Morgunblaðið - 22.01.1983, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 1983
„ Ht'oð bjJ/st þ6 \jl6,cíb þú
finnir í axciha/a5Úpu P"
ásf er ...
... að stagla og
staga.
TM Raa U.S. Pat. Off -all rlghts resarvad
•1962 Los Angeies Ttmas Syndtcale
Með
morgnnkafíinu
Mamma, ég fann þennan stóra ^ Vr
kött. — Má ég ekki hafa hann hér
heima?
1527
HÖGNI HREKKVISI
„ LÍTOR ÚT FYR.IK. AF> „ ?Á?\"GAMLI ÆTll 'ÍFIR.
MÚZANA r WÓTT/ "
Þykir það
lúxus að
hafa síma?
íbúi við Keilugranda skrifar:
„Velvakandi.
Eg er einn af fjölmörgum nýjum
íbúum í nýja Eiðsgrandahverfinu
og get ekki lýst undrun minni á
því að við skulum ekki geta fengið
síma inn á heimili okkar. Þykir
það virkilega lúxus síðla á tuttug-
ustu öld að hafa síma? Upplýs-
ingar sem ég fæ hjá Pósti og sima
eru þær helstar að það vanti línur,
þ.e.a.s. að stækka þurfi stöðina, og
fáist ekki fjárveiting til þess.
Samkvæmt síðustu upplýsing-
um stofnunarinnar eru um 500
manns á biðlista þar. Póst- og
símamálastjóri tjáði mér í nóv-
ember sl. að settir yrðu upp
myntsímar í hvert stigahús þar
sem ólöglegt væri að hafa húsið
símalaust. Ég spurðist fyrir um
þessa myntsíma í sl. viku, en þar
sem 2-3 íbúar stigahússins er ég
tilheyri hafa síma þá verður eng-
inn myntsími settur upp hjá
okkur. Eins og þar með sé sagt að
símafólkið kæri sig um átroðning
símleysingjanna.
Mér er sagt að úrlausn fáist
ekki fyrr en í lok þessa árs en ég
hef heyrt því fleygt að verði mað-
ur svo (ó)heppinn að verða barns-
hafandi þá hljóti maður náð og
misskunn, gegn vottorði póst- og
símamálastjóra, en sú lausn hent-
ar mér ekki þar sem ég er ein-
hleyp.
Mér fannst tími til kominn að
einhver tæki af skarið og kvartaði
yfir þessum seinagangi þar eð
þetta er óþolandi ástand.
Með kærri þökk fyrir birting-
una.“
Bela Lugosi í hlutverki Drakúla greifa í samnefndri kvikmynd Universal fra
1931.
Þakka Ríkisútvarpinu
þessa skemmtilegu og
frumlegu nýbreytni
Reimar skrifar:
„Velvakandi.
Ekki er það oft sem látið er í
ljós þakklæti fyrir það sem vel er
gert. Ríkisútvarpið flutti, á
fimmtudaginn var, fyrsta hluta
leikrits sem gert er eftir skáldsögu
Bram Stokers um blóðsuguna
Drakúla greifa. Vil ég hér með
þakka Ríkisútvarpinu og þeim er
unnu að gerð leikritsins fyrir
þessa skemmtilegu og frumlegu
nýbreytni. Það er of sjaldan sem
slíkt efni er hér á boðstólunum
fyrir almenning. Sennilega af
skiljanlegum ástæðum.
Sjálfur hef ég lesið danska þýð-
ingu á þessari heimsfrægu sögu og
er einlægur aðdáandi ævintýra
um hrylling og taumlausa ímynd-
un. Þykir mér útfærsla Jill Brook
Árnason með afbrigðum góð og
skemmtileg. Fyrir þá sem hafa
gaman af órum og heilaspuna sem
Drakúla greifa og slíkum skelfi
Efni greinarinnar var
það sem skipti máli
mætti benda á mynd Werners
Herzogs, „Nosferatu“, sem Herzog
gerði fræga eftir samnefndri eldri
mynd. Fjallaði mynd þessi um
sögu Stokers þar sem hinn ógæfu-
sami Jónatan, sem er söguhetjan,
lendir í klóm á blóðgreifanum
Drakúla. Klaus Kinski lék hlut-
verk andlausu mörætunnar og var
sem fæddur í hlutverkið ef ekki
stéttina.
Þeim tilmælum vil ég jafnframt
koma á framfæri, af hjartans ein-
lægni, að aukið verði framboð á
efni sem þessu. Gaman væri að
heyra vel valinn hrylling seint á
vetrarkvöldi eftir Edgar Allan Poe
eða aðra slíka.
Þeim sem ekki heyrðu þennan
fyrsta þátt mætti benda á að enn
eru tveir þættir eftir af leikritinu
Drakúla. Og vafalaust yrði vel
þegið að fyrsti þátturinn yrði
endurtekinn eitthvert kvöldið, áð-
ur en kemur að öðrum þætti, og þá
vel auglýstur.
Virðingarfyllst."
Rafn Thorarensen skrifar:
„Velvakandi.
Enn eitt dæmi um ma '.alaus
vinnubrögð fréttastofu útva.psins
kemur fram í Velvakanda 20. þ.m.
Fréttamaður útvarpsfréttastof-
unnar hringir til Velvakanda til
þess að ítreka að þeir hjá útvarp-
inu svari ekki nafnlausum athuga-
semdum um fréttaflutning út-
varpsins sem birtast í Velvak-
anda. Tilefnið var að í Velvakanda
hafi áður verið fundið að frétta-
flutningi útvarpsins eftir nafn-
lausum greinum úr málgangi sov-
éska kommúmgtaflokksinns,
„Pravda“. Fréttamaðurinn segir
að greinin í Pravda sé á ábyrgð
ritstjórnar líkt og gildi um Stak-
steina Morgunblaðsins. Hefur
eitthvað verið gert af því hjá
Ríkisútvarpinu að vitna til Stak-
steina Morgunblaðsins sem frétta-
heimildar eða stendur það til?
Síðan bítur þessi fulltrúi út-
varpsfréttastofunnar höfuðið af
skömminni með því að bjóða þessa
dæmalausu „frétt“ til birtingar á
síðum Morgunblaðsins. Þeir eru
iðnir við kolann!!
Nú er „forval" í gangi hjá ýms-
um stjórnmálaflokkum. Væri nú
ekki heillaráð hjá viðkomandi
fréttamanni að drífa sig í eitt-
hvert þeirra að hætti samstarfs-
manna sinna með von um umbun
fyrir störf sín á fréttastofunni. Þá
yrði líka von til að um gæti orðið
að ræða eðlilega endurnýjun
fréttamanna á fréttastofu út-
varpsins.
Þeim er upphaflega skrifaði um
fréttaflutning og fréttamat Ríkis-
útvarpsins þakka ég framtaks-
semina. Mér leikur engin forvitni
á að vita hvað hann heitir; efni
greinar hans var það sem skipti
máli.“
Velvakandi hvetur lesendur til
að skrifa þættinum um hvaðeina,
sem hugur þeirra stendur til —
eða hringja milli kl. 10 og 12,
mánudaga til fostudaga, ef þeir
koma því ekki við að skrifa.
Meðal efnis, sem vel er þegið,
eru ábendingar og orðaskipti,
fyrirspurnir og frásagnir, auk
pistla og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrituð, en
nöfn, nafnnúmer og heimilisföng
verða að fylgja öllu efni til þátt-
arins, þó að höfundar óski nafn-
leyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að
beina því til lesenda blaðsins
utan höfuðborgarsvæðisins, að
þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja
hér i dálkunum.
Hvers vegna?
Margrét skrifar:
„Hvers vegna megum við ekki
borga fullt gjald fyrir að fara með
strætisvögnum, við sem notum þá?
Hvers vegna eiga aðrir að greiða
niður fargjöldin fyrir okkur með út-
svarinu sínu?
Hvers vegna skilur ekki sá, sem
er á móti hækkun fargjalda SVR,
að „borgin", eins og það er kallað, er
samfélag okkar — að við sem hér
búum erum borgin?
Hvers vegna má ekki koma til
móts við börn og unglinga með því
að gefa þeim kost á skólafargjöld-
um, gegn framvísun skólaskirteina,
t.d. til 18 ára aldurs?
Hvers vegna reynum við ekki að
hjálpa til, svo að „fyrirtækið okkar"
beri sig?“