Morgunblaðið - 19.05.1983, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 19.05.1983, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1983 Lilja Guðrún Sigurð- ardóttir — Minning Fædd 26. ágúst 1912 Dáin 12. maí 1983 „Næst þegar ég fer til Reykja- víkur ætla ég að heimsækja ömmu Lilju.“ Þetta segir lítil stúlka sem enn veit ekki að allt sitt á hún undir fullorðna fólkinu. Hún veit hinsvegar að amma Lilja hefur alltaf verið henni góð og í hennar huga hafa amma Lilja og afi óli verið jafn fastir punktar í tilver- unni og mamma. Nú er amma Lilja farin og fyrir litla stúlku verður erfitt að skilja að hún sé ekki lengur. En væri hún stór og gæti sett sínar eigin hugsanir á blað veit ég að hún myndi vilja þakka ömmu Lilju fyrir alla þá elsku sem hún lét henni í té. Kynnin urðu stutt og fullorðna fólkið gleymdi, þar til of seint, — hve mikilsvert er fyrir litla mannveru að þekkja ættingjana. Hún þakkar ömmu Lilju allt og allt og biður Guð að gæta hennar vel. Á.- H. ..LíflÓ er fljótt' líkt er þad elding sem glampar um nótt Ijósi sem tindrar á tárum, titrar á hárum.“ (Matth. Joch.) Þegar hringt var til mín og mér sagt að hún Lilja Sigurðardóttir væri dáin, þá fannst mér tíminn nema staðar, svo stutt var síðan hún var meðal okkar hress og kát með spaugsyrði á vör. En það er einskis spurt þegar maðurinn með ljáinn er á ferð, hann heldur ferð sinni áfram, en í valnum liggja blómin sem hann óskaði sér. Lilja starfaði um margra ára skeið í Kvennadeild Slysavarnafélags íslands í Reykjavík, og var í stjórn Kvenna- deildarinnar um margra ára skeið. Hún var góður félagi og vann deildinni mjög vel og sérstaklega í sambandi við fjáröflun í hluta- veltu. Það voru stórar upphæðir sem Lilja safnaði og þó var hún oft sárlasin og hvað hún var þá dugleg að selja merkin og var oftast í Melaskólanum ásamt Önnu Guðmundsdóttur, sem líka lést á þessu ári. Mér finnst mikið skarð fyrir skildi, þegar Lilja okkar er horfin og við munum sakna hennar mikið úr hópnum. En mestur er þó sökn- uðurinn hjá eiginmanni hennar, Óla Guðmundssyni og börnum og barnabörnum. Við konur í kvd. SVFÍ sendum þeim öllum okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðjum Guð að blessa þau. Óg við kveðjum Lilju með hjartans þökk fyrir öll liðnu árin og sérstaklega góða viðkynn- ingu. Drottinn gef þú dánum ró, og hinum líkn sem lifa. Fyrir hönd Kvd. SVFÍ í Reykjavík, Guðrún S. Guðmunds- dóttir. Okkur í Kvenfélaginu Öldunni setti hljóðar, er við fréttum lát okkar kæru félagskonu, Lilju G. + Þökkum fyrir samuö og vinarhug viö andlát og útför JÓHÖNNU MAGNÚSDÓTTUR fró Svarfhóli. Ragnhildur Einarsdóttir og aðrir vandamenn. t Móöir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN SVEINSDÓTTIR, húsfreyja í Skaröshlíð, Eyjafjöllum veröur jarösungin frá Eyvindarhólakirkju, laugardaginn 21. maí nk. kl. 11 árdegis. Sveinn Jónsson, Kristín Hróbjartsdóttir, Hjörleifur Jónsson, Ingibjörg Snœbjörnsdóttir, Guðni Jónsson, Þórunn Jónasdóttir, Tómas Jónsson, Kristín Jónsdóttir, Sigríður Jónsdóttir, Kristinn Alexandersson, Anna Jónsdóttir, Finnur Bjarnason, Hilmar E. Jónsson, Ólöf Magnúsdóttir, Jakob Ó. Jónsson, Jónína Karlsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Lokað vegna jaröarfarar milli kl. 12—3 e.h. Laugavegi 6 — sími 14550 Sigurðardóttur. Hún lést 11. þ.m. á lokadaginn, eftir mánaðarlegu á Landsspítalanum þar sem hún gekkst undir mikla skurðaðgerð, sem allir bundu miklar vonir við. Við vissum að hún gekk ekki heil til skógar, en aldrei vildi hún láta á því bera. Minningarnar sem við eigum um Lilju eru margar og skemmti- legar. Sérstaklega minnumst við 5 ára afmælis félagsins, en þá steig hún á „fjalirnar" í fyrsta sinn. Þá komu fram hinir meðfæddu hæfi- leikar til tjáningar. Eftir það varð hún aðalleikkona félagsins og var alltaf tilbúin að skemmta félags- konum með leik, dansi eða söng og jafnvel bjó hún til efnið sjálf. Það er ógleymanlegt, að á síðasta fundinum sem hún sótti í mars, sagðist hún ætla að vera með okkur á vorhátíðinni ef Guð lofaði. Það má með sanni segja að Lilja var landformaður bæði við heimil- ið og útgerðina því eiginmaður hennar, Öli Guðmundsson skip- stjóri og útgerðarmaður, var mik- ið á sjónum. Svo það er hægt að ímynda sér að hún hafði óhemju mikið starf með höndum. Við félagskonur þökkum Lilju af alhug ánægjustundirnar sem við áttum saman. Við sendum eiginmanni hennar og ástvinum okkar innilegustu samúðarkveðj ur. Kvenfélagið Aldan. + Konan mrn, METTA BERGSDÓTTIR, Hrefnugötu 7, andaöist aö heimili okkar aö morgni 17. maí. Björgvin Friöriksson. Fööursystir mín, RAGNHILDUR SIGURÐARDÓTTIR frá Rauðafelli veröur jarösungin frá Eyvindarhólakirkju laugardaginn 21. maí kl. 14.00. Fyrir hönd vandamanna. Aöalbjörg Skæringsdóttir. + Eiginmaöur minn og sonur okkar, PÉTUR BERTHELSEN, veröur jarösunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfiröi föstudaginn 20. maí kl. 13.30. Guðný Böövarsdóttir, Sesselja Pétursdóttir, Sófus Berthelsen. Innflytjendur Útflytjendur... • VIÐ SÆKJUM VÖRUR VIÐ VERKSMIÐJUVEGG NÆR HVAR SEM ER Á MEGINLANDI EVRÓPU, BRETLANDI, DAN- MÖRKU, FINNLANDI, SVÍÞJÓÐ OG VÍÐAR OG SJÁUM UM FLUTNING OG ALLA SKYLDA ÞJÓNUSTU TIL ÁFANGASTAÐ- AR SJÁUM EINNIG UM FOB SENDINGAR í ÚTSKIPUNARHÖFNUM. ÚTFLYTJENDUM BJÓÐUM VIÐ UPP Á HLIÐSTÆÐA ÞJÓNUSTU TIL ENDASTÖÐVA. FÁIÐ VERÐTILBOÐ, NÝTIÐ YKKUR TRAUSTA ÞJÓNUSTU ÍSLENSKS FYRIRTÆKIS. ÞJÓNUSTA Á STAÐNUM Meginland Evrópu — til Norðursjávarhafna Nokkur dæmi: Fra MILANÓ— Ferðir alla virka daga Fra PARIS — 3-4 ferðir a viku Fra TORINO - 2-4 feröir a viku Fra BASEL — 2-4 ferðir a viku Fra VIN — 2-4 ferðir a viku Fra LINZ - 2 4 terðir a viku Fra BARCELONA — 1 -2 ferðir a viku Fra VALENCIA 1 -2 ferðir a viku Fra LISSABON 1 -2 ferðir a viku Fra OPORTO — 1 -2 ferðir a viku Fra AÞENU — 1 2 ferðir a viku Fra MARIBOR (Jugosl ) 1 -2 ferðir a viku Auk ferða frá fjolmörgum borgum í Þyskalandi, Hollandi og Belgiu flesta virka daga. TOLLSKYRSLUGERÐ UMSJÓN ENDURSENDINGA FLUTNINGSMIÐLUNIN x KLAPPARSTÍG 29 — 101 REYKJAVIK SIMAR 29671 29073 REYNSLAN TRYGGIR GÆÐIN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.