Morgunblaðið - 21.12.1982, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 21.12.1982, Qupperneq 24
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1982 Qlafur G. Einarsson formaður þingfl. sjálfstæðismanna: Við ríkjandi aðstæður á þing að koma saman strax upp úr áramótum Treystum ekki ríkisstjórninni fyrir rétti til útgáfu bráðabirgðalaga Stjórnarandstæöingar gagn- rýndu harðlega, á lokadegi þings fyrir jólahlé, að ríkisstjórnin stefndi í langt starfshlé Alþingis, þrátt fyrir hrýn og aðkallandi vandamál, en hugðist jafnframt tryggja sér rétt til útgáfu bráða- birgðalaga í þinghléi. Þessir starfshættir væru lítilsvirðing við þingræðið í landinu, sögðu þeir, og ekkert hamlaði að þingmenn gætu komið til starfa eins og aðrir landsmenn strax upp úr áramótum í stað 17. janúar, eins og ríkis- stjórnin vildi. Gunnar Thorodd- sen, forsætisráðherra, sagði hins- vegar að ríkisstjórnin myndi ekki gefa út bráðabirgðalög í þinghléi nema brýna nauðsyn bæri til og þá í sambandi við ákvörðun fisk- verðs. Ef svo færi yrði haft samráð við stjórnarandstöðu. Sjávarút- vegsráðherra hefði þegar ákveðið að skipa samstarfsnefnd úr öllum þingflokkum um ákvörðun fisk- verðs. Ólafur G. Einarsson, formað- ur þingflokks sjálfstæðismanna, sagði m.a. í umræðu um hið langa þinghlé og tillögu um heimild til handa ríkisstjórninni (sem var samþykkt) til að gefa út bráðabirgðalög: „Sú staðreynd hefur legið ljós fyrir síðan í ágústmánuði sl. að ríkisstjórnin hefði ekki starf- hæfan meirihluta á Alþingi. Samt hefur ríkisstjórnin látið sem ekkert sé og talið sig geta farið sínu fram án minnsta sam- ráðs við stjórnarandstöðuna. Hefur þar verið skákað í því skjólinu að stjórnin hefði meiri hluta í sameinuðu þingi, 31 at- kvæði. Því væri ekki hægt að fella hana, sem er að sjálfsögðu rétt. Engu skipti hins vegar, hvort unnt yrði að koma málum í gegnum neðri deild. Keppikefl- ið hefur því verið að sitja áfram og það raunar miklu lengur en sætt er. Það má raunar segja, að með vissum hætti hafi þetta ekki komið að sök, þar sem stjórnin hefur ekki haft nein sérstök mál til að berjast fyrir, Ólafur G. Einarsson enda sjálfsagt engin samstaða í stjórnarliðinu um málatilbúnað. Það sem að hennar mati var hvað nauðsynlegast, kjaraskerð- ing og skattahækkanir, var sett í bráðabirgðalögin, sem ekki hafa enn fengið afgreiðslu, enda ekki lögð fyrir þingið fyrr en Fjárlög með milljarðar nýkróna „gat“: Gengið á rétt Alþing- is sem fjárveitinga- valds og löggjafa Óraunhæft fjárlagafrumvarp: Meiriháttar kaup- skerðingu þarf til þess að það standizt — segir þingflokkur Alþýðuflokksins - sagði talsmaður Sjálfstæðisflokks, Lárus Jónsson • 1) Fjárlög ársins 1983 eru óraunhæf sýndaráætlun, sem ber öll merki þess að ríkisstjórnin, sem að þeim stendur, hyggst ekki bera ábyrgð á framkvæmd þeirra. • 2) Miðað við stefnumörkun í þjóðhagsáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árið 1983 skortir hvorki meira né minna en milljarð nýkróna til að endar náist saman. • 3) Gert er ráð fyrir tekju- stofnum, sem engin lagaheimild er enn fyrir, og nú við 3ju afgreiðslu er tekjuáætlunin enn „teygð um 230 m.kr.“ án raunhæfra forsenda. • 4) Vegna óraunhæfra verölags- forsenda, sem fjárlögin byggja á, er hætt við því að framhald verði á því gagnrýnisverða framferði fram- kvæmdavaldsins, að setja sér eigin „fjárlög" við hlið fjárlagafrumvarps. Þannig eru slíkar fjárveitingar, fram hjá fjárlögum og þingheimildum, frá ársbyrjun til októberloka 1982 kr. 541.808.000.— Ríkisstjórnin gengur ekki aðeins á rétt löggjafarvaldsins með freklegri beitingu bráðabirgða- laga, heldur ekki siður á rétt fjár- veitingavaldsins með verulegum aukafjárveitinum utan ramma fjár- laga. Þetta vóru helztu efnisatriði í gagnrýni Lárusar Jónssonar (S), IArus Jónsson talsmanns Sjálfstæðisflokksins, við 3ju umræðu fjárlaga sl. laug- ardag. Það kom og fram í máli hans að fjárlagafrumvarpið hefði hækkað um 285 m.kr. (2,2% ) við 3ju umræðu og yrði því að niður- stöðu 12 milljarða 975 m.kr. Lárus sagði að ráðgerður rekstrarafgangur væri 28 m.kr. eða 0,2% og ráðgerður greiðslu- afgangur 10 m.kr. eða 0,07%, en fjárlögin í heild væru það hrófa- tildur, bæði að því er varðar verð- lagsforsendur og önnur atriði, að taka yrði allar tölulegar niður- stöður með fyllsta fyrirvara. KJARTAN Jóhannsson, formaður Alþýðuflokksins, sagði fjárlög ársins 1983 sorglega óraunhæf; gera ráð fyrir tekjustofnum sem engin laga- heimild væri fyrir, auk þess sem út- gjaldahlið væri stórlega vanáætluð. Hann las í sameinuðu þingi eftirfar- andi samþykkt þingflokks Alþýðu- flokksins: „Við afgreiðslu fjárlaga á und- anförnum þingum hefur þing- flokkur Alþýðuflokksins flutt breytingartillögur um lækkun ríkisútgjalda, skattalækkanir og kerfisbreytingar á ríkisbúskapn- um. Þ.á m. eru tillögur um lækkun niðurgreiðslna og útflutningsbóta á landbúnaðarafurðir og sparnað í starfsemi ýmissa opinberra stofn- ana. Alþýðuflokkurinn leggur enn og aftur áherslu á nauðsyn kerf- isbreytingar í efnahagsmálum og uppstokkun á fjármálastjórn ríkisins til að náð verði árangri í efnahagsstjórn. Fyrirliggjandi fjárlagafrum- varp er hins vegar fjarri raunveruleikanum. Það boðar enga efnahagsstefnu. Þannig eru útgjöld áætluð svo lág, að meiri- háttar kaupskerðingu þarf til að þau standist. Gert er ráð fyrir tekjum af sköttum, sem ekki eru lagaheimildir fyrir. Efnahagsframvindan er þar á ofan enn óvissari en nokkru sinni fyrr. Opinskátt er rætt um meiri- háttar gengisfellingu um áramót, þótt kaupskerðingarlög ríkis- stjórnarinnar, sem öllu áttu að bjarga, séu enn í fullu gildi. Öll undirstaða þessa fjárlaga- frumvarps, bæði tekna- og gjald- megin, er því reist á sandi blekk- mánuði eftir að það kom saman. Þingflokkur sjálfstæð- ismanna hefur ekki þá reynslu af þessari ríkisstjórn og sízt að því er tekur til útgáfu hennar á bráðabirgðalögum, að hann vilji treysta henni fyrir því valdi sem felst í þingfrestun fram í miðjan janúar. Því er það að við sjálf- stæðismenn munum greiða at- kvæði gegn þessari tillögu. Við þessar aðstæður í þjóðfélaginu og hér á Alþingi er það skoðun okkar, að þing ætti að koma saman þegar eftir áramót eða þann 3. janúar nk. Með hliðsjón af því væri óþarft að flytja frestunartillögu sem þessa. Yfirlýsing hæstvirts forsætis- ráherra hér áðan um samráð við stjórnarandstöðuna og að bráðabirgðalögin verði ekki gef- in út nema þá til lausnar á til- teknum vanda og þá því aðeins að brýna nauðsyn bæri til, er út af fyrir sig hin athyglisverðasta. Eg ætla, að þetta sé í fyrsta sinn sem slík yfirlýsing er gefin á Al- þingi. Hún felur í sér síðbúna yfirlýsingu um gjaldþrot þessar- ar ríkisstjórnar og viðurkenn- ingu á því, sem við höfum haldið fram. Það er einnig athyglis- vert, að forsætisráherra skuli lýsa því yfir, að ef bráðabirgða- lög verða sett, þá verði þau lögð fyrir alþingið þegar í stað er það kemur saman að nýju. Þessi yf- irlýsing er góðra gjalda verð, en hún vekur upp spurningar um það, hver það er sem krefur for- sætisráðherra um að lýsa þessu yfir. Skyldi einhver stuðn- ingsmanna stjórnarinnar vera búinn að fá nóg af því sem áður hefur gerzt í hliðstæðum mál- um.“ Kjartan Jóhannsson inga og óraunsæis. Fjárlög byggð á fölskum forsendum eru hald- laus, og afgreiðsla þessa frum- varps óraunhæf. Breytingartillög- ur þjóna þá ekki tilgangi. Það sem þarf eru ný fjárlög. Þingflokkur Alþýðuflokksins mun því ekki flytja breytingartillögur við þetta frumvarp, þóít einstakir þing- menn hans flytji tillögur um minniháttar tilfærslur, en flokk- urinn ítrekar enn nauðsyn ger- breyttrar efnahagsstefnu." hljómplata með söngtextum eftirSIGURÐ ÞÓRARINSSON Norræna félagið vill meö þessari auglýs- ingu vekja athygli á nýútkominni hljóm- plötu meö þýddum og frumsömdum söng- textum eftir Sigurö Þórarinsson, jaröfræö- ing. Hljómplata þessi er tengd sjötugsafmæli Siguröar, 8. janúar á þessu ári. Norræna félagiö í Reykjavík efndi til dagskrár í Nor- ræna húsinu 7. febrúar s.l. þar sem ein- göngu voru fluttir söngtextar eftir Sigurö. Höföu margir viö orö aö gefa þyrfti söngv- ana út á hljómplötu og varö þaö aö ráöi. Á plötunni syngur nokkurnveginn sami hópur megniö af þeim söngvum sem fluttir voru og eru flytjendur alls 13 talsins. 14 lög eru á plötunni. Útgefandi NORRÆNA FÉLAGIO. Heildtolu •imt 29S7M29544

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.