Morgunblaðið - 01.02.1983, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 1983
41
fólk í
fréttum
Rússnesk
rúlletta...
+ Maðurinn í Havana var
Fidel Castro. Gesturinn var
rithöfundurinn Graham
Greene og umræðuefnið var
rússnesk rúlletta. Rithöfund-
urinn, 78 ára gamall, var að
segja kúbanska leiðtoganum
frá því hvernig hann sem nítj-
án ára gamall unglingur lék
sér að dauðanum í rússneskri
rúllettu. Hann lék sér þannig
að dauðanum með hlaðinni
skambyssu, en átti alltaf vinn-
inginn.
Castro kvað hafa orðið
hvumsa við lýsinguna og
snúið sé eldsnöggt að Greene
og sagt: „Samkvæmt öllum
lögmálum ættirðu þá að vera
dauður." Greene brosti yfir-
vegað og svaraði: „Já, ég var
víst alltaf lélegur í reikn-
ingi."
Þessi saga er komin frá
sameiginlegum vini þeirra
beggja, Nóbelsverð-
launahafanum Gabriel
Garcia Marquez.
Graham Greene
rithöfundur á Kúbu
árið 1959.
Saklaus dans
veldur uppþoti
+ Það er ekki öll vitleysan
eins, eins og margsinnis hefur
verið sannað. Nú hefur fimm-
tán ára gömul stúlka á Spáni
ekki séð sér annað fært en
hætta námi í skóla sínum, þar
sem hún dansaði að því er sög-
ur herma ósköp lítinn og
meinleysislegan dans við
breska popparann David Ess-
ex í litlum spænskum bæ í
jólafríinu.
Raddir herma nefnilega
að þau hafi dansað fullþétt
saman og aðrar stúlkur bæj-
arins hefðu svo gjarnan vilj-
að vera í hennar sporum.
Allt hefur verið gert í bæj-
arfélaginu til að gera henni
lífið leitt og foreldrar henn-
ar sáu sér þess kost vænstan
að fá einkakennara á heimil-
ið um stundarsakir meðal
öldurnar er að lægja.
Ekki er talið öruggt að
David hafi gert sér fullkom-
lega grein fyrir afleiðingun-
um þegar hann þrýsti þeirri
ungu að sér stundarkorn ...
Brasilía:
Forsetanum
vex
aldurinn
í augum
+ Forseti Brasilíu, Joao Figu-
eiredo, kvað ckkert hafa verið of
ánægður með þann áfanga að ná
65 ára aldri. „Þið óskið ekki vini
sem nær þessum aldri til ham-
ingju. — Þið huggið hann,“ sagði
hann þegar stjórn hans hélt hon-
um veislu í tilefni dagsins og síð-
an bætti hann við brosandi og í
lágum hljóðum: „Ég varð skelk-
aður þegar ég varð sextugur, en í
dag er ég örvæntingarfullur ..
COSPER
— Ég hitti konuna mína fyrst í jarðskjálfta á Italíu — það var
hræðilegt.
KOND-ÍSTUO
Þar færðu plöturnar meö:
□ Doors (12 titlar)
□ Tangerine Dream (14 titlar)
□ DAF
□ Stranglers
□ Killing Joke
□ Linton Kwesi Johnson (topp-
urinn í reggíinu)
□ Sex pistols
□ Brian Eno
□ Art Bears (besta og fram-
sæknasta grúppa allra tima)
□ P.I.L.
□ Woody Guthrie (lærimeistari
Clash, Bubba, Mike Pollocks
og þeirra allra)
□ Mark Hollander (meistari
tölvupoppsins)
□ Cabaret Voltaire
□ David Bowie
□ Mississippi Delta Blues Band
□ Nina Hagen
o.m.fl
Svo er sjálfsagt að lata þig vita
at mustkmyndabandaleigunni t'r
það ekki?
-
Laugavegi20 Simi27670
Þaðfáallir
rétta útkomu með
OMIC
Omic reiknivélarnar okkar eru landsfrægar
fyrir gæði og fráþæra endingu. Þær eru líka afburða
þægilegar og einfaldar í meðförum og leysa með sóma allar
reikningsþrautir, sem fyrir þær eru lagðar. Við eigum
ávallt fyrirliggjandi nokkrar gerðir af Omic.
Hringið eða skrifið og fáið upplýsinga-
bækling sendan. • Reiknaðu með Omic.
SKRIFSTOFUVELAR H.F.
í? Hverfisgotu 33
Smi 20560