Morgunblaðið - 01.02.1983, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 1983
Ekið á hross á
Ólafsfjarðarvegi
Dalvík, 3l.jandar.
SíðastliAinn laugardag var það slys
á Ólafsfjarðarvegi við Spónsgerði í
Möðruvallasókn, að bíll ók á hest með
þeim afleiðingum að lóga varð klárn-
um á staðnum og bifreiðin var óöku-
fær eftir. Kkki varð slys á fólki.
Hestarnir komu þjótandi yfir veg-
inn og lenti eitt hrossanna framan á
bifreiðinni og annað á hlið hennar.
Bílstjórinn fékk ekki við neitt ráðið
þrátt fyrir að bíllinn hafi verið vel
búinn til vetraraksturs, með keðjur
á öllum hjólum, og á lítilli ferð. Slys
sem þetta eru að verða alltíð á þess-
ari leið frá Akureyri út á Ár-
skógsströnd og á síðasta ári hafa
orðið 5—6 slík slys af völdum
útigangshesta.
Sýnist ekki vanþörf á, nú á um-
ferðarári, að þessum málum verði
gaumur gefinn og að yfirvöld um-
ferðarmála taki þessi mál til ræki-
legrar athugunar. Enda þótt að í
flestum tilvikum geti bílstjóri ekki
komið í veg fyrir slík slys þá ber
hann allan skaðann þar sem trygg-
ingar bæta ekki þessi tjón.
— Fréttaritarar
Laugarásbíó
sýnir „The
Four Seasons"
LAUGARÁSBÍÓ hefur hafið sýningar
á kvikmyndinni „The Four Seasons",
en höfundur og leikstjóri handrits er
Alan Alda, sem jafnframt leikur aðal-
hlutverkið. Alan Alda er kunnur fyrir
leik sinn í sjónvarpsmyndaflokknum
„MASH“, sem íslendingar þekkja.
Framleiðandi myndarinnar er
Martin Bergman og er myndin
framleidd á vegum Universal Pic-
tures. Myndin er í litum og er sýn-
ingartími hennar 108 mínútur.
Skýringartextar eru á íslenzku.
Myndin er tekin í Panavision. Tón-
list í myndinni er eftir Vivaldi og er
hún leikin af Fílharmóníuhljóm-
sveit Berlínar undir stjórn Herberts
von Karajan.
Krapahlaup
KRAPAHLAUP tclur Sigurjón
Rist vatnamælingamaður eðlilegt
að kalla flóðið sem olli skaðanum
mikla á Patreksfirði um fyrri helgi.
Sigurjón kvað slíkt hlaup koma
til vegna þess að snjór loki fyrir
ákveðið svæði, í þcssu tilviki gilið,
og síðan fyllist fyrir innan þaö af
vatni og krapa. Þegar þetta springi
síðan fram væri að mestu um vatn
að ræða og svo hefði verið á Pat-
reksfirði, þar sem um hálffullt
stíflað gil hafi verið að ræða.
Þannig kvað Sigurjón þetta
fiokkast undir svokölluð við-
burðaflóð, sem kæmu við mjög
sérstæðar aðstæður. Flóð á Is-
landi nefnir hann nr. 1 regn-
hlaup, 2. Ieysingaflóð, 3. regn og
leysingu, 4. jökulhlaup, 5. þrepa-
hlaup, 5. mannvirkjahlaup og 7.
viðburðaflóð.
Ennfremur sagði Sigurjón, að
flóðið í Álftadalsá, sem sagt var
frá í frétt í fimmtudagsblaði
Morgunblaðsins, flokkaðist ekki
undir snjóflóð, heldur krapa-
hlaup. „Áin spýtti úr sér, sem
kailað er,“ sagði Sigurjón. „I
þessum ofsarigningum og leys-
ingum, þá hreinsast farvegurinn
út í snöggu flóði og þetta flokk-
ast undir regn- og leysingaflóð
og svo viðburðaflóð, eins og flóð-
in á Patreksfirði," sagði Sigur-
jón.
*ijaf „„
Stórkostlegt vöruúrval
40—60% afsláttur
® KARNABÆR
LAUGAVEGI 66 — GLÆSIBÆ — AUSTURSTRÆTI22.
vwm
Laugavegi 20. Sími frá skiptiborði 85055