Morgunblaðið - 01.02.1983, Síða 48
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 1983
Dalglish skoraói sitt
300. mark á ferlinum
— Liverpool sigraði Stoke auðveldlega. Tottenham
stefnir að því að sigra í bikarnum þriðja árið í röð
Skoski landsliösmaðurinn Kenny Dalglish skoraði 300. mark sitt á
ferlinum á laugardaginn, er Liverpool lagði Stoke auðveldlega að velli
á Anfield í bikarkeppninni, en fjórða umferð hennar var á dagskrá á
laugardaginn. Stoke hugsaði fyrst og fremst um varnarleikinn, og
gafst það illa eins og við mátti búast. Meistararnir voru ekki lengi af
stað. Dalglish skoraði mark sitt á 25. mín. leiksins, og var þaö mjög
glæsilegt. Hann sá að markvörður Stoke hafði hætt sér of langt út úr
markinu, og lyfti knettinum skemmtilega yfir hann og í netið. lan Rush
skoraði síðara markið fimm mín. fyrir leikslok. Fox, markvörður Stoke,
varði skot frá Dalglish, en hélt ekki boltanum, og Rush var ekki lengi
aö stýra knettinum rétta boðleiö — hans 24. mark á tímabilinu staö-
reynd svo og 14. heimaleikur Liverpool í röð án taps.
• Kenny Dalglish, skoraöi 300. markið á ferli línum á laugardaginn, er
Liverpool lagði Stoke aö velli í bikarnum. Kenny hefur sjaldan leikið
betur en upp á síðkastiö, og hann og lan Rush eru óstöðvandi í
framlínunni hjá Liverpool. Liðið stefnir nú að sigri á fjórum vígstöðv-
um. í deildinni, bikarkeppninni, Mjólkurbikarkeppninni og Evrópu-
keppni meistaraliða. Strangt prógram veröur hjá leikmönnum liðsins
fram á vor ef fer sem horfir.
• Kevin Moran (t.h.) skoraöi annaö mark Manchester United gegn
Luton. Man. Utd. var ekki í neinum vandræðum meö andstæðinga
sína, en Neil McNab (t.h.) og félagar í Brighton voru það ekki heldur.
Þeir rótburstuðu Manchester City á heimavelli.
Leikmenn Tottenham stefna nú
að því aö vinna bikarinn þriðja árið
í röð, og verða þar meö fyrsta liðið
á þessari öld til að takast þaö. Þeir
komust snemma í vandræði á
heimavelli sínum gegn WBA, þar
sem gestirnir tóku forystuna með
marki Clive Whitehead á 54. mín. I
fyrri hálfleiknum hafði Hollending-
urinn Romeo Zondervan átt skot í
stöng, þannig að Tottenham var
heppið að vera ekki undir í hálfleik.
Gibson skorar og skorar
Garth Crooks, sem ekki hefur
komist í Tottenham-liðið alllengi,
en lék nú með aö nýju, jafnaði
metin á 58. mín. og Terry Gibson
skoraði sigurmarkið á 75. mín.
----hans fimmta mark í sex leikj-
um. Mark Crooks var hans fyrsta
síðan níunda nóvember.
Manchester United var ekki í
neinum vandræðum meö bitlaust
lið Luton Town, og tók forystuna á
fyrstu mín. seinni hálfleiks með
frábæru marki Remi Moses.
Þrumuskot hans af löngu færi réð
markvörðurinn ekki við. Kevin
Moran gulltryggði sigurinn á loka-
mínútunum.
„Viö lékum eins
og Liverpool"
Brighton, sem berst nú við fall í
2. deild, skoraði fjögur mörk án
þess að Manchester City tækist aö
svara fyrir sig. Mike Robinson var
sínum gömlu félögum í City erfiöur
og skoraði hann tvö síðustu mörk-
in, á 70. og 90. mín. Jimmy Case
skoraöi fyrsta markiö á 7. min.
með föstu skoti af 25 metra færi,
og á 35. mín. jók Neil Smilie foryst-
una. Hans fyrsta mark fyrir Brigh-
ton. Jimmy Melia, stjóri Brighton,
var himinlifandi eftir leikinn. „Viö
lékum frábæran fótbolta. Mér
fannst við leika eins og Liverpool,"
sagði hann við fréttamann AP.
Melia var einmitt leikmaður meö
Úrslitin
Úrslitin í bikarkeppninni uröu
þessi:
Arsenal — Leeds 1—1
A. Villa — Wolves 1—0
Brighton — Man. City 4—0
Burnley — Swindon 3—1
Cambridge — Barnsley 1—0
Coventry — Norwich 2—2
C. Palace — Birmingham 1—0
Derby — Chelsea 2—1
Ipswich — Grimsby 2—0
Liverpool — Stoke 2—0
Luton — Man. Utd. 0—2
Middlesbro — Notts. Co. 2—0
Torquay — Sheff.Wed. 2—3
Tottenham — WBA 2—1
Watford — Fulham 1—1
Everton — Shrewsbury 2—1
Einn leikur fór fram í 2. deíld:
Rotherham — Oldham 1—3
Liverpool hér áöur, og Jimmy Case
lék með liðinu í nokkur ár áður en
hann fór til Brighton.
Aston Villa, sem sigraði Barce-
lona 3:0 í Super Cup í miöri viku,
átti í miklum erfiðleikum með
nágranna sína, Wolves. Úlfarnir,
sem leikið hafa mjög skemmtilega
í 2. deildinni í vetur, voru ekki á því
að gefa neitt eftir við Evrópumeist-
arana. Villa sigraði þó 1:0 og skor-
aði Peter Withe eina markiö á 20.
mín. eftir undirbúning Gary Shaw.
Wilson með tvö
Kevin Wilson skoraði bæði
mörk Derby, er liðið sigraði
Chelsea á heimavelli sínum, Base-
ball Ground. Derby sló Nottingham
Forest út í þriðju umferöinni, og
gæti verið til alls líklegt í bikar-
• Peter Withe skoraöi mark Villa
gegn Wolves.
keppninni, þó ekki gangi sem
skyldi í 2. deildinni. Wilson kom
liðinu yfir á 19. mín. og sigurmark-
ið gerði hann á næstsíðustu mínút-
unni. Mike Fillery gerði mark
Chelsea á 78. mín.
Áhangendur Chelsea, einhverjir
þeir verstu á öllu Englandi, voru
ekki alls kostar ánægðir með sína
menn og brugðust hinir verstu við
gangi mála. Rifu þeir upp nokkuð
af sætum og skutu flugeldum inn á
völlinn.
Cambridge komst í fyrsta sinn í
sögu félagsins í fimmtu umferð
bikarsins er það sigraöi Barnsley
1:0. Joe Mayo skoraði eina mark
leiksins í seinni hálfleik.
Russel Osman kom Ipswich yfir
gegn Grimsby rétt fyrir hlé meö
marki beint úr aukaspyrnu af 25
metra færi og Steve McCall kom
liöinu í 2:0 í seinni hálfleik. Trevor
Whymark, fyrrum leikmaöur Ips-
wich, sem nú leikur með Grimsby,
var gerður að fyrirliöa liös síns í
tilefni dagsins, en ekki boðaði þaö
neina lukku fyrir hann. Hann þurfti
að fara af velli, meiddur, eftir aö-
eins fjórar mínútur.
Norwich náði að jafna gegn
Coventry eftir að heimaliðiö hafði
komist tvö mörk yfir. Garry
Thompson (40. mín.) og Brian
Roberts (60. mín.) skoruðu fyrir
Coventry og allt stefndi í auöveld-
an sigur. Norski landsliðsmaðurinn
Aage Hareide minnkaði muninn og
Mark Barham jafnaöi á 82. mín. og
tryggöi Norwich þar meö annan
leik.
Burnley, sem þegar er komið í
undanúrslit mjólkurbikarkeppninn-
ar, og mætir þar meisturum Liv-
erpool, komst í fimmtu umferð bik-
arsins meö því að sigra 4. deildar
lið Swindon. Noröur-írski lands-
liðsmaðurinn Billy Hamilton og
Trevor Steven skoruöu fyrir Burn-
ley en Howard Pritchard náöi að
svara fyrir Swindon.
Aöeins eitt annað lið úr 4. deild
haföi komist í 4. umferö, Torquay.
Þeir voru slegnir út af Sheffield
Wednesday á heimavelli sínym,
töpuðu 3:2. Gary Megson skoraði
sigurmarkið í þeim leik er lítið var
eftir.
Varði tvö víti
Middlesbrough, undir stjórn
Malcolm Allison, sigraöi Notts
County 2:0 á Ayresoma Park meö
mörkum Ray Hankin (44. mín.) og
Kevin Beattie (65. mín.). Beattie
skoraöi úr víti. Úslitin voru mikil
vonbrigði fyrir Raddy Avramovic,
júgóslavneska landsliðsmarkvörö-
inn sem leikur með Notts County,
því hann hafði variö tvær víta-
spyrnur í fyrri hálfleiknum — frá
Steve Bell og Irving Nattrass.
Fulham náöi jafntefli viö Wat-
ford á útivelli og sagði Malcolm
McDanold, „Super Mac“, stjóri
Fulham, viö fréttamann AP eftir
leikinn, að lið sitt hefði barist af
fullum krafti allan leikinn eins og
þaö heföi átt að gera. Dean Coney
skoraöi fyrst fyrir Fulham, en síðan
tókst Jan Lohman, hollenska
landsliðsmanninum hjá Watford,
að jafna. Hann kom inn á sem
varamaöur og skoraöi á 80. mín.
Fulham skoraði á 55. mín. leiksins.
Leeds náði forystu gegn Arsenal
á Highbury og var Peter Nicholas
þar að verki er hann sendi knöttinn
í eigið net. Alan Sunderland jafn-
aði tveimur mín. síðar og þar við
sat.
Einn leikur fór fram á sunnudag-
inn, Everton vann Shrewsbury á
Goodison Park. Kevin Sheedy
skoraöi fyrsta markið eftir aö hafa
fengið knöttinn frá Steve McMa-
hon, og voru þá þrjár mín. eftir af
fyrri hálfleik. Hann var síðan aftur
á feröinni á 62. mín. er hann ætlaði
að senda fyrir markið, knötturinn
hrökk í varnarmann, en Sheedy
náöi honum aftur. Gaf hann þá á
Adrian Heath sem skoraði. Steve
Cross skoraöi eina mark Shrews-
bury fimm mín. síðar.