Morgunblaðið - 22.12.1982, Side 26

Morgunblaðið - 22.12.1982, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1982 „Ef maðurinn væri ekkert nema skilningur mundi hann ekki skilja svona lítið í sjálfum sér“ NÝLEGA kom út hjá „Víkurútgáf- unni áttunda Ijóðabók Ingimars Erlends Sigurðssonar, Helgimynd- ir i nálarauga. Þessi Ijóðabók er sérstæð að því leyti — miðað við nútímaskáldskap a.m.k. — að i henni eru eingöngu trúarljóð. Að formi til einkennast Ijóðin af notk- un ríms og stuðlasetningar, en eru þó engan veginn hefðbundin, því skáldið hikar ekki við að fara sínar eigin leiðir í því efni líka ef svo ber undir. En innihaldið vekur forvitni, a.m.k. blaðamanns Mbl., sem átti eftirfarandi spjall viö Ingimar Er- lend á heimili hans í Sunnudal við Elliðavatn, sem er á mörkum sveit- ar og borgar. — Hver er grundvallarhugsun Helgimynda i nálarauga, Ingi- mar? „Það má segja að bókin sé vitnisburður um trúarlegt krist- ið viðhorf til lífsins — og þá auð- vitað nútímamanns. Ég tel að ljóð eigi að vera lífsgjöf, vitnis- burður ætlaður lifendum og líð- endum en ekki leikendum í bókmenntalegum stofnunum. Maður býr ekki til bókmenntir eins og maður býr til borð eða stól. Og á ekki að gera það. Held- ur verður það sem þú skapar e.t.v. að bókmenntum." — Ræðst bókmenntagildið þá af viðtökum verksins, viðtökum lesandans? „Viðtökum, já, en ekki þar með vinsældum, heldur frekar við- brögðum þess sem upplifir verkið. Ég hjó eftir því að þú talaðir um viðbrögð lesandans, þess sem les. En ég tel raunar að maður eigi ekki að lesa ljóð, heldur eigi að láta ljóð lesa sig. M.ö.o. það á ekki að lesa ljóð í byrjun með rökhugsun að vopni, því þá deyðir maður óhjákvæmi- lega sálina í ljóðinu. Sál ljóðsins á að ganga í samband við sál mannsins; þau eiga að vera eitt samfélag, mismunandi mikils virði eftir atvikum. Ég get tekið líkingu til að skýra þetta betur. Maður á að vera eins og kyrrt vatn sem speglar — himininn t.d. ef um trúarljóð er að ræða. Síðan, þegar maður hefur látið ljóðið lesa sig — og ekki fyrr — er óhætt að lesa ljóðið með dómgreind, leggja mat á það. Ég segi ekki fyrr, vegna þess að þá fyrst þegar maður hefur látið ljóðið lesa sig er það orðið hluti af manns eigin sál, og það dæmir enginn sjálfan sig til dauða, að óþörfu!" — Þú talar mikið um „sál“. Hvaða skilning leggurðu í það orð? „Ég skilgreini sálina ekki, frekar en ég skilgreini söng eða ást t.d. Ég bara elska. Ef þú ferð að skilgreina ást þína þá hætt- irðu að elska. Eins ertu ekki lengur reiður ef þú tekur upp á því að skilgreina reiði þína. Þetta bara er. Og svo er um sál- ina. — Ertu að flytja boðskap í ljóðum þínum? „Nei, þá myndi ég yrkja öðru- vísi. Sannleikurinn er sá að ég yrki ekki ljóð heldur yrkja ljóðin mig. Og ég hef ekki, síður en svo, óskað eftir því að vera málpípa eins eða neins. Hins vegar beygi ég mig undir það að afsala mér eigin vilja fyrir þann vilja sem er öllum skilningi æðri, kær- leiksvilja guðs. Hvað á ég við með að ljóðin yrki sig sjálf? Ég yrki mikið á morgnana. Og á morgnana er — segir Ingi- mar Erlendur Sigurðsson, sem nýlega hefur gefið út sína áttundu ljóðabók maður. Maður heitir ekkert, hef- ur enga stöðu í lífinu, enga vitn- eskju. Er aðeins. Mörg ljóða minna verða til þegar ég er í þannig ástandi, nánast í svefn- rofunum. Satt að segja þá leiðast mér „próblemljóð". Ég held að þau eigi þátt í aðskilnaði lesenda og ljóðs. Fyrir mér er ljóð alltaf há- tíð, aldrei lágtíð, hversdagsleiki. Ljóðskáld eiga ekki að gefa fólki hversdagsleika, það hefur nóg af honum sjálft. Hversdagsljóð hefur ekki sál, það er eins konar sósíalrealismi". Ljóð sem er upp- hafið sprengir hversdagsleikann. Láti ljóðið hversdagsleikann fjötra sig kremst það. Ef hvers- dagsleikinn er fugl, þá hefur sá fugl aldrei flogið vegna þess að hann hefur ekki uppgötvað him- ininn. Annað hvort ljær ljóðið fuglinum himinn þannig að hann flýgur, eða þá ljóðið verður jafn vængstýft og fuglinn. Þessi hversdagsleiki — þessi væng- stýfði fugl — notar orðfar sem er dautt. í honum er enginn hljómur, söngur — þaðan af síð- ur „intuition", eða innsæi — sem á greiðari aðgang að sál manns- ins en t.d. leiðaraskrif, hugtök í stjórnmálum, vandamálaþras, o.s.frv. Og það er einmitt vegna þess- arar skoðunar minnar, eða til- Ingimar Erlendur Sigurðsson i vinnustofu sinni, eða Þúfunni, eins og hann kallar þennan gamla strætó sem hann hefur innréttað og gert að sköpunarstað sínum. Morgunblaðið/Kristján Einarsson. finningar fyrir ljóðinu, að ég yrki nær eingöngu trúarljóð um þessar mundir. Því trúin liggur mér á hjarta og sál.“ — Þú virðist vera að gera ein- hvers konar greinarmun á ljóði og prósa í þessum orðum. Er það rétt skilið? „Já. Prósinn er láréttur, flattur út, heldur sér við ytri staðreynd- ir. Póesían, hins vegar, er lóðrétt, leitar í djúpið, bæði upp og niður. Sem sagt: hér erum við aftur komnir að greinarmunin- um á hátíð og lágtíð. Póesían er handan skilgreiningar, jafnvel skilnings, en ef maðurinn væri ekkert nema skilningur mundi hann ekki skilja svona lítið í sjálfum sér! Það skilur enginn manninn nema guð.“ — Þú yrkir um sál og trú. Ertu einsdæmi í íslenskri nú- tíma ljóðagerð? „Mín sérstaða sem ljóðskálds í dag felst í því að ég reyni að fá sálina aftur inn í ljóðið — á sama hátt og málarar hafa sett „fígúruna", manninn, aftur inn í málverkið. Ég tel ekki ljóð sönn ljóð fyrr. En ég vil ekki meina að ég sé neinn brautryðjandi á þessu sviði í íslenskri nútíma- ljóðagerð. Ég tel frekar að Matthías Johannessen sé það. Matthías er nefnilega merkilegt trúarskáld, þótt hann tjái sig með öðrum tónum en ég. En Matthías er mjög fjölhæft skáld, líklega fjölhæfasta skáld og rit- höfundur sem við eigum í dag, að Laxness e.t.v. slepptum. En ég verð að taka það fram í þessu sambandi að þetta viðhorf mitt þýðir ekki að ég kunni ekki að meta önnur ljóðskáld sem fara sínar eigin leiðir og aðrar leiðir en trúarleiðina. Ég get t.d. nefnt skáld eins og Baldur Óskarsson og Hannes Pétursson, en ég hef miklar mætur á verk- um þeirra." — Nú liggja eftir þig átta ljóðabækur, og sjö þeirra hef- urðu gert á níu árum. Má búast við sömu afköstum í framtíð- inni? „Ljóðin halda áfram að yrkja mig. Ég er búinn með aðra ljóða- bók sem er enn meiri að vöxtum en þessi síðasta og inniheldur jafnframt trúarljóð. Hins vegar eru þessi nýju ljóð mín að því leyti frábrugðin Helgimynd í nálarauga að þau lýsa meiri trú- arátökum, það er um aðrar áherslur að ræða." Hátídarsöngvar Tónlist Jón Ásgeirsson íslenska hljómsveitin, Söng- sveitin Fílharmonía, einsöngvar- arnir Signý Sæmundsdóttir, John Speight og Sigurður Björnsson fluttu undir stjórn Guðmundar Emilssonar tónverk eftir J.S. Bach, Áskel Másson og Giovanni Gabrieli og í tilefni jól- anna sálmalögin Heims um ból, Sjá himins opnast hlið og Frá ljósanna hásal. Auk þess lék Snorri Örn Snorrason einleik á lútu fjögur smálög frá 16. öld. „Það er mikil og góð spretta í íslenskri tónlist," segir herra Sigurbjörn Einarsson, fyrrver- andi biskup, í smágrein, sem er eins konar inngangur efnis- skrárinnar. Þar gerir hann saraanburð á tónlistariðkun fyrr og nú og þó nú sé „líka leikið á mannfólkið með óhljóðum úr verri áttum og áhöldum", segir hann að „þeim mun gleðilegra er allt hitt, sem vel er artað og boð- ar gott.“ Það er sérkennilegt við ástandið í dag, að þrátt fyrir öll „óhljóðin" og síglamrandi áróð- ur, þrengist hagur þeirra er að þessum ólátum standa, en það sem er „vel artað og boðar gott“, styrkist og stendur því fastar sem meira er að því vegið. Þann- ig kemur glamrið og áróðurinn fyrir ekki, því þegar mannfólk- inu eflist vit og þroski, leitar það eftir því sem er vel „artað og boðar gott“. Tónleikarnir hófust á kantötu er Bach vann yfir sálmalagið Vakna, Síons verðir kalla, en þennan sálm nefnir Kolbeinn Þorleifsson konung sálmalaganna, í fróðlegri grein í efnisskrá um höfund textans. Því skal skotið hér inn varðandi annars mjög menningarlega efn- isskrá að tilgreina hefði mátt kaflaskiptingu verksins. Upp- hafskaflinn er byggður upp eins og orgelkóralforspil, þar sem framvinda verksins er rofin með innskoti einnar hendingar hverju sinni úr sálminum. í þessu verki er sálmurinn fluttur af sópranröddunum, sem vart voru nógu fjölmennar til að þruma þetta volduga sálmalag í gegn. Áltraddirnar, sem voru mun fleiri, náðu sér glæsilega á strik í Alleluja-millispilinu. Tveir dúettar fyrir sópran og bassa voru sungnir af Signýju Sæmundsdóttur og John Speight. Fyrri dúettinn er með fiðlueinleik, sem Laufey Sigurð- ardóttir lék, en sá seinni með óbósólo er Daði Kolbeinsson flutti mjög glæsilega. Báðir kafl- arnir eru perlur og var söngur Signýjar mjög góður en einhvern veginn var John Speight utan- gátta, sérstaklega í þeim fyrri. Ein perlan enn er svo kórallinn, sem Sigurður söng mjög vel. Kóralþátturinn er í sama formi og upphafsþátturinn, þ.e. kóral- forspil og flutti Sigurður sálm- inn af festu og myndugleik. Verkinu lýkur svo með því að sálmurinn er sunginn óbreyttur. Kórinn var vel samstylltur en nokkurt misræmi er í raddskip- an, t.d. allt of fáar sópranraddir. Annað verkefni tónleikanna var svo Heims um ból í hljómsveit- arbúningi og raddsetningu Ás- kels Mássonar. Það er vandaverk að fara höndum um svo fastmót- að lag, sem Heims um ból og að frádregnu tríóþættinum við mið- versið slapp Áskell vel frá þessu verki, með því að láta einfald- leika lagsins ráða og forðast all- ar skreytingar. Þriðja verkefnið var svo frumflutningur verks eftir Áskel Másson, er hann nefnir Októ-nóvember. Verkið er fínlegt, átakalítið og þægilegt áheyrnar. Síðasta verkið á tón- leikunum var mótettan In eccl- esiis eftir Gabrieli yngri. Verk þetta er úr seinni bókinni Sacrae symphoniae, er gefn var út þremur árum eftir dauða tón- skáldsins og er merkileg fyrir það, að þarna ritar Gabrieli sér- stakar raddir fyrir hljóðfæri. Talið er að hann hafi samið verkið um svipað leyti og fyrsta hljómsveitarverk sögunnar, Son- ata Pian’e Forte. Verkið er hugs- að fyrir þrjár einsöngsraddir eða lítinn kór og annan fullskipaðan kór en hljómsveitin samanstend- ur af „cornetti“-lágfiðlu og bás- únum. Til undirleiks voru notuð „continuo“-hljóðfæri þ.e. orgel og celló. Sama gildir um verk Gabrieli og kantötu Bach að nauðsynlegt hefði verið að gera grein fyrir formi verksins og sömuleiðis texta þess, sérstaklega vegna þess að hér er á ferðinni verk sem tilheyrir menningarskeiði, er fólk nú til dags veit mjög lítið um. Á undan verkinu lék Jón Stefánsson „Intónasjónir" á ní- unda tóni, fyrir orgel en Gabrieli gaf út nokkur slík verk árið 1579. Tónleikunum lauk svo með því að hljómleikagestir risu á fætur og sungu með einsöngvurunum og kórnum með undirleik hljóm- sveitarinnar tvo jóiasálma.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.