Morgunblaðið - 21.12.1982, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1982
15
Jólatónleikar
Pólýfónkórinn og Kammer-
sveit Reykjavíkur fluttu verk
eftir Bach, Torelli og Vivaldi á
jólatónleikum í Kristkirkju fyrir
troðfullu húsi. Umfram það að
flytja góða tónlist með glæsi-
brag, þá bar það til tíðinda að
stjórnandi tónleikanna var
Hörður Askelsson. Það hefur
auðvitað borið til í umræðum
manna hver tæki upp merki Ing-
ólfs Guðbrandssonar, þá hann
þætti sér hvíldar vant.
Ekki er ráð nema í tíma sé
tekið og gott ráð hjá Ingólfi er
það að kalla til samstarfs við sig
jafn efnilegan tónlistarmann og
Hörð. Fyrsta verk tónleikanna
var Kantata nr. 61 eftir J.S.
Bach, „Nun komm, der Heiden
Heiland". Einkunnarorð verks-
ins eru úr Opinberunarbók Jó-
hannesar, þriðja kafla, tuttugata
versi. „Sjá ég stend við dyrnar og
kný á. Ef einhver heyrir raust
mína og lýkur upp dyrunum, þá
mun ég fara inn til hans og
neyta kvöldverðar með honum
og hann með mér.“ Það var
margt vel gert í þessu verk en
auk flutnings strengjasveitar-
innar og söngkórsins, sungu
Katrín Sigurðardóttir og Sigurð-
ur Björnsson einsöng. Aríurnar í
verkinu eru mjög erfiðar og allt
að því eðlilegri sem hljóðfæra-
tónlist, sérstaklega tenórarían.
Katrín Sigurðardóttir er efnileg
söngkona og sýndi á sér nýja
hlið, er vekur vonir um að hún
festi sig ekki í ákveðnum söng-
hlutverkum, heldur þjálfi söng-
tækni sína við margbreytileg
viðfangsefni. Það má segja að
Katrín hafi komið nokkuð á
óvart með ágætum og styrkum
söng sínu. Annað verkið á
söngskránni var Jólakonsertinn
eftir Torelli.
Tónleikunum lauk svo með
Gloría eftir Vivaldi, sem kórinn
hefur áður flutt með miklum
glæsibrag. Það var töluverð
spenna í flutningi verksins, sem
er glæsileg tónsmíð. Einsöngvar-
ar voru Katrín Sigurðardóttir,
Signý Sæmundsdóttir og Ásta
Thorstensen. Af ágætum flutn-
ingi einsöngvaranna var söngur
Katrínar í Domini Deus (6.
kafli), sérlega vel útfærður. Ásta
Thorstensen hefur fallega rödd
og söng ágætlega. Hún mætti þó
leggja meiri rækt við framburð
textans, sem vill verða of mótað-
ur af tónuninni. í heild var
flutningur verksins mjög góður
bæði af hendi hljóðfæraleikara
og söngvara, undir lifandi og ör-
uggri stjórn Harðar Áskelsson-
ar. í aldarfjórðung hefur Pólý-
fónkórinn mótað íslenskt tón-
listarlíf með skarpari dráttum
en mörg þau fyrirtæki sem þar
hafa til reynt og er á enga hallað
þó þakkað sé dugnaði og óbilandi
listtryggð Ingólfs Guðbrands-
sonar, sem blómstraði í flutningi
Mattheusarpassíunnar sl. vor.
Nú hefur þessi hljóðritun ver-
ið gefin út. Eins og stjórnandinn
bendir á, er hér um að ræða
konsertupptöku, sem að því er
hann veit best, er sú eina sem
gefin hefur verið út af verkinu í
heild. Undirritaður ætlar ekki að
fjalla um útgáfuna að öðru leyti
en að láta þess getið, að á sama
hátt og nærri fjögurra klukku-
stunda flutningur verksins í Há-
skólabíói í apríl sl. var stytzti
konsert sem undirritaður hefur
Katrín Sigurðardóttir
Hörður Áskelsson
setið, að þá var endurhlustun
verksins, nú af fjórum hljóm-
plötum, einnig ein stund án tím-
anlegrar viðmiðunar.
Jón Ásgeirsson.
Engin
vcniuleg
bníf
hddurbtéf
jiáÞcrbeigi
í þessari bók eru einstæð bréf,
sem Þórbergur Þórðarson
sendi þeim Lillu Heggu og
Biddu systur, sem kunnar eru
úr bók hans ..Sálminum um
blómið“. Bréfin eru skrifuð á
árunum 1952 til 1971 og
koma nú í fyrsta sinn fyrir al-
menningssjónir. Hjörtur Páls-
son hefur tekið saman skýring-
ar með bréfunum og skráð
minningabrot aðalpersónanna
um Sobbeggi afa og fleira fólk.
Þá er í bókinni mikill fjöldi
skemmtilegra mynda.
JÓLABÓKIN í ÁR.
SÍÐUMÚLA 29 Simar 32800 og 32302
Kommóöur úr furu
w V
V
r v w
V w
V w
w w
w w
l _y
_ w w !
Litir: fura, brúnbæsaö. Ymsar stæröir
Eldhúsgögn úr birki
Litir: brúnbæsaö og ólitaö.
Svefnbekkir
4 tegundir. 3-2-1. Verö frá kr. 2990
Furusófasett
.í' ___________
ik >
|Ft
^ f :f
4 teg. 3-2-1. Verö 6715