Morgunblaðið - 19.05.1983, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 19.05.1983, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1983 Greenpeace vill bjarga hvalnum Kaupmannahöfn, 1H. maí. AP. SKX MKTKA langur mjaldur, hvít hvalateg- und úr íshaflnu, skaut upp kollinum einn síns liös við Virkesund í Limafiröi í fyrradag og í gær tilkynnti talsmaður Greenpeace, náttúruverndarsamtakanna, aö félagskapur- inn myndi borga björgunaraðgeröirnar. Kkki er ólíklegt að það takist að ná hvalnum, en samt sem áður óttast margir að hann lifi það ekki af. Sören Andersen, einn fremsti hvalasér- fræðingur Dana, sagði að dýrið ætti því miður ekki nema takmarkaða möguleika á því að lifa þetta af, þetta væru félagsver- ur og þetta dýr ætti hverfandi möguleika á því að finna á ný hóp sinn. Sagöi And- erson jafnframt, að hann hefði hugsað sér að reyna að beina dýrinu inn i.lygnan og rólegan vog, ná því þar síðan með netum. Þúsundir ferðamanna hafa siglt fram og til baka um Limafjörðinn og margir hafa verið svo heppnir að sjá dýrið. Það er hulin ráðgáta hvernig það komst svo langt inn í völundarhús Limafjarðar. Telja ýmsir að hvalurinn hafi elt fiski- torfu inn í fjörðinn og vilist síðan er hann ætlaði að snúa til opins hafs á ný. Mjaldurinn byltir sér í Limafirði Ólánslest Png, 18. maí. AP. FJÓRIK létu lífið og 46 manns slös- uóust er sama járnbrautarlestin lenti í tveimur óhöppum á tæpum sólar- hring. Fyrra óhappið átti sér stað 16. maí, en þá ók rútubifreið full af pólskum ferðamönnum í veg fyrir lestina. Létust 3 Pólverjar, en 13 slösuðust. Síðara óhappið átti sér síðan stað tæpum sólarhring síðar, en þá ók lestin framan á vörufiutn- ingalest. Einn lét lífið, lestarstjór- inn, en 33 slösuðust, sumir alvar- lega. Kýldi prest í gegn um skriftalúgu Siaunion Virginina, 18. maí. AP. í fyrradag var séra Gregory Dodge var í skriftaklefanum að hlýða á syndir ókunnungs manns í Stauntonsókninni, sem telur aðeins 250 fjölskyldur. Lítið er vitað hvaða syndir syndarinn hafði drýgt, en er hann hafði lok- ið máli sínu lét séra Dodge nokk- ur vel valin orð falla og kallaði á manninn að iðrast gerða sinna. Vissi þá Dodge ekki fyrr en mað- urinn rak handlegginn í gegn um skriftalúguna, þreif í hálsmálið á honum, dró hann að lúgunni og lét höggin dynja á andliti hans. Áður en varði loguðu slagsmál í skriftaklefanum er Dodge streittist á móti. Komst syndar- inn undan, en prestur var færður á sjúkrahús þar sem sárin á and- liti hans voru saumuð saman. Veður víða um heim Akureyri 3 alskýjað Amsterdam 17 skýjað Aþena 31 skýjað Barcelona 18 lóttskýjað Berlín 20 bjart Brössel 16 bjart Chicago 15 skýjað Dytlinni 15 skýjað Feneyjar 23 skýjað Frankfurt 22 rigning Genf 18 rigning Helsinki 17 bjart Hong Kong 27 Mttskýjað Jerúsalem 26 skýjað Jóhannesarborg 11 lóttskýjað Kairó 31 heiðríkt Kaupmannahöfn 19 heiðrikt Las Palmas 21 hálfskýjað Lissabon 17 skýjað London 14 rigning Los Angeles 34 lóttakýjað Malaga 24 skýjað Mallorca 22 lóttskýjað Mexíkóborg 32 lóttskýjað Miami 29 skýjað Moskva 21 bjart Nýja Dehlí 38 heiðríkt New York 17 mistur Osló 13 skýjað París 18 rigning Perth 21 rignin Rio de Janeíro 34 rigning Reykjavík 8 lóttskýjað Rómaborg 26 bjart San Francisco 29 bjart Stokkhólmur 17 heiðskírt Sydney 20 skýjað Tel Aviv 25 skýjað Tókýó 21 heiðskirt Vancouver 13 skýjað Vínarborg 29 heiðrikt bórshöfn 8 alskýjað bendir á njósnara Bonn, 18. maí. AP. VESTUR-ÞÝSKA tímaritið Quick benti á fjóra sovéska njósnara starf- andi í Vestur-Þýskalandi í síðasta tölublaði sínu, birti af þeim myndir og sagði þá alla starfa í sovéska sendiráðinu í Bonn. Jafnframt gat blaðið þess að sí- vaxandi umsvif njósnara í Vestur- Þýskalandi væri mikið áhyggjuefni og stafaði ekki síst af lélegri leyni- þjónustu Vestur-Þjóðverja og fleiri landa Vestur-Evrópu. Blaðið sagði að 100 hinna 408 sovésku diplómata starfandi í landinu væru njósnarar og það væri alls ekki óhugsandi að talan væri enn hærri. Bar blaðið frétt sína undir talsmenn innanrík- isráðuneytisins, en þeir hvorki stað- festu fréttina eða neituðu henni. Hafði blaðið þó eftir áreiðanlegum heimildum að stjórninni væri kunn- ugt um starfsemi umræddra manna og væru þeir undir eftirliti. Quick getur þess að upp hafi kom- ist um einn fjórmenninganna með furðulegum hætti. Sovétmaðurinn hitti þá vestur-þýskan embætt- ismann og að skilnaði gaf hann hon- nafnspjald sitt eins og títt er. Nafnspjaldið varð hins vegar eftir í vasa Rússans, en á miðanum mátti sjá langan lista bílnúmera. Þegar um nokkuð sem hann taldi vera að búa í OaM, 18. maí. AP. NOKSKA stjórnin hefur boðið Androv Sakharov að búa í Noregi með fjöl- skyldu sinni, hafi hann áhuga á því og fái hann fararleyfi frá Sovétríkjunum. Sakharov hefur áður lýst yfir að hann vildi gjarnan búa í Noregi og stjórnvöld í Noregi hafa oftar en einu sinni fært málið í tal við sov- éska ráðamenn. Síðast sendi norski utanríkisráðherrann, Svenn Stray, bréf til Andrei Gromyko í mars á þessu ári. Sovétmenn hafa látið hafa eftir flett var upp á númerunum kom í ljós að þau voru óskráð og tilheyrðu vestur-þýsku leyniþjónustunni. Not- aði hún númerin á bifreiðir þær sem notaðar hafa verið til eftirfarar. Noregi sér að ekki komi til mála að Sakh- arov fái að flytjast af landi brott, hann búi yfir alltof mörgum ríkis- leyndarmálum. Sakharov býr við skert ferðafrelsi í borginni Gorki. Sagt er að hann hafi verið heilsuveill upp á síðkastið. Norsk stjórnvöld hafa látið í veðri vaka að þau séu ekki ánægð með svar Sovétmanna um að veita skáld- inu ekki brottfararleyfi og þau hafi í hyggju að fylgja málinu betur eftir. Sakharov boðið Stöðvast Stern? Hamborg, 18. maí. AP. KNN ER allt í háalofti innan veggja hjá vesturþýska vikuritinu Stern, sem hóf birtingar á dagbókum Adolfs Hitl- er, sem svo reyndust falsaðar sem kunnugt er. Horfur eru á því að næsta tölublað Stern komi ekki út, enda hef- ur starfsfólk blaðsins lagt niður vinnu og heimtar að Henri Nannen útgefandi verði rekinn frá störfum, einnig framkvæmdastjórinn Gerd Schulte Hilten. Segir starfsfólkið að með því að birta hinar fólsuðu dagbækur hafi um- ræddir menn lagt sjálfsvirðingu blaðs- ins svo og vinnugleði blaðamanna þess í rúst og því verði þeir að taka á sig ábyrgð á mistökunum. Þá krefst starfsfólk blaðsins, að hinir tveir nýráðnu ritstjórar þess, Johannes Gross og Peter Scholl- Latour verði þegar reknir, því þeir hafi íhaldssamar skoðanir sem gætu skaðað frjálslyndisstefnu blaðsins. Þeir Gross og Latour voru ráðnir i kjölfarið á uppsögn ritstjóranna Peter Koch og Felix Schmidt en þeir sögðu af sér vegna dagbókarmálsins. Næturlangir fundir hafa staðið yfir að undanförnu með starfsfólkinu annars vegar og blaðstjórninni hins vegar. Síðast er fréttist var allt við sama heygarðshornið og ekki útlit fyrir samkomulag. Nú er það hraðinn sem gildir, ef þú ætlar að kaupa Superia á gamla verðinu. Eigum ennþá __ flestar tegundir Superia )/ f reiðhjóla á gamla verðinu. . 0 Ennfremur þríhjól og 14og16" HjÓI & VdCjndÍ\y/ barnahjól með hjálpardekkjum. Háteigsvegi 3,105 Reykjavik, s/m/2/577 '-j

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.