Morgunblaðið - 21.12.1982, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1982
23
Islenska landsliðið í
handknattleik kom heim
meö stór töp á bakinu
meö 28 mörk í mínus efftir 5 leiki
Handknattleiksmótinu [ Aust-
ur-Þýskalandi lauk um helgina og
léku íslendingar þé við Rúmena
og Ungverja. Rúmenar sigruðu
okkar menn á laugardaginn með
níu marka mun, 26—17, og síðan
tapaði island fyrir Ungverjum á
sunnudaginn, 25—20. Austur-
Þjóðverjar urðu sigurvegarar á
mótinu og unnu alla sína leiki.
Þeir sigruðu Rúmena í síðasta
leiknum á sunnudaginn, 20—18,
en hefði nægt jafntefli til sigurs í
mótinu. Rúmenar og Ungverjar
urðu í 2.—3. sæti, bæði lið með 7
stig, Svíar fengu 4 stig, íslend-
ingar 2 og B-lið Austur-Þjóöverja
ekkert stig.
Ungverjar höfðu yfir í hálfleik,
12—10, en í lokin var munurinn
oröinn fimm mörk. Kristján Arason
var markahæstur íslensku leik-
mannanna, skoraði sjö mörk (eitt
víti), Alferð Gíslason geröi fjögur
og eins geröi Hans Guðmundsson,
Steindór Gunnarsson var meö tvö,
og eitt mark geröu Jóhannes Stef-
ánsson, Haukur Geirmundsson og
Páll Ólafsson.
Sigur Rúmena á laugardaginn
var mjög öruggur, 26—17, og eins
og í öörum leikjum var íslenska
vörnin nokkuö langt frá því aö vera
nægilega sterk. Varnarleikurinn
var ekki góöur í þessari keppni hjá
íslenska liöinu og er greinilegt aö
mikiö þarf aö lagfæra fyrlr
B-keppnina í Hollandi í febrúar.
Leikurinn viö Austur-Þýskaland
var sýndur í sjónvarpinu á sunnu-
daginn og sást þá vel hve vörnin
var slök — og sóknarleikurinn var
einnig litiö auganayndi. Einhæfur
og lítt ógnandi og leikmenn virk-
uöu þungir. En þaö er auövitaö
B-keppnin sem máli skiptir hjá
landsliöinu í vetur, þannig aö höf-
uömáliö er aö vera á toppnum þá.
Úrslitin í leikjum íslands á mót-
inu uröu þessi:
A-Þýskaland — Island 32—20
Svíþjóö — island 28—20
A-Þýskaland B — ísland 22—28
Rúmenína — Island 26—17
Ungverjaland — island 25—20
Markatala úr þessum leikjum er
því 105—133 íslandi í óhag — eöa
28 marka munur.
— SH.
• Jóhann Ingi hefur skilað árangursríku starfi hjá THW Kiel. Hann
hefur nú framlengt samning sinn við fólagiö.
• Atli Eðvaldsson hefur leikið mjög vel aö undanförnu með liöi sínu,
Fortuna DUsseldorf, í vestur-þýsku Bundesligunni. Leikur liðsins hefur
gjörbreyst eftir að nýr þjálfari tók viö því. Alti hefur nú skorað átta
mörk í deildinni, er keppnistímabili er hálfnað, og er meöal marka-
hæstu manna. Hór gengur Atli af velli eftir einn leikínn og er ákaft
fagnaö. Hann dvelur nú í jólaleyfi ásamt konu sinni og syni á Kanarí-
eyjum.
Nokkrar líkur eru nú á því að hann gangi til liðs við nýliöa Þórs á
Akureyri og leiki með þeim í 1. deildinni næsta sumar.
Ljósmynd: Gudmundur Guöjónsson.
Gengur Þorsteinn
til liðs við Þór?
Jóhann Ingi gerir nýjan
samning við THV-Kiel
— mun þjálfa liðið til ársins 1985
JÓHANN Ingi Gunnarsson hefur
nú undirritaö nýjan starfssamn-
ing við v-þýska handknattleiks-
liðið THW Kiel. Stjórn fólagsins
hefur verið mjög ánægö með
þann góða árangur sem Jóhann
hefur náð með liðið og lagöi hart
að Jóhanni aö skrifa undir nýjan
samning, og þaö gerði hann þeg-
ar hann haföi fengið mjög gott
tilboð frá fólaginu. Jóhann mun
starfa hjá fólaginu til 1985.
Allir leikmenn liðsins svo og
stjórnarmenn voru einróma sam-
mála um að reyna aö fá Jóhann til
að starfa áfram og byggja upp
framtíðarlið fyrir fólagiö. Á síð-
ustu átta árum hafa 10 þjálfarar
verið við störf hjá Kiel, en allir
hafa þeir verið látnir fara.
Jóhanni Inga hefur tekist á aö-
eins örfáum mánuðum aö ger-
breyta leik Kielar-liösins úr krafta-
handknattleik í léttan, agaöan og
hugmyndaríkan handknattleik.
Þetta hafa áhorfendur í Kiel kunn-
aö aö meta og ávallt er uppselt á
heimaleiki liösins. Þá hefur líka
oröiö mikil breyting á leik liöslns á
útivelli og liöiö hefur unniö þar
góöa sigra þó svo aö þeir séu ekki
nógu margir ennþá. En því stendur
til aö breyta. Liö Kiel hefur komiö
verulega á óvart í deildarkeppninni
í vetur undir stjórn Jóhanns Inga
og unniö fleiri sigra en nokkur átti
von á.
Þaö varö til þess aö starfssamn-
ingur hans var framlengdur um tvö
ár og rennur nú ekki út fyrr en áriö
1985.
— ÞR
Miklar líkur eru á því að Þor-
steinn Ólafsson, fyrrum lands-
liðsmarkvörður í knattspyrnu,
gangi til liðs við nýliöa Þórs fró
Akureyri í 1. deildinni næsta
sumar. Þorsteinn, sem búiö hefur
í Svíþjóð undanfarin ár og m.a.
leikið þar meö IFK Gautaborg,
kemur til landsins milli jóla og
nýárs og mun þá halda til Akur-
eyrar og ræða viö forráöamenn
Þórs.
Erfiðlega hefur gengiö fyrir
Þorstein aö fá vinnu í sínu fagi hér
á landi, en hann er efnafræöingur
aö mennt. Líkur eru nú á því að
hann geti fengiö starf á Akureyri,
og ef af því veröur mun hann
ganga til liös viö Þórsara.
Þá hefur heyrst að Siguröur Lár-
usson, fyrirliöi bikarmeistara ÍA, sé
aö velta fyrir sér aö flytja aftur til
Akureyrar og leika meö Þór. Hann
lék sem kunnugt er meö liðinu áö-
ur en hann gekk til liös viö ÍA. Sig-
urður mun ákveöa sig um jólin.
— SH.
Malta steinlá
á „heimavelli“
Hollendingar lóku sér aö
Möltubúum er liðin mættust
í Evrópukeppni landsliöa í
Aachen f V-Þýskalandi á
sunnudaginn. Endaöi leikur-
inn 6:0 fyrir Holland. Ophof
skoraöi fyrsta markið úr
vítaspyrnu. Van Kooten og
Schoenaker geröu síöan tvö
mörk hvor og síðasta markið
geröi Hovenkamp.
Ein og tölurnar bera með
sór voru yfirburðir Hollend-
inganna geysilegir og aöeins
frábær markvarsla Bonello
hjá Möltu kom í veg fyrir
mun stærra tap liðsins.
Áhorfendur voru um 15.000,
en leíkurinn var heimaleikur
Möltu. Þeir voru dæmdir til
að leika tvo heimaleiki sína á
hlutlausum velli — og hafa
nú gert það, viö ísland og
Holland — þannig aö næsta
heimaleik í keppninni geta
þeir leikiö á Möltu.
Staðan í riölinum eftír
leikinn á sunnudaginn er
þannig:
Holland 3 2 1 0 9:2 5
Spánn 2 1 1 0 4:3 3
írland 3 1 1 1 6:5 3
Malta 2 1 0 1 2:7 2
ísland 4 0 1 3 2:6 1
Mikill hagnaður
á Spáni
á HM
Framkvæmdanefnd FIFA
hefur nú tilkynnt formlega
hve mikill hagnaður hafi orö-
iö á heimsmeistarakeppn-
inni á Spáni í sumar. Hagn-
aðurinn varð 64 milljónir
svissneskra franka — rúm-
lega 517 milljónir íslenskra
króna. Verður hagnaðinum
skipt milli FIFA, Spánverja,
sem hóldu keppnina og
knattspyrnusambanda
þeirra þjóöa sem þátt tóku í
keppninni á Spáni.
Ákveóiö í maí
hvar HM '86
verður haldin
Alþjóða knattspyrnusam-
bandið, FIFA, tilkynnti á
laugardaginn aö ákvöröun
um þaö hvar heimsmeistara-
keppnin yrði haldin 1986 yrði
tekin í maí á næsta ári. Bras-
ilía, Mexíkó, Kanada og
Bandaríkin hafa öll fengið
frest til 10. janúar til aö
sækja formlega um að halda
keppnina, en þessi lönd hafa
sóst mest eftir því eftir aö
Kólombía dró umsókn sína
til baka.
Sérstök nefnd sem skipuö
hefur veriö mun skoöa aö-
stæöur í öllum þessum lönd-
um og síöan mun fram-
kvæmdanefnd FIFA taka
lokaákvöröun á ráöstefnu í
Stokkhólmi sem haldin verö-
ur 19. og 20. maí.
FIFA veit aö ekki er ráö
nema í tíma sé tekiö og því er
þegar fariö aö hugsa fyrir HM
1990 og 1984. Sovétríkin, Ít-
alía, Frakkland, Holland og
Júgóslavía hafa hingaö til
sýnt mikinn áhuga á aö halda
keppnina 1990, og nú hefur
Kanada bæst í þann hóp.
Suður-Kórea, Brasilía og
Perú hafa áhuga á aö halda
keppnina 1984.