Morgunblaðið - 19.05.1983, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1983
23
Skýrsla bresks lávarðar:
Fjórar millj-
ónir þræla
í Rússlandi
Strassbourg, Krakklandi, 18. maí. AP.
BRESKUR lávaröur aö nafni Willi-
am Bethell, sem fylgst hefur grannt
meö málefnum Sovétríkjanna um
langt skeiö, lét í gær frá sér fara
skýrslu þar sem hann fór ófögrum
orðum um ástandið í Sovétríkjunum
um þessar mundir.
í skýrslu Bethells kemur fram,
að um 4 prósent vinnuafls í Sovét-
ríkjunum eru hreinlega þrælar
sem flestir hverjir vinna við öm-
urleg skilyrði. Þetta telur um 4
milljónir Rússa sem eru með þess-
um hætti neyddir til vinnu, eða
samanlögð íbúatala írlands og
Danmerkur. í skýrslunni hvatti
Bethell Sovétmenn til að sleppa
pólitískum föngum og láta af
ofsóknum á hendur trúuðum og
ýmsum sérhópum.
Bethell minntist á geðsjúkrahús
þeirra Sovétmanna, „morð og
pyntingar eru undantekningarnar
frá reglunni í Sovétríkjunum, en
vald stjórnvalda yfir almúganum
er samt algert. Stjórnvöld gera
annað í staðinn, þeir, sem ekki
halda sig á mottunni, eiga á hættu
að vera sendir á geðsjúkahús hvort
sem eitthvað amar að þeim eða
ekki. Þar er lyfjum dælt í heilbrigt
fólk og það gert að sjúklingum og
vesalingum. Sovétríkin eru þjóð
sem getur sent menn til tunglsins,
en þau veita þegnum sínum samt
ekki hin minnstu grundvallar-
mannréttindi," sagði Bethell.
Breski íhaldsflokkurinn:
Litlar breyting-
ar á stefnuskrá
Lundúnir, 18. maí. AP.
MARGARET Thatcher, forsætisráö-
herra Bretlands, lagði fram í gær
stefnuskrá íhaldsflokksins fyrir
kosningarnar sem fram fara 9. júní
næstkomandi. Haföi skrárinnar veriö
beöið með eftirvæntingu, en í henni
ítrekar flokkurinn fyrri stefnu sína,
þá sömu og Bretar hafa fengiö aö
kynnast síöustu árin meö frú Thatch-
er í forsætisráöherrastólnum. Sam-
kvæmt stefnuskránni velja Bretar 9.
júní næstkomandi hvort þeim finnst
atvinnuleysið vera sanngjarnt verð
Michael Foot á göngu með hundinn
sinn.
fyrir litla veröbólgu, eða hvort alþýð-
an telur Verkamannaflokkinn lúra á
betri úrræðum.
Frú Thatcher ræddi við frétta-
menn í gær um stefnuskrána og
var að því spurð hvenær hún teldi
að atvinnuleysið myndi minnka.
Hún svaraði: „Því get ég ekki svar-
að, enginn stjórnmálamaður með
réttu ráði eða ríkisstjórn getur
svarað því. Næsta spurning." I
stefnu flokksins er gert ráð fyrir
nýjum hömlum á verkalýðsfélög,
bandarískar meðaldrægar kjarn-
orkuflaugar svo eitthvað sé nefnt.
Þá hefur Thatcher lofað að leysa
upp sjö meiriháttar fjárveitinga-
nefndir sem starfað hafa í stærstu
borgum Bretlands. Nefndir þessar
hafa mjög haft horn í síðu frú
Thatcher fyrir óbilgjarnar sparn-
aðarráðstafanir sínar.
Verkamannaflokkurinn undir
forystu Michael Foots leggur mikla
áherslu á tregðu Thatchers til að
svara því hvenær atvinnúleysið
muni hjaðna. Segir Foot að Verka-
mannaflokkurinn treysti sér til að
lækka tölu atvinnulausra úr 3,17
milljónum í 600.000 á fimm árum
með auknum ríkisútgjöldum. Foot
sagði um stefnuskrá íhaldsflokks-
ins: „Þetta er ömurleg stöðnun.
Plagg þeirra býður ekki bara upp á
meira af því sem á undan er farið,
heldur verra þó ef nokkuð er.“
UMBOÐSAÐILI
KARNABÆJAR
OPNARÁ
AKUREYRI
í DAG!!
| ©
KARNABÆR
Verslunin er í Nýju
Verslunarmiðstööinni
Sunnuhlíö og er svo
glæný aö hún hefur
ekki fengið nafn.
Allar uppástungur vel
þegnar.
Verið velkomin.
RENAULT
TRAFIC
Lipur og rúm-
góöur sendibíll
Framhjóladrifinn, rúmgóður og lipur sendi-
bíll. Sérstaklega hentugur fyrir fyrirtæki
til vöruútkeyrslu og sendiferða.
Vélastærð: 1397 cm bensín. 2068 cm diesel.
Burðargeta: 800 kg eða 1000 kg.
RENAULT er reynslunni ríkari.
KRISTINN GUÐNASON HF. SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633
!