Morgunblaðið - 21.12.1982, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1982
Heimilistæki hf. hafa til sölu
jólaseríur frá kr 290"
og eilífðarjólatré frá kr. 560“
Það hefur aldrei verið fjölbreyttara úrval af jólaljósaseríum
hjá Heimilistækjum hf., einfaldar, skrautlegar, fallegar.
Jólatré úr varanlegum gerfiefnum, sem endast heila eilífð
- 50cm, 130cm, 150cm, 170cm og 180cm.
Tré - ljós - gjafir fyrir alla fjölskylduna
Komið, skoðið, kaupið.
Heimilistæki hf.
Sætúni - Hafnarstræti
Bók um gagnmerkan þátt
í skólasögu landsins
HÚSMÆDRASKÓLINN
ÁHALLORMSSIAÐ
19301980
eftir Sigrúnu Hrafnsdóttur
í þessu afmælisriti er rakin saga
skólans — forsaga hans og byggingar
saga - og skólastarfið í hálfa öld.
173 myndir prýda bókina, þar af
35 myndir- skólaspjöld-af nemendum
skólans frá upphafí og fjöldi mynda
úr daglegu starfi skólans.
Þá er skrá yfir alla kennara
og nemendur og skólanefndarmenn
á tímabilinu.
Vilhjálmur Hjálmarsson
annaðist útgáfuna.
!i ÞJÓÐSAGA
W® ÞINGHOLTSSTRÆTI 27 — SiMI 1 3510
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR
Mario Soares. Pinto Balsemao. Mota Pinto.
Litlaus foringi fer frá —
en leysir það vanda Portúgal?
AFSÖGN Pinto Balsemao forsKtisráðherra Portúgals hefur komið mörg-
um í opna skjöldu, þrátt fyrir alla þá gagnrýni, sem Balsemao hefur sstt
sem stjórnandi. Aleitnar sögusagnir voru um það í Lissabon um helgina,
að afsögn Balsemaos væri yfirvofandi og voru fréttastofur búnar að
senda frá sér fréttina, áður en hún var staðfest. Stjórnmálanefnd
Sósíaldemókrataflokksins var kvödd saman til fundar um helgina og
urðu þar miklar og heitar umræður um málið. Lyktir urðu þær, aö
Balsemao flutti ræðu, skeleggari og ákveðnari en i annan tima hefur
heyrzt til hans, þar sem hann sagðist af pólitískum og siöferðilegum
ástæðum hafa ákveðið að segja af sér.
Hann lagði áherslu á, að af-
sögn sín stæði ekki í beinu
sambandi við fylgisaukningu
Sósíalistaflokksins PS í bæja- og
sveitastjórnarkosningunum,
heldur væri honum ekki fært að
sitja vegna misklíðar og inn-
byrðis ágreinings innan hans
eigin flokks. Á endanum sam-
þykkti nefndin áskorun til Bals-
emao um að endurskoða ákvörð-
un sína, en nú varð honum ekki
haggað, neitaði því, en kvaðst
fallast á það eitt að sitja þar til
PSD hefði fundið eftirmann
sinn. Því leita PSD-menn nú
með logandi ljósi að manni sem
gæti tekið við af Balsemao og
hefði hugsanlega það til að bera
að geta sameinað þau sundur-
leitu öfl, sem hafa verið að naga
flokkinn innan frá í langan tíma.
Nefndir hafa verið Joao Salg-
eiro, fjármálaráðherra og Mota
Pinto og þykir sá síðarnefndi lík-
legri. Mota Pinto er vararektor
háskólans í Coimbra, fyrrver-
andi forsætisráðherra í einni af
þeim stjórnum sem Eanes for-
seti skipaði og auk þess gegndi
hann um hríð embætti ferða-
málaráðherra í ríkisstjórn hjá
Mario Soares.
I portúgölskum blöðum í dag
er því spáð að Sósíaldemókratar
verði að vera snarir í snúningum
að velja eftirmann Balsemaos,
enda myndi allur dráttur á því
verða flokknum enn meira til
skaða.
Stjórnmálamenn í Portúgal
telja ekki tímabært að gefa yfir-
lýsingar um málið, en Freitos do
Ámaral leiðtogi Miðdemókrata
— sem er samstjórnarflokkur
PSD — hefur látið hafa eftir sér,
að gagnrýni sú sem samfellt hef-
ur verið haldið uppi á Pinto
Balsemao hafi í mörgu verið
fjarskalega ósanngjörn.
Og raunar hefði sjálfsagt einu
gilt, hver hefði tekið við í Portú-
gal eftir fráfall Sa Carneiros
fyrir tveimur árum. Það hefði
ekki verið neinum heiglum hent
að fara í fötin hans og því hefur
Balsemao legið undir gagnrýni
og ekki alltaf sanngjarnri vegna
þess Ijóma sem menn vöfðu um
minningu Sa Carneiro. Það er
vissulega rétt, að stjórn Sa
Carneiros hafði á skömmum
tíma náð undraverðum árangri í
efnahagsmálum og hann naut
síðustu mánuðina, sem hann
lifði, mikillar lýðhylli. Þegar
hann féll frá var án efa rökrétt
að það yrði Balsemao og ekki
neinn annar, sem tæki við. Hann
var varaforsætisráðherra og
hann hafði verið náinn sam-
starfsmaður Sa Carneiros og afl-
að sér góðs orðs. Enginn dró í efa
heiðarleika hans og margir töldu
hann klókan pólitíkus. Raunin
varð svo önnur. Balsemao er
andstæða Sa Carneiros í flestu,
hann er sveigjanlegur, svo að
mönnum finnst nóg um, kurteis
svo að úr hófi keyrir, vill allra
vanda leysa, svo að menn segja
að hann hengi sig í smáatriðum,
og hann vill engan styggja, svo
að honum hefur gengið mjög erf-
iðlega að taka ákvarðanir og
gera ráðstafanir, sem hann veit,
að myndu mælast miðlungi vel
fyrir. Útkoman hefur svo orðið
reikul stjórnarstefna þar sem
enginn virðist ábyrgur fyrir einu
né neinu.
Þó svo að afsögn Balsemaos
tengist aðeins óbeint úrslitunum
í bæja- og sveitastjórnarkosn-
ingunum, þar sem PS bætti
verulega stöðu sína á kostnað
PSD, er þó ekki raunhæft að
telja að afsögn hans komi í kjöl-
far kosningaúrslitanna. Mario
Soares formaður PS hefur kætzt
yfir úrslitunum og sagði fyrir
kosningarnar, að fengi PS yfir
30 prósent mætti líta á það sem
sigur fyrir andstæðinga ríkis-
stjórnarinnar. Flokkurinn fékk
um 30,6 prósent, svo að sigurinn
gat ekki knappari verið. Þó svo
að Sósíalistaflokkurinn hafi
aukið fylgi sitt er ekki þar með
sagt að ný sveifla sé að hefjast í
portúgölskum stjórnmálum,
þarna ræður vafalaust hin
margumrædda gremja með
duglitla ríkisstjórn. Samt sem
áður sýna úrslitin að kjósendur
treysta sér ékki til að kúvenda
yfir til vinstri, þegar öll kurl
koma til grafar. Þrátt fyrir
óbjörgulegt ástand vita þeir þó
hvað þeir hafa þótt fæstir telji
það gott.
Því mun nú skýrast á næstu
dögum, hver tekur við forsætis-
ráðherraembætti í Portúgal.
Eins og áður segir eru viðsjár
innan Sósíaldemókrataflokksins
og margir horfa með löngunar-
augum á stól forsætisráðherra
og telja að þeir gætu leyst
vandamál Portúgals nánast á
einu bretti. Svo einfalt er það
vitanlega ekki og það myndi
heldur ekki verða nein endanleg
lausn þótt Mario Soares fengi
vilja sínum framgengt og Eanes
forseti leysti upp þing og boðaði
til nýrra kosninga. Mario Soares
hefur fengið tækifæri áður til að
glíma við vandann og það gekk
ekki nema miðlungi vel. Það þarf
mikið mannvit og mikla hörku
til að snúa við þeirri þróun sem
hefur orðið í efnahagsmálum
Portúgals síðustu árin, að und-
anteknum fáeinum mánuðum
þegar stjórn Sa Carneiros sat að
völdum. Sá maður sem Portúgal
þarf á að halda virðist ekki vera
fyrir hendi og það er kannski
bara skottulækning að Pinto
Balsemao fari frá. Þá kynnu
bræðravíg innan Sósíaldemó-
krataflokksins að hefjast fyrir
alvöru og ekkert þeirra Salgeiro,
Mota Pinto, Helen Roseta eða
Eurico de Melo, sem öll hafa ver-
ið nefnd virðist gætt neinum
galdramætti.
Gódan daginn!