Morgunblaðið - 01.02.1983, Qupperneq 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
25. tbl. 70. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Schultz í Japan:
„Samþykkjum ekki
tillögur sem stofna
Japönum í hættu“
Tokyo, 31. janúar. AP.
GEORG P. Schultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, tjáði japönsk-
um ráðamönnum í gær, að Bandaríkin mvndu aldrei undirrita samn-
ing um minnkun kjarnorkuvopnabúra í Vestur-Evrópu, sem hefði í
för með sér að Sovétmenn myndu flytja kjarnorkuflaugar til Asíu og
beina þeim að skotmörkum þar. Japanir hafa haft þungar áhyggjur
af því að svo kynni að fara í kjölfar afvopnunarviðræðna, enda hafa
Rússar a.m.k. einu sinni nefnt þann möguleika að minnka eigin
vopnabúr í Vestur-Evrópu með þvf að flytja flaugar til Asíu.
Talsmaður bandaríska utanrík-
isráðuneytisins, John Hughes,
hafði í gær eftir Schultz að
„Bandaríkin hefðu stórt ábyrgð-
arhlutverk og myndu sinna því
eins vel og kostur væri. Og aldrei
myndu Bandaríkin hafa aðeins
hagsmuni Vestur-Evrópu að leið-
arljósi er afvopnunarviðræður og
samningar væru annars vegar."
Japan er fyrsta landið af þrem-
ur sem Schulz heimsækir í ferð
sinni um Asíu, hann fer síðan til
Kína og Suður-Kóreu. Sovétmenn
hafa gagnrýnt ferð ráðherrans
harðlega og sagt hana einungis til
þess að auka á spennu í afvopnun-
armálum. Hafa Sovétmenn marg-
lýst því yfir að undanförnu, að
þeir hafi áhyggjur af því sem þeir
kalla vaxandi hernaðarumsvif
Japana og Bandaríkjamanna í
Asíu, vitna m.a. í orð forsætis-
ráðherra Japans, Nakasone, í
ræðu sem hann flutti í Washing-
ton fyrir fáeinum dögum. Þar
sagði hann það ætlunina að gera
Japan að ósökkvanlegu flugmóð-
urskipi. Tass gerði orð Nakasone
fljótlega að umræðuefni og gaf í
skyn að slíkar áætlanir gætu gert
Japan að mikilvægu skotmarki ef
til kjarnorkustríðs kæmi. Hughes
sagði hins vegar: „Við látum
Rússa ekki æsa okkur upp, styrkur
okkar og áhrif hefur laðað fram
duldar og óduldar hótanir, en við
látum slíkt sem vind um eyru
þjóta.“
Bush og Kohl:
George Bush, t.v., og Helmut Kohl á blaðamannafundinum í fundarlok í gær.
Símamynd AP.
Shcharan-
sky þungt
haldinn
Tel Aviv, 31. janúar. AP.
SOVÉSKI andófsmaðurinn
Anatoli Shcharansky er þungt
haldinn eftir því sem móðir
hans sagði fréttamönnum í Tel
Aviv í gær, en hún fékk bréf
frá honum fyrir þremur dög-
um. Shcharansky, sem tekur
út 13 ára fangelsisdóm fyrir
meintar njósnir um þessar
mundir, var álitinn látinn fyrir
skömmu, en bréfið létti
áhyggjur manna á því.
Það kom hins vegar fram, að
hann er afar heilsuveill, en hann
hefur verið í hungurverkfalli
síðan í september. í slíkum til-
fellum er mat þröngvað ofan í
fólkið annan hvern dag, en
Shcharansky hefur fengið slíka
meðferð einungis þriðja hvern
dag. í bréfinu til móður sinnar
sagði Schcharansky að hann
þyrfti nauðsynlega á læknis-
aðstoð að halda.
Húsinu
stolið!
Lorain, Ohio, 31. janúar. AP.
TILLACK-hjónunum brá heldur
betur í brún í síðustu viku, er þau
vitjuðu húss sem þau áttu. Þau
höfðu ekki litið það augum í
nokkra mánuði, en hafa leigt það
út öðru hvoru í nokkur ár. En er
þau vitjuðu hússins fyrir nokkrum
dögum var búið að stela því!
Er Lawrenc Tillack leit þar við í
síðustu viku var ekkert eftir annað
en grunnur hússins og tveir gamlir
dívanar.
Jennifer Wooten, sem býr í
næsta húsi við hið horfna hús
Tillackhjónanna, sagði frétta-
mönnum að síðastliðið sumar
hafi allt verið í stakasta lagi, en
„síðan fór fólk að koma jafnt á
nóttu sem degi og láta greipar
sópa.“
Bætum við 572 meðaldræg-
um flaugum í V-Þýskalandi
— ef Sovétmenn koma ekki til móts við okkur“
Honn, 31. janúar. AP.
GEORGE Bush, varaforseti Bandarfkjanna og Helmut Kohl,
kanslari Vestur Þýskalands sögðu á sameiginlegum blaöa-
mannafundi í Bonn í gær, aö stjórnir iandanna væru ákveðn-
ar að halda við áform sín að koma fyrir 572 kjarnorkueld-
flaugum í Vestur Þýskalandi síðar á árinu ef Sovétmenn
samþykkja ekki að fjarlægja þær meðaldrægu eldflaugar sem
þeir beina að Vestur Evrópu. „Slík ákveðni veitir NATO styrk
til að sýna Sovétmönnum að þeir verða að koma til móts við
okkur,“ sögðu Bush og Kohl.
Kohl sagði einnig við þetta kjarnorkuvopna, myndu banda-
tækifæri, að vinátta, samvinna og rísk stjórnvöld að sjálfsögðu
sameiginlegt markmið NATO- leggja við eyrun ef Sovétmenn
ríkjanna væri sterkasta afl sem til kæmu með raunhæfar tillögur, en
væri gegn stríði. Bush tók engu að nú standa yfir viðræður stórveld-
síður fram, að þar sem Bandaríkin anna tveggja um þessi mál í Genf
legðu geysilega áherslu á fækkun í Sviss. Kohl gaf í skyn að lausn
Reagan lagði fjárlaga-
frumvarp fyrir þingið
gæti fengist sem fæli ekki endi-
lega í sér alhliða afvopnun í
Vestur-Evrópu þó svo að hann sé
stuðningsmaður „núll-leiðarinn-
ar“ sem Bandaríkjamenn hafa
lagt áherslu á. Aðalatriðið er að
lausn fáist sem tryggir að allir
standi jafnt að vígi,“ sagði Kohl.
„Núll-leiðin er sanngjörn lausn,
hvað gæti verið betra en að koma í
veg fyrir „nýja kynslóð" meðal-
drægra kjarnorkueldflauga, sagði
Bush. Þessu er Kohl fylgjandi þó
svo að skoðanakannanir í Vestur
Þýskalandi hafi bent til þess að
alþýða manna sé mótfallin því að
bæta fyrrnefndum 527 flaugum
við.
Bonn er fyrsti viðkomustaður
bandaríska varaforsetans á 12
daga ferð hans. Hann mun alls
heimsækja ráðamenn í 6 NATO-
ríkjum. Hann er að kynna afstöðu
Bandaríkjamanna, afla „núll leið-
inni“ fylgi.
Washington, 31. janúar. AP.
KJÁRLAÍiAFRUMVARP Ronalds Keagan Bandaríkjaforseta var lagt fyrir
Bandaríkjaþing í gær. Eru það lög upp á 848,5 milljarða dollara veltu. Fjárlaga-
áriö í Bandaríkjunum hcfst í október næstkomandi og er áætlaó aö hallinn á
fjárlögunum sem nú eru í gildi nemi 189 milljörðum dollara.
Þó er næsta fjárlagaár einmitt
árið sem Reagan spáði vaxandi
velgengni og hagnaði, „en við erum
að sigrast á vandanum," sagði for-
setinn í gær er hann lagði fram
frumvarpið. f frumvarpinu er gert
ráð fyrir talsvert meiri útgjöldum
en áður. Útgjöld til varnarmála og
hækkandi vextir munu taka til sín
alla hækkunina. Fyrir vikið mun
þrengja að á öðrum sviðum. Til
dæmis munu framlög í styrki, mat-
armiða og fleira í þeim dúr lækka,
tryggingar, ellilífeyrir og örorku-
bætur myndu lækka, auk þess sem
stórlega yrði dregið úr framlögum
til landbúnaðarmála, almennrar
menntunar og umhverfisverndar-
mála. Fleira mætti telja.
Á sama tíma munu útgjöld til
varnarmála hækka um 29,7 millj-
arða dollara, en það er 14 prósent
aukning frá síðasta fjárlagaári,
upphæðin færi í 238,6 milljarða
dollara. Efnahagsspá sem fylgir fjár-
lögunum gerir ráð fyrir 10,7 pró-
sent atvinnuleysi út þetta ár, en 9,9
prósent á næsta ári. Spáin telur að
tala atvinnulausra í Bandaríkjun-
um fari ekki niður fyrir þau 7,4 pró-
sent, sem voru atvinnulausir er
Reagan settist í forsetastólinn, fyrr
en árið 1987.
Víet-Namar her-
tóku flóttamanna-
búðir í Kampútseu
Aranyaprathet, Thailandi, 31. janúar. AP.
HERSVEITIR Víet-Nama náðu á sitt vald flóttamanna- og andspyrnu-
búðunum Nong ('han í Kampútseu, skammt frá landamærum landsins
og Thailands. 300.000 af íbúum búðanna flýðu yfir landamærin til
Thailands.
stað og síðustu vikurnar hafa
bardagar blossað upp.
Það eru einkum stuðningsmenn
Norodoms Sihanouk sem hafa
haft aðsetur í Nong Chan búðun-
um. Hann er nú staddur í Peking,
en fyrir skömmu hélt hann fund
með fulltrúum þriggja flokka út-
lagasamsteypustjórn þeirri er
hann veitir forstöðu, en hana
skipa auk Sihanouks og hans
stuðningsmanna, Rauðu Khmer-
arnir og fylgilið fyrrum forsætis-
ráðherrans Son Sann. Fundur
þeirra fór fram innan landamæra
Kambódíu.
Samkvæmt skýrslum thai-
lenskra heryfirvalda særðust 80
óbreyttir kampútseuborgarar, en
enginn lést fyrr en Víet-Namarnir
ráku flóttann yfir landamærin.
Féll þá einn Thailendingur og þrír
særðust er stórskotahríð Víet-
Nama buldi á thailenskum þorp-
um.
Nong Chan-búðirnar hafa verið
helsta vígi Kampútseumanna síð-
an árið 1979, er Víet-Namar réð-
ust inn í landið og mikill fjöldi
Kampútseumanna flýði yfir
landamærin til Thailands eða að
þeim. Síðan hafa skærur átt sér