Morgunblaðið - 22.12.1982, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1982
Ljósmj'nd Ómsr Kagnarsson
ALLNOKKRAR skemmdir urðu í óveðrinu um helgina og er medfylgjandi mynd tekin á bænum Berjanesi undir
Kyjafjöllum, en þar hrundi veggur fjárhúshlöðu á bíl sem við vegginn stóð. Einnig fauk hluti af þaki fjárhússins og allt
þakið af fjárhúshlöðunni. I*á hvarf þakið af fjóshlöðunni í veðurhamnum og einnig gluggar í ibúðarhúsinu.
Erfiðleikar vegna rafmagnsleysis
FÓLK búsett undir Eyjafjöllum og
víðar á því svæði lenti í talsverðum
erfiðleikum í rafmagnsieysinu af
völdum óveðursins sem gekk yfir
landið um helgina, en rafmagn
komst fyrst þar á í gærkveldi.
Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins urðu þeir illa
úti sem búa í rafmagnskyntum
húsum og einnig lentu bændur í
vandræðum með mjaltir, þar
sem mjaltarvélar eru yfirleitt
rafdrifnar. Þó gátu sumir drifið
mjaltarvélarnar áfram með
dráttarvélum, þannig að þeir
þurftu ekki að mjólka kýrnar
með handafli, eins og þeir sem
ekki gátu nýtt sér vélarnar í
rafmagnsleysinu.
A þessu svæði var talsvert
frost í gær og var kalt í mörgum
húsum, en sumir voru þó með
olíukyndingu og gátu nýtt sér
hana.
Sigurbergur Magnússon bóndi
á Steinum sagði í samtali við
Mbl. að talsvert væri um það að
rafmagn færi af þessu svæði og
væri það mjög bagalegt, þó
óvenjulegt væri að svæðið væri
eins lengi rafmagnslaust og nú.
Ber vott um að þeir höfða
til aðstæðna innanlands
— segir Hjörleifur Guttormsson iðnaðarráðherra um skeyti Alusuisse
„ÞAÐ vekur athygli að skeytið er sent
fjölmiðlum um leið og það er sent
hingað og ber það vott um að þeir
hafa áhuga á að höfða til aðstæðna
innanlands í framhaldi af þeirri
sundrungu sem varð þegar fulltrúi
framsóknarmanna sagði sig úr álvið-
ræðunefnd," sagði Hjörleifur Gutt-
ormsson iðnaðarráðherra, er Mbl.
spurði hann álits á skeyti Alusuisse,
sem Mbl. sagði frá sl. sunnudag.
Iðnaðarráðherra sagði ennfrem-
ur: „Efnislega kemur eiginlega ekk-
ert nýtt fram í þessu erindi þeirra.
Það er aðeins árétting á fyrri gagn-
kröfum og skilyrðum af þeirra
hálfu. Ef nokkuð er þá er hert á í
sambandi við tilvísun til samn-
inga.“
Hann var þá spurður hver þau
lögfræðilegu atriði væru, sem Alu-
suisse-menn kvörtuðu yfir í skeyt-
inu að hann gerði ekki nægilega
grein fyrir. „Þau atriði hafa komið
fram í viðræðum milli okkar," svar-
aði hann „þannig að þeir eiga ekki
að vera í neinni óvissu um það
hvaða hugmyndir við höfum haft
um þau efni. Það var farið rækilega
yfir það á fundi 22. nóvember sl.“
— Hvaða atriði eru þetta?
„Það er ekki ástæða á þessu stigi
til að fara að rekja það í einstökum
þáttum. Það kom fram í sáttatil-
Sigursteinn Magnús-
son, aðalræðismað-
ur, látinn í Edinborg
SIGURSTEINN Magnússon, aðal-
ræðismaður íslands í Skotlandi, lézt
í Edinborg síðastliðinn mánudag, 20.
desember. Sigursteinn var fæddur
24. desember árið 1899 á Akurevri og
var því tæpra 83 ára er hann lézt.
Sigursteinn ólst upp í foreldra-
húsum á Akureyri, en foreldrar
hans voru Magnús Jónsson bóndi í
Garði á Akureyri og kona hans
Margrét Sigurðardóttir. Sigur-
steinn lauk prófi frá Gagnfræða-
skóla Akureyrar 1917 og stundaði
nám í verzlunarskóla í Kaup-
mannahöfn 1920—1922. Hann
starfaði hjá SÍS í Kaupmannahöfn
og Reykjavík fram til ársins 1930,
þegar hann var ráðinn fram-
kvæmdarstjóri skrifstofu SÍS í
Leith. Flutti fjölskyldan þá til
Edinborgar og bjuggu Sigursteinn
og kona hans, Ingibjörg Sigurðar-
dóttir þar síðan. Síðustu árin að 2
Orchard Brae.
. Sigursteinn var skipaður ísl.
ræðismaður í Edinburgh-Leith
með starfsumdæmi í öllu Skot-
landi 30. nóvember árið 1940 og að-
alræðismaður 26. janúar 1950.
Hann var sæmdur Riddarakrossi
hinnar íslenzku Fálkaorðu árið
1944 og Stórriddarakrossi árið
1957.
Ingibjörg lifir mann sinn, en
hún er 77 ára gömul. Þau eignuð-
ust fjögur börn, prófessor Sigurð,
sem búsettur er í Reykjavík, Marg-
réti, dr. Magnús sjónvarpsmann og
Snjólaugu vararæðismann, en þau
þrjú eru búsett í Skotlandi.
lögu sem lögð var fram 7. desember
síðastliðinn, að við værum reiðu-
búnir til að fallast á það meginsjón-
armið sem einn lið í heildarsam-
komulagi að málefnum varðandi
fortíðina yrði vísað í gerð, en þó
með vissum breytingum og þær
breytingar voru kynntar á fundi að-
ila, þannig að þeir hafa vitneskju
um það, þó þeir kjósi að taka þetta
upp í skeytinu og bera upp með
þessum hætti."
Þess má geta að síðdegis í gær
boðaði iðnaðarráðherra til blaða-
mannafundar klukkan 10.30 árdeg-
is. Starfsmaður ráðuneytisins sem
tilkynnti Mbl. um fundinn gat ekki
um fundarefnið og aðspurður
kvaðst hann ekki hafa vitneskju um
það. Mbl. hafði samband við iðn-
aðrráðherra í gærkvöldi og spurðist
fyrir um efni fundarins, en ráð-
herrann var ófáanlegur til að
ljóstra neinu upp um það til hverra
erinda hann boðar blaðamenn. Á
ríkisstjórnarfundi í gærmorgun
voru málefni Alusuisse til umfjöll-
unar og lýsti iðnaðarráðherra þar
skoðunum sínum á því hvert næsta
skref í málinu ætti að vera. Að sögn
Magnúsar Torfa Ólafssonar blaða-
fulltrúa ríkisstjórnarinnar var eng-
in ákvörðun tekin í málinu, en ráð-
herranefnd hefur það til umfjöllun-
ar. Hjörleifur Guttormsson sagði
aðspurður í gærkvöldi að ráðherra-
nefndin hefði ekki haldið fund í
gær.
Missa 185 starfs-
menn BÚH vinnuna
á næstu dögum?
ÞRJÁTÍU og fimm undirmönnum á
þremur skuttogurum Bæjarútgerðar
Hafnarfjarðar, Apríl, Maí og Júní, hef-
ur verið sagt upp störfum og taka upp-
sagnirnar gildi frá og með 28. desem-
ber næstkomandi. Hafi ekki ræst úr
rekstri fyrirtækisins þá, verður um 150
Rekstrarfjár-
staöa saltfisk-
verkunar já-
kvæð um 2!/2-4%
SAMKV/EMT útreikningum Þjóð-
hagsstofnunar er rekstrarfjárstaða
saltfiskverkunar jákvæð um þessar
mundir sem nemur 2'/í til 4%, en eins
og Mbl. skýrði frá í gær er staða fryst-
ingarinnar jákvæð um 1—2%. Megin-
hluta rikisstjórnarfundar í gærmorgun
var varið til umfjöllunar um fiskverðs-
ákvörðun. Yfirnefnd Verðlagsráðs
sjávarútvegsins hélt fund í gær, en
engar ákvarðanir voru þar teknar.
Á ríkisstjórnarfundi í gærmorgun
var væntanleg fiskverðsákvörðun
aðalumræðuefnið, en eins og komið
hefur fram í fréttum er stefnt að því
að ákvörðun um fiskverð verði tekin
fyrir áramótin.
Steingrímur Hermannsson sjáv-
arútvegsráðherra lýsti því yfir í
Tímanum í gær, að gengisfelling
komi ekki til greina um áramótin —
„svo mikið sé víst“, eins og'ítaft er
eftir honum. Einnig er í sömu frétt
rætt við Tómas Árnason viðskipta-
ráðherra, en hvorugur ráðherrann
svarar þeirri spurningu til hvaða
ráðstafana verði gripið. Steingrím-
ur sagði þó augljóst, að til einhverra
ráðstafana þyrfti að grípa um ára-
mótin.
starfsmönnum í frystihúsi BÚH sagt
upp 27. desember, og taka uppsagnir
þess fólks gildi 4. janúar nk. að því er
Björn Ólafsson framkvæmdastjóri
Bæjarútgerðarinnar tjáði blaðamanni
Morgunblaðsins í símtali í gærkveldi.
Björn sagði að ástæður þess að
stjórn fyrirtækisins hefði tekið
þessa ákvörðun væri afar erfið
rekstrarstaða, og halli á rekstrinum
sem talið væri að nemi 14 milljónum
króna á þessu ári. Björn sagði að
barist hefði verið við að halda fyrir-
tækinu gangandi að undanförnu í
trausti þess að skuldbreytingar til
útgerðar og fiskvinnslu k'æmu að
notum, en nú væri útséð um að svo
yrði. Því væri ekki um annað að
ræða en segja starfsfólkinu upp, til
að komast hjá enn verri áföllum.
Slíkt væri þó vissulega hastarleg að-
gerð, „sem við gerum ekki með glöðu
geði“ sagði Björn, „það getur hver
séð sjálfan sig í því að verða fyrir
atvinnumissi með svo skömmum
fyrirvara á þessum tíma. En það
sem hér er að gerast er ekki annað
en afleiðing af ástandinu í landinu,
og ekki er fyrirsjáanlegt að breyting
verði hér á fyrr en gerðar hafa verið
áþreifanlegar efnahagsaðgerðir,
sem beðið er eftir."
Samtals verða það því um 185
starfsmenn Bæjarútgerðar Hafnar-
fjarðar sem missa vinnu sína nú um
hátíðarnar, verði ekki gerðar þær
efnahagsaðgerðir er tryggi áfram-
haldandi rekstur togaranna, að sögn
Björns Ólafssonar framkvæmda-
stjóra BÚH.
Leiðrétting
í dánarfregn Mbl. um Sigurjón
Ólafsson í gær varð slæm misrit-
un. Sigurjón var 74 ára er hann
lézt, ekki 84 ára. Morgunblaðið
biðst velvirðingar á þessum mis-
tökum.
Að gefnu tilefni
í tilefni fréttar í Morgunblaðinu
hinn 9. desember sl. þess efnis, að
ökumaður bifreiðar frá franska
sendiráðinu, sem lenti í árekstri,
hafi ætlað að aka af vettvangi,
skal tekið fram, að slíkt kemur
ekki fram í gögnum lögreglunnar í
Reykjavík um áreksturinn. Opin-
berir talsmenn lögreglunnar í
Reykjavík voru ekki heimildar-
menn Morgunblaðsins að þessari
frétt.
Guðmundur Jónsson skip-
aður hæstaréttardómari
FORSE'H íslands skipaði í gær að til-
lögu dómsmálaráðherra Guðmund
Jónsson, borgardómara og settan
hæstaréttardómara, í embætti dómara
í Hæstarétti íslands frá 1. janúar 1983
að telja, í stað Loga Einarssonar, sem
lætur af embætti að eigin ósk.
Guðmundur Jónsson er 57 ára
gamall, fæddur í Reykjavík 10.
febrúar 1925, sonur Jóns Þorsteins-
sonar íþróttakennara og k.h. Eyrún-
ar Guðmundsdóttur.
Hann varð stúdent frá MR 1944
og lauk lagaprófi frá HÍ 1952. Hann
varð fulltrúi borgardómara í Rvík
1957, borgardómari 1962 og var sett-
ur hæstaréttardómari á þessu ári.
Kona Guðmundar er Fríða Hall- Guðmundur
dórsdóttir og eiga þau 4 syni. Jónsson
Verzlanir opnar til klukkan 22
KAUPMENN við Laugaveg, í mið-
bænum og ýmsir aðrir kaupmenn hafa
ákveðið að hafa opið til klukkan 22.00
í kvöld, miðvikudag, eins og skýrt hef-
ur verið frá í Mbl., en þeir hyggjast
síðan gefa starfsfólkinu frí á mánudag
í staðinn. Að sögn kaupmanna er meg-
inmarkmiðið að gefa þeim kost á því
að gera jólainnkaupin, sem ekki gátu
gert þau sl. laugardag vegna óveðurs.
Verzlanir verða síðan opnar ann-
að kvöld, Þorláksmessu, eins og áður
til kl. 23.
Kaupmenn telja ákvæði í kjara-
samningum þeirra við verzlunarfólk
gera þeim kleift að gera þessa
breytingu á opnunartíma verzlana
og hafa þeir sótt um leyfi þar að
lútandi til lögreglustjórans í
Reykjavík.
Magnús L. Sveinsson, formaður
Verzlunarmannafélags Reykjavík-
ur, sagði í samtali við Mbl., að þetta
væri alls ekki gert í neinu samráði
við félagið, enda teldi hann það brot
á kjarasamningi aðila, að hafa
verzlanir opnar fram yfir klukkan
18.00 á morgun.
„Stjórn Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur fjallaði í gær, að beiðni
lögreglustjórans í Reykjavík, um
beiðni Kaupmannasamtakanna að
hafa opið í kvöld til klukkan 22.00
Stjórnin samþykkti einróma, að
mæla gegn því, að embættið veitti
heimildina," sagði Magnús L.
Sveinsson.
Aðspurður um hvort Verzlunar-
mannafélagið hyggðist grípa til ein-
hverra aðgerða, sagði Magnús það
ekki vera á dagskrá. „Ég vil hins
vegar ítreka, að við teljum það brot
á kjarasamningum aðila, ef af þess-
ari opnun verður, enda er vinnutími
verzlunarfólks í desember, sam-
kvæmt kjarasamningum í raun
óhóflegur, eða 220 klukkustundir á
tímabilinu 1,—24. desember," sagði
Magnús L. Sveinsson.