Morgunblaðið - 19.05.1983, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 19.05.1983, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1983 45 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 11—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS Er hægt að trúa þeim sem slíka hugsjón hafa? Húsmóóir skrifar: „Maður hlustaði vel 1. maí, á hátíð- isdegi verkalýðsins, og ekki síður á erlendu fréttirnar. Erindi, sem var flutt um ýmislegt úr baráttusögunni, var ekki síður athyglisvert. Enginn frjálsborinn maður vill búa í landi, þar sem ekki er verkfallsréttur. Hverjir trúa því nú, að með afnámi hans og annarra sjálfsagðra mann- réttinda verði hlut vinnandi fólks best borgið? Er hægt að trúa þeim, sem slíka hugsjón hafa, til þess að standa vörð um hagsmuni alþýðunn- ar? í hvaða landi voru verkamenn ofsóttir af stjórnvöldum og lögregl- unni sigað á þá eins og hunda? Hvaða skemmdarverk gagnvart stjórnvöld- um og borgurum landsins höfðu pólskir verkamenn unnið? Og með hvaða vopnum höfðu þeir barist? Voru þau kannski frá Lýbíu eins og „hjúkrunargögnin", sem lentu f Bras- ilíu og áttu líklega að „lækna" ai- menning í Nicaragua?" Kommúnistaforingjar úr mörgum löndum flykktust til Rússlands 1. maí, ekki til að athuga kjör verka- mannanna, heldur til þess að dást að drápsvélunum, sem fylltu Rauða torgið og áttu að sýna veldi Rúss- lands. Hvað ætluðu Kremlherrarnir að gera með öll þessi vopn? Áttu þau að fara á fornminjasafn landsins? Nei, þau áttu að fara til þess að berja á saklausum aimenningi í öðrum löndum og taka verkfallsréttinn af verkamönnunum. Er hægt að hugsa sér nokkurn úlf í sauðargæru faiskari í Gdansk 1. maí. og fyrirlitlegri en kommúnista í verkalýðsbaráttu? Enginn kommún- isti hefur nokkurn tíma barist fyrir verkfallsrétti, en aftur á móti hafa þeir barist fyrir afnámi hans. Þeir trúa á ofbeldið, ef það er notað í þágu heimsvaidastefnu kommúnismans. Núna, þegar engin þjóð á nýlendur, þá heyja Rússar nýlendustríð í Afg- anistan, drepa allt kvikt og nota eit- urvopn. Eru ekki Suður-Víetnamar að reyna að sölsa undir sig Kampútseu og skirrast ekki við að ráðast inn f Thailand til þess að siátra flótta- mönnum, sem flúið hafa ómennsk lífskjör, sem alltaf verða örlög þess fólks sem lifir við hungurhugmynda- fræði Karls Marx? Aldrei eru komm- únistarnir ógeðfelldari en þegar þeir eru að gala á degi frjálsra verka- manna, 1. maf. Þeir fagna alltaf þegar kúgun kommúnismans heldur innreið sína í áður frjálst land, og mikill var fögnuðurinn, þegar Suður-Víetnam féll í hendur Rússa, enda fá þeir það- an ódýrt vinnuafl nú um stundir.“ „En hljómsveitin Kiss er eina þungarokkhljómsveitin sem hefur framkomu á sviði, klæðaburð og andlitsfarða sem vörumerki ..." Músík Kiss með því besta sem gerist G.B. skrifar: „Velvakandi. Mig langar að taka undir orð Gunnars Sævarssonar um að það sé kominn tími til að fá þungarokk- hljómsveit hingað til lands á lista- hátíð árið 1984. Ég er honum hins- vegar ekki sammála um hljómsveit- ina. I.A. og Ó.G.B. segja að Iron Maid- en sé þekkt fyrir líflega sviðsfram- Duran Duran: Kemur ekki óbeðin Svanhildur skrifar: „Kæri Velvakandi. Hljómsveitin Duran Duran er æð- isleg og virt hljómsveit um heim all- an, og það er alveg öruggt, að hún kemur ekki hingað óbeðin. Þess vegna hvet ég forráðamenn listahá- tíðar til að fá hljómsveitina hingað. Duran Duran á marga aðdáendur hér og er nýja lagið þeirra, „Is there something I should know“, í öðru sæti vinsældalistans hér á landi og má finna það á fjölmörgum öðrum listum jafnt sem önnur lög sem hljómsveitin hefur gefið út. I von um að eitthvað verði gert f þessu máli og með fyrirfram þökk fyrir birtinguna.“ komu og myndi fylla Laugardals- höllina. En hljómsveitin Kiss er eina þungarokkhljómsveitin sem hefur framkomu á sviði, klæðaburð og andlitsfarða sem vörumerki, að mað- ur tali nú ekki um músíkina sem Kiss spilar sem er með því besta sem gerist. Það eina sem mælir á móti því að hljómsveitin Kiss spilaði í Laugar- dalshöllinni er það að ég efast stór- lega um að Laugardalshöllin myndi þola það og því síður að allir að- dáendur hljómsveitarinnar kæmust þar fyrir. Svo vil ég segja að lokum að lista- hátíðarnefnd ætti að hugsa sig tvisv- ar um áður en valin yrði hljómsveit sem Iron Maiden á listahátíð. Madness Gefið stúdentunum góðar bókmenntir Skáldsögur Halldórs Laxness islandsklukkan 524,90 Gerpla 524,90 Salka Valka 524,90 Sjálfstætt fólk 524,90 Heimsljós 524,90 Brekkukotsannáll 419,90 Listaverkabækur Þórarinn B. Þorláksson 864,50 Gunnlaugur Blöndal 741,00 Bráöum kemur betri tíö ... 580,45 Fást í öllum bókabúðum. Ljóðasöfn Steinn Steinarr: Kvæöasafn og greinar 494,00 Magnús Ásgeirsson: Ljóöasafn I—II 741,00 Þorsteinn Erlingsson: Þyrnar 370,50 Bókaútgáfan ijdgofeU Veghúsastíg 5. Sími 16837. Madness á erindi Sig. Frj. J. skrifar: „Velvakandi. Ég mæli eindregið með því að breska hljómsveitin Madness verði fengin á næstu listahátíð. Hún hef- ur alltaf verið að gera mjög góða hluti og á sér örugglega marga að- dáendur hér á landi. Þess vegna held ég að Madness eigi meira erindi á listahátíð heldur en þær hljóm- sveitir sem þegar hafa verið nefnd- ar. SÍMASKRÁNA íMíöarkópu! Símaskráin er allsstaðar nauðsynleg. En eftir nokkra notkun vill hún verða snjáð. Stundum rifna blöð úr og þá geta skapast vandræði. Forðum því. Hlífðarkápan frá Múlalundi er lausnin. Endist ár eftir ár og er ódýr í þokkabót. E Fæst í öllum bóka- og ritfangaverslunum Múlalundur Símar: 38400 - 38401 - 38405 og 38667 G3P SVGtA V/öGA í ‘ViLVtRAbJ ÞO 5TENDUR VITLRU5T Rt) ÞE5SU, GÓDR. LRTTU MI6 5NÖ66VR5T, 5JA SKÖFL;

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.