Morgunblaðið - 19.05.1983, Side 24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1983
25
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1983
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsíngar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 210 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 18 kr. eintakiö.
Krossapróf
Alþýðubandalagsins
Alþýðubandalagið háði
kosningabaráttu í liðn-
um mánuði með „samkomu-
lagsgrundvöir, sem svo var
kallaður, að leiðarljósi. Þessi
„samkomulagsgrundvöllur"
var kynntur sem stefnumörk-
un þess í þjóðmálum og hugs-
anlegu samstarfi við aðra
flokka að kosningum loknum.
Það hefur vakið þjóðarat-
hygli að Svavar Gestsson,
formaður Alþýðubandalags-
ins og handhafi stjórnar-
myndunarumboðs, lagði ekki
fram þennan „samkomulags-
grundvöll", er hann hóf
stjórnarmyndunartilraunir
sínar. Hann hafði raunar
engar tillögur handbærar !í
þeim viðfangsefnum, sem
væntanleg ríkisstjórn verður
óhjákvæmilega að kljást við.
Þess í stað breytti hann
stjórnarmyndunarviðræðum
í einskonar samkvæmisleik
eða krossapróf, sem verður að
telja heldur nöturleg vinnu-
brögð. Þingflokkar fengu í
fyrradag til meðferðar spurn-
ingalista frá handhafa
stjórnarmyndunarumboðs-
ins, þar sem leitað er svara
við 20 spurningum, sem
spyrjandinn hefur forðast
eins og heitan eldinn að svara
sjálfur. Sama er að segja um
flokk hans. Þingflokkur sjálf-
stæðismanna tók þá sjálf-
sögðu afstöðu til þessa
„spurningaþáttar", að vísa
honum til föðurhúsa, enda
eðlilegt upphaf stjórnar-
myndunartilrauna af hálfu
Svavars Gestssonar að hann
svari sjálfur eigin spurning-
um, tæpitungu- og undan-
bragðalaust.
Ef lesið er milli lína í
krossaprófi Alþýðubanda-
lagsins sýnist það stefna í
frestun verðbóta um einn
mánuð og skerðingu þeirra
þá, innflutningshöft, einhliða
aðgerðir í samskiptum við
ÍSAL og óbreytta stöðu
varnarliðsins á Keflavíkur-
flugvelli. Ekkert af þessu
kemur á óvart. Alþýðubanda-
lagið hefur staðið að 14
verðbótaskerðingum launa
frá 1978, án þess að um heild-
stæðar efnahagsaðgerðir hafi
verið að ræða. Það hefur
ávallt teflt „bráðabirgða-
reddingum" gegn frambúðar-
lausnum. Það hefur og setið
og situr enn í aðildarstjórn
að NATÓ og varnarsamningi
við Bandaríkin, þó það hafi
hinsvegar komið í veg fyrir
nauðsynlegar framkvæmdir
eins og byggingu nýrrar
flugstöðvar og nýrra elds-
neytisgeyma. Það hefur
klúðrað eðlilegum verðhækk-
unum á raforku til orkuiðn-
aðar. Innflutnings- og verð-
lagshöft, eða boðun hafta-
búskapar yfirhöfuð, er heldur
ekki nýtt af nál í „úrræðum"
þess.
Þau sjónarmið hafta og
sýndarlausna, sem lesa má út
úr krossaprófi Alþýðubanda-
lagsins, hafa verið meinsemd
ríkisstjórna hér á landi síðan
1978, og höfuðorsök þess
vandræðaástands í þjóðar-
búskapnum sem við er að
fást. Þessi óþurftarsjónarmið
eiga ekkert erindi á borð
nýrrar ríkisstjórnar. Þau
hafa einfaldlega dæmt sig úr
leik.
Alþýðubandalagið, eitt ís-
lenzkra stjórnmálaflokka,
stefnir að því bæði leynt og
ljóst að breyta þjóðfélagsgerð
þingræðis og lýðræðis, sem
við búum við, í þjóðfélag sósí-
alisma og hagkerfi marx-
isma. Þrátt fyrir nafnbreyt-
ingar, úr Kommúnistaflokki í
Sósíalistaflokk og úr Sósíal-
istaflokki í Alþýðubandalag,
til að fela pólitíska fortíð,
rætur og arfleifð, flaggar
flokkurinn enn með því meg-
inmarkmiði, að koma hér á
þjóðfélagsgerð sósíalismans.
Hvar sem slík þjóðfélagsgerð
hefur verið reynd og hvern
veg sem hún hefur verið út-
færð hefur niðurstaðan orðið
hin sama: verulega þrengd
mannréttindi og afgerandi
minni verðmætasköpun á
hvern einstakling, sem er eini
marktæki mælikvarðinn á al-
menn lífskjör. Það kemur því
úr hörðustu átt þegar Svavar
Gestsson leggur þá viðvörun
út sem aðför að lýðræði og
þingræði að gjalda varhug
við stjórnarforystu af hans
hálfu.
Félagi flokksformaður,
Svavar Gestsson, hefur nú
breytt stjórnarmyndunarvið-
ræðum í eins konar krossa-
próf, til að breiða yfir stefnu-
og samstöðuleysi eigin flokks
í þeim vandamálum í efna-
hags- og atvinnulífi, sem við
er að kljást, og eru arfleifð
fjögurra ára stjórnaraðildar
Alþýðubandalagsins. Hann
hefur með þessum vinnu-
brögðum réttlætt, öðrum bet-
ur, þá kenningu Morgun-
blaðsins, að stjórnarmyndun-
arumboð í hans höndum sé
tímasóun. Það stendur og
óhaggað, að það eykur ekki
veg Islands út á við, að for-
maður Alþýðubandalagsins,
sem er arftaki aðildarflokks
að Komintern, hafi þar for-
ystu um stjórnarmyndun.
Lofsaungurmn
Athugun mín á „0 Guði vors
lands" sem þjóðsaung breytir í
aungu aðdáun minni á snilli-
gáfu Matthíasar Jochumsson-
ar sem skálds. Kanski gætir
dálítils misskilníngs hjá
kunnkonu minni, önnu Þór-
hallsdóttur saungvara, í Morg-
unblaðinu á dögunum, einkum
í þeim púnkti sem snertir
þennan lofsaung og kendur er
við þjóðhátíðina 1874; (bið af-
saka að ég er seinn til svars;
var á brott úr landi rúman
mánuð).
Snúum okkur þá í svip að
hinum hástilta lofsaung og
gefum gaum þó ekki væri
nema að þessari sérstöku há-
stillíngu kvæðisins:
„ílr sólketfum himnanna hnýta þér krans
þínir berekarar, tímanna safn.“
Jafnvel þó ekki væru nema
þessar tvær ljóðlínur, hljóta
þær að gera að verkum að
kvæðinu verður aungvanveg-
inn skipað í flokk með venju-
legum ættjarðarljóðum. Þetta
er lofsaungur. Fjarstæða að
kalla þetta þjóðsaung. Óðar en
maður hefur slept orðinu hlýt-
ur sú spurníng að sækja á:
hvaða herskarar eru þetta? Og
hvaða stríð?
Segja mætti með nokkrum
rétti að svona kvæði ætti ekki
mikla samleið með ættjarðar-
bókmentum, því það er í fyrsta
lagi jarðlaust og í öðru lagi
tímalaust. Maður skyldi halda
að kvæðið væri ort á stað og
stund þar sem þúsund ár eru
lágmarkseiníng í tíma. Ekkert
gerist, utan herskarar eingla
úr Gamla testamentinu hnýta
guðinum krans. Mannlegt
lífsmark hvergi í sjónmáli.
Um sagnfræðileg mótíf eða
atburði er semsé hvorki skap-
að né skorið í þessu kvæði; sá
Guð vors lands útí sólkerfun-
um, sem ákallaður er f upphafi
kvæðis, er einföld fjarstæðu-
hugmynd, absúrdismi, án
stuðníngs í kristinni kenníngu
eða öðrum eingyðistrúarbrögð-
um. Greinilega er þetta lof-
kvæði til guðdóms, sem þó ekki
virðist vera Guð kristinna
manna sem vér þekkjum. Þess-
um Guði er í þjóðhátíðarkvæð-
inu frá 1874 ekki gefið neitt
einkenni né „attríbút", nema
hann hefur um sig mikla
herskara: „Úr sólkerfum
himnanna hnýta þér krans,
þínir herskarar." Þetta er óís-
lensk guðshugmynd og ég held
ókristileg, þó ekki sé dýpra
tekið í árinni; því hvaða her-
skara hafði lausnarinn hjá sér
á krossinum? Tvo ræníngja
sinn til hvorrar handar.
Því hefur verið haldið fram
að guðshugmynd þjóðhátiðar-
kvæðisins hjá Matthíasi 1874
kunni að eiga rætur sínar í
únítarisma, og ekki er
svonefnd sáluhjálpartrú. Þá
skoðun rökstyður ekkert betur
en frásögn séra Matthíasar
Jochumssonar sjálfs. Skáldið
var sannanlega orðinn meiren
lítið ánetjaður þeim mönnum,
únítörum, um þessar mundir
og reyndar leingi síðan, að því
er lesið verður í sjálfsævisögu
hans, og hefur feingist staðfest
úr öðrum áttum. Þjóðhátíðar-
árið tók hann, að því er ævi-
sagan hermir, fé að láni hjá
þessum trúflokki í Einglandi
til að gefa út blað á íslandi
(Þjóðólf) 1874, og var það jafn-
snemma þúsundárahátíðinni á
Þíngvöllum. Þetta hefur aldrei
verið launúngarmál og síst
Matthíasi sjálfum, en hann
getur að góðu viðskifta sinna
við þessa menn í endurminn-
íngum sínum.
Kvæði einsog „Ó Guð vors
lands", sem hvorki er kristi-
legt samkvæmt guðfræði né
almennri menníngarsögulegri
skilgreiníngu, verður ekki
þjóðsaungur íslands né ann-
arra landa þó það hallist að
herskáum einglum úr fornum
kirkjulegum gluggamyndum;
enda kemur Kristur hvergi
nálægt þessu kvæði um „Ó Guð
vors lands". Halldór Laxness
Yonumst til að fóik
þurfi ekki að ör-
vænta um vinnu sína
Stefnum að humarvinnslu er vertíðin hefst, segir Ólafur B. Ólafsson
samvinnu við Miðnes hf. f Sand-
gerði, þannig að veiðar og vinnsla
geti haldið áfram og síðast en ekki
sízt til þess að veita starfsfólki
okkar áframhaldandi atvinnu,"
sagði Ólafur B. Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Keflavíkur hf. þegar
Morgunblaðið innti hann eftir
endurreisn frystihúss fyrirtækisins
eftir brunann á þriðjudag.
ólafur sagði, að bjarti punktur-
inn við þetta væri sá, að afurðir í
frystigeymslum virtust hafa
sloppið nánast alveg. Reyk- og
vatnsskemmdir væru á umbúðum
og unnið væri að því af kappi, að
umpakka fiskinum og koma hon-
um í skip eða aðra geymslu, þar
sem frost væri farið af geymslun-
um. Nú væru matsmenn frá
Tryggingamiðstöðinni og Bruna-
bótafélagi Islands að kanna
skemmdir, en niðurstaða lægi ekki
fyrir enn. Ljóst væri þó að öll þök
á sambyggingunum væru meira og
minna ónýt, en veggir stæðu mis-
mikið skemmdir. öll tæki í snyrti-
og pökkunarsal væru ónýt, en vél-
ar í flökunarsal væru óskemmdar
og frystitæki að mestu óskemmd.
Þá gerðu menn sér vonir um, að
lagfæra mætti mótora við frysti-
pressur, en röra- og raflagnir frá
írystivélasal væru allar ónýtar.
ólafur sagði, að Keflavík hf.
ætti tvo togara í sanivinnu við
Miðnes í Sandgerði, sem væru að
veiðum ásamt bátum fyrirtækj-
anna. Brýnt væri, að finna leiðir
til þess, að taka við hráefni skip-
Ólafur B. Ólafsson
anna og þannig veita starfsfólki
atvinnu áfram. Möguleikar væru á
að fjölga vinnsluborðum í frysti-
húsi Miðness og vinna allan afl-
ann þar. Næðist það ekki væru
möguleikar á samvinnu við önnur
fyrirtæki á svæðinu.
„Við munum halda skipunum
úti og þar með er hráefnið áfram
fyrir hendi. Með því haida sjó-
menn okkar vinnu sinni og í landi
ætti að þurfa svipaðan fjölda fólks
og áður til að vinna aflann. Við
reiknum með að um 60 manns
muni starfa við humarvinnsluna í
sumar, en 180 til 200 manns hafa
verið í vinnu hjá okkur á sumrin.
Við gerum allt, sem í okkar valdi
stendur til að tryggja fólki okkar
atvinnu og vonumst til að það
þurfi ekki að örvænta," sagði ólaf-
ur.
í gær var unnið af kappi við að bjarga fiski úr frystigeymslum fyrirtækisins, en hann var að mestu óskemmdur.
Séð niður í vinnusalinn. Þakið brunnið og að mestu fallið niður.
IJfamjndir MorpubMM/ Gobjóo.
„ÞEGAR VIÐ höfum lokið við að
bjarga fiskinum úr fiskigeymslun-
um, snúum við okkur að því, að
byggja yfir tækja- og vélasali. Tæki í
þessum sölum eru lítið skemmd og
við stefnum að því að hefja humar-
vinnslu, þegar vertíðin hefst f lok
þessa mánaðar. Við leggjum áherzlu
á, að leysa annan vanda okkar í
Reykjavíkurborg tekur
við Ásmundarsafni:
350 höggmynd-
ir, 2.000 teikn-
ingar og fjöldi
ljósmynda
FORMLEG afhending Ásmund-
arsafns verður á laugardaginn, er
Davíð Oddsson, borgarstjóri, veit-
ir því viðtöku, en Ásmundur
Sveinsson, myndhöggvari, ánafn-
aði borginni safn sitt eftir sinn
dag. A blaðamannafundi, sem
efnt var til í Ásmundarsafni við
Sigtún í gær, kom meðal annars
fram, að búið er að skipa stjórn
safnsins, og eiga sæti í henni þau
Einar Hákonarson, formaður,
Hulda Valtýsdóttir, Guðrún Erla
Geirsdóttir og Ásdís Ásmunds-
dóttir. Forstöðumaður listasafns-
ins er Gunnar B. Kvaran, listfræð-
ingur.
Á blaðamannafundinum í
gær kom meðal annars fram
eftirfarandi hjá Gunnari B.
Kvaran:
Ásmundarsafn hefur að
geyma fjölda stórfenglegra
listaverka, sem Ásmundur
Sveinsson, myndhöggvari,
ánafnaði Reykjavíkurborg eftir
sinn dag.
Nú eru skráðar í safninu um
350 höggmyndir að meðtöldum
gifsmyndum og eirafsteypum;
2000 teikningar, sem eru teikni-
æfingar, frummyndir verka eða
sjálfstæð listaverk; og fjöldi
ljósmynda sem oft sýna ólík
þróunarstig myndverka. Safnið
býður upp á marpu'slega mögu-
leika og lifandi starfsemi. í
framtíðinni er ætlunin að halda
þar reglulega sýningar. Verður
þá listsköpun Ásmundar skoðuð
út frá sem fjölbreytilegustum
sjónarhornum.
I tilefni af opinberri afhend-
ingu safnsins og þess að 90 ár
eru liðin frá fæðingu lista-
mannsins þótti við hæfi að
halda yfirlitssýingu, sem
spannaði langan og litríkan list-
feril Ásmundar. A sýningunni,
sem nú stendur yfir í safninu,
gefur þó aðeins að líta hluta af
eign safnsins. Hér hefur verið
lögð áhersla á að velja og sýna
verk, sem eru einkennandi fyrir
Ásdís Ásmundsdóttir — dóttir listamannsins, og Gunnar B. Kvaran með teikn-
ingu Ásmundar eða frumdrög að styttunni sem sést á innfelldu myndinni,
heybandi. LjAsm.: Ólifur K. Magnússon.
sérhvert tímaskeið í list Ás-
mundar. Einnig hefur verið
reynt að raða saman stílfræði-
lega tengdum verkum. Áhorf-
endur fá þannig tækifæri til
þess að virða fyrir sér form-
breytingar í verkum lista-
mannsins.
í elstu verkunum (uppi í Kúl-
unni) tökum við eftir margvís-
legum og jafnvel sundurleitum
formrannsóknum, sem síðar
áttu eftir að ala af sér hina
persónulegu formskrift lista-
mannsins á fjórða áratugnum
(niðri í Kúlunni og Salnum). Á
næstu áratugum áttu sér síðan
stað miklar breytingar í list Ás-
mundar, þar sem listamaðurinn
lagði megináherslu á að leysa
upp og afvegaleiða hin náttúru-
legu hlutföll og form, og fjar-
lægjast þannig hina hefð-
bundnu skólasýn. Þessi úr-
vinnsla formsins fæddi eðlilega
af sér hina óhlutlægu list Ás-
mundar sem oftast er táknræn
og hefur jafnvel að geyma
ákveðnar sögur.
En þrátt fyrir þennan stór-
brotna og margþætta feril lista-
mannsins má auðveldlega
merkja ákveðinn stöðugleika í
inntaki og formi: stíl Ásmundar
Sveinssonar.
Athugasemd frá Flugleiðum:
Flugleiðir hafa sér-
leyfi tii Grænlands
í TILEFNI af yfirlýsingu Arnarfiugs
í fjölmiölum 18. maí um áhuga þess
félags aó taka að sér áætlungarflug
milli íslands og Grænlands, vilja
Flugleiðir taka fram eftirfarandi:
I sumar halda Flugleiðir uppi
reglubundnu áætlunarflugi milli
Keflavíkur og Narssarssuaq með
Boeing 727-þotu. Flogið er á
sunnudögum og miðvikudögum og
I tengslum við þetta flug eru
skipulagðar 4—8 daga skoðunar-
ferðir til nokkurra staða á Græn-
landi. í Narssarssuaq er gist á
Arctic hóteli sem er mjög gott
hótel og búið öllum þægindum.
Þá halda Flugleiðir einnig uppi
flugi milli Reykjavíkur og Kulus-
uk á Grænlandi þrisvar í viku í
sumar. Flogið er á mánudögum,
miðvikudögum og fimmtudögum
með Fokker Friendship skrúfuþot-
um og í tengslum við þetta flug er
boðið upp á 4—5 daga skoðunar-
ferðir til Angmagssalik og fleiri
staða.
Skipting
flugleiða
Með einhliða ákvörðun sam-
gönguráðuneytisins á síðastliðinu
ári var ákveðin skipting á flugleið-
um millilandaflugs Arnarflugs og
Flugleiða. Þá var Flugleiðum með-
al annars veitt sérleyfi til alls
áætlunar- og leiguflugs milli Is-
lands og annarra' Norðurlanda.
Grænland og Færeyjar teljast
ótvírætt til Norðurlanda, enda si-
nna Flugleiðir áætlunarflugi til
beggja þessara landa og hafa ha-
ldið uppi reglubundu áætlunar-
flugi til Færeyja í 20 ár.
Flugleiðir líta svo á, að með
þessari ákvörðun samgönguráðun-
eytisins hafi félagið nú þegar hlot-
ið tilnefningu íslenskra stjórn-
valda til alls áætlunar- og leigufl-
ugs milli Islands og Grænlands.
Á viðræðufundi íslenskra og
grænlenskra stjórnvalda í Reykja-
vík þann 7. mars sl. kom fram
áhugi á að haldið verði uppi áætl-
unarflugi milli íslands og Græn-
lands allt árið, en jafnframt viður-
kennt að áætluð flutningsþörf að
vetrarlagi sé mjög lítil.
Sigurður Helgason, forstjóri
FRANSKA blaðið „Nice Matin“
segir í grein, sem birtist í blaðinu í
aprílbyrjun, að undirbúningur ís-
lands-rallýsins svonefnda sé í fullum
gangi og að Jean-Claude Bertrand
hafi kynnt fyrirhugað rall á fundum
í Frakklandi.
Blaðið segir frá slíkum fundi,
sem haldinn var í Nice 2. apríl, en
þar voru saman komnir yfir 400
ralláhugamenn og hafa ýmsir
þeirra tilkynnt þátttöku í fs-
landsrallinu, sem fyrirhugað er í
ágústmánuði.
Segir blaðið frá aðstæðum til
keppni á íslandi og var sýnd
kvikmynd frá staðháttum á ís-
landi á fundum í Nice. Segir blaðið
að vegna þess hversu erfið keppn-
Flugleiða, hefur fyrir nokkru ritað
samgönguráðuneytinu bréf þar
sem kemur fram, að félagið er
reiðubúið til að kanna nánar
rekstrargrundvöll fyrir slíku áætl-
unarflugi milli íslands og Græn-
lands allt árið, til dæmis á svipað-
an hátt og áætlunarflugi milli ís-
lands og Færeyja hefur verið sinnt
að undanförnu. Að hluta til hafa
verið notaðar minni skrúfuþotur
frá Flugfélagi Norðurlands, auk
þess sem stærri flugvélar Flugl-
eiða hafa flogið á þeirri leið.
isleiðin sé á vissum leiðum verði
keppt á mótorhjólum á sex sér-
leiðum til þess að forðast óþarfa
vélarbilanir í keppnisbifreiðunum.
Eins og kunnugt er hafði dóms-
málaráðuneytið til meðferðar
hvort leyfa skyldi Islandsrall
Frakkans Jean-Claude Bertrand.
Ráðuneytið tók þá afstöðu að lög-
regluyfirvöld á hverjum stað, þ.e.
sýslumenn, yrðu að skera úr um
hvort rallið færi fram eða ekki.
Morgunblaðinu er kunnugt um að
umboðsmenn Bertrand hér á
landi, Landssamband aksturs-
íþróttamanna, hafa kannað hvort
hægt verði að halda rallið eða
ekki, en niðurstaða liggur ekki
fyrir.
íslandsrall Frakkands Jean-Claude Bertrand:
Undirbúningur á
fullu í Frakklandi