Morgunblaðið - 21.12.1982, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1982
3
Júlílokun hætt og önnur útvarpsrás:
Fagna þess-
um tíðindum
— segir útvarpsstjóri
„ÞETTA eru allnokkur tímamót í
sögu Ríkisútvarpsins, það er rétt, og
ég er mjög ánægður með þá stefnu
sem Alþingi hefur nú tekið í þessu
máli,“ sagði Andrés Björnsson út-
varpsstjóri í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins í gærkveldi. — Út-
varpsstjóri var beðinn að segja álit
sitt á þeirri ákvörðun Alþingis, að
verja nú fjármunum til að halda úti
sjónvarpi í júlímánuði og koma á
annarri rás við útvarpið.
Að sögn útvarpsstjóra verður að
öllum líkindum sjónvarpað í júlí
næstkomandi, „nema einhver
ósköp komi fyrir," sagði hann.
„Varðandi rás tvö við útvarpið er
það á hinn bóginn að segja að
tímasetning fyrstu útsendingar er
enn ekki komin, en væntanlega
verður það síðari hluta árs 1983.
— Öll nánari framkvæmd þess,
dagskrárgerð og fjöldi útsend-
ingartíma er hins vegar ófrágeng-
ið mál, það þarfnast mikils undir-
búnings og síðan þarf þetta að
þróast eftir að af stað er farið,"
sagði útvarpsstjóri að lokum.
Jólaskemmtun í Valhöll
.Sjálfstæðisfélögin í Reykjavik efndu
til jólaskemmtunar fyrir fjölskylduna í
Valhöll sl. sunnudag. Voru salirnir allir
i sjálfstæðishúsinu þéttsetnir börnum
og fullorðnum þessa síðdegisstund, og
skemmtu allir sér hið besta.
Meðan fólk var að koma lék klar-
inettríó úr tónlistarskóla Garðabæj-
ar, 12—13 ára nemendur, Heimir
Erlingsson, Geir Borg og Ragnheið-
ur Magnúsdóttir. Fyrstu tvo tímana
undi fullorðna fólkiö sér í austursal
við að hlýða á sr. Auði Eir flytja
hugvekju, Matthías Johannessen,
Áslaugu Ragnars og Gísla Kol-
beinsson lesa úr nýjum bókum og við
tónlistarflutning nemenda úr Tón-
iistarskólanum í Garðabæ. Sungu
Ingibjörg Guðjónsdóttir 17 ára og
Haukur Páll Haraldsson 19 ára dú-
etta úr óperum og Jóhanna Arnar-
dóttir lék einleik á píanó. Voru kaffi-
veitingar þar og í vestursal.
Niðri skemmtu krakkarnir sér,
fengu gos og kökur og horfðu á sjón-
varpsmyndir, á galdrakarl að leika
listir sínar og hlýddu á Guðna Kol-
beinsson lesa upp.
Síðasta klukkutímann söfnuðust
svo allir saman í vestursal og gengu
kring um jólatré. Þar var líka
bögglauppboð á jólapökkum. Jóla-
sveinarnir Stúfur og Kertasníkir
komu í heimsókn og sýna myndirnar
hve yngsta fólkið skemmti sér þá vel.
Samtök sveitarfélajga
í Reykjanesi, SASIR,
lögð niður um áramótin
Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu,
SSH, verða frá þeim tíma landshlutasamtök
SAMTÖK sveitarfélaga í Reykjanes-
kjördæmi, SASÍR, héldu síðasta aðal-
fund sinn laugardaginn 11. desember
sl., en á fundinum var samþykkt tillaga
frá stjórn samtakanna um að starfsemi
þeirra yröi hætt frá nk. áramótum. Frá
og með 1. janúar nk. verða Samtök
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
SSH hin eiginlegu landshlutasamtök.
Salome Þorkelsdóttir alþingis-
maður og formaður stjórnar SASÍR
var spurð ástæðna þessarar ákvörð-
un. Hún sagði: „í SÁSÍR eru sjö eft-
irtalin sveitafélög: Bessastaðahrepp-
ur, Garðabær, Kópavogur, Seltjarn-
arnes, Mosfellshreppur, Kjalarnes-
hreppur og Kjósahreppur. Þessi
sveitafélög eru með samtals um 27
þúsund íbúa og hafa samtökin verið
fjölmennust á landinu. Samtök
sveitarfélag á höfuðborgarsvæðinu
SSH, hin nýju landshlutasamtök,
hafa auk framangreindra sveitarfé-
laga einnig Hafnarfjörð og Reykja-
vík, þannig að þau eru nú með yfir
123 þúsund íbúa. Ég tel þetta mjög
jákvæða þróun, því það hefur aldrei
verið um neina samkeppni að ræða á
milli þessara samtaka SASÍR og
SSH, þó þetta séu sömu aðilarnir. Ég
vona að þetta sé jákvætt skref sem
verið er að stíga í samvinnu þessara
sveitarfélaga og höfuðborgarinnar,
því þetta svæði allt er í raun eitt
skipulags-, atvinnu- og samgöngu-
svæði og því mikið hagsmunamál að
ná góðri samvinnu í þessum málurn."
Salome sagði að SASÍR hefðu ver-
ið stofnuð 1964 sem landshlutasam-
tök allra fimmtán sveitarfélaganna í
Reykjaneskjördæmi. Hún sagði að
síðan hefði þróunin orðið sú, vegna
landfræðilegra aðstæðna og ólíkra
hagsmuna, að Hafnarfjörður hefði
fyrst sagt sig úr samtökunum og ár-
ið 1978 gengu sveitarfélögin á Suður-
nesjum einnig úr SASÍR og stofnuðu
þau eigin landshlutasamtök. Frá
þeim tíma og frá stofnun SSH árið
1976, sem öll sveitarfélögin innan
SASÍR tóku þátt í, hefur stefnt að
þessari sameiningu, að sögn Salome,
en stjórn SASÍR vildi þó fyrst sjá
hver þróun mála yrði innan SSH,
sérstaklega með tilliti til aðildar
Reykjavíkurborgar sem ekki hefur
verið talin trygg fyrr en nú.
Fráfarandi stjórn SASÍR var á
fundinum falið að ganga frá upp-
gjöri, en framlög sem SASÍR hafa
fengið frá Byggðasjóði og Jöfnun-
arsjóði renna frá nk. áramótum til
SSH, sem ekki hafa notið slíkra
framlaga, þar sem þau hafa ekki
fram að þessu hlotið viðurkenningu
sem landshlutasamtök.
Þetta eru einkaumboðs-
menn Karnabæjar
Akureyri
Ceasar,
ísafjörður
Epliö,
Vestmanna-
eyjar
Eplið,
Keflavík
Fataval,
Siglufjörður
Álfhóll,
Akranes
Nína,
Húsavík
Ram,
Hafnarfjörður
Bakhúsið,
Reyðarfjörður
Austurbær,
Hvolsvöllur
Kaupfél.
Rangæinga,
Sauðárkrókur
Sparta,
Egilsstaðir
Skógar,
Borgarnes
ísbjörninn,
Ólafsvík
Lea,
Selfoss
Lindin,
Vopnafjörður
Paloma,
Patreksfjörður
Patróna,
Grindavík
Báran,
Stykkishólmur
Þórshamar,
Höfn Hornafirði
Hornabær,
Blönduós
Aþena.
^tKARNABÆR
Kamabær