Morgunblaðið - 22.01.1983, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. JANUAR 1983
45
SVARAR I SIMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
flL FÖSTUDAGS
2ÆÍ
'JL-
Bull um „nýtt blóðu og
„æðakerfi stjórnmálaa!
Nú er of seint i rassinn gripið
langþnillur sjálfsUPOiNmadur
ákrifar:
,Nú um næstu helgi fer fram
prófkjor sjálfstæöismanna á Suð-
urlandi Sá fjoldi frambjóðenda.
sem fram hefur komið, kemur
okkur S.innlendinRum ekki á
óvart, þ\i okkur þykir óhætt að
segja að ekkert kjórdæmi hafi
Suðurlandi, styrkir ríkiö slíka
verksmiöju á Norðurlandi og
skeytir engu um arðsemi. Hvar
var kraftur þinnmanna okkar
Sunnlendinga?
Allir þekkja þá hrinRavitleysu
er ríkir í styrkjum til tapútjterða
hér á landi Allir vita að þessir
stvrkir eru teknir frá hinum vel
1__ ______nn
iivar er réttsýnin, sannfær-
ingarkrafturinn, framkvæmda-
þrótturinn or áhrifin, sem við
hljótum að búast við að þinjtmenn
okkar hafi?
Við þuríum nýtt blóð í æðakerf
stjórnmála okkar SunnlendinRí
Við þurfum menn, sem gera s<'
' fulla grein fyrir því að þeir sku
stiinda reiknintfsskil wrlto *in-
Kæri Velvakandi.
„Ég er satt að segja orðinn mjög
þreyttur á skrifum af því tagi, sem
birtust í dálkum þínum í gær frá
„langþreyttum sjálfstæðismanni",
sem hefur uppi sleggjudóma um
störf þingmanna Sunnlendinga að
sjálfsögðu í tilefni af prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Suður-
landskjördæmi um þessa helgi.
Stjórnmálaumræður eru náttúru-
lega komnar niður á slíkt plan, að
búast má við hverju sem er eins og
skrif hins „langþreytta" Sjálf-
stæðismanns sýna. „Hvar voru
þingmenn okkar þegar steinullar-
verksmiðjan var rædd á þingi,“
spyr þessi maður. Ég man ekki
betur en að rækilega hafi í þeim
heyrst á þeim tíma. En sjálfstæð-
ismaðurinn langþreytti segir:
„Hver varð afraksturinn? Jú,
þrátt fyrir augljóst hagræði og
hagnað af steinullarverksmiðju á
Suðurlandi, styrkir ríkið eina
slíka verksmiðju á Norðurlandi og
skeytir engu um arðsemi. Hvar
var kraftur þingmanna okkar
Sunnlendinga?"
Hvers konar bull er nú þetta.
Með hvaða hætti áttu þingmenn
Sunnlendinga að sigrast á vilja
meirihluta Alþingis? Með hvaða
„krafti“ áttu þeir að beygja meiri-
hluta Alþingis undir vilja sinn?
Ég gæti skilið þessi skrif, ef sá
„langþreytti" hefði beitt sínum
krafti til þess að hvetja Sunnlend-
inga af lífi og sál til þess að byggja
þessa verksmiðju sjálfir án stuðn-
ings ríkisvaldsins.
Þessi sami maður kvartar und-
an því að þingmenn Vestmanney-
inga hafi ekki mótmælt af hörku
þeim vinnubrögðum að láta vel
rekin útgerðarfyrirtæki greiða
taprekstur illa rekinna fyrirtækja.
Hvernig væri nú að þessi maður
tæki sér það fyrir hendur að lesa
þingtíðindin og kynna sér mál-
flutning þingmanna Sunnlendinga
um sjávarútvegsmál.
Þessi umtalaði sjálfstæðismað-
ur telur að nú þurfi „nýtt blóð í
æðakerfi stjórnmála okkar Sunn-
lendinga" og nýja menn á þing,
sem séu hvorki „gungur" eða
„strengjabrúður". Það hæfir nátt-
úrulega þeim, sem skrifa nafn-
laust, að tala um gunguskap eða
hitt þó heldur og spyrja má
„strengjabrúða" hvers þessi rit-
höfundur er, en hitt má vel vera
að það þurfi nýtt blóð í æðakerfi
stjórnmála okkar íslendinga yfir-
leitt, en áreiðanlega ekki „blóð“
þessa langþreytta sjálfstæð-
ismanns, eða þess, sem hann skrif-
ar fyrir.
Annar langþreyttur
sjálfstæðismaður.**
Er verslunin
hætt rekstri?
Lesandi hringdi og hafði eftir-
farandi að segja: — Mig langar til
að spyrjast fyrir um verslunina
Kistuna, sem var til húsa á Skóla-
vörðustíg 4 og hafði m.a. á boð-
stólum vörur frá „Laura Ashley".
Er verslunin hætt rekstri eða er
hún að flytja sig um set? Hvar
verður hægt að fá inn í og endur-
nýja vörur frá „Laura Ashley",
sem maður hefur þegar keypt?
Þessi þjónusta
stendur til boða
„Handverksmaður“ hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: — Ég
var að lesa það sem haft var eftir
„íbúa við Laugaveg" í þættinum í
gær, að hann treysti sér ekki til að
berja niður grýlukerti og hefði
enda engin verkfæri til slíks. Og
hann kvað marga í svipaðri að-
stöðu, einkum í tveggja eða
þriggja hæða húsum og þaðan af
hærri. Það er nú þanngi, að ég tek
að mér slík störf og er búinn að
auglýsa í blaðinu hjá ykkur á
hverjum degi frá áramótum. Það
fer að vísu ekki mikið fyrir auglýs-
ingunni minni, en sem sagt: þessi
og önnur svipuð þjónusta stendur
fólki til boða þegar og ef það þarf
á að halda. Það þarf ekki að leita
til borgaryfirvalda til þess að fá
hana. Þau hafa sjálfsagt nóg á
sinni könnu.
Okkur finnst
meira virði að
vera heima
við það sem Trausti hafði að segja
í þættinum í morgun (fimmtu-
dag). Ég er hjartanlega sammála
honum um, að það sé hróplegt
óréttlæti að leggja þyngri skatta á
heimili, sé fyrirvinnan aðeins ann-
að hjóna. En hitt get ég ekki tekið
undir, að konur séu heima ein-
göngu af því að þær séu ómennt-
aðar og því lítt gjaldgengar á
vinnumarkaði. Þetta er alls ekki
einhlítt, því að við erum ábyggi-
lega þó nokkrar, sem höfum góða
menntun, en viljum fremur vera
heima barnanna vegna, teljum
það réttara þeirra vegna, m.a. til
þess að þurfa ekki að þeyta þeim
sínu í hverja áttina eða láta þau
koma að öllu tómu, þegar þau
koma heim úr skólanum o.s.frv.
Okkur finnst það sem sagt meira
virði að vera heima en geta veitt
okkur það sem fengist fyrir fjár-
hagslega ávinninginn við að fara
út á vinnumarkaðinn. Margar
okkar gætu vafalaust fengið jafn-
há laun og eiginmenn okkar, eða
því sem næst, og því finnst mér
rangt hjá Trausta að gera ráð
fyrir því að við séum allar heima
af því að það borgi sig ekki fyrir
okkur að hafa það öðruvísi. Hitt er
svo annað mál, að það er sorglegra
en tárum taki, að menn skuli
þurfa að þræla myrkranna á milli
til þessa að geta veitt konum sín-
um þetta tækifæri — og fá svo að
launum stórum þyngri skattlagn-
ingu en hinir sem minna leggja á
sig.
Afkáralegt
óréttlæti
Anna hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja: — Mig langar til að
þakka þessum Trausta fyrir það
sem hann segir í þættinum í
morgun (fimmtud.), út af mismun-
andi skattlagningu hjóna (heim-
ila), eftir því hvort annað þeirra
eða bæði vinna fyrir tekjunum.
Þarna ríkir afkáralegt óréttlæti.
Það eru ennþá til konur, sem
gjarna vilja vera heima, finnst
það nauðsynlegt til að frá þeim
komi góðir og gegnir þegnar út í
þjóðfélagið, það er þeirra mat. Og
ég veit um margt ungt fólk, með
tvö til þrjú börn, þar sem konan er
heima, án tillits til menntunar
hennar. En hvað er það eiginlega,
sem réttlætir að stjórnvöld grípi
til óráða eins og að leggja þyngri
skattabyrðar á heimili, þar sem
fyrirvinnan er ein, en hina þar
sem bæði hjónin afla teknanna?
Á sama tíma fá bændur að deila
með tveimur í tekjur búa sinna.
Það kom síðast fram þegar lág-
launabótunum frægu var úthlut-
að. Og röksemdin: Af því að konan
tekur svo mikinn þátt í búskapn-
um. En hvað gerir kaupstaðarkon-
an eða sjómannskonan sem á
mann sinn úti á sjó meira og
minna allt heila árið? Hver sér um
heimilið? Hver sér um útrétt-
ingar? Um lánamál og fjármál?
Um viðhald á eignum? Um skatta-
skýrslur? Um uppeldi? Ég er nú
orðin svo gömul að ég er hætt öllu
þessu, en ég var sjómannskona í
mörg herrans ár og veit ekki betur
en ég hafi annast þetta allt saman
og miklu fleira til. Og ef hægt er
að réttlæta það, að bóndinn megi
deila með tveimur í sínar tekjur,
vegna hlutdeildar eiginkonu í
störfum við búið, já,"þá er óhætt
að leyfa sjómanninum það ekki
síður. Og svo er um fleiri.
GÆTUM TUNGUNNAR
Vigdís Sigurðardóttir hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: — Mig
langar til að gera smáathugasemd
Heyrst hefur: Þeim líst vel á hvort annað.
Rétt væri: Þeim líst vel hvoru á annað.
Bendum börnum á þetta.
RAFVIÐGERÐIR HF.
Sími83901
Endurnýjun og breytingar
á eldri rallögnum.
NYLAGNIR
Heimilistækjaviðgerðir.
Allt efni til raflagna.
WAGNER-sjálfstýringar
Wagner-sjálfstýringar, komplett með dœlusettum 12 og
24 volt, kompás og fjarstýringum fram á dekk, ef óskaö
er, fyrir allar stæröir fiskiskipa og allt niöur í smá trillur.
Sjálfstýringarnar eru traustar og öruggar og auöveldar í
uppsetningu. Höfum einnig á lager flestar stærðir
vökvastýrisvéla.
Hagstætt verð og greiösluskilmálar.
Atlas hf íö
Laugardagur í
MN
Rjómalöguö karrý-sjávarréttarsúpa.
Þurrkuð fjallaskinka með ristuðu brauöi og
sýrðum gúrkum.
Gufusoðin rauðspretta fyllt með gráðosti og
rækjusósu.
Grísalundir á sverði með provencal sósu,
gratineruðu blómkáli og kartöflum fondantes.
Ofnsteikt rauðvínsmarinerað nautalæri með
broccoli, grilluðum tómat og kartöflum fond-
antes.
Jarðepli í kampavíni gljáð með saboyon.
Okkar vinsæli salatbar er innifalinn með öllum
mat.
Verið velkomin á góöan staö.
SSN
Skólavörðustíg 12, sími 10848.