Morgunblaðið - 22.01.1983, Side 33

Morgunblaðið - 22.01.1983, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 1983 33 • Ingólfur Jónsson öllu atvinnulífi. Þar gildir það ekki, sem sagt var í kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar, Oðali feóranna: „Það eru ekki bændurn- ir, sem eiga kaupfélögin. Það eru kaupfélögin, sem eiga bændurna." Annað málið, sem ég er sam- mála Ingólfi um, er, að deila má um myndun Nýsköpunarstjórnar- innar Ólafs Thors 1944. Til þess eru einkum tvær ástæður. í fyrsta lagi komust sameignarsinnar í stjórn, fengu með öðrum orðum siðferðisvottorð, sem þeir áttu ekki skilið, en þeir voru þá miklu hallari undir Kremlverja en nú. Ingólfur leggur mesta áherslu á þessa ástæðu. í öðru lagi stjórnað- ist fjárfesting á nýsköpunarárun- um ekki af arðsemismati einstakl- inga, heldur af atkvæðavon stjórnmálamanna, og hún varð því óhófleg og óskynsamleg. Þau sannindi eru gömul og ný, að menn fara betur með eigið fé en annarra. Hvaða einstaklingar hefðu hætt eigin fé í hólmavíkur- togara eða kröfluvirkjanir? ís- lendingar njóta góðra lífskjara, en þeir hefðu getað notið betri lífs- kjara og umfram allt hefðu undir- stöður velmegunar þeirra getað verið traustari, ef fjárfestingar hefðu verið með öðrum hætti. Um þriðja málið, sem rætt er um í þessu riti, gegnir öðru máli. Ég er ósamþykkur Ingólfi um framleiðslu landbúnaðarafurða og er reyndar ekki einn um það. Framleiðslan á að mínum dómi ekki síður að ráðast af hagsmun- um neytenda en framleiðenda. En það felur í sér, að framleiðslan á að ráðast af markaðsöflunum. Nú- verandi fyrirkomulag, sem Ingólf- ur styður, er annað. Bændum er tryggt lágmarksverð, og þeim er tryggð lágmarkssala, hvort tveggja á kostnað skattborgara. Þeir geta því framleitt án tillits til væntanlegrar sölu eða þarfa al- mennings, hafa lítið sem ekkert aðhald af markaðnum. Bændur njóta því sérréttinda. Framleið- endur annarra vara geta þetta ekki. Ríkið kaupir ekki umfram- framleiðslu þeirra, ef einhver er. Við hljótum að spyrja tveggja spurninga um þetta. Önnur er sú, hvort þessi stefna er réttlætanleg af siðferðilegum ástæðum. Ég svara því neitandi. Bændur eiga að bæta kjör sín sjálfir, með hag- kvæmari framleiðslu, hugviti og dugnaði, en ekki með því að taka af öðrum. Hin spurningin er sú, hvort þetta hafi náð tilgangi sín- um. Hafa kjör bænda batnaö mið- að við kjör annarra stétta á þeim fimmtíu árum, sem framleiðslu- stefnunni hefur verið fylgt? Ég ef- ast um það. Nægilegur er að minnsta kosti barlómurinn í bændum. Kjör þeirra hafa að vísu batnað. En kjör annarra stétta hafa líklega batnað enn meira. Ég held, að bændum hafi verið gerður bjarnargreiði með stuðn- ingi ríkisins við þá. Þeir hafa breyst úr sjálfstæðum atvinnurek- endum í ósjálfstæða styrkþega ríkisins, þeir hafa ekki neyðst til að laga sig að breyttum aðstæðum eins og aðrir. Hvað hefði gerst, ef þeir hefðu ekki notið þessa stuðn- ings? Bændur hefðu líklega orðið færri, en búskapur þeirra hefði verið hagkvæmari, og þeir hefðu fitjað upp á ýmsum nýjungum. Loðdýra- og svínarækt, grænmet- is- og hænsnarækt, hefði verið al- gengari, en bændur hefðu ekki keppst við að framleiða mjólk og kjöt, sem enginn fæst síðan til að kaupa. Það er ekki síst hættulegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn, ef bændur breytast úr atvinnurekendum í ríkisstarfsmenn. Rannsóknir er- lendis sýna, að starfsmenn ríkis- fyrirtækja hafa meiri tilhneigingu til þess að kjósa ríkisafskipta- flokka en starfsmenn einkafyrir- tækja. Ekki kæmi það mér á óvart, þótt þessi væri skýringin á minnkandi fylgi Sjálfstæðis- flokksins á Austurlandi og Norð- urlandi eystra og í Þingeyjarsýsl- um. Þetta eru landbúnaðarhéruð, jarðir eru margar rýrar, og bænd- ur eru háðir ríkisstyrkjum. Þeir stjórnmálamenn úr Sjálfstæðis- flokknum, sem nota almannafé til að kaupa atkvæði hagsmunahópa, grafa í rauninni undan flokknum og sjálfum sér, þegar til langs tíma er litið, því að flokkurinn sækir fylgi sitt einkum til sjálf- bjarga manna, sem hafa ekki mikla hagsmuni af ríkisaf- skiptum. Ég hef einkum gert það að um- ræðuefni í þessari grein, sem mér hefur fundist að í bókum þeirra Gunnars Thoroddsens, Alberts Guðmundssonar og Ingólfs Jóns- sonar, enda er sá vinur, sem til vamms segir. En margt er skyn- samlegt skrifað í þeim, og allir eru þetta svipmiklir einstaklingar. það þeim flokkum illa, sem telja sig málsvara mannréttinda og valddreifingar. Skipting þingsæta í kjördæmum Þegar þingsætum er skipt milli flokka í hverju kjördæmi er sjálf- sagt hægt að hafa ýmsar leiðir. Það verður þó að byggjast sum- part á styrk flokka í viðkomandi kjördæmi og sumpart á heildar- styrk flokkanna á landinu öllu, þar sem enginn getur fengið fleiri þingmenn eftir úthlutun í kjör- dæmum en heildaratkvæðamagn á landinu öllu segir til um. Eigin hagsmunir Það er ljóst að stjórnarskráin og einstaka þættir hennar eru mikið hagsmunamál þeirra, sem til stjórnunarstarfa veljast. Ég hefi því velt því fyrir mér hversu skynsamlegt það sé að láta Al- þingi hafa þetta mikla vald um það hvernig stjórnarskráin verð- ur. Hún er nánast erindisbréf al- þingismanna. Ég ber því nokkurn ugg í brjósti. En ég vona að al- þingismenn lyfti sér það yfir per- sónulega hagsmuni að svo vel fari að þjóðin þurfi ekki að bjóða fram gegn þeim í næstu kosningum. meginþorra þjódarinnar daglega! Auglýsinga- síminn er22480 oTjjtmliIníi 1 Barn forsetans eftir Fay Weldon Bókmenntir Jóhanna Kristjónsdóttir Splúnkuný bók Fay Weldon vekur forvitni. Hún heitir The President’s Child og er gefin út samtímis í Lond- on, Sydney, Auckland og Toronto. Auk þess sá ég í dönskum blöðum, að þeir frændur okkar hafa verið snöggir að þýða hana á dönsku og þar er hún á metsölulista. Aðalpersóna sögunnar er Isabel Acre, en það er blind nágranna- kona hennar Maia sem segir sög- una, skiptast á kaflar með hennar eigin íhugunum og svo frásögn af lífi Isabel. Isabel lifir afar huggu- legu og góðu lífi í London og hefur getið sér orð sem sjónvarpsmann- eskja. Hún er gift Homer, sem er bæði góður og vænn og þau eiga soninn Jason, sem er fyrirferð- armikill drengur og líklega óeðli- lega fyrirferðarmikill. Fjölskyldu- lífið er afar farsælt — eða að minnsta kosti í upphafi. Sam- skipti við nágranna koma við sögu, og dregnar upp nokkuð góð- ar lýsingar á fólkinu í götunni. En sennilega er allt ekki eins slétt og fellt og það sýnist á yfirborðinu. Fortíðinni hefur verið ýtt til hlið- ar, en þar kemur að hún vitjar Isabel og það svo harkalega að nú fer margt að gérast samtímis. Hún hafði á sínum tíma staðið í heldur auðmýkjandi kynferðis- sambandi við ungan öldungadeild- arþingmann í Bandaríkjunum og flúið frá honum með smán, að eig- in dómi. Drengurinn Jason virðist vera sonur hans, það er farið að vekja athygli einkum þegar þing- maðurinn virðist vera að sigla hraðbyri inn í Hvíta húsið. Isabel stendur á krossgötum í lífinu og hún rís ekki undir fargi fortíðar- innar og kvíða fyrir framtíð sem virðist í senn ógnandi og krefj- andi. Hún er sannfærð um að Homer, eiginmaður hennar, muni skilja hana og taka þessum gömlu atburðum með stillingu. Það fer öldungis á annan veg og við það bætist að í Bandaríkjunum er það líka farið að spyrjast út, að fortíð forsetaefnis sé kannski ekki eins flekklaus og undursamleg og af hafði verið látið. Útsendarar hans koma til Englands, Homer yfir- gefur hana um hríð og geðiæknir- inn dr. Gregory og Homer sjóða síðan saman hið hryllilegasta samsæri gegn henni. Einkenni- legir og annarlegir atburðir ger- ast, hið illa virðist ætla að fara með sigur, en svo snýst það vonda til hins betra á ný og sögulokin eru svo ljúf að hver reyfarahöf- undur gæti verið fullsæmdur af. Það eru einmitt þessi sögulok sem ég er ekki sátt við; þegar dr. Greg- ory og Homer fá talið Isabel á að fórna lífi sinu til að Jason geti lifað — og þó fær hann væntan- lega ekki að lifa, heldur verður fyrirkomið síðar. Þáttur læknisins í málinu er fjarstæður og eigin- maðurinn Homer er ekki sannfær- andi í mannvonsku sinni — þó svo að hann hafi fengið meiri háttar áfall þegar Isabel sagði honum frá Fay Weldon réttu faðerni drengsins. Isabel gengur af stað á vit örlaga sinna. En þá gerast þau tíðindi í Banda- ríkjunum að forsetaefnið fellur niður steindautt af slagi. Glæpon- arnir sem ætluðu að drepa hana hverfa út í buskann og hið sama gildir um eiginmanninn og lækn- inn. Isabel fer með Jason heim til Astralíu til móður sinnar en hefur áður falið Maiu að segja sögu sína. Það er margt vel um þessa sögu, lygar og sannleikur — hvort er raunverulegra og á sannleikurinn svo sem endilega rétt á sér alltaf og eilíflega. Barátta góðs og ills, staða konunnar, þó ekki endilega í þjóðfélaginu, heldur sem einstakl- ingur gagnvart einstaklingi. Þetta kemst allt vel til skila, enda Fay Weldon leikinn höfundur. En þótt bókin sé bæði læsileg og einatt góð lesning, finnst mér endirinn spilla fyrir. Sjálfsagt gætu spekingar fundið út úr honum einhver stórbrotin sannindi, sem ég kom ekki auga á. MUSTAD NÝTTFRÁ MUSTAD Plast-linuballar Línuballar úr plasti hafa sömu eiginleika og fisk- kassar sem hafa sannað notagildi sitt fyrir löngu. Ástæðurnar liggja í augum uppi. sterkir, góð ending og lögun, auðvelt að halda þeim hreinum. Línuballarnir eru hannaðir af fólki sem þekkir til línu- veiða, og einmitt þess vegna munu þeir létta starfið. Brúnir ballanna eru sérstak- lega styrktar, einnig rand- aðar, (má nota fyrir öngla, sérstaklega þegar notuð er girnislína). Botninn er þannig frágenginn að ball- arnir renna ekki á dekki, þeir þola mikið hnjask, m.a., að þeim sé kastað um borð og upp á bryggju, jafn- vel í 15° frosti, en ballarnir þola vel frost, verða ekki stökkir. Línuballarnir fást hjá: Þ. Skaftason hf., sími 91-15750 Kr. Ó. Skagfjörð hf., sfml 91-24120 Innkaupadeild L.Í.Ú., símar 91-29500, 17028 Aðalumboð: O. Johnson & Kaaber hf. sími 91-24000.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.