Morgunblaðið - 22.01.1983, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 22.01.1983, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 1983 • Landsliösmaðurinn Guömundur Guömundsson hefur sýnt miklar framfarir ( vetur. Hér stekkur Guömundur innúr horninu í landsleik við Dani og skorar. Vonandi fasr Guömundur mörg svona góö tækifæri ( þeim landsleikjum sem framundan eru. Keppnisferð til Norðurlanda: Landsliðið leikur sex leiki á viku ÍSLENSKA landsliðiö í hand- knattleik heldur utan næstkom- andi þriðjudag í keppnisferð til Norðurlandanna. Lardsliöið mun leika gegn Dönum miðvikudag- inn 26. janúar og 26. og 27. janúar. Leikið verður gegn Finnum 29. og 30. janúar og loks gegn Norö- mönnum 1. og 2. febrúar. Keppn- isferð þessi er liður í undirbún- ingi landsliðsins fyrir B-keppnina í Hollandi. En lögð er áhersla á að leíka sex leiki á einni viku. Mjög erfið keppnisferð bæði hvað snertir ferðalögin og hvað leikið er þétt. Þá er mjög gott fyrir landsliösmennina að fá alla þessa leiki á útivelli við misjafnar aðstæður, því að gott er að venj- ast því að leika á mismunandi keppnisvöllum. — ÞR Deildarkeppninni lýkur um helgina: Vinnur FH deildar- keppnina á markahlutfalli? Hvaða lið verður deildarmeist- ari ( handknattleik ( ár? Svarið fæst um helgina, þv( að þá Ijúka efstu liðin í 1. deild karla ( hand- knattleik leikjum sínum. Stórleik- ur helgarinnar verður á milli Vfk- ings og KR. Víkingar veröa aö sigra í leiknum ef þeir eiga aö vera alveg öruggir meö aö sigra ( deildinni í ár. FH leikur gegn Fram og takist FH að sigra ná þeir 20 stigum í deildarkeppninni ( ár en Víkingar eru meö 19 stig fyrir síöasta leik sinn. Ef KR sigr- ar hinsvegar Víkinga í síðasta leik sínum hefur liðið hlotið 20 stig eða jafnmörg og FH og hlýtur þá annaö sætið í deildinni, því að lið FH er með lang hagstæöasta markahlutfallið í deildinni. Staðan í 1. deild karla fyrir síö- ustu leiki í deildinni er nú þessi: Víkingur 13 8 3 2 282—260 19 FH 13 9 0 4 348—289 18 KR 13 9 0 4 302—242 18 Stjarnan 13 7 1 5 261—259 15 Þessi 4 efstu liö leika mjög lík- lega ( 4 liöa úrslitunum um fs- landsmeistaratitilinn í ár. Valur 13 6 1 6 270—247 13 Þróttur 13 5 2 6 264—272 12 Fram 13 4 1 8 274—293 9 ÍR 13 0 0 13 227—372 0 Um helgina veröa þessir leiklr í 1. deild karla: f dag laugardag: kl. 14.00 Þróttur-Valur í Laugar- dalshöll. • Tekst KR-ingum að sígra Víkinga um helgina? Leikur liðanna ræður miklu um lokastöðuna í deildarkeppninni í ár. Þaö yrði mikið afrek hjá Víkingum ef liðið sigraði í þessari keppni fjóröa áriö í röð. Á myndinni má sjá Ragnar Hermannsson KR stökkva hátt upp og reyna skot. KR-ingar hafa jafnan veitt Víkingum mikla keppni er liðin hafa leikið saman. Og nú er meira í húfi fyrir KR en oftast áður. Sunnudagur: Kl. 14.00 FH-Fram kl. 16.15 Stjarnan-ÍR kl. 20.00 Víkingur-KR Þetta eru síöustu leikirnir í 1. deild á keppnistímabilinu. Úrslit f 1. og 2. deild karla veröa svo leikin í mars, og fer fyrsta umferöin fram 18., 19 og 20. mars. Rétt er aö geta þess aö þaö liö sem sigrar í deildarkeppninni vlnn- ur sér rétt til þess aö taka þátt i IHF-keppninni næsta keppnistíma- bil. — ÞR. Falla leikirnir við Júgóslavíu niður? ALLT bendir nú til þess að lands- leikir þeir sem áttu að fara fram B-keppnin í Hoilandi: Fyrsti leikur íslands gegn Spáni 25. febrúar f LOK næsta mánaöar hefst B-keppnin í handknattleik í Hol- landi. í þessari keppni er keppt í þremur riðlum og leikur ísland í einum þeirra. Undirbúningur landsliösíns hefur staöið lengi fyrir keppnina enda mikið í húfi aö landslið okkar standi sig vel. Tvö efstu liðin ( keppninni ( Hol- landi vinna sér rétt til þess að taka þátt í handknattleikskeppni Ólympíuleikanna sem fram fara ( Los Angeles áriö 1984. Alls eru það 12 þjóðir sem leika í B-keppninni í Hollandi og er þeim Frædslufundur hjá GR FRÆÐSLUFUNDUR verður hald- inn í Golfskálanum í Grafarholti á morgun, kl. 15.00. Fjallaö verður um nýtt fyrirkomulag á forgjöf, „Congu“-kerfið. Á eftir verður sýnd golfkvikmynd. Allir kylf- ingar eru velkomnir á fundinn og hvattir til þess að mæta. Þorrablót Golfklúbbs Reykja- víkur veröur haldið laugardaginn 5. febrúar í Golfskálanum í Graf- arholti kl. 19.00. Aögöngumiöar fást hjá framkvæmdastjóra. eins og áður sagði skipt niður ( þrjá riðla. Riðlaskiptingin er þannig: A-riðill: Ungverjaland Svíþjóö ísrael Búlgaría B-riðill: V-Þýskaland Tékkóslóvakía Holland Frakkland C-riðill: Sviss Spánn island Belgía Tvö efstu liö í hverjum riöli kom- ast áfram í keppninni og leika sín á milli um efstu sætin sex. Þó veröa leikir liöanna í riölakeppninni látnir gilda áfram í aöalkeppninni. Tvö neðstu liöin í hverjum riöli leika síöan saman í einum riöli um 7. til 12. sæti í keppninni, en tvær neöstu þjóöirnar i keppninni falla niöur í C-riöil. Eins og sjá má á riðlaskiptingunni veröur keppnin hörö. En til gamans skulum viö li'ta á hvaöa þjóöir eiga aö hafa raun- hæfa möguleika á aö komast áfram í aöalkeppnina. í A-riölinum eiga Ungverjar og Svíar aö komast áfram nokkuö ör- ugglega. Þaö sama er aö segja um V-Þjóöverja og Tékka í B-rií 'inum. I C-riðli mun baráttan mjög líklega standa á milli Svisslendinga og fs- lendinga um aö komast áfram í aö- alkeppnina. Spánverjar eru mjög sterkir og ættu aö vera örugglr áfram. Leikur Islands viö Sviss mun því veröa mjög mikilvægur fyrir okkur. Á góöum degi er ekkl nokkur vafi á því aö viö sigrum liö Svisslendinga. En þaö gæti líka brugöiö til beggja vona. Fyrsti leikur íslands í keppninni, 25. febrúar, er viö Spánverja og fer fram í Breda. Næsti leikur islands veröur síöan 27. febrúar í Vlissing- en gegn Sviss. Og síöasti leikur islands veröur svo gegn Belgíu í Gemert 28. febrúar. Takist íslenska liöinu aö komast áfram í aöalkeppnina er liðiö til alls líklegt í þeirri keppni, þrátt fyrir aö mót- herjarnir séu sterkir. Lokakeppni þeirra sex liöa sem efst veröa fer fram í Rotterdam, Enschede og Utrecht, en hin liðin sex leika í Zwolle, Arnhem og Amsterdam. — ÞR hér á landí 17. og 20. febrúar gegn Júgóslövum falli niður. Astæðan er einfaldlega sú að samningsgrundvöllur við A-Evr- ópu er alveg brostinn hvaö varðar svona samskipti. Austur-Evrópu þjóðirnar gera það að skilyrði þegar þær sækja okkur heim að við greiöum flugfargjöld frá Kaupmannahöfn, allan hótel- kostnað svo og dagpeninga. Flugfargjöld hafa hækkað svo mikið að undanförnu að kostnað- ur við þau er að verða okkur óvið- ráðanlegur með öllu, sagði for- maður HSÍ, Júlíus Hafstein í spjallí við Mbl. Það er því allt útlit fyrir aö þaö verði ekki landsleikir í hand- knattleik hér á landi áður en landsliðíð heldur utan í B-keppn- ina í Hollandi. — ÞR 0 Towns where will be played □ Housing • í þessum borgum veröur leikið í Hollandi þegar B-keppnin fer fram.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.