Morgunblaðið - 19.05.1983, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 19.05.1983, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1983 Bæjarþing Reykjavíkur: Kennarar fá fæðis peninga greidda í nemendaferðum DÓMUR er fallinn í undirrétti í máli, scm tveir kennarar höföuðu á hendur fjármálaráðuneytinu og borgarsjóði til greiðslu á fæðis- peningum vegna nemendaferðar. Krafa kennaranna um greiðslu skuldarinnar var viðurkennd og var borgarsjóði Reykjavíkur gert að greiða skuldina. Forsaga málsins er að vorið 1981 fóru tveir kennarar við Hlíðaskóla í Reykjavík í vor- ferðalag með 12 ára börn. Þeir sendu reikninga fyrir fæðispen- ingum samkvæmt samningum opinberra starfsmanna til fræðsluskrifstofu Reykjavíkur. Viðurkennt var að greiða bæri reikningana, en fjármála- ráðuneytið og borgarsjóður deildu um hvorum bæri að inna greiðsluna af hendi. Þetta ósamkomulag varð til þess, að kennararnir fengu ekki greiðsl- una og lentu þannig á milli steins og sleggju. Þeir fóru því í mál við þessa aðila til lúkn- ingar skuldinni. Dómur féll svo á þá leið, að borgarsjóði var gert að greiða skuldina. Borgarsjóður vísaði málinu til Hæstaréttar, en til þess þurfti leyfi dómsmálaráðuneyt- isins, þar sem um svo lága fjár- hæð var að ræða. Ráðuneytið hefur nú synjað borgarsjóði um leyfið og stendur dómur undir- réttar því óhaggaður og hefur borgarsjóður þegar greitt reikningana. Kennarar í Reykjavík fá því framvegis fæðispeninga í nemendaferðum greidda í samræmi við opinbera starfsmenn. Þjóðleikhúsið: Segerström dansar hlutverk Jeans Hlutverkabreyting hefur nú orðið í sýningu Þjóðleikhússins á ballett- inum Fröken Júlía eftir Birgit Cull- berg. Sænski dansarinn Fer Arthur Segerström hefur tekið við hlutverki Jeans af landa sínum Niklas Ek, sem dansaði hlutverkið hér á fyrstu sýningunum. Segerström er íslenskum leik- húsgestum að góðu kunnur, þar sem hann hefur tvisvar sinnum áður dansað í sýningum í Þjóð- leikhúsinu. Kl. 9.30 Kl. 11.00 Kl. 11.20 Kl. 12.30 Kl. 13.30 Kl. 16.30 Jónas Haralz Ráðstefna um Efnahagsbandalag Evrópu í Kristalssal Hótels Loftleiða föstudaginn 20. maí frá 9.30 til 16.30. Ráðstefnustjóri Jónas Haralz bankastjóri Dagskrá: Ávarp viðskiptaráðherra, Tómasar Árna- sonar. • EBE, uppbygging þess, starfsemi og sam- skipti við ríki utan bandalagsins. Kaffihlé. • Viðskipti EBE og íslands. Hádegisverður. • EBE og Bandaríkin. • EBE og Japan. • Starfsemi og stefna EBE í orkumálum. Ráðstefnuslit. — Ræðumenn frá Efnahagsbandalaginu verða Klaus Ewig, Folmer Bang Hansen og Niels Jörgen Thögersen. — Fyrirlestrarnir verða fluttir á ensku. 'Umræður og fyrirspurnir verða að loknum hverjum fyrirlestri. — Ráðstefnugjald er kr. 350.00. Innifalið er hádegisverð- ur og kaffi. — Allir sem tengjast viðskiptum, fjölmiðlun og stjórn- málum, svo og aðrir sem láta sig varða það sem er að gerast í alþjóðamálum, eru hvattir til að sækja þessa ráðstefnu. Nánari upplýsingar hjá Viðskipti og verzlun, síma 12850 og Verslunarráði íslands, síma 83088. Tómas Arnason Folmer Hang Hansen Niels Jörgen Thögersen Ráðstefnan er öllum opin viöskipti &verzlun Þing Norræna vélstjóra- sambandsins hefst í Reykjavík í dag DAGANA 19. og 20. maí nk. verður haldið í fyrsta sinn á íslandi þing Norræna vélstjórasambandsins, sem stofnað var árið 1919. Hlutverk sambandsins er að fjalla um félags- og kjaramál vél- stjóra á Norðurlöndum. Þriðja hvert ár er haldið þing sambandsins og þá er forseti þess kosinn. Á milli þinga, tvisvar á ári, er haldinn formannaráð- stefna, þ.e. formenn aðildarfélag- anna hittast til þess að fjalla um hin ýmsu mál, sem efst eru á baugi á hverjum tíma. f nóvember 1981 gerðist Vél- stjórafélag íslands formlegur aðili að þessum samtökum á fundi sem haldinn var í Gautaborg. Á síðasta fundi þessara sam- taka, sem haldinn var í Esbjerg dagana 1.—3. nóvember 1982 var ályktað um: Undanþágur til vél- stjórstarfa — Mönnunarmál — Menntunarmál vélstjóra. Jafnframt var rætt um hin ýmsu atriði varðandi störf og menntun vélstjóra, sem samræma þarf með tilkomu þeirrar ákvörð- unar stjórnvalda á Norðurlöndum um að Norðurlöndin skuli skoðast sem sameiginlegur vinnumarkað- ur, þar sem þegnar landanna hafi gagnkvæman rétt til starfa. Á þinginu verður m.a. haldið áfram umræðu um þessi mál og önnur sem nú eru í brennidepli. Menntunarmál vélstjóra eru stöðugt til umræðu. í beinu fram- haldi af þeim umræðum verður Vélskóli Islands heimsóttur, og mun skólastjóri hans, Andrés Guðjónsson, ásamt deildarstjór- um skólans kynna þingfulltrúum skólann og svara fyrirspurnum varðandi námsefni og starfsemi hans. Hitaveita Suðurnesja verður heimsótt og mun yfirvélstjóri hitaveitunnar, Bragi Eyjólfsson, upplýsa þingfulltrúa um starfsemi hitaveitunnar og tæknilegan bún- að. (Fréttatilkynning). Grásleppuhrognin: 27 krónur fyrir hvert kíló VERÐLAGSRÁÐ sjávarútvegsins hefur ákveðið að lágmarksverð á grásleppuhrognum upp úr sjó á hrognkelsavertíð 1983 skuli vera kr. 27,00 fyrir hvert kíló. Verðið er miðað við að gert sé að grásleppunni fljótlega eftir að hún er veidd og hrognin ásamt þeim vökva, sem í hrognasekkjunum er og þeim vökva, sem umlykur þá í holinu sé hellt saman í vatnshelt ílát. Ekki verði reynt að skilja vökvann frá hrognunum né bæta í vökva. Verðið er miðað við að seljandi afhendi hrognin á flutningstæki við hlið veiðiskips. Auk verðsins, sem að framan greinir skal lögum samkvæmt greiða 10% gjald í stofnfjársjóð fiskiskipa og ennfremur 7% olíu- gjald. Sendi 61 árs manni morðhótanir TÆFLEGA þrítugur maður í Vogun- um hefur viðurkennt að hafa sent 61 árs gömlum bónda á Vatnsleysu- strönd morðhótanir. Bóndinn fann fjögur bréf stíluð á sig í útihúsum, þar scm honum var hótað að verða skot- inn til bana. í gær viðurkenndi ungi maðurinn fyrir rannsóknarlögregl- unni í Keflavík að hafa sent bréfin. Mennirnir hafa þekkst um nokk- urra ára skeið og munu góðir kunn- ingjar. Bóndinn vill ekki leggja fram kæru á hendur unga mannin- um. Ekkert bendir til þess, að ungi maðurinn hafi ætlað að láta verða af hótunum sínum. Málið verður sent ríkissaksóknara. Akureyri: Bifreið stolið og hún stórskemmd AÐFARANÓTT þriðjudagsins var bifreiðinni A-4208, sem er rauð af gerðinni BMW 315, stolið á Akur- eyri. Fannst hún í gær stórskemmd við Hámundarstaði í Árskógshreppi um 10 kílómetra innan Dalvíkur. Vegna þessa óskar rannsóknar- lögreglan á Akureyri eftir upplýs- ingum um ferðir bifreiðarinnar, hafi einhverjir orðið hennar varir á Akureyri eða á leiðinni til Dal- víkur umrædda nótt. upp úr sjó Heildarverð, sem kaupanda ber að greiða, er samkvæmt þessu kr. 31,59 hvert kg. Segja má verðinu upp með viku fyrirvara hvenær sem er á verð- tímabilinu. Reykjavík: Hjólaskoö- un við grunn- skólana DAGANA 16. til 21. maí er á vegum lögreglunnar í Keykjavík og Umferð- arnefndar Keykjavíkur hjólaskoðun við grunnskóla borgarinnar. f frétt frá þessum aðilum segir: „Tímasetning hefur verið auglýst í öllum skólum. Lögreglan telur mjög mikilvægt að ná til sem flestra hjólreiðabarna. Nú fer í hönd sá tími, sem slys á fólki á reiðhjólum eru hvað algeng- ust. Lögreglan leggur áherslu á að sem flest börn mæti með hjól sín til skoðunar og að foreldrar hafi eftir- lit með yngstu börnunum, þegar þau byrja að hjóla og veiti þeim tilsögn í umferðinni. Einnig vill lögreglan minna á að börnum yngri en sjö ára er óheimilit að vera á reiðhjólum á almanna- færi. Börn yngri en tíu ára ættu ekki að hjóla á akbrautum. Heimilt er að hjóla eftir gangbrautum og gangstígum, þar sem það er hægt án hættu eða óþæginda fyrir gangandi vegfarendur. Fækkum reiðhjólaslysum og öðr- um slysum í umferðinni. Samein- umst um betri umferð."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.