Morgunblaðið - 01.02.1983, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 1983
19
JíeltrJíorkStmeð
Genscher
Genscher að skírskota til Franz
Josef Strauss, hins hægri sinnaða
leiðtoga CSU, sem er bræðraflokk-
ur kristilegra demókrata í Bayern,
en talið er víst, að Strauss hafi hug
á taka við af Genscher sem utan-
ríkisráðherra Sambandslýðveldis-
ins.
Genscher sakaði jafnaðarmenn
ennfremur um að vera reiðubúna
til þess að fallast á einokun Rússa
á meðaldrægum eldflaugum, sem
miðað væri á Vestur-Evrópu. En
samtímis neyddu jafnaðarmenn
NATO til þess að hætta við aðgerð-
ir sínar til að mæta þeirri hótun,
sem af þessum eldflaugum stafaði.
„Slíkt mun ekki skapa skilyrði
fyrir friði í Evrópu," sagði Gensch-
er, „en verður til þess að slíta
Vestur-Evrópu úr tengslum við
Bandaríkin".
Vesturþýzki utanríkisráðherr-
ann var á meðal þess meiri hluta af
400 þingfulltrúum í Freiburg, sem
samþykktu tillögu um, að skýrt
yrði frá því opinberlega, hvar í
landinu fyrirhuguðum eldflaugum
af gerðinni Pershing II svo og
stýrieldflaugum yrði komið fyrir.
Til þessa hefur ríkisstjórnin ekki
hvikað frá að halda þessu leyndu
til þess að koma í veg fyrir sams
konar mótmælaaðgerðir og átt
hafa sér stað á Ítalíu og í Bretlandi
gegn sams konar eldflaugum.
Aðeins 27 af fulltrúunum á
flokksþinginu voru andvígir til-
lögu, sem borin var upp um áfram-
haldandi stjórnarsamstarf með
kristilegum demókrötum.
í sama mund og þessu þingi
flokksins var að ljúka, voru kunn-
gerð úrslit skoðanakönnunar, sem
blaðið Welt am Sonntag gekkst
fyrir og samkvæmt henni nýtur
FDP stuðnings 4,8% kjósenda,
CDU/CSU 45,1%, jafnaðarmenn
44,4% og græningjarnir 5,2%.
Þetta sýnir aukningu á fylgi FDP,
en fram að þessu hefurflokkurinn
aðeins haft fylgi 3—4% kjósenda.
Flokkurinn þarf að fá 5% af
greiddum atkvæðum til þess að fá
mann kjörinn á Sambandsþingið.
Margir stjórnmálafréttaritarar
halda því fram, að taka beri vara
fyrir öllum skoðanakönnunum á
þessu stigi, þar sem óvenjulega
margir Vestur-Þjóðverjar hafa
ekki tekið ákvörðun enn þá, hvaða
flokk þeir hyggjast kjósa. Þannig
höfðu 18,8% aðspurðra í skoðana-
könnun Welt am Sonntag ekki enn
ákveðið hvað flokk þeir hyggjast
styöja í kosningunum 6. marz.
Asjóna mannkynsins
hefur verið svívirt
— sagöi Kohl, er hann minntist valdatöku Hitlers
Vestur-Berlín og Tel Aviv, 31. janúar. AP.
HELMUT KOHL, kanslari Vestur-
Þýzkalands og Willy Brandt, leiðtogi
jafnaðarmanna þar í landi voru sam-
mála um það við opinbera athöfn í
Vestur-Berlín á sunnudag, þar sem
minnzt var valdatöku Adolfs Hitlers
fyrir 50 árum, að Þjóðverjar hlytu að
bera ábyrgð á fortíðinni. „Asjóna
mannkynsins hefur verið svívirt í
nafni Þýzkalands", sagði Kohl við
athöfnina, sem fór fram í hinu forna
ríkisþinghúsi, er stendur í Vestur-
Berlín aðeins steinsnar frá Berlín-
armúrnum. Hann skoraði á þjóð
sína að gleyma ekki orsökum og af-
leiðingum einræðisstjórnar nazista.
„Gleymskan er erkióvinur fram-
tíðarinnar", sagði Willy Brandt
við sama tækifæri, þar sem hann
skoraði á Þjóðverja að gleyma
ekki fortíðinni. Hann sagði enn-
fremur, að það sem gerðist, hefði
ekki þurft að gerast. Nær allt, sem
gerðist eftir 30. janúar 1933, hafði
verið boðað fyrirfram af Hitler.
En það var ekki nóg til þess að fá
lýðræðisöflin í landinu, sem þá
voru klofin af innbyrðis deilum, til
þess að sameinast gegn nazistum.
Tugir þúsunda manna söfnuðust
saman í fjöldagöngum víðs vegar
um Vestur-Þýzkaland á sunnudag
og báru borða og skilti, þar sem á
var letrað: „Aldrei aftur fasisma".
Bretland:
David Martin í
hungurverkfalli
Lundúnum, 31. janúar. AP.
DAVID Martin, mest eftirlýsti maður
Bretlands áður en hann náðist í síð-
astliðinni viku, hóf hungurverkfall í
dag, þar sem hann sagði að lögreglan
hefði meinað honum að hitta fyrrver-
andi sambýliskonu sína.
„Hann segist hvorki munu
drekka né borða þar til hann hefur
fengið að hitta hana,“ sagði lög-
maður hans í dag, en haft er eftir
heimildum innan lögreglunnar að
hún hafi leitt hann í gildru lögregl-
unnar í síðastliðinni viku, þegar
hann var handtekinn.
í ísrael var dagsins minnzt sem
hins mesta óheilladags í allri sögu
Gyðinga.
Handsprengju var varpað að
vesturþýzka sendiráðinu í Tel
Aviv á sunnudagskvöld, án þess þó
að nokkur slys hlytust af.
Veður
víða um heim
Akureyri 6 skýjað
Amslerdam 7 rígning
Aþena 15 heiðakírt
Barcelona 14 léttskýíað
Berlin 5 skýjaó
Bruaaal 7 skýjað
Chicago 0 skýjað
Dublin 5 heiðskírt
Feneyjar 10 léttskýjaö
Frankfurt 9 rigning
Færeyjar 2 alskýjaó
Gant 10 rigning
Helsinki +5 heióskírt
Hong Kong 16 skýjaö
Jerúsalem 12 heiðskírt
Jóhannesarborg 31 rigning
Kaupmannahöfn 5 rígning
Kairó 19 skýjaö
Las Palmas 20 skýjað
Lissabon 7 rigning
London 10 rigning
Los Angeies 17 heiöskírt
Madrid 20 heiöskírt
Mallorca 15 skýjaö
Malaga 24 léttskýjað
Mexíkóborg 26 heiöskirt
Miami 24 heiöskírt
Nýja Delhí 19 skýjaö
New York 7 skýjað
Ósló 0 heiðskírt
Parfs 10 rigning
Peking 3 heiöskírt
Perth 24 skýjaö
Reykjavík +5 alskýjaö
Rio de Janeiro 38 heiöakirt
Rómaborg 16 skýjaö
San Francisco 14 heiöakirt
Stokkhólmur 1 skýjaö
Sydney 27 heiðskírt
Tel Aviv 16 heiöakírt
Tókýó 11 heiöskírt
Vancouver 9 rigning
Skíðabúnaður
hinna vandlátu
AÐRIR ÚTSÖLUSTAÐIR:
Pípulagningarþjóniistan
Akranesi
Spurtvörubúdin
Keflavík
Kaupfélag Borgfíróinga
Borgarnesi
kaupfélag Borgfíröinga
Ólafsvík
Versl. Húsið
Stykkishólmi
Sporthlaöan
ísafirði
Verslun Kinars
Guðfínnssonar hf.
Bolungarvík
Kaupfélag Húnv
Blönduósi
Gestur Fanndal
Siglufirði
Kaupfélag Skagfírðinga
Sauðárkróki
Kaupfélag Fyfírðinga
Ólafsfirði
Kaupfélag v/Barð-
strendinga
Bíldudal Patreksfirði
Jón llalldórsson
Dalvík
Viðar Garðarson
Akureyri
Kaupfélag Fvfírðinga
Akureyri
Bókaverslun Pórarins
Stefánssonar
Húsavík
Steingrímur Sæmundsson
Vopnafirði
Verslunin Skógar
Egilsstöðum
Verslunin Þór
Fáskrúðsfirði
FISCHER hafa skíði við
hæfi hvers cg eins.
Gönguskíði og svigskíði
handa byrjendum og
kunnáttufólki, börnum
unglingum og fullorðn-
um.
FISCHER skíði árangur
og ánægja.
TYROUAt
TOTAL
DIAGONAL
TOTAL DIAGONAL
skíðabindingar eru
einkaleyfisvernduð nýj-
ung sem veitir skíðafólki
meira öryggi en áður
DACHSTEIN skíða-
skórnir austurrísku eru
þekktir um víða veröld
fyrir öryggi, þægindi,
smekklega hönnun og
frábæra einangrun gegn
kulda.
Einkaumboð á (slandi
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8
REINALTER OG AIR
BALANCE er skíðafatn-
aður sem stenst ströng-
ustu kröfur um útlit og
gæði.