Morgunblaðið - 19.05.1983, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 19.05.1983, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1983 39 fclk í fréttum + Christina heitir smá- stirni eitt frá París, sem nú er statt i Cannes í Frakklandi í tilefni af kvikmyndahátíðinni þar. Að vísu á hún engan hlut að máli í myndunum, sem er verið að sýna, en það er aldrei að vita nema hún verði „uppgötvuð** þegar minnst varir. Þess vegna er hún ekkert að fela sig í fötunum og nýt- ur sumars og sólar á með- an hún bíður. Reynsl- unni ríkari + Poppsöngvarinn Shakin’ Stevens segist vera ákveðinn í að skýra ekki frá því framar þegar hann ætlar að bregða sér í frí með fjölskyld- una. í síðustu tvö skiptin, sem hann hefur gert það, hefur verið brotist inn í íbúð hans í Lond- on og nú síðast var stolið þar skartgripum og pelsum fyrir hátt í milljón krónur. frið Twiggy fær engan + Eins og við höfum sagt frá gerir hún Twiggy stormandi lukku á Broadway en þegar heim kemur syrtir heldur í álinn. I»ar bíður nefnilega maðurinn hennar fyrrverandi og linnir ekki látunum með að fá að komast inn. Twiggy hefur raunar bannað dyraverðin- um að hleypa fyrrverandi maka hennar, leikaranum Michael Whithey, inn í bygging- una en honum hefur samt tekist það nokkr- um sinnum. Nú um daginn lamdi hann dyrn- ar hjá henni í 45 mínútur áður en nágrann- arnir létu lögregluna leiða hann á brott í handjárnum. „Ég vildi bara fá að sjá dóttur okkar, hana Carly,“ sagði Whithey og lýsti því jafnframt yfir að honum einum væri að kenna hvernig hjónabandið fór. „Ég gat ekki sætt mig við, að það var konan mín, sem sá fyrir okkur báðum. Ég fékk ekkert að gera og hallaði mér þess vegna að flöskunni. Það átti konan mín erf- itt með að þola sem eðlilegt er,“ segir Whitney, sem nú lofar bot og betrun og vill að Twiggy taki hann í sátt. Twiggy og Michael meðal allt lék í lyndi. Tjöld og viðlegubúnaður í miklu úrvali Sérstaklega bendum við á: Tjöld: 2ja, 3ja, 4ra, 5 og 6 manna. Göngutjöld. Tjaldborgarfellitjöld. Tjaldhimnar í miklu úrvali. Sóltjöld. Tjalddýnur, svefnpokar, útigrill, tjaldborö og stólar, sólbeddar og sólstólar. Opið laugardaga til kl. 12.00. TÓmSTUflDFIHÚSIS HF laugauegi 16“5 Rcutiauit s 31901 Metsölublað á hverjum degi! SPUNNH) UM STAIÍN eftir MATTHÍAS JOHANNESSEN fyrirlítur Dostojevskí einkum fyrir þær skoðanir hans, að bylting sé antikristur. Og þá ekki síður, að orþodox- kirkjan sé hin eina sanna og Rússland eigi guðlega kröfu til Miklagarðs. Stalín blaðar í Dostojevskí, les: f raun og veru berum við öll ábyrgð á öllu, en við vitum það bara ekki. En ef við vissum það, blasti við okkur himnesk paradís á jörðu. 34 Djilas er enn að punkta hjá sér minnisatriði. En nú er hann orðinn þreyttur. Hann háttar. I rúminu les hann það, sem hann hefur hripað niður til notkunar síðar: Vald kommúnistanna er fullkomnara en vald Jakobín- anna . . . Stalín skín á þá eins og sól á jörð. Án hans lifa þeir í eilífu myrkri . . . Molotov vélmenni, en getur þó farið úr gervinu . . . Enginn vafi á, að hann hefur áhrif á Stalín. Enginn ætti að gera lítið úr áhrifum hans á þróun frumstæðs bændaþjóðfélags til nútíma iðnveldis. Polína, kona hans, hlédræg í reisn sinni .. . Sambandið milli Molotovs og Stalíns er náið og laust við allt formlegt yfirborð . . Engu líkara en þcir treysti hvor öðrum . . . Stalín líflegur og opinskár . . . óbilgjarn og yfirgangs- samur . . . tiílitslaus og nærgöngull í samtölum. Ekki allur þar sem hann er séður. Innsta eðli vel skýlt undir skelinni, þar sem kreddufastur og ofstækisfullur bylt- ingarmaður hefur búið kyrfilega um sig eins og skæruliði í skógum og fjalllendi . . . Hefur ánægju af að tala um byltingarárin, þegar hann þurfti að breyta um nafn með hverri tunglkomu. Lenin gaf honum nafnið Stalín: Stálið, þegar hann var leystur úr Síberíuvistinni eftir byltinguna, 1917. Veit að í þessari nafngift felst bæði viðurkenning og traust. Veit að hann hefur ekki kafnað undir nafni . . . Lenin er mannþekkjari! Stalín er hreinskilinn í samtölum og gengur að hverju máli rcfjalaust, eins og þeir gera einir, sem eru sér meðvitandi um völd sín. Virtist reiður, þegar ég sagði við mundum borga alla hernaðaraðstoð: Við lifum ekki á blóði, sagði hann. Við erum ekki kaup- mcnn! Djilas lítur upp úr blöðunum. Hann hugsar hlýlega til Zhadanovs. Hann bar af þeim öllum við kvöldmáltíðina. Kcmur vcl fyrir. Það er að minnsta kosti góðs viti. Tengi- liður Æðstaráðsins við alþjóðasambandið og sá sem hefur önnur kommúnistaríki á sinni könnu. Einkennilegt þetta land! Þessi borg! Og þetta fólk! f grafhýsinu signir gamla fólkið sig við líkamsleifar Lenins, eins og þær væru krist- in helgimynd. Undarlegt þetta land! Eins og fyndni Stal- íns, þessi óskiljanlega, kaldranalega fyndni, sem hann grípur til, þegar honum hentar að stíga niður af Olympus- tindinum til að minna á mannúðarstefnu kommúnismans. Svo tekur hann dansspor við kvöldmáltíðir, ef það hentar. Gerir jafnvel grín að Kalínin forseta, elliærum, í votta viðurvist, en lætur svo skála fyrir honum nokkrum mínút- um síðar. Æ, þessi bæklaði húmor! Bergþurs! Jafnvel minni en Djilas þótti við fyrstu sýn. Áróðurinn svo sterkur, að Stalín minnkar við nánari kynni! Og hann gætir þess vandlega, að enginn nánustu samstarfsmanna hans sé hærri en hann sjálfur. Það finnst þessum júgóslavneska kommúnista fyndnasta alvara. 35 Stalín er lagstur á legubekkinn. Hann leggur Dosto- jevskí frá sér. Slekkur ljósið. Hugsar um söguna, sem Júgóslavinn sagði honum af Tyrkjanum og Svartfjallabúanum: Við berjumst til að ræna, sagði Svartfjallabúinn. En Tyrkinn svaraði: Við berjumst fyrir heiðri og dýrð. Þá sagði Svartfjallabúinn: Allir berjast fyrir því, sem þeir hafa ekki. Stalín hafði hlegið eins og tröll. Molotov sagði ekkert. Stalín brosir með sjálfum sér. Það er eitthvað líkt með KRAMHALD

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.