Morgunblaðið - 19.05.1983, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 19.05.1983, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1983 3 Fegurðardrottning íslands í kynningarþætti um Ungfrú alheims-keppnina: Milljón dollara landkynn- ing að kostnaðarlausu Bandarúska kvikmyndafyrirUekið Paramount Pictures, eigandi fegurð- arsamkeppninnar Ungfrú aiheimur, hefur farið þess á leit við þá aðila, sem standa að vali Fegurðardrottn- ingar íslands, að send verði stutt kynningarkvikmynd um Fegurðar- drottningu (slands til Bandaríkj- anna strax í byrjun næstu viku. Hefur fyrirtækið afráðið að gera hálfrar klukkustundar lang- an þátt um Ungfrú alheims- keppnina, sem fram fer í St. Louis í Missisippi í Bandaríkjunum ll.júlí. Ákveðið hefur verið að kynna þátttakendur frá sex lönd- um og kom fram sérstök ósk um að Fegurðardrottning íslands yrði með í þessum þætti. Þátturinn verður sýndur nokkrum dögum áður en keppnin fer fram og hefur þegar verið seldur öllum stærstu sjónvarpsstöðvum í Bandaríkjun- um. Það er Saga-film, sem hefur verið falin gerð þessarar kvik- myndar hér heima. Verður mynd- in tekin á krýningarkvöldinu í Broadway annað kvöld. Ef tekið er mið af lengd þáttar- ins er talið líklegt að 3—4 mínút- um verði varið til kynningar á ís- landi. Til gamans má geta þess, að hver auglýsingamínúta í stærstu sjónvarpsstöðvunum kostar 250.000 dollara. Hér er þvi um einnar milljón dollara landkynn- ingu að ræða, sem þó kostar að- standendur keppninnar hér heima ekkert utan vinnslukostnað við kvikmyndina. HARÐUR árekstur varð í Hvalfjarðarbotni, skammt fyrir sunnan Botnsá, laust fyrir klukkan níu í gærmorgun. Þar skullu saman á blindhæð og í beygju Volvo-bifreið á suðurleið og BMW á vesturleið. Fjórir voru fluttir í sjúkrahúsið á Akranesi, þrír úr Volvo-inum og ökumaður BMW-bifreiðarinnar. Meiðsli reyndust ekki alvarleg. Báðar bifreiðirnar eru stórskemmdar og varð að draga báðar af slysstað. Okkur er Ijóst að SAABINN er ekki ódýrasti bíllinn á markaðnum, enda þarf yfirleitt að greiða meiri gæði svolítið hærra verði. Til þess að koma til móts við SAAB kaupendur höfum við nú hækkað lánin í 30% af kaupverði. Komdu og talaðu við sölumenn okkar. Skoðaðu SAABINN og keyrð'ann. Við leggjum okkur fram um að létta þér kaupin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.