Morgunblaðið - 22.01.1983, Page 18

Morgunblaðið - 22.01.1983, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 1983 Atvinnugrein ferðamála — lífva*nlegur vaxtarbroddur í þjóðarbúskap framtíðar Breytt viðhorf kalla á endurmat og ný viðbrögð atvinnugreinar og stjórnvalda eftir Ileimi Ilannes- son, formann Feröa- málaráós Islands Kynslóðir allra tíma hafa ætíð átt erfitt með að aðlaga sig og sætta sig við breytingar, hvort sem það hefur verið nýr aldarandi, breytt viðhorf í þjóðfélagsskipun- inni eða einhverjar þær ytri að- stæður sem smátt og smátt hafa knúið á breytta skipun í þjóðfélag- inu. Velsældarþjóðir Vesturlanda eiga erfitt með að sætta sig við óbreyttan eða minnkandi hagvöxt, minni þjóðarkökur og versnandi Hfsafkomu. Sama gildir um ís- lendinga — hér gengur erfiðlega að fá menn til að taka það alvar- lega, að menn eyði meiru en aflað er. Og misvel gengur bæði hjá landsfeðrum og þjóðinni að eygja nýja möguleika, sem skapa at- vinnu og gjaldeyristekjur. Svo virðist sem nokkurrar hugarfars- breytingar sé þörf — og endur- mats á möguleikum okkar og getu. A.m.k. er það löngu orðið tíma- bært, að menn freisti þess að líta lengri veg fram á við og læri af reynslu þeirra þjóða, sem vel get- ur gagnað okkur í slíkri framtíð- arsýn. Því er á þetta minnst hér í upphafi, sem síðar verður rætt, að ef til vill standa íslendingar á meiri tímamótum á ýmsum svið- um en margir gera sér grein fyrir. Vera má, að fullsnemmt sé að rita eftirmæli ársins 1982, en margt bendir þó til þess, að þau eftir- mæli muni tengjast nokkrum breytingum í efnahagslífi okkar og þar með þjóðfélagsháttum. Það verður hins vegar undir okkur sjálfum komið, hvernig við bregð- umst við þeim nýju viðhorfum sem við blasa og væntanlega munu skýrast nánar eftir því sem tímar líða. Hin nýju viðhorf snerta mjög atvinnugrein ferða- mála og það er bæði undir stjórn- völdum og forráðamönnum at- vinnugreinarinnar komið, hvernig og með hvaða hætti hin tiltölulega unga atvinnugrein muni falla inn í þjóðarmunstrið á næstu árum, til dæmis frá síðustu áramótum til aldamóta, ársins 2000. Sumum kann að þykja það langur tími, en hann er þó ekki lengri en það, að um er að ræða svipaða tímalengd og starfsemi íslenska sjónvarpsins fram á þennan dag, sem okkur virðist sem nýhafin. Vaxtarbroddur framtíðar Eins og síðar verður rakið í þessu yfirliti má leiða að því sterk rök, að atvinnugrein ferðamála geti verið einn lífvænlegasti vaxt- arbroddurinn í íslensku atvinnu- lífi á næstu árum og áratugum. Hafi hvort tveggja í senn góða möguleika á því að afla þjóðar- búinu aukinna gjaldeyristekna og skapa aukna starfsmöguieika fyrir nýja og uppvaxandi kynslóð. Það má enn fremur leiða að því skýr rök, að meðal annars vegna þess að veruleg fjárfesting hefur verið í atvinnugreininni á undan- förnum árum, m.a. með stórauknu hótelrými, ekki síst víða út um landsbyggðina, þarf tiltölulega litla viðbótarfjárfestingu til að gera atvinnugreininni kleift að auka umfang sitt verulega bæði varðandi fjölþætta þjónustustarf- semi við erlenda ferðamenn jafn- framt því sem búið er í haginn fyrir ferðalög Islendinga um eigið land. Ferðamál — félagsleg aðstaða Það er sérstök ástæða til að minna á, að það er ekki eingöngu hlutverk Ferðamálaráðs íslands að stuðla að ferðalögum erlendra manna til Islands í viðskipta- legum tilgangi heldur er það ekki síður hlutverk ráðsins að stuðla að og hvetja til ferðalaga íslendinga um eigið land og standa fyrir bættri aðstöðu sem víðast um landið til að auðvelda slík ferða- lög, sem með hverju árinu eru að verða æ mikilvægari þáttur í lífi hvers einasta landsmanns, sem bæði stafar af auknum frístund- um, bættum samgöngum og aukn- um áhuga manna á því að kynnast eigin landi. Það má enn fremur minna á, sem er afar mikilvægt atriði, að í flestum tilvikum stuðl- ar fjárfesting í ferðamálum að bættri félagslegri aðstöðu í þeim 'byggðarlögum sem viðkomandi fjárfesting á sér stað og auðgar þar með líf þess fólks sem þar lifir og starfar. Hér mætti rekja mörg dæmi hringinn í kringum landið þar sem til dæmis ný hótel hafa bætt verulega alla félagslega að- stöðu, stuðlað að auknu menning- arlífi og þar mætti lengi telja. Aukin nýting slíkrar fjárfestingar Heimir Hannesson „Stefna íslenskra stjórnvalda er mjög ólík stefnu flestra stjórn- valda í nálægum ríkjum, sem hlúa aö þessari at- vinnugrein með ýmsum hætti sem betur mætti skýra. Stundum virðist, sem meginstefna ís- lenskra stjórnvalda sé sú að skattleggja at- vinnugreinina sem mest og því fer fjarri, að framkvæmdavaldið hafi fylgt fyrirmælum Al- þingis um tekjustofn til þjónustugreinarjnnar, Ferðamálaráðs Is- lands.“ stuðlar bæði að auknum tekjum fyrir viðkomandi byggðarlag og þjóðarbúið í heild. Þessari stað- reynd gleyma til dæmis stjórnvöld of oft þegar ákveðin eru lánskjör til slíkra framkvæmda, tollastefna er mótuð og söluskattur ákveðinn og fleiri tengd atriði. Tveggja ára þróun Þegar þessar línur eru ritaðar liggja ekki fyrir endanlegar upp- lýsingar um fjölda erlendra ferða- manna á árinu 1982, en miðað við þær upplýsingar er fyrir lágu 1. desember má telja líklegt, að fjöldi ferðamanna hafi verið svipaður og á árinu 1981 eða 72 til 73 þúsund. Á árinu 1981 nam fjölgunin um 8% miðað við fyrra ár, en gjaldeyristekjur vegna er- lendra ferðamanna samkvæmt upplýsingum Seðlabanka íslands 355 millj. kr., en vegna verðlags- hækkunar í landinu á árinu 1982 má ætla, að aukning gjaldeyris- tekna verði að minnsta kosti 20% miðað við árið áður. Þar sem end- anlegar tölur eru ekki komnar fyrir árið 1982, en árin að ýmsu leyti svipuð, er rétt að geta þess að á árinu 1981 voru gjaldeyristekjur af erlendum ferðamönnum um 5,4% sem hlutfall af verðmæti vöruútflutnings landsmanna á ár- inu 1981, en sambærilegt hlutfall árið 1980 var 5,2%. Auk þess sem að framan greinir má geta beinna tekna ríkissjóðs af ferðamanna- þjónustunni, sem þekktar eru að frátöldum söluskatti og öllum opinberum gjöldum. En sam- kvæmt fjárlögum ársins 1981 voru beinar tekjur ríkissjóðs um 45 millj. kr., þar með taldar tekjur af Fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli og gjald á ferðalög Islendinga til útlanda, sem er stærsti liðurinn. Þegar allar staðreyndir um beinar og óbeinar tekjur ríkissjóðs af ferðamannaþjónustunni í landinu eru taldar saman fyrir árið 1981 er áætlað, að þær hafi ekki verið minni en um 87 millj. kr. Ljóst er þegar, að tekjur ríkissjóðs af at- vinnugreininni á liðnu ári hafa aukist verulega. Hér eru ekki með taldir innlendir tekjuþættir, sem eru verulegur þáttur af tekjuöfl- uninni, heldur eingöngu gerð grein fyrir gjaldeyrisöfluninni eins og opinberar tölur Seðlabankans greina frá. Samkvæmt upplýsing- um Hagstofu íslands má minna á að hlutur annarra atvinnugreina í gjaldeyrisöfluninni var eftirfar- andi: Sjávarafurðir 78,3%, land- búnaður 1,4%, iðnaðarvörur 9,5%, ál og álmelmi 9,7%, annað 1,1 %. Nýjar ferðavenjur — ný viðbrögð Ljóst er, að sú þróun, er greini- lega kom fram á árinu 1981 og varðaði ferðavenjur og eyðslu- hætti erlendra ferðamanna, varð e.t.v. enn skýrari á árinu 1982. Þetta hefur m.a. komið fram í því, að vafalaust vegna verðbólgu- þróunar bæði hérlendis og í heimalandi gestsins hefur hin al- menna regla verið sú, að eyðsla hefur minnkað. Ódýrari kosturinn er frekar valinn þegar um fleiri er að velja, sem m.a. hefur lýst sér í því að jafnvel yfir hásumarið hef- ur hótelrými í höfuðborginni ekki verið nýtt á sama hátt og áður og menn kjósa ódýrari og einfaldari veitingastaði. Svo virðist þó sem hótelnýtingin utan Reykjavíkur hafi verið betri. Slík þróun hlýtur að kalla á ákveðin viðbrögð — ný og ferskari vinnubrögð. Aukið fjölþjóðlegt ráðstefnuhald hlýtur að vera eitt virkasta svarið til að tryKKÍ3 aukna tekjumyndun og innan tíðar mun Ferðamálaráð geta skýrt frá nýjum áformum þar að lútandi, sem innan skamms tíma munu komast á fram- kvæmdastig. Alþjóðleg reynsla — og reyndar okkar eigin, kennir þá athyglisverðu staðreynd, að ráð- stefnugesturinn eyðir u.þ.b. fimmfalt meira en hinn almenni ferðalangur og er því ekki eftir litlu að sækjast. Þetta vita ná- grannaþjóðir okkar, sem um langt árabil hafa byggt upp myndarlega ráðstefnuþjónustu í löndum sín- um, ýmist fyrir frumkvæði stjórn- valda, ferðamálayfirvalda og/eða borgaryfirvalda. A.m.k. sá hluti stjórnkerfisins, sem ráðið hefur fjármálum hins opinbera á undan- förnum árum hefur skellt skolla- eyrum við þessari staðreynd og látið sem hún væri ekki til svo og borgaryfirvöld Reykjavíkur, sem virðast ekki átta sig á því, að höf- uðborgin er viðkomustaður nánast hvers einasta erlends ferðamanns, sem til landsins kemur og skapar ótöldum rekstri 1 borginni veru- legar tekjur og þar með sjóðum borgarinnar. FerÖaþjónusta — útflutningur Atvinnugrein ferðamála er í raun mjög víðfeðm og nær til margra þátta í þjóðarbúskap okkar. Svo víðtæk, að þegar öll þjónustusvið eru með talin, gætir þess stundum, að jafnvel sumir hverjir er starfa innan atvinnu- greinarinnar gera sér ekki alltaf grein fyrir því hvar þeir eiga heima — hvað þá þeir sem utan starfa. Og atvinnugrein ferðamála verður að skoða eins og hverja aðra útflutningsgrein með þeirri mikilvægu breytingu, að í stað þess að vörurnar eru fluttar á er- lendan markað til neytenda þá koma viðskiptavinir ferðaþjónust- unnar hingað til lands og kaupa vörur og þjónustu og ferðast hingað undantekningalítið með ís- lenskum samgöngutækjum. Fróð- legt væri að reikna það dæmi til enda, hversu margar niður- greiðslukrónurnar neysla erlendra ferðamanna, til dæmis á lamba- kjöti, hefur sparað þjóðarbúinu á undanförnum árum. Þetta er stað- reynd, sem allt of fáir gera sér grein fyrir og jafnvel leiða ekki hugann að. Forsenda samgöngu- kerfis við útlönd Samgöngumál okkar íslendinga eru samofin islenskum ferðamál- Vondur málstaður eftir Erlu Hjarnadóttur Samtök sveitarfélaga Vestur- lands skoruðu nýverið á ríkis- stjórnina að mótmæla samþykkt Alþjóðahvalveiðiráðsins um bann við hvalveiðum. Þá hefur Eiður Guðnason alþm. lagt fram á Al- þingi tillögu til þingsályktunar um að þessari áflcorun verði hlýtt. Hvatningu um að svíkjast undan merkjum, þegar á reynir í stað þess að takast á við vandann. Þetta er vondur málstaður, sem vonandi fær ekki brautargengi. Samtökin rökstyðja mál sitt með því, að vel og skynsamlega hafi ávallt verið staðið að veiðum frá hvalstöðinni í Hvalfirði. Ennfremur, að ósannað sé, að „Hvali þurfum viö ekki aö drepa. AÖ vísu fáum við fyrir þá bíla, sjón- vörp, „græjur“ og fleira dót frá Japan, en er okkur sama hvernig við öflum okkur þessa mun- aðar.“ hvalastofnar við ísland séu of- veiddir. Vitneskja manna um hvali er bæði rýr og gloppótt. Um þá, sem veiðast hér við land gildir engin undantekning. Nógu traustar upp- lýsingar liggja ekki fyrir til þess að hægt sé að sanna eða afsanna ofveiði. Það eru því orðin tóm að guma af skynsamlega rekinni hvalaútgerð að svo stöddu. Markmiðið með hvalveiðibanninu er einmitt að fylla í eyður og auka við upplýsingar. Ráðgert er að láta fara fram allsherjar rannsóknir á útbreiðslu hvalastofna, stærðum þeirra, ferðum og aldurssamsetn- ingu. Þeir menn eru ótrúlega forhert- ir sem haida því fram, að hval- veiðar okkar séu til fyrirmyndar. Að vísu erum við ekki í hópi skæð- ustu hvaladrápara heims, en við eigum sitthvað á samviskunni. Til að mynda héldum við áfram að ofveiða steypireyðina allt til árs- ins 1960 þrátt fyrir að aðrar hvalveiðiþjóðir Norður-Atl- antshafsins samþykktu friðun hennar þegar árið 1939 vegna út- rýmingarhættu. Enn er ekki útséð Krla Bjarnadóttir. um hvort þessi hvalategund nær að rétta við. Nú erum við orðin eina þjóðin í heiminum, sem ennþá veiðir lang- reyði og eina þjóðin í Norður-Atl- antshafi, sem veiðir sandreyði, en flestir stofnar þessara hvala hafa verið friðaðir vegna ofveiði. Um sandreyðina hér við land er sára- lítið vitað, en margt bendir til þess að langreyðurin sé ofveidd. Nægir að benda á að kynþroskaaldur hennar hefur lækkað úr 11 í 8 ár frá því veiðar hófust 1948, en lækkun kynþroskaaldurs er talin óbrigðul vísbending um ofveiði. Meðalaldur búrhvala við ísland fer sílækkandi. Sl. 20 ár hefur hann lækkað úr 40 árum í 27. Lýs- isafurðir hafa minnkað um 25% á hval. Gæti þetta ekki bent til þess að verið sé að ganga á stofninn? Heyrst hafa gagnrök þess efnis, að veiðar hafi haldist stöðugar frá upphafi, en því er til að svara, að hvalveiðar dragast ekki saman smátt og smátt heldur hrynja þær skyndilega, eins og gerist með síldina og loðnuna. Hvalir eru hópdýr og við höfum ekki hug- mynd um hvenær við erum að ráð- ast á síðasta hópinn. í greinargerð, sem fylgdi tillögu Eiðs til þingsályktunar, gefur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.