Morgunblaðið - 12.05.1983, Page 4
52
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 1983
I
UM síöustu helgi var haldin í Tónabæ sam-
eiginleg vörukynning og tízkusýning 11 fata-
verzlana íReykjavík. Er þaö í tyrsta sinn, sem
verzlanir taka sig saman á þennan hátt til aö
kynna vöru sýna.
Að sögn Huldu Kristínar Magnúsdóttur,
einn framkvæmdastjóra sýningarinnar, tókst
bæði kynning og sýning með ágætum. Hver
verzlun var með eigin bás, þar sem hún kynnti
vörur sýnar og tvisvar á dag, frá föstudegi til
sunnudags, sáu Módelsamtökin um sameigin-
lega tízkusýningu tvisar dag hvern, en auk þess
voru verzlanirnar með sér sýningar á klukku-
stundarfresti alla dagana og voru það Módel-
samtökin, sem önnuðst sýningarnar. Það var
fyrst og fremst sumartízkan, sem kynnt var og
var aðsókn vonum framar og virtust flestir
ánægðir. Þá voru Pizzuhúsið, Sól hf. og ís-
lenzkir sjávarréttir meö matvælakynningu í
Tónabæ samfara vörusýningunni.
Ljósmyndari Morgunblaðsins, Kristján Ein-
arsson, tók meðfylgjandi myndlr í Tónabæ á
laugardaginn.
* vm
Sumar-
tízkan
f Tónabæ