Morgunblaðið - 21.12.1982, Page 44
75
_ juglýsinga-
síminn er 2 24 80
9r£TtnM3frtt>
munirt trulofunarhrinua
litmvndalistann fffl)
#ull 8c ^>ilfur
Laugavegi 35
ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1982
Útflutningur vara úr loðskinnum:
Samdrátturinn
milli ára 61,5%
Liðlega 27% samdráttur í prjónavör-
um og stöðnun í ullarlopa og bandi
SAMDRATTURINN í útnutningi
á vöruni úr loðskinnum var um
61,5% á fyrstu tíu mánuðum árs-
ins, en í ár hafa verið flutt út 12,4
tonn, samanborið við 31,4 tonn á
sama tíma í fyrra. Verðmætasam-
drátturinn milli ára er tæplega 5%,
en í ár er verðmæti liðlega 14,1
milljón króna, samanborið við
tæplega 13,5 milljónir króna á
sama tíma í fyrra.
Fyrstu tíu mánuði ársins voru
flutt út 371,2 tonn af prjónavör-
um, samanborið við 435,5 tonn á
sama tíma í fyrra. Samdráttur-
inn milli ára er því liðlega 27%.
Verðmætaaukningin milli ára er
tæplega 42%, en verðmætið í ár
er tæplega 202,4 milljónir króna,
samanborið við liðlega 142,9
milljónir króna á sama tíma í
fyrra.
Útflutningur á ullarlopa og
bandi hefur nokkurn veginn
staðið í stað milli ára, en fyrstu
tíu mánuðina í ár voru flutt út
676,9 tonn, samanborið við 677,1
tonn á sama tíma í fyrra. Verð-
mætaaukningin milli ára er lið-
lega 66,5%, en verðmæti út-
flutningsins í ár er liðlega 76,7
milljónir króna, samanborið við
liðlega 46 milljónir króna á
sama tíma í fyrra.
Útflutningur á ullarteppum
jókst fyrstu tíu mánuðina um
13,1%, en í ár hafa verið flutt út
103,5 tonn, samanborið við 91,5
tonn á sama tíma í fyrra. Verð-
mætaaukningin milli ára er lið-
lega 82,2%, en verðmæti út-
flutningsins í ár er liðlega 14,5
milljónir króna, samanborið við
tæplega 8 milljónir króna á
sama tíma í fyrra.
Útflutningur á svokölluðum
„ytri fatnaði" hefur aukizt um
liðlega 201% milli ára, en fyrstu
tíu mánuðina í ár hafa verið
flutt út 18,1 tonn, samanborið
við 6,0 tonn á sama tíma í fyrra.
Verðmætaaukningin milli ára er
um 420%, en verðmæti útflutn-
ingsins í ár er liðlega 12,5 millj-
ónir króna, samanborið við 2,4
milljónir króna á sama tíma í
fyrra.
Bedid eftir flugi
ALLT innanlandsflug Flugleiða lá niðri á sunnudag og fram eftir degi í gær, en í gærkveldi tókst flugvélum Flugleiða
að komast til Akureyrar. Til stóð að fljúga sex ferðir fram og til baka. Fleiri hundruð manns bíða þess að komast til
áætlunarstaða félagsins. Flug Arnarflugs lá niðri á sunnudag, en í gærmorgun var flogið til Rifs og eftir hádegið fóru
tvær vélar til Bíldudals og undir kvöldið var einnig flogið til Stykkishólms. Meðfylgjandi myndir voru teknar á
afgreiðslu innanlandsflugs Flugleiða í gærkvöldi þegar verið var að leggja upp til Akureyrar. MorxunblaAið/KAX.
dagar
til jola
Viðskiptahallinn liölega 10% af þjóðarframleiðslu í ár:
Ekki er útlit fyrir umtals-
verðan bata á næsta ári
„ÚTLIT er nú fyrir, að viðskiptahall-
inn á þessu ári fari fram úr 10% af
þjóðarframleiðslu, sem janfgildir
því, að íslendingar verði að sækja
tíundu hverja krónu, sem þeir eyða,
til útlanda með því að auka erlendar
skuldir sínar umfram gjaldeyris-
eign,“ segir Jóhannes Nordal, seðla-
bankastjóri, í forystugrein sinni í 3.
hefti Fjármálatíðinda, sem nýverið
kom út.
Sigurjón Ólafsson
myndhöggvari látinn
LATINN er í Reykjavík Sigurjón
Olafsson myndhöggvari, 84 ára að
aldri.
Sigurjón fæddist 21. október 1908 á
Kyrarbakka. Foreldrar hans voru Ólaf-
ur Arnason verkamaður þar og kona
hans Guðrún Gísladóttir. Hann lærði
málaraiðn í Reykjavík 1926—29, en
nam síðan höggmyndalist hjá prófessor
K. l'tzon-Frank í listaháskólanum í
Kaupmannahöfn 1929—34 og braut-
skráðist þaðan 1934.
Sigurjón var búsettur í Kaup-
mannahöfn 1929—45, en síðan í
Reykjavík. Hann dvaldist í Róm
1931—32. Hann var aðstoðarmaður
Utzon-Frank 1933—40, ennfremur
prófessors Johs. C. Bjerg um árabil.
Sigurjón hlaut heiðurspening úr
gulli frá listaháskólanum í Kaup-
mannahöfn 1930 fyrir myndina
Verkamaður (eign Listasafns ís-
lands) og heiðurspening Ek;kersberg
1939 fyrir mynd af móður sinni.
Margar mynda hans eru í eigu Lista-
safns íslands, en einnig eru myndir
eftir hann í mörgum erlendum lista-
söfnum, og á opinberum stöðum.
Sigurjón var á laugardag kosinn í
Sigurjón Ólafsson
heiðurslaunaflokk listamanna af Al-
þingi.
Sigurjón kvæntist 1934 Tove dótt-
ur Rolf Thomasen verksmiðjueig-
anda í Kaupmannahöfn, en eftirlif-
andi kona hans er Inga Birgitte,
dóttir Erik Spur fyrrverandi sókn-
arprests í Middelfart í Danmörku.
segir Jóhannes Nordal, seðlabankastjóri
„Horfurnar fyrir næsta ár eru
ekki heldur uppörvandi. Ekki er útlit
fyrir neinn teljandi bata í efnahags-
þróun erlendis, er geti orðið þjóðar-
búskap íslendinga til hagsbóta og
tvísýnt er um útflutningsframleiðslu
vegna ástands fiskistofna.
A undanförnum mánuðum hafa
ýmsar ráðstafandir í gengismál-
um, kaupgjaldsmálum og pen-
ingamálum verið gerðar til þess að
hamla gegn vaxandi jafnvægis-
leysi í þjóðarbúskapnum. Engu að
síður er útlit fyrir mjög mikinn
viðskiptahalla á næsta ári e.t.v.
litlu minni en í ár, nema mun
meira verði að gert,“ segir Jó-
hannes Nordal.
Verzlanir við
Laugaveg:
Opnar til 22
á miðvikudag
VERZLANIR við Laugaveg verða
opnar til klukkan 22.00 nk. miðviku-
dagskvöld, og hafa kaupmenn gert
samning við starfsfólk sitt, sem
gengur út á það, að fólkið fær frí nk.
mánudag í staðinn.
Magnús E. Finnsson, fram-
kvæmdastjóri Kaupmannasam-
taka íslands, sagði í samtali við
Mbl., að slæm tíð og fleira hefði
orðið þess valdandi, að verzlun
hefði verið með minnsta móti und-
anfarna daga og vikur og því hefði
verið ákveðið að bregða á þetta
ráð, en verzlanir við Laugaveg
verða að sjálfsögðu einnig opnar á
Þorláksmessu til klukkan 23.00,
eins og aðrar verzlanir.
I þessu sambandi er vert að
rifja upp, að í þjóðhagsáætlun,
sem forsætisráðherra lagði fram í
lok október sl. er gert ráð fyrir
10% viðskiptahalla á þessu ári, en
hins vegar er þar spáð um 6%
halla á næsta ári, þannig að Jó-
hannes Nordal, seðlabankastjóri,
telur útlitið framundan greinilega
dekkra.
„A því ári, sem nú er að líða,
hefur mjög þrengt að þjóðarbú-
skap Íslendinga, útflutningstekjur
hafa minnkað verulega og dregið
hefur úr þjóðarframleiðslu. Lítil
breyting hefur orðið á útgjöldum
þjóðarinnar til neyzlu og fjárfest-
ingar, svo að samdráttur fram-
leiðslu og gjaldeyristekna hefur
komið fram með fullum þunga í
stórauknum viðskiptahalla við út-
lönd, sem fjármagnaður hefur
verið með skuldasöfnun erlendis
og rýrnun gjaldeyrisforðans," seg-
ir Jóhannes Nordal í forystugrein
sinni.
Rekstrarfjárstaða
frystingarinnar
jákvæð um 1-2%
SAMKVÆMT útreikningum I*jóð-
hagsstofnunar er rekstrarfjárstaða
frystingarinnar nú jákvæð um
1—2%. Að sögn Ólafs Davíðssonar,
forstöóumanns Þjóðhagsstofnunar,
er útreikningum á stöðu söltunar-
innar ekki lokið, en skreið verður
ekki tekin inn í dæmið að þessu
sinni vegna óljósrar markaðsstöðu.
Tölurnar um stöðu frystingarinnar
hafa nú þegar verið lagðar fyrir Yfir-
nefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins,
en nýtt fískverð gildir frá áramótum
og er stefnt að því að verðákvörðun
dragist ekki á langinn. Síðdegis i
gær var haldinn fundur í Yfírnefnd-
inni.
Fulltrúar þingflokkanna mættu
á fundi með Steingrími Her-
mannssyni sjávarútvegsráðherra
og Ólafi Davíðssyni forstöðu-
manni Þjóðhagsstofnunar í gær-
morgun þar sem kynnt var staða
útgerðarinnar vegna fiskverðs-
ákvörðunarinnar. Boðað hefur
verið til fundar þessara sömu að-
ila með forustumönnum hags-
munasamtaka í sjávarútvegi í
fyrramálið.
I nefndinni eiga sæti af hálfu
þingflokkanna: Garðar Sigurðsson
og til vara Skúli Alexandersson
frá Alþýðubandalagi, Kjartan Jó-
hannsson og til vara Sighvatur
Björgvinsson frá Alþýðuflokki,
Matthias Bjarnason og Matthías
Á. Mathiesen til vara frá Sjálf-
stæðisflokki og frá Framsóknar-
flokki Stefán Guðmundsson, en
Guðmundur Bjarnason og Halldór
Ásgrímsson til vara.