Morgunblaðið - 21.12.1982, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1982
47
Styrkir úr Minningar-
sjóði Jóns Baldvinssonar
í TILEFNI af því, að liðin eru 100 ár
frá fæðingu Jóns Baldvinssonar hefir
sjóðsstjórn Minningarsjóðs Jóns
Baldvinssonar ákveðið að styrkja
þau Katrínu Guðmundsdóttur og
Gylfa Örn Guðmundsson til utanfar-
ar samkvæmt tilgangi sjóðsins, en
hann er að styrkja unga Alþýðu-
flokksmenn og konur til utanfarar og
náms, sem verða má alþýðuhreyfing-
unni og jafnaðarstefnunni á íslandi
til eflingar.
Þá hafa Alþýðuflokkurinn og
Alþýðusamband íslands ákveðið
að reisa Jóni Baldvinssyni minn-
isvarða í þakklætisskyni fyrir
brautryðjendastarf í þágu ís-
lenzkrar alþýðu.
Jón Baldvinsson fæddist 20. des-
ember 1882 að Strandseljum í Ög-
urþingum við ísafjarðardjúp.
Hann lærði prentverk á ísafirði og
að Bessastöðum hjá Skúla Thor-
Ákveðið að reisa
honum minnisvarða
oddsen og vann síðan við prentiðn
í Reykjavík árin 1905—1918, að
hann gerðist forstjóri Alþýðu-
brauðgerðarinnar í Reykjavík. í
stjórn Hins íslenska prentarafé-
lags var hann 1906—1908 og síðan
formaður þess 1913—1914. Hann
átti sæti í undirbúningsnefnd til
stofnunar Alþýðusambands ís-
lands og var ritari á stofnþingi
þess 12. mars 1916. Jón var ritari í
fyrstu stjórn ASÍ, sem sett var í
Báruhúsinu 19. nóvember sama ár,
var Jón kjörinn forseti sambands-
ins — og jafnframt Alþýðuflokks-
ins — og gegndi hann því embætti
til dauðadags árið 1938, í 22 ár.
Jón var fyrst kjörinn á Alþingi
fyrir Alþýðuflokkinn í febrúar
1921 og sat hann þar til dauðadags.
Seinustu átta ár ævi sinnar var
hann einnig bankastjóri Útvegs-
bankans.
„Með allt
á hreinu“
frumsýnd
KVIKMYNDIN „Með allt á
hreinu" var frumsýnd í Háskólabíói
á laugardag. Leikstjóri myndarinn-
ar er Agúst Guðmundsson, en i
aðalhlutverkum eru liðsmenn Stuð-
manna og Grýlanna auk Önnu
Björns, Eggerts Þorleifssonar og
fleiri. Myndin sýnir nokkra
aðstandenda myndarinnar.
Hljómsveitin Stuðmenn mun halda uppi fjörinu á jólaknallinu í Höllinni á
annan í jólum.
Jólaknall í Höllinni
ÆSKULÝÐSRÁÐ Reykjavíkur og hljómsveitin Stuðmenn hafa tekið hönd-
um saman og blása til jólaknalls í Laugardalshöll á annan í jólum. Dagskráin
verður tvískipt, annars vegar fjölskylduhátíð um daginn og hins vegar ungl-
ingaskemmtun um kvöldið. Auk Stuðmanna verða skemmtiatriði af ýmsu
tagi, en unglingar úr félagsmiðstöðvum Reykjavíkurborgar hafa að undan-
fornu unnið að undirbúningi skemmtunarinnar.
Á vegum Æskulýðsráðs eru um
það bil 250 unglingar úr félags-
miðstöðvunum fimm að vinna að
víðtæku undirbúningsstarfi. Þar
er einkum um að ræða skreytingu
á Höllinni og ýmis skammtiatriði.
Hópar úr tveimur félagsmiðstöðv-
um, Þróttheimum og Tónabæ, eru
til dæmis að vinna að risavöxnum
jólasveini sem á að gnæfa yfir sal-
inn og er áætlað að hann verði um
tuttugu metrar á hæð.
Eins og áður segir er dagskráin
tvískipt. Á fjölskylduhátíðinni
munu Stuðmenn koma fram þrisv-
ar sinnum um daginn og í hléun-
um þess á milli verða skemmtiat-
riði og er þessi háttur hafður á til
að fólk geti skotist úr fjölskyldu-
boðum á skemmtunina. Klúbbar
félagsmiðstöðvanna hafa tekið að
sér allan undirbúning fyrir jóla-
knallið og munu unglingarnir ann-
ast miðasölu, gæslu og veitinga-
sölu auk þess sem þeir munu ann-
ast skammtiatriði og sölu á hött-
um, kakói, piparkökum og fleiru.
Af skemmtiatriðum má nefna að
Leppalúði mun svífa um Höllina í
loftinu og dreifa sælgæti, söng-
konurnar Ragnhildur Gísladóttir
og Katla María koma fram,
drengjakór úr Keflavík lætur í sér
heyra, dýrin í Týról sýna sig svo
og jólasveinn, púkar og álfar
Ennfremur verður Tívolí á staðn-
um, eftirhermur úr Árseli koma
fram og unglingar úr Fellahelli
sýna dans. Verð aðgöngumiða er
75 krónur á fjölskylduhátíðina og
100 krónur á unglingaskemmtun-
ina.
Bermúda þríhyrningurinn
eftir Charles Berlitz
Flestir kannast við að hafa heyrt talað um
Bermúdaþríhyminginn. Þar hafa í gegnum
árin gerst vægast sagt undarlegir atburðir.
Síðan 1945 hafa horfið á annað hundrað
skip og flugvólar með um eitt þúsund
manns innanborðs.
Charles Berlitz er víðfrægur fyrir rannsóknir
slnar á óskýranlegum fyrirbærum.
Metsölubók um allan heiml
ÆGISÚTGÁFAN
Elsku mamma
Höfundur: Christina Crawford
Þessi bók hefur valdið mikilli umraaðu,
vegna þess hve hreinskilnislega er hér sagt
frá.
Sagan er sögð frá óvenjulegu sjónarhomi.
Hún er skrifuð af Christinu, dóttur hinnar
þekktu leikkonu Joan Crawford.
Heimilislíf þekktra kvikmyndastjarna er
ekki neinn dans á rósum, og oft er þar
stormasamt. Margt kemur hór á óvart, sór-
staklega fyrir þá sem ekki þekkja stjömur
eins og Joan Crawford nema í kvikmynd-
um. Margir neita því að trúa að uppáhalds-
stjarnan þeirra hafi átt eins brogað líf og hór
er lýst.
Hór segir dóttir sögu móður sinnar og
dregur ekkert undan. Hver og einn verður
að meta fyrir sig, eftir lestur þessarar merki-
legu bókar.
Innflytjendurnir
Howard Fast
„Ótrúlega mannleg og trúverðug saga,
sem þú munt njóta við lestur og aldrei
gleyma."
Daily Mirror.
Innflytjendumir eru stórkostleg bók, um ít-
alska innflytjendur í Ðandaríkjunum. Bókin
er saga Dan Lavette, sem er fæddur f sárri
fátækt, en af harðfylgi stofnar skipafélag
sem verður stórveldi. Hann verður leiðtogi
ríkrar og valdamikillar fjölskyldu. Baksviðið
er San -Francisco jarðskjálftarnir, fyrri
heimstyrjöldin og kreppan.
Innflytjendumir eru merkileg saga, um
stórkostleg ævintýri, ástir, hamingju og
hörmungar á uppbyggingartímabili Kali-
fomiuríkis.
1 »
L- . >