Morgunblaðið - 21.12.1982, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 21.12.1982, Qupperneq 35
gefa sér betri tíma til að skoða málið og varast að taka ákvarðan- ir í fljótræði. Eins og sakir standa er ég þeirrar skoðunar að hólfa eigi svæðið niður í t.d. þrjú hólf, eitt stærst sem væri grætt upp og friðað fyrst um sinn, síðan tvö lítil geymsluhólf út frá hesthúsinu sem væru notuð til skiptis milli ára og með fullri aðgát gagnvart uppblæstri. Það er víðar en í Hvítárnesi sem aðstaða hefur verið bætt. Á síð- ustu áratugum hafa sveitarfélög reist skála, hesthús og girðingar- hólf víða á afréttarlöndum. Ferða- menn á hestum hafa leitað til þessara staða til þess að njóta þar aðstöðu með nátthaga og gistingu. Yfirleitt hafa menn fengið leyfi hjá viðkomandi sveitarfélögum vegna þessara afnota og er mjög mikils um vert að fullt samkomu- lag og skilningur sé á báða bóga í þessum viðskiptum. Ferðamenn verða að gera sér grein fyrir því umburðarlyndi og greiðasemi sem bændur sýna þegar þeir leyfa af- not skálanna. í staðinn eru nátt- hagar þeirra sums staðar uppbitn- ir þegar þeir koma með fjallhesta sína síðla sumars. Meðan ekki er í önnur hús að venda mun ásókn hestamanna og annarra ferða- manna í að nýta þessi hús til gist- ingar aukast stöðugt. Aðstaðan sem leitarmannaskál- ar eða önnur slík, t.d. gististaðir ferðafélaga, býður upp á er algjör nauðsyn fyrir velheppnuðu hesta- ferðalagi í óbyggðum. Við megum samt sem áður ekki einblína um of á öræfaferðir því geysilega mikið er um aðra möguleika og því ber einnig að stuðla að bættri aðstöðu hestamanna í byggð og skammt ofan byggða. Því miður er þó búið að þvergirða margar reiðleiðir, m.a. fornar slóðir í byggðum, og þá þarf að leita eftir samkomulagi um hlið á girðingum. Oft er það svo að þar sem margir fara eru hlið skilin eftir opin og er ég þar þó ekki að tala sérstaklega um hestamenn. Þar er til dæmis of algengt að hliðum landgræðslu- girðinganna er ekki lokað þar sem þau eru nærri alfaraleiðum. Ánægjulegt væri ef það orðspor myndaðist að hestamenn væru öðrum til fyrirmyndar um að loka á eftir sér hliðum er þeir eru á ferð. Mér er kunnugt um að stjórn i > i MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1982 39 LH skipaði ferðanefnd að afloknu ársþingi sl. ár til þess að vinna að öllum þáttum er varða langferðir á hestum, þ.á m. að kortleggja reiðleiðir og skipuleggja án- ingarstaði. Ég er e.t.v. að teygja mig inn á verksvið þeirrar nefnd- ar, en hjá því verður ekki komist þegar rætt er um skipulag án- ingarstaða. Reynslan hefur sýnt bæði í Hvítárnesi og víðar að ófram- kvæmanlegt er vegna stærðar og tilkostnaðar að koma upp beitar- hólfum á áningarstöðum á hálend- inu sem fullnægi fóðurþörf þeirra ferðahesta sem leið eiga um, til þess er uppskeran allt of lítil og svörun við áburðargjöf miðað við tilkostnað ekki nægileg. Ég tel því ekki annarra kosta völ en leggja til hliðar í bili hugmyndir um fleiri beitarhólf sem fullnægja fóðurþörf en miða í staðinn girð- ingarnar við það að þær veiti að- hald í náttstað. Reisa þarf lítil en örugg geymsluhólf á áningarstöð- um, en til þess þarf leyfi landeig- enda og þeirra er nýta landið. Þar þarf að vera skjól og helst vatns- ból frá náttúrunnar hendi og þægilegt væri að setja upp stokka svo hægt væri að gefa ferðahest- um, t.d. grasköggla. Reiðleiðir eru flestar meðfram alfaravegum eða leitarslóðum og yfirleitt er bifreið með í förinni og því auðvelt að grípa með smávegis fóður. Fóðrun í náttstað þarf sjaldnast að vera algjör því beita má hestunum á leiðinni og haga þá dagleið og áningum samkvæmt beitarþörf. Gæta verður þess að velja til langrar áningar land sem þolir vel beit og traðk, svo sem flár og flóa þar sem því verður við komið. Varast ber að hafa ferða- hross of mörg í hverjum hóp. Notkun rafgirðinga til að koma upp geymsluhólfi hefur aukist og telja margir sig hafa af þeim góða reynslu. Eg tel þær þó varhuga- verðar, nema þær séu settar niður á ógrónu landi eða mýrlendi og þá hafðar það stórar að álagið valdi ekki örtröð. Gróðurlendi lætur fljótt á sjá ef hross eru króuð inni á litlum bletti, þó ekki sé nema yfir eina nótt. Því ber að varast að setja girðingar á sömu gróður- spildu og fyrri hópar girtu og ekki heldur á viðkvæmt og fokgjarnt land, það getur leitt til uppblást- urs. Vanda þarf því staðarvalið vel. Ég minntist á það hér að fram- an að ferðalög á hestum væru snar þáttur og sívaxandi í hesta- mennsku hér á landi, er það mjög ánægjuleg þróun. Oft er það svo að öll fjölskyldan getur verið þátttakandi í hestaferðum, þar er ekkert kynslóðabil og þar ná mað- ur og hestur betur saman en kost- ur er á í annan tíma. Þarna þróast því rammíslensk, heilbrigð og holl hestamennska. EJOÐSOGUR SIGFIIMR SIGFUSSQNAR Út eru komin 4 bindi nýrrar útgáfu af hinu mikla og merka safni Sigfúsar Sigfússonar: íslenskar þjóðsögur og sagnir. Flestar sögurnar skráði Sigfús eftir íólki á Austur- landi kringum síðustu aldamót. Ymsar þeirra hafa ekki birst áður, en flestar hinna eru hér í eldri gerð og upphaf- legri en i fyrri útgáfu. Óskar Halldórsson dósent býr þjóðsögurnar til prentun- ar og skrifar formála. Hér er komið stærsta safn íslenskra þjóðsagna sem skráð hefur verið. Þessi fjögur bindi eru kringum 1600 blaðsíður. Fyrri útgáfa þessara þjóðsagna er löngu uppseld. ÞJÓÐSAGA ÞINGHOLTSSTRÆTI 27 — SÍMI 13510

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.