Morgunblaðið - 22.01.1983, Page 31

Morgunblaðið - 22.01.1983, Page 31
Jón l'orgiksNon Kristján Torfason Óli Mír Aronsson Siggeir Björnsson Óli Þ. Guðbjartsson l>orsteinn Pálsson Prófkjör sjálfstæðismanna á Suðurlandi nú um helgina: Tólf frambjóðendur úr 4 hlutum kjördæmisins PKÓFKJÖR sjálfstæðismanna í Suð- urlandskjördæmi vcgna næstu kosn- inga til Alþingis fer fram nú um helg- ina, í dag, laugardag, og á morgun, sunnudag. Tólf frambjóðendur eru í kjöri, en kjördæminu er skipt niður í fjögur svæði eða hólf; Arnessýslu, Rangárþing, Vestmannaeyjar og Vestur-Skaftafellssýslu. Þrír frambjóðendur bjóða sig fram á hverju svæði, og skulu kjósendur kjósa fjóra frambjóðendur, einn úr hverju hólfi, með því að númera þá með tölustöfunum 1, 2, 3 og 4. Hvorki skal númera fleiri né færri frambjóðendur en fjóra. í framboði eru eftirtaldir menn: Fyrir Selfoss og Árnessýslu: Bryn- lcifur H. Steingrímsson, Oli Þ. Guð- bjartsson og Þorsteinn Pálsson. Fyrir Rangárvallasýslu: Eggert llaukdal, Jón Þorgilsson, og Óli Már Aronsson. Fyrir Vestmannaeyjar: Arni Johnsen, Guðmundur Karlsson og Kristján Torfason. Fyrir Vest- ur-Skaftafellssýslu: Björn Þorláks- son, Einar Kjartansson og Siggeir Björnsson. Kosningarétt hafa allir flokks- bundnir sjálfstæðismenn í Suður- landskjördæmi 16 ára og eldri. Einnig allir stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins 20 ára og eldri og þeir stuðningsmenn er verða tvítugir á árinu 1983. Prófkjörið fer sem fyrr segir fram í dag og á morgun, og er kos- ið á eftirtöldum stöðum: Kirkju- bæjarklaustri og Vík báða dagana kl. 14—18. Skógum laugardag kl. 16—20, sunnudag kl. 13—18. Fé- lagsheimilinu Vestur-Eyjafjalla- hreppi kl. 12—18. Gunnarshólma og Njálsbúð laugardag kl. 11—18. Fljótshlíðarskóla laugardag kl. 12—18. Félagsheimilinu Hvoli laugardag kl. 10—19, sunnudag kl. 10—20. Hellubíói báða daga kl. 10—20. Félagsheimilinu Brúar- lundi laugardag kl. 13—18. Lauga- landi Ásmundarstöðum báða dag- ana kl. 13—16, og Samkomuhúsinu Djúpárhreppi laugardag kl. 17—20, sunnudag kl. 13—20. Ár- nesi, Flúðum og Aratungu báða daga kl. 14—18. Selfossi, Eyrar- bakka, Stokkseyri, Hveragerði, Þorlákshöfn og Vestmannaeyjum kl. 10—20 báða dagana. Suðvesturland og Faxaflói: Reglugerð um sérstök línu- og netasvæði SJÁVARÍJTVEGSRÁÐUNEYTIÐ hefur gefið út reglugcrð um sér- stök línu- og netasvæði út af Suðvesturlandi og Faxaflóa. Samkvæmt reglugerð þessari eru allar veiðar með botn- og flotvörpu bannaðar á þremur tilgreindum svæðum fyrir Suð- vesturlandi. Er hér um að ræða tvö ný svæði og ennfremur stækkun á því línu- og netasvæði út af Faxaflóa, sem sett var í byrjun nóvember 1982. Eru svæði þessi hin sömu og undan- farnar þrjár vertíðar. Verður hér gerð grein fyrir svæðum þessum: Á tímabilinu frá 1. febrúar til 31. mars 1983, eru allar veiðar með botn- og flotvörpu bannaðar á 7 sjómílna breiðu svæði utan við línu, sem dregin er úr punkti 63°33’7 N, 23°03’0 V, vestur og norður um í 5 sjómílna fjarlægð frá Geirfugladrangi í punkt 64°04’9 N, 23°45’0 V og þaðan í 270“ réttvísandi. Að austan markast svæðið af línu, sem dregin er 213° réttvísandi ________________ úr punkti 63“33’7 N, 23“03’0 V. Á tímabilinu frá 10. febrúar til 15. maí 1983, eru allar veiðar með botn- og flotvörpu bannaðar á svæði, sem að sunnan markast af línu, sem dregin er réttvísandi 270“ frá Stafnesvita í punkt 63°58’N, 23“40’5 V og þaðan síðan um eftir- greinda punkta: a) 64“04’9 N, 23“45’0 V b) 64“04’9 N, 23“42’0 V c) 64“20’0 N, 23“42’0 V og þaðan í 90“ réttvísandi. Á tímabilinu 20. mars til 15. maí. 1983, eru allar veiðar með botn- og flotvörpu bannaðar á svæði, sem markast af línum, sem dregnar eru á milli eftirgreindra punkta: a) 63“10’0 N, 22°00’0 V b) 63“25’3 N, 22“00’0 V c) 63“33’7 N, 23“03’0 V. Reglugerð þessi er sett að feng- inni umsögn Fiskifélags íslands. Alþýðubandalagið á Vestfjörðum: Sjö frambjóðendur í síðari umferð forvals Kort af svæðunum. Svæðið vestur af Garð- skaga eins og það verður eftir 10. febrúar nk. Síðari umferð forvals Al- þýðubandalagsins á Vest- fjörðum hefst í dag, og lýkur henni 30. janúar. Velja skal menn í þrjú efstu sæti listans úr hópi þeirra sjö ein- staklinga sem í kjöri eru. Kjósandi merkir með viðeigandi tölustaf við nöfn þeirra. Kosningarétt hafa fé- lagar í alþýðubandalagsfélögum Vestfjarða og stuðningsmenn flokksins þar sem engin félög eru starfandi. Kjörstjórar á hverjum stað sjá um kosninguna og ber kjósendum að snúa sér til þeirra. Þá er hægt að kjósa utankjörstað- ar í Reykjavík í skrifstofu flokks- ins. Frambjóðendur í síðari hluta forvalsins eru eftirtaldir: Finn- bogi Hermannsson, Gestur Krist- insson, Halldór G. Jónsson, Kjart- an Ólafsson, Kristinn H. Gunn- arsson, Pálmi Sigurðsson og Þur- íður Pétursdóttir. ____Lskriftar- síminn er 830 33 Vörubflasýning! Laugardag og sunnudag frá kl. 1 — 6 Sýnt verður allt það nýjasta frá Mazda, Hino og DAF. BÍLABORG HF Smiöshöfða 23

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.