnars sem þýddi það, Páll S. Árdal höfundur bókarinnar Siðferði og mannlegt eðli, Þorsteinn Gylfason ritstjóri Lærdómsrita bókmenntafélagsins og hins nýja bókaflokks íslensk heimspeki og Jón Þ. Þór höfundur Breskir togarar og Islandsmið 1889—1916. MorgunbiaAið öi.k.m. einstök atriði í kenningum Humes, sem og um ýmis atriði í siðfræði. Ætlunin er að þetta sé fyrsta ritið í flokki undir nafninu ÍSLENSK HEIMSPEKI — Philosophia Island- ica. Eru tvö næstu ritin í þessum flokki í undirbúningi og er hið fyrra þeirra væntanlegt þegar á næsta ári. Þriðja bókin sem Hið íslenska bókmenntafélag gefur út er BRESKIR TOGARAR OG ÍS- LANDSMIÐ 1889-1916 eftir Jón Þ. Þór, sagnfræðing. Þetta er rit í rit- röðinni safni til sögu íslands. Bókin skiptist í sjö meginkafla . í upphafi er greint frá fyrstu tilraunum breskra sjómanna til botnvörpu- veiða við íslandsstrendur og færð rök fyrir því að þær hafi hafist nokkuð fyrr en áður hefur verið tal- ið. Síðan er rakin veiðisaga breskra togara á íslandsmiðum á áður- greindu tímabili, sagt frá helstu veiðisvæðum þeirra, aflabrögðum, aflasamsetningu og greint frá því hver var hlutur Breta í heildarafla á Islandsmiðum á þessum árum. Enn fremur er fjallað um samskipti tog- aramanna við Islendinga og rakin saga hins illræmda „tröllafiskirís", segir meðal annars í fréttabréfi Hins íslenska bókmentafélags um efni bókarinnar. Þar segir einnig, að fjallað sé um fislkveiðideilur Breta og Islendinga 1895—1916 og að sögn höfundar ritsins er það kannski ein merkasta niðurstaða bókarinnar að Danir sigruðu í þeirri deilu ef eitthvað var, en ekki Bretar eins og oft hefur ver- ið talið hingað til. Þá er alllangur kafli um landhelgisgæslu Dana við ísland og um fyrstu tilraunir ís- lendinga til Landhelgisgæslu. Athugasemd vegna fréttar um loðdýraskinn MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi athugasemd frá Jóni Ragnari Björnssyni framkvæmdastjóra Sambands íslenzkra loð- dýraræktenda vegna fréttar sem höfð er eftir Skúla Skúlasyni í frétt í Mbl. sl. laugardag: „I Morgunblaðinu laugardag- inn 18. desember sl. eru birtar fréttir af sölu loðskinna á Norðurlöndunum og hjá Hud- son Bay í London. Umboðsmað- ur Hudson Bay, Skúli Skúlason, segir að 60% blárefaskinna hafi selzt og 95% skinna af sha- dow-refum. Þessar upplýsingar umboðsmannsins stangast al- gjörlega á við þær upplýsingar sem Hudson Bay-fyrirtækið hefur gefið. Samkvæmt upplýs- ingum fyrirtækisins voru boðin upp 149.726 blárefaskinn í flokkunum London Fur Group. Af þeim seldust 35%, en ekki 65%. Sölutregða var aðallega á stórum skinnum. Verðlækkun var 12,5% frá nóvember-upp- boðinu 1982. Þá voru boðin upp 22.803 shadow-refaskinn. Af þeim seldust 60%, en ekki 95%, eins og haft er eftir umboðsmannin- um, og er verðlækkun 7,5% frá nóvember-uppboði í ár. Stór skinn og ljósir litir seldust mjög vel að sögn Hudson Bay. 20.300 sovézk blárefaskinn voru að mestu dregin til baka. Hins vegar seldust öll silfurrefa- skinnin (10 þúsund) sem í boði voru. Pólsku blárefaskinnin lækkuðu um 15% frá nóvem- ber-uppboði 1982, en 55% af 55.158 seldust. Þá voru boðin 6.722 shadow-refaskinn frá Póllandi og seldust 80% þeirra, en 10% verðlækkun varð á þeim samanborið við nóvember- uppboðið í ár. Ekki liggja fyrir meðalverð frá Hudson Bay- fyrirtækinu, en varla er ástæða til að ætla að þau verð sem Skúli Skúlason nefnir í frétt- inni séu nær sannleikanum en tölurnar um söluhlutföll."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.