Morgunblaðið - 19.05.1983, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1983
Útgerðin rekin
með 8,5% tapi
Saltfiskverkun með 3,2% tapi og frysting á núlli
NÚ ER útgerðin rekin með 8,5% tapi að meðaltali miðað við heilt ár, söltun
með 3,2% tapi og frysting nánast á núlli samkvæmt útreikningum Þjóð-
hagsstofnunar, sem lagðir voru fram á fundi verðlagsráðs sjávarútvegsins
fyrir skömmu og legið hafa frammi við stjómarmyndunarviðræður. Afkoma
skreiðarverkunar hefur ekki verið reiknuð út nú. Miðast útreikningarnir við
5. maí síðastliðinn. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins þýðir 8,5%. tap-
rekstur útgerðarinnar þörf á hækkun fiskverðs um 12 til 13% þann 1. júní
miðað við svokallaðan núllrekstur. Það kallar aftur á 9 til 10% gengislækk-
un miðað við sama dag til að bæta fiskvinnslunni upp hækkunina. Þá er
miðað við svipaða hækkun launa og fiskverðs 1. júní.
{ frystingu og söltun miðast út- örlitla verðhækkun. I söltuninni
reikningarnir við markaðsverð í
frystingu og söltun eins og það er
um þessar mundir. Lækkun á
markaðsverði á saltfiski er tekin
inn í og í frystingu er miðað við
er gert ráð fyrir verðjöfnun upp á
um 132 milljónir króna eða 6%, en
ekki er gert ráð fyrir verðjöfnun í
frystingu. I útreikningnum er
ekki gert ráð fyrir magnbreyting-
um og breyttri aflasamsetningu. í
söltuninni hefur ekki verið gert
ráð fyrir kostnaði af selorma-
tínslu.
Hvað varðar útgerðina er gert
ráð fyrir að hallinn á bátaflotan-
um sé 8,1%, á minni togurum
7,8% og stærri togurum 13,1%
eða samtals 8,5% eins og áður
sagði. Þetta er miðað við afla-
samsetningu ársins 1982 þannig,
að ekki er tekið með í dæmið það,
sem gerzt hefur á þessu ári, en
það þýðir að öllum líkindum að
afkoma bátaflotans er nokkuð
lakari, en afkoma togara svipuð.
Fiskveiðiflotinn rekinn
með 800 milljóna kr tapi
— stefnir í öngþveiti í atvinnugreininni, segir Kristján Ragnarsson
„SÉ LITIÐ á rekstrarafkomu
fiskveióiflotans miöað við breyttar
aflaforsendur báta og toijara á
þessu ári, er rekstrartap hjá bátun-
um 421 milljón króna, hjá minni
togurunum 240, stærr/ togurum 68
og loðnubátum 150 til 200 milljónir
eða samtals rúmar 900 milljónir. í
prósentum þýðir þctta, að tap minni
bátanna er 17,4, minni togaranna
10,3 og stærri togaranna 13,1“,
sagði Kristján Ragnarsson, formað-
ur og framkvæmdastjóri LÍÚ í sam-
tali viö Morgunblaðið.
„Stóru togararnir hafa jafnað
aflaminnkunina með auknum söl-
um og fengið þannig hagstæðara
verð fyrir aflann. Samkvæmt út-
reikningi Þjóðhagsstofnunar er
taprekstur bátaflotans í krónum
talið 170 milljónir, minni togar-
anna 188 og stærri togaranna 68.
Inn í dæmi Þjóðhagsstofnunar
vantar loðnubátana, sem er
skelfilegasta dæmið af þeim öll-
um, en tap þeirra nú miðað við
ársrekstur er á bilinu 150 til 200
milljónir. Þá gerum við ráð fyrir
að bætur aflatryggingasjóðs til
bátanna gætu numið 80 til 100
milljónum króna og heildartapið
nemur því um 800 milljónum.
Þannig linast þjáningar útgerð-
armanna bátanna, þannig að þeir
geta væntanlega staðið í skilum
við áhafnir sínar. Það er rétt að
fram komi, að í aflatryggingasjóði
eru peningar, sem útgerðarmenn
hafa lagt fyrir til að mæta svona
áfalli.
Tölur Þjóðhagsstofnunar eiga
engan veginn við nú, þar sem þær
byggja á aflabrögðum síðasta árs.
Við höfum séð aflarýrnun þessa
árs og tillit til hennar verður að
taka. Vetrarvertíð er lokið og bát-
arnir bæta sér ekkert upp afla-
rýrnunina á henni. Hugsanlegt er
að stöðva þurfi karfaveiðar tíma-
bundið vegna offramleiðslu á
karfaafurðum og ekki bætir það
ástandið í rekstri togaranna.
Mestar áhyggjur höfum við af
minnkandi afla vegna þess, að það
þýðir minnkandi tekjur fyrir alla
þjóðina og við þær aðstæður, sem
við búum við, megum við sízt við
því. Því er það alvarlegt mál, ef
við erum að ofgera þorskstofnin-
um, sem hefur verið burðarás
efnahagslífsins. Þessi staða er svo
átakanleg með hliðsjón af því, að
á undanförnum aflaárum hefur
útgerðinni ekki verið gefið tæki-
færi til þess að vera rekin með
viðunandi hætti. Henni hefur ver-
ið gert að safna verðtryggðum
skuldum og nú er að koma að af-
borgunum vegna skuldbreytingar-
innar frá því um síðustu áramót
til viðbótar við rekstrartapið nú.
Mér sýnist að það sé nánast að
verða öngþveiti í þessari atvinnu-
grein,“ sagði Kristjan.
Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson:
Frystingin rekin
med Vá% tapi
„ÞAÐ ERU nú margir óvissu-
þættir í þessum málum. í þessum
útreikningum er frystingin sögð
rekin á núlli í maí. En við það er
að athuga, að Þjóðhagsstofnun
reiknaði með því, að frá byrjun
janúar hefði orðið 1% hækkun á
söluverði, en eftir að verðlækkun-
in á karfa, 8 til 10%, kom til verð-
ur 'k% heildarverðlækkun, sem
þýðir l'A% taprekstur á frysting-
unni nú. Þá er ekki tekið tillit til
þeirrar breytingar á aflasamsetn-
ingu, sem orðið hefur á þessu ári.
Þetta er miðað við aflasamsetn-
ingu síðasta árs. Nú hefur orðið
óhagstæð þróun í karfavinnslunni
til dæmis og hefur það einhver
áhrif á þessa útreikninga. Staðan
leyfir því enga fiskverðshækkun
frekar en endranær," sagði Eyj-
ólfur ísfeld Eyjólfsson, fram-
kvæmdastjóri Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna, í samtali við
Morgunblaðið.
Saltfiskverkunin
rekin með 20% tapi
— höfum gert athugasemdir við niðurstöðu Þjóðhagsstofn-
unar, segir Sigurður Haraldsson, skrifstofustjóri SÍF
ÞRÁTT fyrir að söluverð á saltfiski
á erlendum mörkuðum sé nú í hærra
lagi miðað við verð keppinauta
okkar, nægir það hvergi nærri til að
skapa saltfiskframleiðendum við-
unnandi afkomu við núverandi
gengi íslenzku krónunnar. Það
slæma útlit, sem blasti við framleiö-
endum í upphafi vertíðar hefur enn
stórlega versnað vegna lítils afla og
stöðugt aukins tilkostnaðar. SÍF hef-
ur gert stjórnvöldum grein fyrir því
hvernig málin standa og lýst brýnni
nauðsyn þess, að þegar verði bætt
úr,“ sagði Sigurður Haraldsson,
skrifstofustjóri Sölusambands ís-
lenzkra fiskframleiðenda, er Morg-
unblaðið innti hann eftir afkomu
saltfiskverkunar.
„Tap við vinnslu þorsks í salt
teljum við nú vera 18 til 20% og er
þá ekki tekið tillit til aukins
kostnaðar við hreinsun selorms.
Við höfum gert athugasemdir við
niðurstöður Þjóðhagsstofnunar,
en þar er meðal annars ekki tekið
tillit til versnandi samsetningar
saltfiskframleiðslunnar, sem
rekja má til lokunar skreiðar-
markaða. Þá teljum við, að hráefni
og vextir séu vanreiknaðir í áætl-
un Þjóðhagsstofnunar og síðast en
ekki sízt, þá reiknar Þjóðhags-
stofnun með 132 milljóna króna
greiðslu úr Verðjöfnunarsjóði, en
inneign saltfiskframleiðenda í
sjóðnum er nú aðlins um 70 millj-
ónir króna," sagði Sigurður.
Gfsli Maack afhendir Björgu Guðnadóttur blómvöndinn á Keflavíkurflug-
velli á þriðjudagsmorgun. Ljósmynd Heimir Stígsson.
Arnarflug:
Tíu þúsundasti far-
þeginn til Amsterdam
ARNARFLUG hefur frá upphafi
áætlunarflugs milli Keflavíkur og
Amsterdam á síðasta ári flutt rúm-
lega tíu þúsund farþega á þessari
flugleið, segir í frétt frá félaginu.
Tíu þúsundasti farþeginn flaug
með Arnarflugi til Amsterdam á
þriðjudag og var það Björg
Guðnadóttir, sem var á leið utan
með manni sínum, Skúla Guð-
mundssyni.
í tilefni af þessum áfanga færði
Gísli Maack, stöðvarstjóri Arnar-
flugs í Keflavík, Björgu blómvönd
við brottför og síðan mun Arnar-
flug bjóða þeim hjónunum í skoð-
unarferð um Amsterdam og til
kvöldverðar á Lido-skemmtistaðn-
um í Amsterdam.
Fengu afhenta 20
VW Golf-sendibfla
HEKLA HF. afhenti Pósti & síma á dögunum 20 Volkswagen
Golf-sendibíla af árgerðinni 1983, en að sögn Sverris Sigfússonar,
framkvæmdastjóra hjá Heklu hf., er hér um að ræða stærstu sölu á
Golf-sendibílum til sama aðila í einu lagi.
Vorsýning Kvartmíluklúbbsins
Kvartmíluklúbburinn heldur um
næstu helgi bílasýningu á höfuð-
borgarsvæðinu. Verður hún í hús-
næði Gúmmívinnustofunnar við
Réttarháls 2, sem er í nánd við
Árbæ.
Að sögn Örvars Sigurðssonar
formanns Kvartmíluklúbbsins
verður fjöldi sýndra bíla um fjöru-
tíu. Meðal sýningagripa eru
kvartmílubílar, torfæru-, rall- og
sportlegir götubílar. Einnig verða
sýnd nokkur mótorhjól. Örvar
kvað sýninguna verða vandaðri en
áður hefði verið og frágangur yrði
eins góður og mögulegt væri. Með-
al athyglisverðra bíla á sýning-
unni er Ford Pinto, sem mikla at-
hygli vakti í kvartmílukeppni sl.
sumar. Hefur verið mikið lagt í
bílinn í skjóli vetrar. Af öðru
merkilegu sem á sýningunni verð-
ur má nefna glæsilega sprautaða
og skrautmálaða bíla og turbo-
mótorhjól. Sýning Kvartmílu-
klúbbsins verður opin frá kl.
14—22 frá laugardegi til mánu-
dags.