Morgunblaðið - 01.02.1983, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR1. FEBRÚAR 1983
Benedikt Gutt’
ormsson fyrrv.
bankaútibús-
stjóri látinn
BENEDIKT Guttormsson, fyrrver-
andi bankaútibússtjóri, andaðist síð-
astliðinn sunnudag. Benedikt var
fæddur að Stöð í Stöðvarfirði 9.
ágúst árið 1899 og var því 83 ára er
hann lést.
Hann stundaði nám við Verzl-
unarskóla íslands 1921—22 og síð-
an í Danmörku og Þýzkalandi.
Benedikt tók við búi föður síns ár-
ið 1916 og rak það til ársins 1932.
Benedikt var einn stofnenda
Kaupfélags Stöðfirðinga árið 1931
og framkvæmdastjóri þess frá
1932 til 1939. Hann var banka-
stjóri við útibú Landsbanka Is-
lands á Eskifirði 1939—1958 og
fulltrúi bankastjóra Búnaðar-
banka íslands 1958—1959 og
gegndi bankastjórastörfum þar
1958—1959. hann fékkst um skeið
við kennslu með öðrum störfum og
gegndi fjölmörgum trúnaðarstörf-
um fyrir hið opinbera.
Eftirlifandi eiginkona Bene-
dikts er Fríða Austmann.
Haraldur Gísla-
son framkvœmda-
stjóri látinn
HARALDUR Gíslason fram-
kvæmdastjóri Sambands sveitarfé-
laga á Suðurnesjum er látinn, 54 ára
að aldri.
Hann var fæddur í Reykjavík
28. september árið 1928, sonur
Hlínar Þorsteinsdóttur og Gísla
Jónssonar kaupmanns og alþing-
ismanns. Haraldur lauk stúd-
entsprófi frá Menntaskólanum í
Reykjavík árið 1950 og prófi í
viðskiptafræðum frá Boston Uni-
versity í Bandaríkjunum árið
1955. Hann stundaði síðan fram-
haldsnám í stjórnvísindum og
hagræðingu í Bandaríkjunum.
Hann var framkvæmdastjóri
Gísla Jónssonar og Co. og Bif-
reiða- og landbúnaðarvéla
1956—'59 og starfaði síðan hjá
bandaríska sendiráðinu til 1965.
Hann rak bókhaldsskrifstofu í
Reykjavík um tíma en réðst sem
sveitarstjóri til Vopnafjarðar árið
1967 og gegndi því starfi fram til
ársins 1974.
Haraldur var sveitarstjóri i
Garði 1974—’78 og framkvæmda-
stjóri Sambands sveitarfélaga á
Suðurnesjum frá 1974—'78. Hann
gegndi ýmsum trúnaðarstörfum
fyrir Kiwanis-hreyfinguna.
Eftirlifandi kona Haraldar er
Björg Ingólfsdóttir.
ættiröu aö kynna þér
Daihatsu Charade
DAIHATSU CHARADE er löngu oröinn
einn vinsælasti bíllinn á markaönum í
dag. Nálægt 1700 Daihatsu Charade
eigendur finna í dag lítiö fyrir hinu gífur-
lega háa benzínveröi, því þeirra bíll eyöir
aöeins 7—8 lítrum á hundraöiö í innan-
bæjarkeyrslu. Ef þú finnur illa fyrir dýru
benzíni, ættiröu aö slást í hóp þeirra sem
eiga DAIHATSU CHARADE.
Auk þess aö vera einn sparneytnasti bíll-
inn á markaönum er CHARADE þekktur
fyrir snerpu, þægindi og afslöppun í
akstri. Hann er 5 manna framhjóladrifinn
fjölskyldubíll, með 3—5 hurðir, aftursæti
sem hægt er aö leggja niöur í heilu eöa
hálfu lagi. Hann er sérlega hannaöur
meö öruggi ökumanna og farþega fyrir
augum.
Þú getur fengiö hann sjálfskiptan eöa
4ra—5 gíra í fjölbreyttu litaúrvali, utan
sem innan.
Hann er líka einn seljanlegasti notaöi
bíllinn á markaönum, spuröu næsta bíla
sala um þaö.
Spuröu líka einhvern sem á DAIHATSU
um þjónustuna hjá okkur á verkstæði
og varahlutum.
Líttu svo viö og kannaöu greiösluskil-
málana og settu gamla DAIHATSUINN
þinn uppí.
DAIHATSUUMBOÐIÐ, Ármúla 23. 8S870 - 81733.