Morgunblaðið - 01.02.1983, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 1983
íslenska hljómsveitin
Tónlist
Egill Friðleifsson
Það vakti mikla athygli meðal
menningarsinna er íslensku
hljómsveitinni var hleypt af
stokkunum sl. haust. Og þá ráku
menn ekki síður upp stór augu er
forráðamenn hljómsveitarinnar
lýstu því yfir, að ætlunin væri að
reka hljómsveitina án opinberra
styrkja en samt greiða öllum laun
samkvæmt taxta, enda yfirlýstur
tilgangur hljómsveitarinnar að
gefa ungu fólki tækifæri til að
spila og lifa af list sinni. Gerðust
ýmsir vantrúaðir á að þessi djarfa
fyrirætlun fengist staðist. En efa-
semdamennirnir höfðu sem betur
fer rangt fyrir sér. Draumurinn
hefur staðist próf raunveruleik-
ans. Almenningur hefur tekið
hljómsveitinni mjög vel og jafnan
er húsfyllir á tónleikum hennar.
Nú er fyrsta starfsár hljómsveit-
arinnar hálfnað og í efnisskrá má
lesa að allar áætlanir hafi staðist
og ekki aðeins það. Þar er einnig
að finna upplýsingar um fyrirhug-
aða tónleikaferð hljómsveitarinn-
ar til Svíþjóðar á sumri komanda.
Það munar ekki um það. Þetta er
kallað fljúgandi start á máli
hlaupara, sem eru að flýta sér. fs-
lenska hljómsveitin efndi til all
sérstæðra tónleika í Gamla bíói sl.
laugardag. „Tónleikar" er ef til vill
ekki rétta orðið yfir þessa sam-
komu. „Kabarett á listrænu plani"
væri nær að nefna það. Hugmynd-
in að allsherjarlistaverki er ekki
ný og er gjarnan vitnað í Wagner í
því sambandi. En þarna kenndi
ýmissa grasa og mörgum list-
greinum raðað saman undir yfir-
skriftinni „Tónlistin — þjónn list-
anna“.
Samkoman hófst á því að
hljómsveitin, sem að þessu sinni
var staðsett í hljómsveitargryfj-
unni, lék þrjú intermezzi eftir
Claudio Monteverdi undir rögg-
samri stjórn Guðmundar Emils-
sonar, sem virðist vaxa ásmegin
með hverjum konsert.
Næst gat að heyra sjaldgæft
listform. Þrjár svokallaðar melo-
dramaballöður, ljóðaframsögn
með píanóundirleik, og var tónlist-
in eftir þá Schubert, Schumann og
Liszt er Anna Málfríður Sigurðar-
dóttir lék af þokka. Framsögn
Samþykkt aÖ
koma á fót emb-
ættismannanefnd
Á FUNDI í Kaupmannahöfn hinn
25. janúar ’83, þar sem mættir voru
fulltrúar frá íslandi, Færeyjum og
Grænlandi, í því skyni að ræða fram-
tíðarsamvinnu landanna urðu menn
sammála um að halda áfram slíkum
óformlegum fundum stjórnmála-
manna frá þessum þremur löndum.
Allir voru sammála um að gagn-
leg væri formlegri samvinna og
mönnum kom saman um að setja á
fót nefnd embættismanna frá
þessum þremur löndum til þess að
móta tillögur að reglum um form-
legri samvinnu.
Þegar þessar tillögur lægju
fyrir myndu stjórnmálamennirnir
hittast aftur til framhaldsvið-
ræðna.
Fundinn sátu af íslands hálfu
alþingismennirnir Páll Pétursson,
Sverrir Hermannsson og Stefán
Jónsson. Frá Grænlandi: Jona-
than Motzfeldt, landstjórnarfor-
maður, Lars Emil Johansen, at-
vinnumálaráðherra, Moses Olsen,
félagsmálaráðherra, Emil Abel-
sen, ráðuneytisstjóri sjávarút-
vegsmála, Lars Vesterbirk, skrif-
stofustjóri, Johan E. Jensen, ráðu-
neytisstjóri. Frá Færeyjum: Jogv-
an Sundstein, lögþingsformaður,
Atle Dam, lögþingsmaður, Anton
Nilsen, lögþingsmaður, Erlendur
Paturson, lögþingsmaður, Agnar
Nilsen, lögþingsmaður, Johan J.
Djurhus, skrifstofustjóri.
hafði Sigurður Skúlason á hendi
og hefði ég vel getað hugsað mér
rismeiri flutning, en ljóðaþýð-
ingar gerði Böðvar Guðmundsson.
Það þarf engan að undra að þetta
listform hefur ekki náð teljandi
útbreiðslu. Slíkir eru yfirburðir
sönglagsins gagnvart ljóðaflutn-
ingi af þessu tagi.
„Stúlkan og risinn" nefndist
brúðulátbragðsleikur eftir Helgu
Steffensen er hér var frumfluttur
við tónlist Miklos Maros, Diverti-
mento frá árinu 1976. Ég tel mig
þess ekki umkominn að gefa um-
sögn um brúðulátbragðsleik. Vil
aðeins taka fram að ég hafði
ánægju af tilburðum risans við að
tjá stúlkunni ást sína. Risinn var
hrjúfur á yfirborðinu, eins og
tónlist Miklos Maros, en var þó
aðlaðandi eins og tónlistin. Þannig
féllu þessi listform ágætlega sam-
an.
„Pacific 231“ nefnist kvik-
myndatónlist eftir Arthur Hon-
egger, sem hér var ágætlega flutt
af íslensku hljómsveitinni og um
leið horfðum við á samnefnda
kvikmynd eftir Jean Mitry, sem
hlaut verðlaun í Cannes árið 1949.
Venjuleg örlög kvikmyndatónlist-
ar eru þau, að hún gleymist um
leið og hætt er að sýna myndina.
En stöku sinnum lifir hún af og
svo er um Pacific 231 Honeggers.
Þannig hef ég oft heyrt tónlistina
Skúli Halldórsson
áður en sá nú myndina í fyrsta
sinn. Mér fannst hún frábær. Þeg-
ar saman fer góð tónlist og jafn
snjöll myndataka og klipping
verður útkoman heilsteypt,
13
áhrifamikið og spennandi lista-
verk.
Næst birtist á sviðinu Sieglinde
Kahmann og söng tvær óperuarí-
ur eftir Puccini með glæsibrag,
enda ákaft fagnað af áheyrendum.
Samkomunni lauk svo með því að
frumfluttur var ballettinn „Hrif“
við tónlist Skúla Halldórssonar.
Tónmál hans er hefðbundið, ein-
falt og með þjóðlegu ívafi. Skúli
notar m.a. nokkur þekkt stef úr
sönglögum sínum í þessari svítu,
sem sver sig mjög í ætt við fyrri
verk hans af svipuðum toga. Ég er
ekki fær um að dæma frammi-
stöðu dansaranna í þessum ball-
ett. En vissulega var það augna-
yndi að sjá þessar dísir ásamt
Erni Guðmundssyni flögra um
sviðið eins og fiðrildi. Af þessum
pistli má ráða að víða var komið
við á þessum listræna kabarett í
Gamla bíói sl. laugardag.
ÖRBYLGJUOFN eykur
f rítímann.
R-5000 VERÐKR. 7.970.-
R-6950 VERÐKR. 10.280.-
R-7000 VERÐ KR. 13.000.-
R-8000 VERÐ KR. 14.950.-
Eignist þú SHARP örbylgjuofn
færðu aukin frítíma.
Matartilbúningurinn tekur ólíkt
skemmri tíma, — maturinn heldur
betur í sér bragði og vítamínum
og verður bragðbetri og safameiri.
Snúningsdiskurinn hitar matinn jafnt og
gefur honum fallegra yfirbragð.
ÚTSÖLUSTAÐIR: Portlö. Akranesi — KF Borgf Borgarnesi —
Verls Inga, Hetlissandi — Patróna. Patreksfiröi — Sería. Isafiröi —
Sig. Pálmason, Hvammstanga — Alfhóll, Siglufiröi — Cesar, Akureyri —
Radíóver. Húsavík — Paloma. Vopnafiröi — Ennco, Neskaupsstaö —
Stálbúöin, Seyöisfirði — Skógar. Egilsstööum — Djúpiö. Djúpavogi —
Hombær. Hornafiröi — KF. Rang. Hvolsvelli — MM. Selfossi —
Eyjabær, Vestmannaeyjum — Rafeindavirkinn. Grindavík — Fataval. Keflavík.
HUÐM*HEIMILIS*SKRIFSTOFUTÆKI HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999
SHARP örbylgjuofn
er auðvelt að
meðhöndla og þrífa.
Örbylgjuofn er heimilistæki
sem verður ómissandi