Morgunblaðið - 01.02.1983, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 1983
23
Gömlu stórveldin
eru nú á botni
deildarinnar
ÍR náði KR að stigum á sunnudaginn
„Viö spiluöum ekki vel allan
tímann. Viö verðum aö ná jafnari
leikjum, og þeir næstu hjá okkur
eru geysilega mikílvægir. Viö
mætum Njarðvík og Fram um
næstu helgi og það eru lykilleikir
okkar í mótinu," sagöi Jim Dool-
ey, þjálfari ÍR, eftir leik liösins viö
KR í Hagaskólanum á sunnudag-
inn. Leikurinn var ekki eins
skemmtilegur eins og við mátti
búast, og náðu ÍR-ingar sér ekki
eins vel á strik og gegn Val á
dögunum. ÍR sigraöi þó — 87:72
— og það var aöeins í fyrri hálf-
leik sem KR-ingar höföu forystu,
og náðu þeir ekki að ógna sigrin-
um aö neinu ráöi.
Sá grunur læddist aö manni að
leikmenn ÍR vanmætu KR-ingana í
upphafi leiksins. Þeir höföu alls
ekki efni á því aö vera ekki meö
hugann viö leikinn, og KR tók for-
ystu fljótlega. Sóknarleikur ÍR-inga
var hroöalega slakur í upphafi og
nýtingin afleit. Sókn KR var öllu
skárri þó ekki væri neinn glæsi-
bragur yfir henni.
Uþp úr miöjum fyrri hálfleiknum
voru ÍR-ingar komnir yfir aftur og
héldu forystunni allt til loka leiks-
ins. í hálfleik var staöan 34:28 fyrir
ÍR og haföi Stu Johnson þá skoraö
18 af stigum KR. Ekki mikil breidd-
in á þeim bæ eins og vel kom fram
í lokin, en þá kom í Ijós aö Stu
haföi gert 42 af stigum KR og Jón
Sigurðsson 18. Aðrir leikmenn
liösins geröu því samtals 12 stig.
Hjá ÍR var breiddin mun meirl.
Gylfi Þorkelsson var mjög góöur í
leiknum, hirti mikiö af fráköstum
og baröist af krafti bæöi í vörn og
sókn. Kristinn Jörundsson var
góöur og Kolbeinn Kristinsson
einnig — skoraöi fallegar körfur
utan af velli og hvatti sína menn
óspart.
Geysileg barátta er nú fram
undan á botni úrvalsdeildarinnar,
en KR og ÍR eru nú jöfn aö stigum
— hvort lið meö átta stig. Fram er
meö tíu stig þannig aö öll þessi lið
geta falliö.
Stigin:
ÍR: Kristinn Jörundsson 19,
Hreinn Þorkelsson 16, Gylfi Þork-
elsson 16, Kolbeinn Kristinsson
14, Pétur Guömundsson 13, Jón
Jörundsson 7, Hjörtur Oddsson 2.
KR: Stu Johnson 42, Jón Sigurös-
son 18, Páll Kolbeinsson 6, Jón
Pálsson 4, Birgir Guöbjörnsson 2.
— SH.
Stjörnugjöfin
ÍBK:
Þorsteinn Bjarnason ★ ★★
Björn V. Skúlason ★ ★
Axel Nikulásson Fram: ★ ★
Guösteinn Ingimarsson ★ ★
Ómar Þráinsson ★
ÍR:
Gylfi Þorkelsson ★ ★★
Kristinn Jörundsson ★ ★
Kolbeinn Kristinsson ★ ★
Pétur Guðmundsson ★ ★
Hreinn Þorkelsson KR: ★
Jón Sigurösson ★ ★★
Morgunblaöid/Krittján Einarsson
• Jón Sigurösson átti frábæran leik meö KR — sérstaklega er líöa tók
á leikinn og skoraöi fallegar körfur. Þá lék hann félaga sína — sér-
staklega Stu Johnson — fallega uppi og hér er hann í þann mund að
senda knöttinn til Stu eftir að hafa platað ÍR-inga.
Morgunblaðið/ KEE
• Þorsteinn Bjarnason er viö öllu búinn, einbeittur á svip, en Val Brazy er ekkert á þeim buxunum að láta
knöttinn af hendi. Þorvaldur Geirsson fylgist álengdar meö.
ÍBK hélt Fram alltaf
í hæfilegri fjarlægd
— öruggur sigur Suðurnesja-
mannanna að lokum 87—77
KEFLVÍKINGAR undirstrikuöu
með sannfærandi sigri sínum,
87—77, gegn Fram í úrvalsdeild
íslandsmótsins í körfuknattleik í
Hagaskólanum á sunnudags-
kvöld, aö þeir eiga eftir aö veröa
Valsmönnum skæöir keppinautar
í baráttunni um íslandsmeistara-
titilinn. Þótt Framarar hafi allan
tímann veitt Keflvíkingum verö-
uga keppni þrátt fyrir þá staö-
reynd aö Símon Ólafsson lék ekki
meö, hafði maður einhvern veg-
inn á tilfinningunni aö sigurinn
gæti ekki fallið nema öðru liöinu I
skaut, nefnilega ÍBK.
Suðurnesjamennirnir hófu leik-
inn af miklum krafti og komust í
22—12 eftir tæpar átta mínútur,
en Framarar bitu á jaxlinn og
minnkuöu muninn jafnt og þétt þar
Dregið var til fimmtu umferöar
ensku bikarkeppninnar í gær.
Heppnin hefur ekki yfirgefiö
Stu hættur að
þjálfa KR
Eftir leikinn viö Fram í síöustu
viku var Stu Johnson látinn
hætta sem þjálfari úrvalsdeildarl-
iðs KR í körfuboltan. Jón Sig-
urðsson tók við starfi Stu, og var
fyrsti leikur KR-inga undir hans
stjórn gegn ÍR. Stu mun leika
áfram með liðinu þó hann sjái
ekki um þjálfunina. —SH.
til þeim tókst aö jafna metin,
24—24. Keflvíkingarnir gáfust ekki
upp og náöu frumkvæöinu á nýjan
leik og héldu því allt til loka fyrri
hálfleiksins og leiddu i leikhléi
41—39.
Gestirnir hófu síöari hálfleikinn á
nákvæmlega sama hátt og þann
fyrri, náöu 10 stiga forskoti fljótt,
53—43, og þar við sat. Frömurum
tókst aldrei aö ógna þessari for-
ystu þeirra að ráöi þrátt fyrir góöa
tilburöi Guösteins Ingimarssonar,
sér í lagi, og þegar flautaö var til
leiksloka höföu bæöi liö bætt viö
sig 34 stigum.
Brad Miley var yfirburöamaöur á
vellinum í þessum leik. Hann var
meö því sem næst 74% sóknarnýt-
ingu og stóö sig frábærlega vel í
vörninni, blokkeraöi hvaö eftir
annaö skot Framaranna. Þótt
meistara Liverpool, en meö ólík-
indum er hve heppnir þeir eru
þegar dregiö er í keppnum sem
þessum. Drátturinn lítur þannig
út:
Everton — Tottenham
C. Palace — Burnley
Derby — Man. Utd.
Middlesbro — Arsenal eða Leeds
Aston Villa — Watford eöa Fulham
Coventry eöa Norwich — Ipswich
Cambridge — Sheff. Wednesday
Liverpool — Brighton
Tottenham stefnir nú aö sigri í
keppninni þriöja áriö í röö, en róö-
urinn veröur örugglega erfiöur fyrir
liðið á Goodison Park í Liverpool.
Liverpool ætti að vera öruggt
áfram gegn Brighton.
„kaninn" í liði Fram, Val Brazy, hafi
skorað 40 stig er ekki hægt aö
horfa framhjá þeirri staöreynd, aö
nýting hans var aðeins 53% í sókn-
inni og varnarleikur hans er miklu
lakari en Miley.
Þorsteinn Bjarnason sýndi stór-
skemmtilega takta í leiknum og
nálgast óöum landsliösform. Þá
lék Björn Vikingur mjög vel, svo og
Axel, þótt hittnin hjá honum hafi
ekki verið nema 50%. Jón Kr.
Gíslason var alveg heillum horfinn,
en kunnugir segja þetta venju hjá
honum í Hagaskólanum, sem hon-
um er í nöp viö fyrir einhverjar sak-
ir. Hann skoraöi aðeins 6 stig og
var með 23% nýtingu. Pétur
Jónsson leikmaöur sem vert er aö
veita athygli og Hrannar Hólm á
vafalítiö eftir að koma vel til meö
meiri reynslu.
Enginn átti verulaga góöan leik
hjá Fram. Guösteinn baröist vel en
á enn talsvert í sitt besta form.
Þegar það bættist svo ofan á, aö
hvorki Þorvaldur, né Viðar náðu
sínu besta, var kannski ekki aö
undra aö svo færi sem raun bar
vitni. Sá fyrri með 40% nýtingu í
sókn, en sá síðari meö rétt rúm
26% (vítaskot frátalin). Brazy skaut
og skaut eins og hann væri í upp-
mælingu, en haföi ekki alltaf erindi
sem erfiöi. Nýtingin 53%.
Stig ÍBK: Brad Miley 26, Þor-
steinn Bjarnason 26, Axel Nikulás-
son 16, Björn Víkingur Skúlason 9,
Jón Kr. Gíslason 6 og Pétur Jóns-
son 4.
Stig Fram: Val Brazy 40, Guö-
steinn Ingimarsson 12, Viöar Þor-
kelsson 11, Þorvaldur Geirsson 8
og Ómar Þráinsson 6.
Dómarar voru þeir Siguröur V.
Halldórsson og Kristbjörn Al-
bertsson og höföu ágætistök á
leiknum þótt stundum örlaöi á
ósamræmi í dómum þeirra.
— SSv.
Heppnin er enn
meö Liverpool