Morgunblaðið - 21.12.1982, Qupperneq 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1982
Tafla 1
Fjölskyldu- Kyn þolenda
Kyn gerenda
tengsl kk. kvk. alls kk. kvk. alls
Hjón sam-
býlisfólk 1 62 63 62 1 63
Skilnaðar-
fólk 0 7 7 7 0 7
Ættingjar,
venslafólk 16 6 22 21 4 25
Börn 5 4 9 8 2 10
22 79 101 98 7 105
22% 78% 100% 93% 7% 100%
en 22% karlar. Hins vegar voru
93% þeirra sem áverka veittu,
karlar, en 7% konur. „Þessar
niðurstöður sýna það, að ofbeldi
fjölskyldum er kynbundið. Það eru
oftast karlar, sem eru valdir að því
og það bitnar oftast á konum.“
Sjá töflu 1
Vikudagar Tafla 3 Fjöldi %
Mánudagur 8 12,9
Þriöjudagur 7 11,3
Miövikudagur 4 6,5
Fimmtudagur 4 6,5
Föstudagur 10 16,1 )
Laugardagur 17 24,4 62,9%
Sunnudagur 12 19,4 )
62 100,1%
Svo sem fram kemur í töflunni,
verða 62 konur fyrir áverka eftir
að hafa orðið að þola ofbeldi af
hálfu eiginmanns eða sambýl
ismanns, en 1 karl hefur leitað
lækningar eftir árás eiginkonu.
1 könnuninni kemur fram að
heimilið er sá staður þar sem lík
legast er að konur verði fyrir
ofbeldi, enda í samræmi við það að
samskipti hjóna fara fyrst og
fremst fram á heimili. En einnig er
allalgengt að eiginmenn hafi
frammi ofbeldi gagnvart konum
sínum í eða við skemmtistaði.
Sjá töflu 2
Ofbeldi er tíðast um helgar;
51,6% þeirra sem komu á slysa-
varðstofu 1—4 klukkustundum eft
ir að hafa fengið áverka voru undir
áhrifum áfengis.
Sjá töflu 3
Líkamlegir áverkar
Mar er algengasti áverkinn en
sár og beinbrot einnig. Þrjár konur
Könnun á ofbeldi gegn konum:
101 kona leitad læknis-
hjálpar eftir líkamsárás
„TÖLUR um ofbeldi gagnvart kon-
um eru vandmeðfarnar, en síðustu
árin hefur lögreglan í Reykjavík ár-
lega haft tæplega 500 sinnum afskipti
af heimiliserjum," sagði Bjarki Elías-
son, yfirlögregluþjónn i Reykjavík í
samtali við Mbl.
„Mér er fullljóst að þessar tölur
eru aðeins brot af deilum og erjum
sem koma upp og þá einnig líkams-
árásum á heimilum. Bæði er að fólk
leitar ekki til lögreglu fyrr en öll
sund eru lokuð — þá hefur heimilið i
mörgum tilvikum logað í deilum í
2—3 ár. Ofbeldi er viðkvæmt mál hjá
konum og þær veigra sér við að skýra
frá líkamsárásum,“ sagði Bjarki
Elíasson.
Mbl. fékk eftirfarandi tölur um
heimiliserjur, ofbeldi gagnvart
konum á árunum 1979, 1980, 1981
og það sem af er árs 1982, hjá
Bjarka:
Fjöldi skýrslna um heimiliserj-
ur:
1979 - 460
1980 - 518
1981 - 489
1982 - 467
Fjöldi líkamsárása á eiginkonur
eða sambýliskonur:
1979 - 94
1980 - 51
1981 - 33
1982 - 33
Fjöldi tilvika er eiginmenn eða
sambýlismenn voru fjarlægðir af
heimilum vegna deilna og ofbeldis
á heimili:
1979 - 77
1980 - 99
1981 - 103
1982 - 94
Fjöldi eiginkvenna og sambýl-
iskvenna, sem fluttar voru í slysa-
deild vegna meiðsla sem þær hlutu
eftir árás á heimili:
1979 - 20
1980 - 15
1981 - 7
1982 - 12
Fyrir skömmu birtust niðurstöð-
ur könnunar um ofbeldi í íslenzk-
Lögregla í fæst-
um tilvikum köll-
uð til aðstoðar
um fjölskyldum í tímariti Geð-
verndar eftir Hildigunni Ólafs-
dóttur, afbrotafræðing, Sigrúnu
Júlíusdóttur, félagsráðgjafa og
Þorgerði Benediktsdóttur, lögfræð-
ing. Þær söfnuðu gögnum um
ofbeldi í íslenzkum fjölskyldum
með því að kanna sjúkraskrár
slysavarðstofu Borgarspítalans í
Reykjavík árið 1979.
Sjúkraskrár þeirra sem leituðu
til slysadeildar vegna áverka frá
öðrum eða vegna sjálfsáverka voru
kannaðar. Alls reyndust þær 1174,
en árlega koma um 35 þúsund ein-
staklingar í slysadeildina. Af þess-
um 1147 einstaklingum sem leituðu
til slysadeildar hafði 101 orðið
fyrir líkamlegu ofbeldi frá hendi
fjölskyldumeðlims — þessir
greindu sjálfviljugir frá hver olli
áverka. Greinarhöfundar segja:
„Það er ljóst að hér er um lág-
markstölur að ræða. Til viðbótar
þessum hópi koma þeir, sem skýra
ekki rétt frá aðstæðum í kringum
áverkann, segjast hafa dottið eða
verið slegnir en ekki af hverjum.
Við getum því ekki dregið ályktan-
ir um tíðni fjölskylduofbeldis af
þessari könnun..."
Og stuttu síðar: „í sjúkrahúsi í
Nottingham í Englandi var gerð
tilraun til að mæla tíðni á þennan
hátt. í 3 mánuði var skráð, hversu
margar konur sögöu af sjálfsdáð-
um frá því, að eiginmaðurinn hefði
veitt þeim áverkann, sem var
ástæða þess að leitað var til lækn-
is. Það reyndust vera 200 konur.
Næstu 3 mánuði voru allar konur
sem leituðu til slysavarðstofunnar
spurðar ítarlega um það, hver
hefði veitt þeim áverkann og þá óx
fjöldinn í 600 konur."
Fram kemur að 78% þeirra sem
urðu fyrir líkamsárás voru konur,
reyndust vera með áverka eftir
kyrkingartilraunir á hálsi. Grein-
arhöfundar vitna í sjúkraskýrslu
þegar þær skýra frá hvernig kona
nokkur var útleikin eftir hrotta-
lega líkamsárás maka: „Sú sem
einna verst var leikin var með
glóðarauga, mar á höku í hár-
sverði, aðallega á hnakka, mar-
bletti víða á handleggjum, aðallega
upphandleggjum, öxl og brjósti til
hliðanna, aftan á baki við hægra
viðbein yfir hrygg og neðariega
vinstra megin á baki. Mar á
hnjám, mar á báðum rasskinnum.
Sársauki undir vinstra herðablaði
þegar brjóstkassa er þrýst saman“.
Af þeim konum sem urðu fyrir
árás á heimili hlutu 48,8% meiri
háttar áverka og 51,6% töldust
vera með minniháttar áverka.
Sjá töflu 4
Svo sem fram kemur í könnun
þeirra Hildigunnar, Sigrúnar og
Þorgerðar, er erfitt að meta hve
ofbeldi gegn konum er algengt hér
á landi og aðeins er hægt að meta
með vissu hluta þeirra sem verða
fyrir árás. En ljóst er að mun fleiri
konur sæta ofbeldi en lesa má af
lögregluskýrslum og í flestum til-
vikum hefur lögregla afskipti af
deilum og heimiliserjum, en ekki
beinlínis árás á eiginkonu. Þetta
sést glöggt af því að árið 1979 leit-
aði 101 kona lækningar eftir árás
eiginmanns eða sambýlismanns,
en samkvæmt skýrslum lögreglu
voru 20 konur fiuttar í slysadeild
eftir að lögregla hafði verið kölluð
til þess að skakka leikinn.
Og ef marka má kannanir
erlendis, þá má ætla, að þrefalda
megi fjölda kvenna sem leita sér
lækninga eftir árás eiginmanns
eða sambýlismanns — það er að
árlega leiti um 300 konur á Stór-
Reykjavíkursvæðinu læknismeð-
ferðar eftir árás eiginmanns eða
sambýlismanns, í flestum tilvikum
á heimili. H.Halls.
Staður Tafla 2 Fjðldi %
Heimili 52 83,9
Við/á skemmtistaö 7 11,3
Óupplýst 3 4,8
62 100,0%
veggja heimilisins er látið afskiptalaust. Ofbeldi á
heimili getur því átt sér stað um langan tíma án þess
að nokkur skipti sér af því.
Sjúkdómsgreining Tafla 4 Fjöldi %
Geðtruflanir 1 1,6
Brot 15 24,2
Tognun 5 8,1
Sár 18 29,0
Mar 22 35,5
Annaö 1 1.6
62 100,0%
Kveikt á
jólatré á
Akranesi
Akranesi, 20. desember.
Síðastliöinn laugardag var
kveikt á jólatré á Akratorgi hér á
Akranesi, sem sent var frá vina-
bænum Tönder í Danmörku.
Frú Svandís Pétursdóttir flutti
kveðju- og þakkarávarp, og Björn
Eiríkur Andersen kveikti á trénu,
en hann er danskur og innfluttur
hér á Akranesi. Lúðrasveit Akra-
ness lék jólalög og jólasveinar
einn og átta voru mættir á torginu
og skemmtu fólki.
Þetta er í 25. sinn sem vinabær-
inn Tönder sendir Akranesi fal-
legt og táknrænt jólatré.
Júlíus.
Fanta á litl-
um flöskum
VERKSMIÐJAN Vífilfell hefur
verið með Fanta-appelsín á lítra-
flöskum, en nú er farið að aka út
nýju Fanta-appelsíni á minni
flöskum. Hafa stóru flöskurnar
notið vinsælda, en nýju minni um-
búðirnar eru hugsaðar til að hægt
sé að neyta þessa appelsínusafa á
staðnum.
XJöfdar til
XI fólks í öllum
starfsgreinum!
ÍSLENSKI
JÓLAPLATTINN
1982
er kominn
Pantanir í síma 20290
Laufásveg 6. Sendum um
allt land.
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAOASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTAR-
STÖÐINNI
OG Á KASTRUP-
FLUGVELLI
Bræöraborgarstígur —
lúxusíbúö
Mjög glæsileg 80 fm risíb. í nýju
húsi við Bræöraborgarstíg.
Mjög fallegar furuinnréttingar
og bitar í lofti. Bílskúr. Verö til-
boð.
Furugrund 3ja herb.
+ herb. í kj.
Góð 90 fm íb. í tveggja hæöa
blokk + aukaherb. í kj. Suður
svalir. Sklpti koma til greina á
110 — 120 fm tb. á Reykjavík-
ursvæöinu.
Hjallabraut — Hafnarfj.
3ja herb. 96 fm góð íb. á 2.
hæð. Þvottahús og búr f íb.
Verö 1 millj.
Laugarnesvegur
— 3ja herb.
Ca. 85 fm íb. á 4. hæð. Verð
900—950 þús.
Hjarðarhagi
— makaskipti
Ágæt 90 fm íb. á 2. hæð. Tvær
saml. stofur, svefnherb., góð
geymsla í kj. Suður svallr. Verð
1 millj. — 1050 þús. Skipti
óskast á 2ja herb. íb. á Melun-
um.
Hæöarbyggö —
Garöabæ
3ja herb. íb. rúml. tilb. undir
tréverk. Sér inng. og sér hiti.
Auk þessa fylgir 50 fm íbúðar-
pláss fokhelt.
Austurberg — 4ra herb.
+ bílskúr
Mjög góð tæpl. 100 fm góö íb. á
3ju hæð. Góð teppi. Suöur sval-
ir. Lítil veðbönd. Verö
1150—1200 þús.
Framnesvegur
4ra herb. mjög góö 120 fm íb. á
1. hæð . Tvær saml. stofur tvö
herb. og hol. Skipti koma til
greina á 3ja herb. íb. á 1. hæð.
Fururgrund
— 2ja íb. eign
3ja herb. íb. á hæö + einstakl-
ingsfb. í kj. Mjög skemmtileg
eign. Verð 1300 þús.
Kjarrhólmi
4ra—5 herb. glæsileg 120 fm
íb. á 2. hæð. Þvottahús og búr í
íb. Stórar suöursvalir. V«rð
1200—1250 þús.
Kleppsvegur
— 4ra herb.
95—100 fm íb. á 4. hæð. Tvær
saml. stofur. Tvö svefnherb.,
tvær geymslur og frystiklefi.
Verð 1,1 millj. Skipti koma til
greina á 3ja—4ra herb. íb. í ný-
legu húsi.
Lindargata — sérhæö
90 fm íb. í gömlu húsi. Tvöf.
gler. Allt sér. Bílskúr fylgir. Verð
1 millj.
Lokastígur —
einbýli/tvíbýli
Húsið skiptist í hæð, ris og
jarðhæð. Að flatarmáli ca. 160
fm. Góöri möguleikar, engin
veöbönd. Bein sala. Verö 1,5
millj.
bingholtsstræti —
4ra—5 herb.
130 fm íb. sem skiptist í 2
svefnherb., 2 saml. stofur,
boröstofu og stórt hol. Ný
teppalagt og rafmagn endurnýj-
aö að hálfu. Tvöf. gler. Laus
samkomul. Verö 1,1 —1,2 millj.
Óöinsgata
— 3ja—4ra herb.
Glæsileg 90 fm eign á 2 hæóum
við Óðinsgötu. Fururinnrétt-
ingar. Allt endurnýjað, rafmagn
og lagnir. Sér inng. Bein sala
eöa skipti á öllum mögulegum
stæröum íbúöa.
Fjörugrandi — parhús
160 fm parhús, skilast tilb. und-
ir tréverk eða fokhelt. 20—25
fm bílskúr fylgir. Verð 1,6—2
millj.
Höfum kaupanda er
bráövantar 3ja—4ra
herb. íb. meó bílskúr.
í Kópavogi.