Morgunblaðið - 01.02.1983, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 1983
45
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MANUDEGI
.FÖSTUDA
Þessir hringdu . . .
Fyrirspurn til
fjármálaráöuneytis
Ragnhildur Kristjánsdóttir, Eski-
firði, hringdi og hafði eftirfarandi
að segja: — Mig langar til að
koma eftirfarandi fyrirspurn, sem
er í nokkrum liðum, á framfæri
við fjármálaráðuneytið og vænti
þess, að ráðuneytið líti á það sem
íýðræðislega skyldu sína að svara:
Hve mikið fé þurfti ríkissjóður að
borga á síðasta ári vegna mötu-
neyta opinberra starfsmanna?
Hve margir nutu þeirra fríðinda
að hafa aðgang að þeim? Eru þessi
fríðindi skattfrjáls? Hvernig
skiptist kostnaður vegna þessarar
þjónustu milli Reykjavíkur annars
vegar og landsbyggðarinnar hins
vegar? Stendur til að koma slíkum
mötuneytum á fyrir aðra þjóðfé-
lagsþegna, sem greiða gjöld til
ríkisins ekki síður en opinberir
starfsmenn?
Ásgeir Hannes Eiríksson
Hefðu átt skilið
betri hlustunartíma
4216—6154 hringdi og hafði eft-
irfarandi að segja: — Mér finnst
ástæða til að þakka Ásgeiri Hann-
esi Eiríkssyni fyrir góða og ein-
læga útvarpsþætti undanfarin
þriðjudagskvöld. Þeir hafa verið
þarft framlag í þær fíkniefnaum-
ræður sem hér hafa átt sér stað.
Ásgeir hefur komið að efninu, án
málalenginga, m.a. með því að
ræða við útigangsfólk og fórnar-
dýr hvers kyns vímugjafa. Þættir
hans hefðu átt skilið að hljóta
betri hlustunartíma en raun varð
á. Ég vona að þeir verði endur-
teknir.
Lítil fyrirspurn
um heiti á hlut
Guðlaug Óskarsdóttir, Selfossi,
hringdi og hafði eftirfarandi að
segja: — Eg er nú bara með litla
fyrirspurn, sem mig langaði til að
koma á framfæri: Hvert er heiti
þess hlutar sem notaður er til að
slökkva á kertum með og flestir
kannast við (hetta á armi; brugðið
yfir kertið til að kæfa logann)? Ég
er talsvert búin að spyrjast fyrir
um þetta, en svarið hefur vafist
fyrir fólki. Flesta rámar þó í að
eitthvert íslenskt nafn sé til yfir
þetta áhald.
•
Þrátt fyrir smæð fyrirspurnar-
innar komumst við litlu nær en
Guðlaug, þegar farið var að graf-
ast fyrir um heiti áhaldsins góða.
Þó bar fyrir eyru orð eins og
„ljóskæfa", „kertaslökkvari" og
annað í þeim dúr, en líklega er
skýringin á þessari fátækt sú sem
gamall þulur kvað, að tækið sé til-
tölulega nýlegt hér á landi. Lumar
ekki einhver lesenda á betri kost-
um en hér voru nefndir?
Leiðrétting
Guðrún Valdimarsdóttir skrif-
ar: „f Morgunblaðinu 8. janúar
las ég minningargrein og var
þar vitnað í eftirmæli eftir
Þorstein Valdimarsson, um
Inga T. Lárusson tónskáld. Þar
sem ljóðið hefur brenglast í
meðförum langar mig til að
það verði birt rétt.
Ingi Lár
Svanur ber
undir bringudúni
banasár.
— I»að er ævintýrið
um Inga Lár.
Tærir beraat
úr tjarnar.sefi
tónar um fjöll.
— Heiðin töfrast
og hlustar öll.
Sumir kveðja,
og síðan ekki
söguna meir.
— Aðrir með söng,
er aldrei deyr.
(Úr Hrafnamálum, bls. 21.)
Meö fyrirfram þökk.“
GÆTUM TUNGUNNAR
Heyrst hefur: Þeir náðu ágætum áröngrum í öllum
keppnum, og tímarnir þeirra í hundrað metra hlaupi
voru óvenju góðir.
Rétt væri: Þeir náðu ágætum árangri í hverri keppni, og
tími þeirra í hundrað metra hlaupi var óvenju góður.
Skrifið eða hringið
til Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaöeina, sem
hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 10 og 12, mánudaga til
fóstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er ,
þegið, eru ábendingar og orðaskipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla
og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer
og heimilisfóng verða aö fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundar
óski nafnleyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í
dálkunum.
„Það virðist Ijóst, að flestir þingmennirnir bera fyrst og fremst eigin hag fyrir
brjósti — þ.e. að tolla í sínu þingsæti, hvað sem það kostar — því næst hag
flokksins og síðast þjóðarinnar. Það, sem mönnum virðist þeir vera að fást við
þessa stundina, er aó reyna að finna kosningafyrirkomulag, sem tryggir, aö þeir,
sem á þingi eru nú, haldi allir sínu sæti. Jafnréttið er aukaatriði.“
og síðar verða þung byrði á öllum
landsmönnum.
Það er athyglisvert, að margir
stjórnmálamenn hafa í umræðum
um kjördæmamálið lagt höfuð-
áherslu á jöfnuð milli stjórnmála-
flokkanna, en minni áherslu á jöfnuð
milli kjósenda sjálfra.
Það virðist ljóst, að flestir þing-
mennirnir bera fyrst og fremst eigin
hag fyrir brjósti — þ.e. að tolla i
sínu þingsæti, hvað sem það kostar
— því næst hag flokksins og síðast
hag þjóðarinnar. Það, sem mönnum
virðist þingmenn vera að fást við
þessa stundina, er að reyna að finna
kosningafyrirkomulag, sem tryggir,
að þeir, sem á þingi eru nú, haldi
allir sínu sæti. Jafnréttið er auka-
atriði.
Það má merkilegt heita, að hvorki
borgarstjórn Reykjavíkur né bæjar-
eða sveitarstjórnir í Reykjanes-
kjördæmi hafa tekið opinberlega af-
stöðu til þessa máls, svo að mér sé
kunnugt. Hverjum skyldi það þó
standa nær?
Margir málsmetandi menn hafa
að undanförnu lagt á það áherslu, að
stjórnarskráin sé ekki venjuleg lög,
sem megi breyta eftir eitt eða tvö ár,
ef mönnum sýnist svo. Hún sé sá
grundvöllur, sem lögin byggist á, sá
rammi, sem þau megi ekki fara út
fyrir. Stjórnarskráin eigi að standa
um áratugi, jafnvel aldir. Sú stjórn-
arskrá, sem við búum nú við, er
rúmlega 100 ára gömul, og það hefir
tekið næstum fjóra áratugi að
endurskoða hana. Það sýnist því illa
farið, ef í nýja stjórnarskrá á að
setja ákvæði, sem felur í sér misrétti
milli þegna landsins varðandi kosn-
ingaréttinn, sem talinn er til helstu
mannréttinda, þannig að sumir
þegnanna eru aðeins metnir í hlut-
fallinu 1:2,6 á við aðra þegna. Manni
verður á að spyrja: Á hvaða öld
skyldu Reykvíkingar og íbúar
Reykjaneskjördæmis verða taldir
fullgildir Islendingar?"
Hef opnað
læknastofu
í Læknastöðinni hf., Glæsibæ.
Tímapantanir í síma 86311 eftir kl. 10 f.h.
Ellen Mooney.
Sérgrein: Húðsjúkdómar.
Skatta-
framtöl
bókhald
Getum bætt við okkur verkefnum:
Framtalsaðstoð við einstaklinga.
Framtalsaðstoð við einstaklinga með rekstur.
Ársuppgjör félaga og fyrirtækja.
BÓKHALDSTÆKNIHF
Laugavcgur II — 111 Reykjavik — Sími 25255
BOKHALD - UPPGJOR - ENDURSKOÐUN
REKSTRARRAÐGJOF - FJARHALD - ElGNAUMSYSl.A
RAÐNINGARÞJONUSTA
SAMSTARFSFYRIRTÆKI:
1IRTŒK1A
GÍSLIJÓNSSON & GO HF.
Sundaborg 41, sími 86644.
V-þýzkar vandaðar
innréttingar
sem henta í flesta sendibíla.