Morgunblaðið - 22.01.1983, Page 27

Morgunblaðið - 22.01.1983, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 1983 27 fliwnci PINGMÁL Fyrsta þingvikan á nýju ári: „Gæfuleysið féll að síðum“ ALI>INGI íslendinga kom saman til starfa sl. mánudag eftir fjögurra vikna þinghlé. Send var út dagskrá fyrir fundi í sameinuöu þingi og báðum þingdeildum. Eitt mál var á dagskrá hvers fundar. þau voru öll tekin af dagskrá og fundir féllu niður. Hinsvegar þinguðu þing- flokkar um kjördæmamálið. Það fór út af fyrir sig vel á því að kjördæmamálið setti svip á fyrsta starfsdag þingsins. Engu að síður var það táknrænt fyrir stjórn- og starfsleysi þess, það sem af er vetri, að öll dagskrár- mál fyrsta starfsdagsins voru sett í salt. Árni Gunnarsson, þingmað- ur Alþýðuflokks, sagði efnislega í umræðu síðar í vikunni, að þetta þing hefði nákvæmlega ekkert unnið, þjóðfélagið er að fara á hausinn utan þingveggja, en inn- an þeirra horfðu menn í gaupnir sér; það er að verða vanvirða að taka þátt í þessum skrípaleik. Hér er að vísu of fast að orði kveðið, en enganveginn út í hött. Bráðabirgðalög ríkisstjórnar- innar frá í ágústmánuði sl., sem í öllum efnisatriðum eru komin til framkvæmda, komu fyrst á dagskrá neðri deildar á þriðjudag. Þingmenn Sjálfstæðisflokks kröfðust upplýsinga af sjávarút- vegsráðherra, hvers efnis boðuð breytingartillaga hans í sjónvarpi við bráðabirgðalögin væri. Þeir töldu jafnframt óhjákvæmilegt að ráðherrar gæfu skýrslu um fram- kvæmd „láglaunabóta", sam- kvæmt bráðabirgðalögunum, sem farið hefði meir en lítið úr bönd- um að dómi talsmanna úr verka- lýðshreyfingu. Þá töldu þeir skorta á upplýsingar um nýtt við- miðunarkerfi (vísitölugrundvöll), hvern veg það mál stæði, en þing- menn Framsóknarflokks hefðu hengt hatt sitt á það, að það mál fengi afgreiðslu samhliða bráða- birgðalögunum. Sjálfstæoismenn fóru fram á frestun umræðunnar til mánu- dags vegna ónógra upplýsinga, enda tefði sá frestur framgang málsins ekki, þar að bæði formað- ur og varaformaður viðkomandi þingnefndar væru erlendis. Nefndin tæki málið ekki fyrir hvort eð væri fyrr en eftir helgi. Buðust sjálfstæðismenn til að sjá svo um að málið kæmizt klakk- laust til nefndar á mánudag, ef sætzt yrði á frestinn. Formenn annarra þingflokka og forsetar þingsins töldu þessa beiðni eðli- lega, en forsætisráðherra hafnaði. Hans viðhorf var, að málið hefði fengið nægan undirbúning en formaður þingflokks sjálfstæð- ismanna, Olafur G. Einarsson, vildi eingöngu „tefja málið af sér- stökum ástæðum sem öllum eru kunnar", eins og hann komst að orði. Ýmsir tengdu þessi orð því að Siggeir Björnsson, varamaður Eggerts Haukdal, situr á þingi þessa dagana. Þess vegna telji forsætisráðherra æskilegt að hraða því nú, þó að það hafi haft hægagang í þinginu í tvo mánuði. Birgir ísleifur Gunnarsson (S) sagði frið rofinn um störf þessa þings með synjun forsætisráð- herra og væri ekki á bætandi verklag þingsins, en verkstjórn ríkisstjórnarinnar hefði með öll- um brugðizt. Frumvarp ríkisstjórnarinnar um nýtt 4% útflutningsgjald af sjávarafurðum, til viðbótar 5,5% gjaldi sem fyrir er, framlengingu 7% olíugjalds fram hjá skiptum, olíusjóð og millifærzlu fjármuna í sjávarútvegi mætti harðri and- stöðu í þinginu sem og í þjóðfélag- inu. Matthías Á. Mathiesen (S) var talsmaður Sjálfstæðisflokks í um- ræðunni. Taldi hann hér horfið að millifærsluleið, sem kostað hafi bæði fyrirhöfn og fórnir að fá af- numda á liðnum áratug, og allir hagsmunaaðilar i sjávarútvegi væru andvígir. Lárus Jónsson var talsmaður Sjálfstæðisflokksins í efri deild er bráðabirgðalögin voru afgreidd frá deildinni. Hann vakti athygli á því að þrátt fyrir 17% verðbóta- skerðingu 1982 og niðurgreiðslu vísitölu um 6% fyrri hluta ársins hefði vöxtur verðbólgu frá upp- hafi til loka sl. árs verið 62% á mælikvarða framfærsluvísitölu. Viðskiptahalli og erlendar skuldir færu vaxandi, sömuleiðis ríkis- útgjöld og skattheimta, en þjóðar- framleiðsla, þjóðartekjur og lífskjör rýrnuðu. Langvarandi taprekstur atvinnuvega væri far- inn að segja til sín í atvinnuleysi og sparnaður hefði dregizt svo saman að nálagðist hrun í pen- ingakerfinu. Á fimmtudag komu til umræðu tvær tillögur um stefnumörkun í landbúnaði. Egill Jónsson (S) benti á að í stjórnarsáttmála frá í febrúar 1980 væri fram tekið, „að stefnan í landbúnaðarmálum verði mörk- uð með álytkun Alþingis ...“ Til- laga frá hendi stjórnarinnar um slíka stefnumörkun hefði þó ekki komið fram fyrr en á síðasta degi síðasta þings. Hinsvegar hefðu sjálfstæðismenn flutt tillögu um þetta efni á fjórum þingum nú. Hún hefði hlotið góðar undirtekt- ir fagaðila í landbúnaði. Enda þó tillaga stjórnarinnar fari um sumt í fótspor tillögu okkar sjálfstæðismanna, sagði Egill, er hún óljósari, fjallar ekki um framleiðslumarkmið, ekki er tek- izt á við framleiðsluvandann og ekki fjallað um framleiðsluskil- yrði. Egill lagði áherslu á svæða- skipulag, virkara greiðslu- og rekstrarfjárfyrirkomulag, nýj- ungar í landhúnaði og heimildir til ráðstöfunar á hluta útflutn- ingsfjár til að ná niður fram- leiðslukostnaði, sem lækkaði þörf- ina fyrir útflutningsbætur um leið. Landbúnaðurinn hefur sjald- an verið jafn illa staddur og nú í lok ferils þessarar ríkisstjórnar, sagði Egill. Pálmi Jónsson, landbúnaðar- ráðherra, taldi hinsvegar að land- búnaðurinn hefði tekið á sig sam- drátt í heföbundnum búgreinum, auk þess sem siðustu ár hefðu verið hörð og köld. Bændur byggju því við misjafna afkomu. En margt væri öðru vísi í þjóðfélaginu, sagði ráð- herra, hefðu aðrar stéttir tekið með sama hætti á vandamálum sínum. Þessi fyrsta þingvika speglar ekki björgulegan þjóðarbúskap. Þaðan af síður sýnir hún samstætt þing. Rík- isstjórnin hefur ekki lengur starf- hæfan þingmeirihluta. Stefán Jónsson, þingmaður Al- þýðubandalags, segir í blaðagrein í vikunni: „Dagar ríkisstjórnar- innar eru taldir. Það lýsir heilsu- fari hennar bezt að nánasta skyldulið hennar virðist nú bíða útfarardagsins með engu minni óþreyju en andstæðingarnir." Þegar svo er í pottinn búið í þing- liði stjórnarinnar er ekki von á góðu, varðandi starfsárangur. Þjóðarbúskapurinn sýnist kom- inn í húsgangsklæði. Þingheimur, sem þrátt fyrir allt samanstendur af velgerðum einstaklingum, er í pólitískri sjálfheldu. Staðan kall- ar fram í hugann lýsingu Bólu- Hjálmars á Sölva Helgasyni fyrr á tíð, sem Iyktaði á orðunum „gæfuleysið féll að síðurn". Þjóðin verður að grípa inn í myndina með nýjum kosningum. Því fyrr því betra. — sf. Dauðadans örverunnar FÆDA OG HEILBRIGÐI — eftir Jón Óttar Ragnarsson dósent Undirrót allrar matvæla- vinnslu fyrr og nú eru örverurn- ar, þessar örsmáu lífverur sem Pasteur varð fyrstur til þess að setja í samband við skemmdir í mat og sjúkdóma í mönnum. Svo er örverum fyrir að þakka að kjöt endist í viku á eldhús- borði og tvær í kæli, að mjólk og fiskur hafa jafnvel ennþá tak- markaðra geymsluþol. I þúsund ár þurftu Islendingar að verja fæðuna fyrir ágangi þessara gráðugu smávera með öllum tiltækum ráðum: gerjun og súrsun, reykingu og sólþurrkun. Með iðnbyltingunni komu nýj- ar vinnsluaðferðir. Með stór- virkri vélkælingu, vélfrystingu, vélþurrkun og niðursuðu fór nú fyrir alvöru að halla undan fæti fyrir örverum. Allar þessar nýju aðferðir byggjast á því að drepa örverur eða að minnsta kosti að halda vexti þeirra í skefjum með því að breyta umhverfisskilyrðum. Örverudráp Örverur má drepa með eitri eða orku. Báðar þessar aðferðir hafa sínar takmarkanir. Sér- staklega er erfitt að eitra fyrir örverur án þess að eitra um leið fyrir mannfólkið. Orka sem er notuð við mat- vælavinnslu er ýmist varmaorka eða geislaorka. Hefur geislaorka þó lítið verið notuð að gagni til þessa, en á því kann að verða breyting. Hitun (varmaorka) er auðvitað ævaforn aðferð sem farið var að nota markvisst eftir að Pasteur hafði gert sínar uppgötvanir. Er hún undirstaða niðursuðu og gerilsneyðingar. Geislun (geislaorka) byggist á því að geislar frá geislavirkum efnum eru látnir beinast að fæð- unni með þeim afleiðingum að örverurnar drepast samstundis. Það kann að virðast ankanna- legt að nota geisla við matvæla- vinnslu, en staðreyndin er sú að rannsóknir sýna að geisluð fæða (ef hún er rétt meðhöndluð) er öldungis skaðlaus. Breytt umhverfi Þrátt fyrir marga kosti hafa bæði hitun og geislun þann mikla ókost að hér er óhjákvæmilegt að drepa allar örverur og eyðist þá oft talsvert af næringarefnum fæðunnar. Mildari aðferðir eru þær sem ekki drepa allar örverurnar, heldur eru miðaðar við að breyta umhverfi þeirra á þann veg að þeim sé gert ógerlegt að fjölga sér. Ein besta leiðin til þess að gera þetta er sú að lækka hitastig umhverfisins, þ.e. með kælingu. Með þessu eykst geymsluþolið, Jón Óttar Ragnarsson en því miður aðeins í takmörk- uðum mæli. Betri aðferð er oft að halda örveruvexti í skefjum með vatnsskorti, en örverur þurfa mjög á vatni að halda. Má fram- kalla vatnsskort á þrjá vegu. Ein aðferðin er sú að fjar- lægja hreinlega (eða mestallt) vatn úr fæðunni, þ.e. þurrkun. Neytandinn getur síðan vætt fæðuna upp rétt áður en hennar er neytt. Betri aðferð er oft að frysta vatnið í fæðunni, þ.e. frysting. Geta örverurnar þá ekki nýtt vatnið. Neytandinn getur svo þítt fæðuna upp fyrir neyslu. Þriðja aðferðin er sú að bæta allmiklu magni af vissum efnum sem binda vatn, en það eru fyrst og fremst vínandi (áfengir drykkir), salt (saltmeti) og sykur (sultur o.fl.). Vínandi, salt og sykur verka hér sem rotvarnarefni, en slík efni eru nauðsynleg m.a. fyrir alla niðurlagningu á matvælum (lagmeti). Hindra þau vöxt ör- vera en drepa þær ekki. Auk þess eru til margvísleg rotvarnarefni sem verka á annan hátt en að binda vatn í matvæl- um. Eru þetta eiturefni, sem eru þó svo væg að þau drepa örver- urnar ekki. Rotvarnarefni í þessum flokki eru t.d. ýmsar sýrur (sbr. súrsun með skyrmysu), sorbat og nítrít svo dæmi séu tekin. Eru þessi efni mikið notuð í sumum grein- um matvælaiðnaðar. Reyking matvæla er af svipuð- um toga spunnin. í reyknum eru ýmis efni sem haa sterka rot- varnarverkun. Auk þess þornar fæðan yfirleitt eitthvað við reyk- inguna. Gerjun er síðasta aðferðin sem rétt er að minnast a. Hér er ýtt undir vöxt vissra hagstæðra ör- vera sem framleiða rotvarnar- efni (sýrur/vínanda) sem hindra vöxt óæskilegra örvera. Næring og vinnsla I heild er þróunin í matvæla- iðnaði sú að nota aðferðir sem beinast sem mest að örverunum sjálfum, en hafa lítil eða engin áhrif á næringargildi fæðunnar. Þær aðferðir sem henta best í þessu skyni eru þær sem eru nýj- astar af nálinni, t.d. frysting, þurrkun, geislun og niðursuða svo dæmi séu nefnd. Það er svo neytandans að velja á milli þeirra afurða sem þessar aðferðir gefa. Með vali sínu er hann um leið að ákveða í hvaða átt þróun iðnaðarins beinist í framtíðinni. Helstu vinnsluaðferðir Gamlar aðferðir Dæmi súrsun þorramatur reyking hangikjöt söltun saltfiskur gerjun skyr sólþurrkun skreið Nýjar aðferðir niðursuða grænmeti í dósum vélþurrkun þurrmjólk frysting fryst lambakjöt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.