Morgunblaðið - 22.01.1983, Page 15

Morgunblaðið - 22.01.1983, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 1983 15 Rekstrarhalli Air France um 820 milljónir franka ’82 Hefur liðlega tvöfaldazt frá árinu á undan MIKILL halli varð á rekstri franska ríkisflugfélagsins Air France á síð- asta ári. Hann meira en tvöfaldaðist frá árinu á undan. Var um 820 millj- ónir franskra franka í fyrra á móti 378 milljónum franskra franka árið 1981. Velta Air France jókst um lið- lega 15% á síðasta ári og var sam- tals um 22 milljarðar franskra franka og farþegaflutningar fé- lagsins jukust um liðlega 1,9%. Talsmaður fyrirtækisins sagði, að bókfært tap félagsins vegna rekstrar Concorde-þotanna væri um 15 milljónir franskra franka, en tapið væri í raun mun meira, eða allt að 150 milljónum franskra franka. Franska ríkið fæli tapið af þeim rekstri í tölum dótturfyrir- tækja. Á síðasta ári var aðeins flogið með Concorde frá París til New York, en til Washington, Mexico- borgar, Rio de Janeiro og Caracas var flogið á öðrum vélum til að halda niðri óheyrilegum kostnaði. Air France og British Airways eru einu flugfélögin í heiminum, sem fljúga Concorde-vélum og hafa gert frá því, að þær voru hannaðar í sameiningu af Bretum og Frökkum. IBM óskar eftir framleiðslusam- vinnu við íslenzk iðnfyrirtæki IBM á Islandi hefur óskað eftir þvf við Félag íslenzkra iðnrekenda, FÍI, að félagið komi á framfæri áhuga IBM á að fá framleiddar vörur til notkunar í tölvur fyrirtækis- ins, að því er segir í „Á döf- inni“, fréttabréfi FÍI. Helzta forsenda fyrir um- ræddri framleiðslusamvinnu er sú, að framleiðslusamningur við IBM fari ekki yfir 20% af veltu viðkomandi fyrirtækis. Eftirfarandi listi gefur hug- mynd um þær vörur, sem um gæti verið að ræða, en er þó eng- an veginn tæmandi þannig að margs konar hlutir aðrir gætu komið til greina: Snertlur, sjálf- virkur dreifstöðvabúnaður, aflúrtök, segulmagnaðar vörur. spennar, minnisbúnaður, rökrás- ir, örtölvur, minni, málning og málningarvinna, kaplasamsafn- arar, aflúrtök, búnaður fyrir HALLI á fjárlögum Svisslendinga var mun minni á árinu 1982 en ráða- menn höfðu reiknað með í upphafi árs, og er þetta annað árið í röð, sem þetta gerist, að sögn svissneska fjár- málaráðu neytisins. Skatttekjur svissneska ríkisins umfram það sem reiknað hafði loftræstingu, kælibúnaður fyrir tölvur, plasthlutir, álsteyptir hlutir, málmþynnuhlutir, inni- falið framstykki og kassar. verið með í upphafi árs námu á síðasta ári í kringum 870 milljón- um svissneskra franka, sem jafn- gildir liðlega 81,6 milljörðum ís- lenzkra króna. Fjármálaráðuneytið svissneska segir, að bæði hafi skattar verið meiri og heimzt betur, en reiknað var með, og svo hafi það líka kom- ið til, að eyðsla hafi verið minni, en búizt hafði verið við. Bráða- birgðatölur gera ráð fyrir, að hall- inn hafi verið á bilinu 250—350 milljónir svissneskra franka í stað 1.100 milljóna svissneskra franka, eins og gert hafði verið ráð fyrir. Á árinu 1981 var halli á fjárlög- um Svisslendinga um 173 milljón- ir svissneskra franka, en við upp- haf ársins var gert ráð fyrir halla upp á a.m.k. 1.000 milljónir svissn- eskra franka. VIÐSKIPTI VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMÁL - ATHAFNALÍF — umsjón Sighvatur Blöndahl Mun minni halli á fjárlögum í Sviss en reiknað var með „Euro-bond“-markaðurinn: Tilkynnt um 1.000 milljón doll- ara lántökur í liðinni viku TILKYNNT var um lántökur upp á liðlcga 1.000 milljónir Bandaríkjadollara á „Euro- bond“-markaðnum í síðustu viku. Sex lánanna voru í Bandaríkjadollurum, en síð- an eitt í Kanadadoilurum, eitt í hollenzkum flórínum og eitt í vestur-þýzkum mörk- um. Fjármálamarkaðsmenn segja það tilviljun, að langstærstur hluti upphæðarinnar var í Bandaríkjadollurum, en þessi upphæð er einhver sú hæsta, sem tilkynnt er um í sömu vikunni. Það vekur athygli, að 100 millj- ón dollara lán, sem Coca Cola- fyrirtækið tók, ber 97/8% vexti, sem eru þeir lægstu á Euro- bond-láni í Bandaríkjadollurum í meira en tvö ár. Reyndar í fyrsta sinn síðan í byrjun árs 1980, að dollaralán ber vexti undir 10%. LENSIVATNSSKILJUR Eissing-lensivatnsskiljur, fyrir allar stæröir frakt- og fiskiskipa skilja olíu úr lensivatni. Byggöar og afgreiddar samkvæmt alþjóöakröfum svo og kröfum Siglingamála- stofnunar íslands. Skiljurnar eru vestur-þýzkar og á mjög góöu verði. Atlashf Armúla 7, sími 26755, Reykjavík. jf Eftir nokkrar vikur kemur lóan og vorið. Á meðan getum við smíðaö fyrir þig sumarbústaö í ramís- ‘ lenskum stíl. 9 Hægt er að fá bæinn með þrem burstum (40 m2), f tveim burstum (28 m2) eða aðeins miðhúsið (16 Y, <#>. m Nærri fullbyggður torfbær til sýnis nærri Reykja- ’œY&3vlk' uPP|ýsin9ar 1 símum 74363 og 26356 á daginn sLl og kvöldin. J* Bladburöarfólk óskast! JMfógmiÞlfiMb Vesturbær Nesvegur frá 40—82 Skerjafjöröur sunnan flugvallar Tjarnargata frá 39 Nesvegur frá Vegamótum Kópavogur Lyngbrekka Austurbær Freyjugata 28—49 Stórholt Flókagata 53—69 Úthverfi Skeiðarvogur Njörvasund, Karfavogur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.