Morgunblaðið - 22.12.1982, Page 24

Morgunblaðið - 22.12.1982, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1982 ÆFINGARGALLAR FYRIR ALLA Æfingagallar á börnin. Æfingagallar á unglingana. Æfingagallar á mömmu. Æfingagallar á pabba. Æfingagallar á afa. Æfingagallar á ömmu. Einstaklega þægilegur klæðnaöur fyrir fólk á öllum aldri. Aldeilis ótrúlegt úrval. Eigum einnig hinar frábæru þeir duga vel í vetrarhörkunni. Pl^ð vindjakka, Valhúsgögn vandað og ódýrt Fatastandur Kr. 600.- Klappstóll Kr. 300.- Vínarstóll Kr. 680,- Nýkomiö Símabekkir. Verð frá kr. 3000 —. 2 geröir. Borð fyrir sjónvörp og videó. Verð kr. 1700 — Opiö laugardag VALHÚSGÖGN, til kl. 10.00 Ármúla 4, sími 82275. Indverskt borð Kr. 500.- Gódan daginn! \ Á fáksspori Aðgengileg og djarflega skrifuð „Þetta er besta bók sem gefin hefur verið út um hestamennsku á íslandi. í henni er allt milli himins og jarðar sem hestamenn þurfa að vita“, en svo fórust einum fundar- manni orð um bókina Á fáksspori þegar hún var kynnt á fundi hjá einu hestamannafélagi á dögunum. Segja má að þetta séu stór orð sem þarna voru sögð en hinu er ekki að neita að hér er á ferðinni góð bók sem spannar yfír stórt svið. Það er tímaritið Eiðfaxi sem gefur út bókifia en höfundur er Sigurbjörn Bárðarson sem óþarfi er að kynna svo þekktur sem hann nú er. Sigurbjörn hefur unnið marga sigra á kappreiðavellinum og í gæðinga- eða íþróttakeppnum á undanförnum árum. Segja má að með útkomu þessarar bókar bæti Sigurbjörn einum sigrinum við á nýjum vettvangi, það er sem bók- arhöfundur. Áður hefur Eiðfaxi gefið út tvær bækur, Á hestbaki eftir Eyjólf ísólfsson og Að temja eftir Pétur Behrens. Báðar fengu þessar bækur góðar viðtökur enda var þörfin mikil fyrir slik rit. Nú þegar þriðja bókin hefur litið dagsins ljós er ekki óeðlilegt að bera hana saman við hinar fyrri og að bókum þeirra Eyjólfs og Péturs ólöstuðum má ætla að bók Sigurbjörns sé hvað best. Það sem gerir þessa bók betri er fyrst og fremst, það að hún höfðar til stærri lesendahóps en hinar. Segja má að í bókinni sé eitthvað fyrir alla sem hestamennsku stunda. Bókin skiptist í þrjá meg- inhluta sem hver fjallar um vissa þætti í hestamennskunni. Fyrsti kaflinn, sem ber yfirskriftina „Reiðhestar“, höfðar fyrst og fremst til hins almenna hesta- manns eins og það er kallað. Þar eru góðar ábendingar sem hafa ber í huga þegar hross eru tekin á hús og athyglisverður kafli er um þjálfunarástand hrossa þar sem útlistað er hvernig menn geti gert sér grein fyrir ásigkomulagi hrossa þjálfunarlega séð með því að mæla öndun og hjartaslög. Einnig er veglegur kafli um lang- ferðir þar sem tíundað er hvernig best sé að bera sig til við undir- búning og eins í ferðinni sjálfri. Gangtegunir fá sína umfjöllun í þessum hluta bókarinnar og eru þar jafnframt tekin fyrir ýmis al- geng vandamál, svo sem tungu- basl, taumskekkja, kergja og rok- ur. Vert er að minnast á tvo stutta kafla sem bera yfirskriftina „Að selja hest“ og „Að kaupa hest“. Eru þar góðar ábendingar frá manni sem hefur mikla reynslu í hrossaverslun, bæði sem kaupandi og seljandi. Annar hluti bókarinnar fjallar um keppnishesta og er þar tekin fyrir þjálfun og meðhöndlun kappreiðahesta jafnt sem gæð- inga. I síðasta hluta bókarinnar er fjallað um umhirðu hesta og að- búnað. Skiptist hann í fimm kafla og má þar nefna kafla um hest- húsbyggingar, járningar, fóðrun og helstu sjúkdóma. Að uppsetningu er bókin svipuð og fyrri bækur frá Eiðfaxa og er efnið mjög aðgengilegt. Sigur- björn gengur hreint til verks og veigrar sér ekki við að taka fyrir vandamál sem sumum reynist erf- itt að ræða opinberlega og má í því sambandi benda á kaflann um rokuhunda. Margar ljósmyndir og teikningar eru í bókinni bæði til skýringar og upplífgunar á útliti. Telja verður framtak Eiðfaxa með útgáfu þessara þriggja bóka, sem út hafa komið, lofsvert og ekki ósennilegt að hér hafi verið lagður grunnur að kennslubókum fyrir „Reiðskóla íslands" sem að vísu er í dag daumsýn ein. Sigurbjörn Bárðarson á sigurstund. Bættu heimsmetið um 77 klst. Maraþontónleikum SATT og Tónabæjar lauk í fyrrinótt ÞAÐ VAR vel við hæfí, að hljómsveit- in Trúðurinn ætti lokaoröið í mara- þontónleikum SATT og Tónabæjar, sem lauk formlega um kl. 4 í fyrrinótt. Hljómsveitin hafði þá leikið í 26 klukkustundir samfleytt og bætt sól- arhringslangt met hljómsveitarinnar Gift frá því nokkrum dögum áður. Ekki aðeins setti Trúðurinn íslands- met heldur átti hljómsveitin lokaorðið • í nýju glæsilegu heimsmeti í hljóð- færaieik. Þegar maraþontónleikunum lauk höfðu þeir staðið yfir í 398 klukku- stundir samfleytt. Gamla heims- metið A'ar frá árinu 1968 og í eigu v-þýskra hljómlistarmanna. Var það 321 klukkustund. Þeim áfanga var náð í Tónabæ kl. 23 á föstu- dagskvöld. Að sögn starfsmanna Tónabæjar gengu tónleikarnir mjog vel fyrir sig og áttu þeir gott samstarf við þær 46 hljómsveitir, sem fram komu á maraþontónleikunum. Jó- hann G. Jóhannsson, aðalhvata- maðurinn að þessu uppátæki SATT var á sama máli. Sagði að reyndar hefði stundum staðið tæpt að fá hljómsveitir á réttum tíma, en allt hefði þetta bjargast með hjálp og skilningi góðra manna. Heimsmetinu var fagnað í veit- ingahúsinu Broadway á sunnudag. Var þar mikill fjöldi gesta saman kominn til þess að fagna metinu og hlýða á leik fjögurra hljómsveita; Egó, Stuðmanna, Sonus Futurae og Pass. Gjafavörur í miklu úrvali. -Gleðileg jól Húsgagna og gjafavöruverslun Hamraborg 12 - Kópavogi Sími 46460 Sendum í póstkröfu HVERNIG ER GAGNRYNIN? ^JHeiaai-------- pósturinn Frásögnin er nokkud fjörlegog gaman aö kynnast því sem þessir krakkar eru ad bardúsa. Sögu- maöur setur sig í spor tólf til þrettán ára drengs og tekst hon- um nokkuð vel aö halda því sjón- arhorni, bæöi í frásögninni sjálfri og í stílnum. Vió sjáum töluvert inn í hugarheim þessa drengs, einkum eru þaö hugrenningar sem tengjast uppgötvun lífssann- inda, eins og til dæmis þegar hann uppgötvar dauðann sem raun- veruleika. Það kitlar hinsvegar forvitni manns nokkuö að lesa um „frægt fólk“ á bernskudögum þess. G. Ást. Bókmenntír Jóhann Hjálmarsson Við í Vesturbænum er saga um krakka og fólk sem er nákvæm- lega eins og aörir krakkar og ann- að fólk. Maður sér ekki eftir tím- anum sem fer í lestur hennar. Ætli við fáum ekki meira að heyra seinna? I>að er rétt sem sagt er í bókarkápu að hér er sagt frá uppvexti atorkusamra stráka í vesturbænum í Reykjavik. Frásögnin er lipur og það eru innan um atnði sem vissulega sóma sér vel í bókmenntum. H. Kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.