Morgunblaðið - 19.05.1983, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1983
Alltaf á fóstudögum
„TOK BARNIÐ TIL MIN
BEINT AF FÆÐINGAR-
DEILDINNI“
Viötöl viö f[óra einstæöa feöur.
„EINI LÚXUSINN SEM
ÉG VEITI MÉR ER AÐ
HAFA STÓRT PLÁSS
TIL AÐ VINNA í.“
Rætt við Brynhildi Þorgeirsdóttur,
glerlistarkonu.
LEIÐIN OKKAR ALLRA
Fimmti þáttur greinarflokksins um
ófrjósemi.
Föstudagsblaðið er gott forskot á helgina
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir GUÐM. HALLDÓRSSON
GJAFAVÖRUVERSLUNIN
Elegans
SKÓLAVÖRDUSTÍG 42
ELEGANT FYRIR VANDALÁTA
GANGIÐ INN Í
ELEGANS
á SKÓLAVÖRÐUSTÍG 42.
Fanfani: farsæll.
Craxi: metnaðargjarn.
Morlino: árangurslausar viðræður.
Kosningar á ítalíu
að kröfu sósíalista
ÞING hefur verið rofið á Ítalíu og kosningar fara fram 26. og 27. júní að
kröfu sósíalista, sem gera sér vonir um að auka fylgi sitt úr um 10 í a.m.k.
15 af hundraði atkvæða.
Um eitt ár er eftir af kjör-
tímabilinu, en kosningar
urðu nauðsynlegar þegar sósíal-
istar hættu stuðningi sínum við
fjögurra flokka stjórn Amintore
Fanfani forsætisráðherra, 43.
ríkisstjórnina frá stríðslokum.
Að stjórninni stóðu flokkar
kristilegra demókrata, sósíalista,
sósíaldemókrata og frjálslyndra.
Hún hefur verið við völd í tæpt
hálft ár og situr áfram til bráða-
birgða.
Þetta verður stytzta kosn-
ingabarátta í sögu lýðveldisins og
þetta er í fjórða skipti í röð sem
gengið er til kosninga áður en
kjörtímabilinu lýkur. Bæjar- og
sveitarstjórnakosningar fara
fram um leið og þingkosningarn-
ar.
Sex samsteypustjórnir hafa
setið að völdum á Ítalíu síðan f
síðustu kosningum 1979, fjórar
undir forystu kristilegra demó-
krata, tvær undir forystu Lýð-
veldisflokksins. Forsætisráðherr-
ar hafa verið fjórir.
Skoðanakannanir benda til
þess að flestir ítalir séu því mót-
fallnir að gengið sé strax til kosn-
inga með öllum þeim kostnaði og
þeirri fyrirhöfn, sem því fylgir.
Flestum á óvart dró Sandro
Pertini forseti ákvörðun um þing-
rof á langinn og reyndi að koma f
veg fyrir kosningar. I því skyni
fól hann forseta öldungadeildar-
innar, Tommasso Morlino, að
ræða við leiðtoga stjórnmála-
flokkanna um myndun sam-
steypustjórnar með öruggan
þingmeirihluta. Pertini er sjálfur
sósíalisti, en honum er í nöp við
leiðtoga þeirra, Bettino Craxi, og
hann lagði metnað sinn í að þing-
ið sæti út kjörtímabilið. Það
strandaði á andstöðu sósíalista.
Jafnvel flokkur kommúnista
studdi tilraun forsetans.
Sósíalistaleiðtoginn Craxi fer
ekki dult með þá löngun sína að
verða fyrsti forsætisráðherra
flokksins í sögu Ítalíu. Jafnað-
armenn hafa verið sigursælir í
Grikklandi, Spáni, Portúgal,
Frakklandi og Svíþjóð og Craxi
telur að ítalskir sósíalistar njóti
sama meðbyrs. Craxi hefur
greinilega talið að sósíalistar
stæðu betur að vígi í kosningum
nú en að ári liðnu.
Þótt sósíalistar fengju aðeins
10% atkvæða 1979 er flokkur
þeirra sá þriðji stærsti og áhrif
þeirra eru töluverð. Kristilegir
demókratar hlutu 38% atkvæða
og kommúnistar, stærsti flokkur
marxista á Vesturlöndum, 30%.
Þar sem hvorugur flokkurinn
hefur meirihluta á þingi hefur
verið nauðsynlegt að tryggja lið-
veizlu sósíalista, sem hafa verið í
oddaaðstöðu við myndun sam-
steypustjórna.
Það sem mest hefur háð sósíal-
istum er skortur á einingu og
sjálfstæði og hentistefna, sem
flokkur þeirra hefur fyigt. Flokk-
urinn hefur alltaf verið talinn
nokkurs konar hjáleiga kristi-
legra demókrata eða kommúnista
og hefur því fengið heldur slæma
útkomu í kosningum.
Sósíalistar hafa reynt að koma
af stað kosningum í tæpt ár og
tvívegis valdið stjórnarkreppu á
þeim tíma.
f ágúst í fyrra felldi Craxi fyrri
ríkistjórn Giovanni Spadolini úr
Lýðveldisflokknum, en þar sem
kristilegir demókratar og komm-
únistar voru andvígir kosningum
neyddust sósíalistar til að sam-
þykkja að Spadolini myndaði
aðra stjórn.
f nóvember fékk Spadolini sig
fullsaddan á stöðugum illdeilum
kristilegra demókrata og sósíal-
ista og baðst lausnar, en komizt
var hjá kosningum þar sem
kristilegir demókratar, kommún-
istar og Pertini forseti voru and-
vígir hugmyndinni. Enn urðu
sósíaiistar að láta undan og Fan-
fani myndaði stjórn sína. En sósí-
alistar tóku fram að stjórnin
mundi aðeins sitja f sex mánuði.
Fanfani hefur verið farsæll
forsætisráðherra. Engin pólitísk
hryðjuverk hafa verið framin það
sem af er árinu vegna árangúrs-
ríkra aðgerða fyrri ríkisstjórna
og glæpir hafa minnkað. Stjórn
Fanfanis hefur verið samhentari
en stjórn Spadolinis. Laumuspil
og baktjaldamakk hafa ekki ein-
kennt stjórn hans eins og Spado-
lini-stjórnina. Hann hefur
ferðazt víða um landið til að út-
skýra stjórnarstefnuna.
Það hefnr verið honum styrkur
að hann hefur notið stuðnings
nýs og áhrifamikils ritara kristi-
legra demókrata, Ciriaco de Mita,
sem reynir að blása nýju lífi í
fiokkinn með skipun tækni-
menntaðra manna í mikilvæg
embætti og nútímalegri og lýð-
ræðislegri hugmyndum og vinnu-
brögðum.
Fyrir aðeins einu ári var flokk-
ur kristilegra demókrata, sem þá
hafði farið með völdin frá stríðs-
lokum, afskrifaður og því haldið
fram að hann væri að dauða kom-
inn. De Mita hefur breytt þessu
áliti, haldið uppi andófi gegn
Craxi og treyst stöðu flokksins.
Hann er staðráðinn í að tryggja
að flokkurinn haldi velli í kosn-
ingunum. Ein af ástæðunum til
þess að kristilegir demókratar
samþykktu kosningar nú, þótt
tregir væru, var e.t.v. sú að hætt-
an, sem þeim hefur stafað frá
sósíalistum, er líklega í rénun.
Tveimur mánuðum eftir að
Fanfani komst til valda náðist
samkomulag um ítalska vísitölu-
kerfið, sem kennt er um að ítölsk
fyrirtæki geta ekki keppt við er-
lend fyrirtæki og hefur valdið því
að laun hafa hækkað meira en
framfærslukostnaður. Eftir 15
mánaða viðræður samþykkti
verkalýðshreyfingin breytingu á
kerfinu þegar atvinnurekendur
höfðu hótað að leggja það niður
einhliða. Samkomulagið er talið
mikilvægasta afrek Fanfani-
stjórnarinnar, en við mikla erfið-
leika er að stríða í efnahagsmál-
um.
Verðbólgan á Ítalíu var 16,5% í
fyrra og rúmlega 9% þjóðarinnar
eru atvinnulaus. Italíustjórn er
ein fárra ríkisstjórna í Evrópu,
sem hefur ekki gripið til raun-
verulegra aðhaldsaðgerða, og þar
sem kosningar hafa legið í loftinu
hefur ekki náðst samkomulag um
raunverulegan sparnað.
Ýmsar hækkanir hafa hins
vegar verið samþykktar, nú síð-
ast 20% hækkun á járnbrautar-
fargjöldum og 3,7% hækkun á
rafmagnsverði. Verð á bensíni
hefur ekki lækkað þrátt fyrir
lækkun olíuverðs á heimsmark-
aði. Stjórnin ákvað að nota einn
og hálfan milljarð dala, sem
sparaðist, til að draga úr miklum
halla á fjárlögum.
Sósíalista og kristilega demó-
krata hefur oft greint á í efna-
hagsmálum. En sósíalistar hafa
nefnt fáar ástæður fyrir óánægju
sinni með stjórn Fanfanis aðra
en þá að kristilegir demókratar
hafi tekið upp nýja íhaldsstefnu.
Sósíalistar réttlæta m.a. til-
raunir sínar til að koma af stað
kosningum með því, að vegna
mikils efnahagsvanda þurfi ítalir
trausta, langlífa og styrka ríkis-
stjórn, sem geti lagt grundvöll að
markvissri stefnu og hrundið
henni í framkvæmd í stað þess að
stöðugt sé treyst á bráðabirgða-
ráðstafanir. Nauðsynlegt sé að
hreinsa loftið með nýjum kosn-
ingum.
Ef sósíalistar fá eins mikla
fylgisaukningu og þeir vona má
vera að draumur Craxi um for-
sætisráðherraembættið rætist.
Hugsanlegt er talið að sósíalistar
og Lýðveldisflokkurinn auki fylgi
sitt nokkuð í kosningunum og
hægriöfgamenn telja sig hafa
meðbyr nú þegar minnzt er 100
ára afmælis Mussolinis. En al-
mennt er ekki búizt við meiri-
háttar breytingum á styrkleika-
hlutföllum stjórnmálafiokkanna.
Vikuritið „II Mondo" segir: „Allir
eru sammála um eitt: ekkert mun
breytast."
ELEGANT
SILFURPLETT
POSTULÍN — GLERVÖRUR
OG MESSING