Morgunblaðið - 01.02.1983, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 1983
7
Fáksfélagar
Mætum í félagsheimilinu fimmtudaginn 3. febrúar kl.
20.30. Heiðar Jónsson, snyrtir kemur og leiöbeinir
um vetrarsnyrtinguna og fleira. Kaffiveitingar.
Kvennadeild Fáks.
Hestamenn
Nokkur hross, sem hafa verið á Ragnheiö-
arstööum undanfariö, en eru nú í hesthús-
um félagsins í Reykjavík og eigendur hafa
ekki skipt sér af um nokkurn tíma, veröa
afhent borgarfógeta til sölu og ráöstöfun-
ar, ef eigendur gefa sig ekki fram næstu
daga, eöa fyrir 5. febrúar 1983.
Sótrauð blesótt hryssa, og bleikálótt folald, brúnn hestur, leirljós
hestur, sótrauður blesóttur hestur með Ijóst fax, grár hestur,
rauðglófext stjörnótt hryssa, veturgömul jafnstjörnótt hryssa, rauð
hryssa, grár veturgamall hestur.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins næstu daga kl. 13—18,
sími 30178 eða 33679.
Hestamannafélagið Fákur.
ARMAPLAST
Brennanlegt og tregbrennanlegt.
Sama verð.
Steinull — glerull — hólkar.
Armúla 16 sími 38640
þTþorgrímsson & CO
Verðbólguspár
og megin-
markmið
Öll meginatriði bráða-
birgðalaganna eru komin
til framkvæmda — en hver
er árangurinn, sem vera
átti verðbólguhjöðnun?
Eftir fískverðshækkun og
tilheyrandi gengislækkun
gerði Þjóðhagsstofnun ráð
fyrir 60—65% verðbólgu
frá upphafi til loka líðandi
árs, samkvæmt vcnju-
legum framreikningi.
Stjórnarsáttmálinn hét
hinsvegar sama verðlags-
stigi hér strax árið 1982 og
í helztu viðskiptalöndum
okkar.
Viðskiptahallinn nam á 2
sl. árum 17% af þjóðar-
framleiðslu. Greiðslubyrði
erlendra langlána verður
25% af útflutningstekjum
1983 (var 13,3% 1978).
Undirstöðuatvinnuvegir,
sem búið hafa við langvar-
andi taprekstur, eru að
sigla inn í samdrátt, stöðv-
un og atvinnuleysi. lnn-
lendur heildarsparnaður,
sem var um 25% af þjóðar-
framleiðslu fyrir 2 árum, er
kominn niður fyrir 19%.
fjárfesting í atvinnuvegun-
um hefur dregizt saman og
framleiðni þeirra minnkað.
Stöðnun ríkir í þjóðar-
framleiðslu og þjóðartekjur
skreppa saman. Þrátt fyrir
það vaxa rikisútgjöldin og
skattheimtan meir en
nokkru sinni. Og verðbólg-
an stefnir í áður óþekktar
ha-ðir eftir vegum „niður-
talningar", sem kemur
m.a. fram í hækkun vöru-
gjalds og verðjöfnunar-
gjalda.
„Meginvcrkefni ríkis-
stjórnarinnar er að treysta
íslenzkt efnahags- og at-
vinnulíf, en er það ein
helzta forsenda fyrir
sjálfstæði þjóðarinnar,"
segir í stjórnarsáttmálan-
um fræga. Hún hefur fjar-
lægst þetta „meginmark-
mið“ með Ijóshraða sl. 3
ár.
VERÐBÓLGA1960-1983
%
60
50
40
30
20
10
0
Vörugjaldiö og verðbólgan
Bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar fela í sér tvo meginþætti:
skerðingu verðbóta á laun og hækkun vörugjalds. Hækkun vöru-
gjaldsins á gildistíma laganna (6 mánuðum) sam svarar fimm- til
sexföldum þeim láglaunabótum sem út voru greidd í desember
eða nálægt tvöfaldri þeirri fjárhæð, sem ríkisstjórnin ráðgerir að
greiða samtals á árinu 1982 og 1983. Framkvæmd láglaunabót-
anna er síðan sérkafli um pólitískt vinnuvit. Og veröbótaskerð-
ingin og vörugjaldshækkunin eru líka dæmigerð um vinnubrögð
Alþýðubandalags og Framsóknarflokks til að „telja niður verð-
bólguna“, „vernda kaupmáttinn" og koma því heim og saman að
„kosningar séu kjarabarátta"!
Stöðvunarvald
kommúnista
Sverrir Hermannsson,
alþingismaður, sagði m.a. í
áramótagrein í blaðinu
Þingmúla:
„Haft var á orði í upp-
hafinu að stjórnin væri
m.a. mynduð til að bjarga
heiðri Alþingis. Ríkis-
stjórnin er svartasti blett-
urinn í íslenzkri þingra-ð-
issögu þessarar aldar. Hún
var mynduð neðanjarðar
og nú er rétt bráðum að því
komið að hún hverfi til
uppruna síns. Það er hið
mikilvægasta að stjórn-
málamcnn láti sér þessa
reynslu að kenningu verða.
Og umfram allt ber að
leggja áherzlu á að slóði
úlfúðar og sundurþykkju
þessa vegna verði höggv-
inn frá pólitískri forystu
framtíðarinnar. f öndverðu
gaf ríkisstjórnin út hláan
bækling sem hét „Stjórn-
arsáttmáli" og inniheldur
stefnuskrá hennar. Þetta
er núoröið, og var það
raunar strax, makalausasti
samsetningur einhver sem
sézt hefir á prenti og er þá
langt til jafnað. Óhætt er
aö fullyrða aö enginn
stjórnarsinni hefir kjark til
að líta á þennan „sátt-
mála" hvað þá meir. Þó
vantar í þennan “sátt-
mála" það sem út yfir tók:
Samkomulagió um
stöðvunarvald kommúnista
í öllum meiriháttar málum,
þar meö töldum utanrík-
ismálum. Um það var sam-
ið bak luktun dyrum, neð-
anjarðar, þar sem handsöl
fóru fram og eiðar gengu.
Þarna lögðust lýðræðis-
sinnar lægsL Þama voru
völd keypt viö pólitískri
æru."
TSíúamalka^uiLnn
s^-iettifýötu 12-18
OAIHAT8U RUNABOUT 1982
Rauöur, ekinn 15 þús., snjó- og
sumardekk. Verö 155 þús.
PEUGÉOT 505 SRD
TURBO 1982
Hvítur, ekinn 85 þús., 5 gíra, diesel
vél, útvarp, segulband, snjó- og
sumardekk, topplúga, rafmagn í rúö-
um. Verö 320 þús.
MAZDA 323 1500 1902
Qrásans, ekinn 5 þús. Verö 170 bús.
CITROÉN GSA
PALLAS 1982
Grár, ekinn 19 þús., útvarp, snjó- og
sumardekk. Verö 195 þús.
SUBARU 4x4 1980
Blár, eklnn 48 þús., útvarp, segul-
band. Verö 155 þús.
MAZDA 929 LIM. 1982
Blár, ekinn 12 þús., aflstýri, álfelgur,
sóllúga, rafdrifln í læsingum og rúö-
um. Verö 235 þús.
M. BENZ 240 D 1975
Hvitur, dlesel, útvarp og segulband.
Verö 125 þús.
PEUGÉOT 104 GR 1982
Ljósblár, ekinn 12 þús., framdrifsbill.
Verö 155 þús.
Opnum
nýja
!jós-
mynda-
stofu
1. febr.
Tökum barnamyndir, fermingarmyndir,
brúðar- og fjölskyldumyndir.
Ljósmyndastofa Garðabæjar
Iönbúð 4, sími 46960
Askriftarsímmn er 83033