Morgunblaðið - 12.05.1983, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 1983
67
„Skreiðaráfallu
vofir yfir 400
norskum fisk-
framleiðendum
Osló, 4. naí. Frá fréttaritara
MorgunhlaA.sins, Jan Erilt Laure.
JAFNVEL hinir bjartsýnustu innan
sjávarútvegsins efast ekki lengur um
að verulegt áfall sé yfirvofandi meðal
skreiðarverkenda. Framleiðendur
liggja nú með 18.000 lestir af skreið að
verðmæti hálfur milljarður króna (1,5
milljarður íslenzkra króna) og aðeins
lítill hluti þessara birgða mun geta
selzt í ár. Yfír 400 stærri og smærri
fyrirtæki munu verða fyrir miklu tjóni
og óttast menn að sum þeirra rísi ekki
undir því og verði gjaldþrota.
„Staðan er hörmuleg," segir Thor
Olstad, framkvæmdastjóri „Felles-
Lokaprófs-
tónleikar
í gítarleik
FIMMTUDAGINN 12. maí kl. 20.30
þreytir Friðrik Karlsson gítarleikari
lokaprófstónleika sina á Kjarvalsstöð-
Friðrik er Reykvíkingur fæddur
árið 1960. Hann lauk stúdentsprófi
frá fjölbrautaskólanum í Breiðholti
sl. ár og var fyrsti nemandinn er
útskrifaðist á tónlistarbraut al-
menns sérnáms. Gítarnám hóf Frið-
rik við Tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonar árið 1977 en kennarar
hans hafa verið Gunnar H. Jónsson
og Joseph Ka Cheung Fung. Sam-
hliða námi hefur Friðrik stundað
kennslu við Tónskólann og viðar,
einnig starfað við popp- og jazztón-
list og er einn af meðlimum hljóm-
sveitarinnar Mezzoforte. Á tónleik-
unum mun Friðrik flytja verk eftir
Dowland, Bach, Sor, Barrios og
Walton.
salgslaget" (Sameinuðu sölusamtaka
fiskframleiðenda), sem nýlega hélt
aðalfund sinn. Þrátt fyrir að við höf-
um fengið 200 milljónir (600 milljón-
ir íslenzkar) að láni frá norska rík-
inu og Nígería hafi gefið leyfi til lft-
ils háttar innflutnings, mun það
tæplega bjarga hluta fyrirtækjanna.
Þar sem Norðmenn keppa við lslend-
inga um markaðinn f Nigeríu er ekki
hægt að reikna með því að Norð-
menn geti selt meira en fyrir 100
milljónir króna (300 milljónir ís-
lenzkra króna) þangað í ár. Aðrir
markaðir, sem þýðingu hafa, eru
ekki fyrir hendi. Því eru tveir mögu-
leikar fyrir hendi og báðir illir. Ann-
ar að mala skreiðina i dýrafóður,
sem þýðir að hugsanlega fáist 2
krónur (6 íslenzkar krónur) fyrir
kílóið í stað 30 (90) eins og reiknað
var með á Nígeríumarkaði. Hinn
kosturinn er, að liggja með birgðirn-
ar til næsta árs í trausti þess að
markaðurinn í Nígeríu opnist þá.
Það hefur hins vegar þau vandræði í
för með sér að framleiðendur ráða
ekki við að hafa fjármagn bundið svo
lengi og tilveru þeirra verður því
stofnað í verulega hættu.
Þá segir Thor Olstad, að framleið-
endur hafi lært af Nígerfu-ævintýr-
inu. Þrátt fyrir að tekizt hafi að
selja 24.000 lestir af skreið til Nfg-
eríu 1981 hefðu menn átt að hægja á
sér og viðurkenna að markaðurinn
væri óstöðugur. Hefði 10.000 lestum
minna verið selt, hefðu ekki eins
margir einblínt á skreiðarfram-
leiðsluna á næstu vertíð. Það hafi
sýnt sig að hættulegt er að treysta
aðeins á Nigeriumarkaðinn.
Togarinn Guðsteinn við bryggju á Akureyri. Verður hann gerður út frá Akureyri í framtíðinni? Morgvnbi>*ið/G. Brr*.
Togarinn Guðsteinn:
Engin skilyrði sett
fyrir bæjarábyrgd
— sem Akureyrarbær veitir vegna kaupa á togaranum
Akureyri, 6. maí.
BÆJARSTJÓRN Akureyrar sam-
þykkti í síðustu viku að veita bæj-
arábyrgð fyrir láni að upphæð 1,3
milljónum Bandaríkjadala (um 30
milljónir króna) vegna endurbóta
á togaranum Guðsteini, sem Þor-
steinn og Kristján Vilhelmssynir
og Þorsteinn Már Baldvinsson
hafa fest kaup á. Hyggjast þeir láta
breyta togaranum í frystiskip og
endurbæta hann fyrir þessa upp-
hæð.
Að sögn Helga Bergs, bæjar-
stjóra á Akureyri, voru engin skil-
yrði sett fyrir þessari bæjar-
ábyrgð, hvorki um að togarinn
yrði gerður út frá Akureyri, né
heldur að breytingar þær, sem
gera á, verði látnar fara fram hjá
Slippstöðinni hf. á Akureyri. Því
spyrja nú margir á Akureyri hver
tilgangurinn sé með því að veita
þessa ábyrgð. Að vísu lét Helgi
þess getið, að „bæjarstjórn teldi,
að skipið yrði gert út frá Akureyri
og að lægsta tilboðið í endurbæt-
urnar væri frá Slippstöðinni."
Að sögn Þorsteins Más Bald-
vinssonar, eins eigendanna, er
ábyrgð Akureyrarbæjar háð því
skilyrði, að takist að losa lausa-
skuldir af skipinu og forða þvi
þannig frá yfirvofandi nauðungar-
uppboði í júní. Sagði Þorsteinn, að
tækist að vinna bug á þessum erf-
iðleikum, teldu þeir góða mögu-
leika á því, að dæmið gengi upp
með aðstoð bæjarins. Hefði til-
boða í breytingarnar og nauðsyn-
legar endurbætur verið leitað hjá
Slippstöðinni, í Bretlandi, Dan-
mörku og Noregi og hefði tilboð
Slippstöðvarinnar verði lægst.
Skuttogarinn Guðsteinn var
eign fyrirtækisins Samherja í
Grindavík, sem hætti útgerð hans
fyrir nokkru og hefur hann nú leg-
ið aðgerðarlaus við bryggju á ell-
efta mánuð. Guðsteinn er skuttog-
ari af stærri gerðinni, smíðaður í
Póllandi 1974.
Þeir Þorsteinn og Kristján eru
synir Vilhelms Þorsteinssonar,
annars forstjóra Útgerðarfélags
Akureyringa hf., og Þorsteinn
Már er bróðursonur Vilhelms.
G. Berg
Dæmalaus afgreiðsla á tilboðum
Friðrik Karlsson
Ábyrgu stjórnarmenn,
Ég vísa til viðskipta minna við
Járnblendifélagið, en ég hef ann-
ast akstur á vaktavinnufólki og
fleiri starfsmönnum félagsins frá
Akranesi til Grundartanga síð-
ustu þrjú árin eða þar um bil, án
kvartana af hálfu félagsins.
Jafnframt vísa ég til útboðs
Járnblendifélagsins á flutningi
starfsfólks þess frá 25. mars sl. og
leyfi mér að vitna í endurrit fund-
argerðar frá 11. apríl 1983, sem
Stefán Reynir Kristinsson, fjár-
málastjóri félagsins, samdi þegar
tilboð voru opnuð.
í fundargerðinni segir auk ann-
ars:
„ 3. Sæmundur Sigmundsson,
Borgarnesi
Liður A: 2.300 kr./dag
Liður B: 1.200 kr./dag
Liður C: 350 kr./ferð
Þetta tilboð gildir ef um alla liði
er samið.
3.2. Sæmundur Sigmundsson.
B-liður 1.200 kr./dag
C-liður 350 kr./ferð
3.3. Sæmundur Sigmundsson.
A-liður 2.500 kr./dag
Rekstraráætlun fylgdi öllum
tilboðunum."
„ 6. Reynir Jóhannsson
A-liður 3.744 kr./dag
Biliður ef tilboði A ekki tekið
1.560 kr./dag
B^liður ef A-tilboði er tekið
10.40 kr./dag þegar ferðir eru
samkvæmt A-lið en 1.560 kr.
aðra daga.
C-liður ef tilboði í Bj eða B2
tekið 350 kr./ferð.
Rekstraráætlun fylgir tilboð-
inu.“
Vegna tilboðs Reynis Jóhanns-
sonar í B-ferðir þar sem ein B-ferð
er sameinuð A-ferð þvert ofan í
ákvæði í útboðsgögnum vil ég taka
fram að ekkert var því til fyrir-
stöðu að ég gerði það einnig, ef ég
Opið bréf til stjórnar-
manna íslenska járn-
blendifélagsins hf., þeirra
Hjartar Torfasonar, Guð-
mundar Guðmundssonar,
Eggerts G. Þorsteinsson-
ar, Páls Bergþórssonar,
Rolfs Nordheim, Leifs
Kopperstad og Gunnars
Viken, frá Sæmundi Sig-
mundssyni, sérleyfishafa,
Borgarnesi.
hefði vitað um, að forstjóri félags-
ins, Jón Sigurðsson, hefði talið það
eðlilegt.
Mér virðist, miðað við forsendur
útboðsgagna og tilboða og A-ferð-
ir í 250 daga á ári, að Járnblendi-
félagið hefði getað fengið mfna
flutningsþjónustu í A-ferðum kr.
361.000 ódýrari en Reynis, sem
virðist hafa verið samið við, og í
B-ferðum kr. 131.400 ódýrari mið-
að við verðlag í mars 1983. Eða
samtals kr. 492.400 lægri útgjöld á
ári. C-ferðir okkar beggja voru á
sama verði.
Mér þykir sú afstaða Járnblendi-
félagsins, að semja við aðila sem
býður mun dýrari þjónustu, und-
arleg, og leyfi mér því að ítreka
óskir um svör við því hvers vegna
ekki var samið við lægstbjóðanda
og hvers vegna var verið að bjóða
flutningana út.
Vænti heiðraðs svars eða svara
ykkar við fyrsta tækifæri.
Borgarnesi 4. maí 1983,
virðingarfyllst,
Sæmundur Sigmundsson,
Borgarnesi.
Nú kemur þú meö okkur
til Mallorka í sumar
FERÐASKRIFSTOFA, Iönaðarhúsinu Hallveigarstígl. Símar 28388 og28580